Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Side 17
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
33
DV
Sport
1- 0 Sigurður R. Eyjólfsson..(25.)
2- 0 Sigurvin Ólafsson ......(27.)
3- 0 Veigar Páll Gunnarsson .... (45.)
4- 0 Steingrímur Eiðsson, sjálfsm. (53.)
Viðureign KR og KA í deildabik-
arnum á fostudaginn var aldrei eins
spennandi og vonir stóðu til. KA-
menn voru greinilega þreyttir eftir
ferðalagið að norðan og náðu sér
aldrei á strik. KR-ingar gengu á lag-
ið og gerðu út um leikinn siðustu 20
mínútumar í fyrri hátleiknum og
fóru að lokum með sigur, 4-0.
Leikurinn fór mjög rólega af stað
og var jafnræði með liðunum fyrstu
20 mínútur leiksins. Þorvaldur
Makan, fyrirliði KA-manna, átti
fyrsta færi leiksins á 21. mínútu en
gott skot hans sveif rétt yfir KR-
markið.
Það var engu likara en KR-ingar
hefðu vaknað af værum svefni við
skot Þorvaldar þvi þeir smelltu í
fjórhjóladrifið og byrjuðu að þjarma
að norðanmönnum. Sú pressa bar
árangur á 25. mínútu er Sigurður
Ragnar Eyjólfsson kom KR-ingum
yfir með góðu marki. Hann fékk
góða sendingu inn í teiginn frá
Jökli Elísabetarsyni og skaut knett-
inum milli fóta Áma i KA-markinu.
Aðeins tveim mínútum síðar áttu
KR-ingar aftur góða sókn og endaði
hún með því að Sigurvin Ólafsson
fékk laglega sendingu inn í teiginn
og hann var ekki í nokkrum vand-
ræðum með að koma boltanum í
netið af stuttu færi.
Sigurvin hefði getað bætt við
þriðja markinu fimm mínútum síð-
ar er hann prjónaði sig laglega í
gegnum vörn KA-manna en Ámi
Skaptason varði skot hans vel. KR-
ingar voru enn á ferðinni á 36. mín-
útu er Sigurður Ragnar fékk dauða-
færi en KA-menn björguðu á línu.
Þeir gengu síðan endanlega frá
leiknum skömmu áður en flautað
var til leikhlés. Þá átti Jökull fína
rispu upp hægri kantinn, gaf góða
sendingu fyrir beint á kollinn á
Veigari Páli sem skallaði örugglega
í netið, 3-0. Síðasta mark leiksins
kom á 53. minútu er Steingrímur
Eiðsson varð fyrir því óláni að
skalla I eigið mark. Þar með var
leiknum óformlega lokið. Báðir
þjálfarar skiptu varamönnum sin-
um inn á völlinn og leikurinn rann
út í rólegheitum án þess að það
drægi verulega til tíðinda.
KR-ingar léku síðustu 20 mínútur
fyrri hálfleiks virkilega vel. Boltinn
gekk vel manna í millum og þeir
nýttu kantana vel þar sem þeir Jök-
ull Elísabetarson og Scott Ramsey
voru öflugir. Sigurvin Ólafsson var
einnig ágætur á miðjunni og Veigar
Páll sýndi ágæta takta á köflum.
KA-menn náðu sér aldrei al-
mennilega á strik í leiknum. Þeir
virkuðu þreyttir, enda nýkomnir í
bæinn, og náðu aldrei að sýna sitt
rétta andlit. Árni markvörður var
þeirra besti maður í leiknum og
varði oft vel og bjargaði sínum
mönnum frá stærra tapi. Jón Örv-
ar og Þorvaldur áttu ágæta kafla á
miðjunni og Jóhann Helgason átti
góða spretti framan af en broddur-
inn úr sóknarleik þeirra hvarf við
fjarveru hans.
Willum Þór Þórsson var nokkuð
sáttur er DV-Sport hitti hann í leiks-
lok.
„Það voru ágætiskaflar í þessu
svona miðað við árstíma. Það er
reyndar staðreynd að þeir voru
þreyttir. Þeir voru þreyttir eftir
ferðalagið og það má kannski segja
að viö höfum grætt svolítið á því,“
sagði Willum.
Maður leiksins: Jökull Elisa-
betarson, KR -HBG
A-riðill
Úrslit:
KR-KA . . . . . 4-0
ÍA-Keflavík .2-3
Stjaman-Fram Staðan: . 0-4
KR 2 2 0 0 7-0 6
Fram 2 2 0 0 6-1 6
Þór Ak. 1 1 0 0 1-0 3
ÍA 2 1 0 1 1-1 3
Stjarnan 1 0 0 1 0-4 0
Keflavik 2 1 0 1 4-4 3
Afturelding 1 0 0 1 0-3 0
KA 2 0 0 2 0-5 0
Markahæstu menn:
Kristján Brooks, Fram .............3
Andri Fannar Ottósson, Fram .... 2
Garðar Jóhannsson, KR .............2
Magnús Þorsteinsson, Keflavík ... 2
Sigurður R. Eyjólfsson, KR.........2
Þórarinn Kristjánsson, Keflavík . . 2
Næstu leikir:
Þór Ak.-KA..........5. mars, kl. 19
Fram-Afturelding .. 7. mars kl. 18.30
Keflavík-Stjaman ... 8. mars, kl. 14
KR-ÍA...............9. mars, kl. 20
Keflvíkingurinn Hólmar Rúnarsson
reynir hér að stoppa Skagamanninn
Andra Karvelsson í leik liöanna í A-
riðli deildabikars KSÍ í Fífunni f
Kópavogi á laugardaginn.
DV-mynd Hari
Ynpbiröip
- Framara gegn slökum Stjörnumönnum
1- 0 Andri F. Ottósson ...(10.)
2- 0 Kristján Brooks......(15.)
3- 0 Viðar Guðjónsson.....(32.)
4- 0 Kristján Brooks......(43.)
Framarar sýndu á köflum frá-
bæra knattspyrnu er þeir mættu
Stjömumönnum í Fífunni á laug-
ardaginn. Þeir yfírspiluðu Garð-
bæinga nánast frá fyrstu mfnútu,
sköpuðu sér fjöldamörg færi og
unnu að lokum glæstan sigur, 4-ð.
Framarar byijuöu leikinn af
miklum krafti. Náðu strax tökum
á miðjunni og fyrsta færi leiksins
leit dagsins ljós á 6. mínútu er
Andri Fannar Ottósson slapp í
gegnum vöm Stjörnumanna en
hann lét verja frá sér.
Á 10. mínútu urðu markverði
Stjömunnar á slæm mistök. Út-
spark hans misheppnaöist hrapal-
lega og fór beint á kollinn á Krist-
jáni Brooks sem skallaði boltann
inn fyrir þar sem Andri Fannar
var einn á auðum sjó og honum
urðu á engin mistök í þetta skipt-
ið. 1-0 fyrir Fram en þó verður að
segjast að Andri Fannar var grun-
samlega langt fyrir innan.
Fyrsta og eina færi Stjömu-
manna kom síðan 2 mínútum síð-
ar er þeir áttu skalla sem fór ofan
á slá Framara. Ágætistilraun en
því miður fyrir Stjömumenn þá
lauk dagskránni hjá þeim þama.
Einungis fimm mínútum eftir
fyrsta markið átti Daði Guð-
mundsson góða rispu upp vinstri
vænginn. Hann sendi svo laglega
sendingu fyrir sem fór beint á
Kristján Brooks sem átti ekki í
miklum erfiðleikum með að skora
af stuttu færi.
Á 32. mínútu voru Framarar
enn og aftur á ferðinni og að þessu
sinni var komið að Viðari Guð-
jónssyni. Hann stökk manna hæst
í teignum eftir góða homspymu
og skallaði örugglega í markið,
3-0.
Ómar Hákonarson skeiðaði síð-
an upp hægri vænginn þrem mín-
útum síðar og gaf frábæra send-
ingu fyrir á Kristján sem lét verja
frá sér. Frábært færi og undirbún-
ingurinn góður og Stjömumenn
vom heppnir að lenda ekki fjórum
mörkum undir þama.
Þeir sluppu aftur með skrekk-
inn á 37. mínútu er Andri Fannar
komst enn og aftur í færi en gott
skot hans small í stöng Stjörnu-
manna.
Ómar Hákonarson var aftur á
ferðinni tveim mínútum fyrir leik-
hlé er hann átti góðan sprett upp
hægri vænginn. Enn og aftur fann
hann Kristján í teignum sem ætl-
aði ekki að klúðra aftur og skoraði
örugglega af stuttu færi. 4-0 og
þessum leik lokið strax í fyrri hálf-
leik.
Stjömumenn mættu grimmir til
síðari hálfleiksins en gekk illa að
skapa sér færi. Við það rann af
þeim móðurinn, Framarar tóku
völdin á ný og sköpuðu sér fjölda
dauðafæra sem þeim tókst ekki að
nýta á einhvem óskUjanlega hátt.
Á 81. mínútu gerðist siðan um-
deUt atvik þegar Stjörnumenn
fengu dæmda aukaspyrnu. Viðar
Guðjónsson hélt boltanum og var
ekki á þeim buxunum að láta VU-
hjálm Ragnar VUhjálmsson fá
hann. Vilhjálmur gerði sér þá lítið
fyrir og hrinti Viðari í grasið og
hefði fyrir það átt að fá hiklaust
rautt spjald. Einar Öm Daníelsson
sá þó aumur á Vilhjálmi og veitti
honum tUtal en hefði án vafa átt
að reka hann af veUi en Einar
dæmdi leikinn annars mjög vel.
Framarar spUuðu frábærlega í
þessum leik. Sóknarleikur þeirra
var verulega beittur og þeir Ómar
Hákonarson og Daði Guðmunds-
son voru virkUega öflugir á könt-
unum. Inn á miðjunni réðu Viðar
og Freyr Karlsson ríkjum og í
fremstu víglínu voru þeir Kristján
og Andri Fannar mjög sprækir en
klúðruðu þó helst tU of mörgum
dauðafærum en Framarar hefðu
hæglega getað unnið þennan leik
mun stærra. SpUamennska þeirra
upp á síðkastið hefur verið mjög
sannfærandi og þeir era líklegir
tU afreka í þessari keppni.
Stjömumenn áttu afleitan dag
að þessu sinni. SpUamennska
þeirra var ómarkviss og leikur
þeirra í heUd Ula skipulagður.
Vilhjálmur Ragnar var sá eini sem
sýndi lit á köflum og gamla brýnið
Valdimar Kristófersson bjargaði
oft ágætlega i vöminni en það dró
verulega af honum í síðari hálf-
leik.
Maður leiksins: Ómar Hákon-
arsons, Fram. -HBG
Rnn fótbolti
- þegar Keflvíkingar lögöu Skagamenn, 3-2, í hörkuleik í Fífunni
0-1 Hjálmur Dór Hjálmsson (19.)
1- 1 Þórarinn Kristjáns.,víti . .(25.)
2- 1 Magnús Þorsteinsson . . .(34.)
2- 2 Garðar Gunnlaugsson . . .(40.)
3- 2 Þórarinn Kristjánsson . . .(52.)
Keflvíkingar og Skagamenn buðu
upp á fina skemmtun i Fífunni á
laugardaginn er þeir mættust í
deUdabikamum. Bæði lið voru að
leika góðan fótbolta en það voru
Keflvíkingar sem reyndust sterkari
og sigmðu þeir sanngjamt, 3-2.
Nokkurt jafnræði var með liðun-
um tU að byrja með. Skagamenn
réðu þó ferðinni en Keflvíkingar
beittu öflugum skyndisóknum. Það
vom Skagamenn sem tóku foryst-
una á 19. mínútu er Guðjón Sveins-
son tók góða hornspymu á nær-
stöng þar sem Hjáhnur Dór var
mættur og hann skallaði laglega í
markið. Fimm minútum síðar var
brotið á Þórami Kristjánssyni inn-
an teigs og Gylfi Orrason dæmdi
réttUega vitaspymu. Þórarinn skor-
aði sjálfur örugglega úr spymunni.
Keflvíkingar tóku síðan forystuna
á 34. mínútu er Kristján Jóhanns-
son sendi frábæra 40 metra send-
ingu inn fyrir vöm Skagamanna
beint á Magnús Þorsteinsson sem
vippaði laglega yfir Þórð í marki
Skagamanna.
Strákamir hans Óla Þórðar létu
þó ekki bugast heldur spýttu í lóf-
ana og þeir jöfnuðu leikinn á 40.
mínútu. Pálmi Haraldsson stakk
laglega inn í teiginn á Garðar Gunn-
laugsson sem lagði boltann snyrti-
lega fram hjá Ómari Jóhannssyni.
Þetta reyndist slðasta markið í fyrri
hálfleik sem var þrælskemmtUegur
og vel spUaður af beggja hálfu.
Bæði lið fóru sér hægar í seinni
hálfleiknum ásamt þvf að meiri
harka færðist í leikinn. Hjörtur
Hjartarson fékk fyrsta færið í síðari
hálfleik en skot hans fór rétt fram
hjá marki Keflvíkinga. Tveim mín-
útum siðar komst Guðjón Antoníus-
son upp að endamörkum. Hann gaf
laglega sendingu inn í teiginn þar
sem Þórarinn Kristjánsson var
svellkaldur og skoraði laglegt mark.
Keflvíkingar náöu ágætum tökum á
leiknum eftir markið og sköpuðu
sér ágæt færi sem þeim tókst ekki
að nýta. Dampurinn datt aftur á
móti úr leik Skagamanna að sama
skapi og þeir voru aldrei nálægt því
að jafna metin.
Þórarinn Kristjánsson átti stór-
leik hjá Keflvikingum - skoraði góð
mörk og var sífeUt ógnandi. Magnús
var einnig sprækur og Jónas Sæv-
arsson var öflugur á miðjunni.
Hjálmur Dór var bestur Skaga-
manna að þessu sinni en hann lék
vel inn á miðjunni. Helgi Pétur
Magnússon var sterkur í miðverðin-
um og gaman var að sjá hinn 16 ára
gamla Ágúst Örlaug Magnússon
sem stóð sig vel í hægri bakvarðar-
stöðunni en þar er á ferð framtíðar-
maður.
Maður leiksins: Þórarinn
Kristjánsson, Keflavik -HBG