Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Page 20
36
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
Sport
Rúnar Alexandersson viröist vera í fínu formi um þessar mundir. Hann stóö sig vel á öllum áhöldum á bikarmótinu um helgina fyrir utan æfingarnar á
bogahestinum, en þær voru nokkuö mistækar. Rúnar sigraöi samt sem áöur á bogahestinum. DV-mynd Hari
Bikarmót í fimleikum fór fram í Laugardalshöllinni um helgina:
Hott l imleikaf ólk
Það voru lið Gerplu í karlaflokki og
Gróttu í kvennaflokki sem báru sigur
úr býtum í fijálsum æfingum á bikar-
mótinu í fimleikum sem fór fram í
Laugardalshöllinni á laugardag.
Lið Gerplu, með Rúnar Alexanders-
son í fararbroddi, hlaut 169,75 stig sam-
anlagt og varð á undan hinu bráðefni-
lega liði Ármanns sem fékk ails 165,60
stig. Hjá konunum voru það Grótt-
ustúlkur sem nutu góðs af nýjasta liðs-
manni sínum, Sif Pálsdóttur, og lentu í
fyrsta sæti með 92,621 stig. Næstar
komu stúlkumar frá Gerplu og í þriðja
sæti varð lið Bjarkar.
Gó6 tilþrif
Hjá körlunum var Gerpla fyrirfram
talið sigurstranglegri en Ármann, en
þar sem Gerpla hafði ekki nema fimm
keppendur en Ármann sex var ljóst að
það mætti lítið út af bregða hjá Gerplu
ef ekki ætti illa að fara, þar sem fjórar
bestu einkunnimar telja til heildar-
einkunnar. Rúnar var skiljanlega í
öðrum klassa en hinir keppendumir
og sýndi hann oft á tíðum frábærar æf-
ingar þó svo að hann hafi ekki náð sér
á strik á sinu besta áhaldi, bogahestin-
um. Aðrir sem vöktu verðskuldaða at-
hygli vom meðal annars Anton H.
Þórólfsson hjá Ármanni og bræðumir
Róbert og Viktor Kristmannssynir hjá
Gerplu.
Hjá stúlkunum var búist við harðri
keppni. íslandsmeistarinn Sif Pálsdótt-
ir keppti með Gróttu í fyrsta skipti í
bikarmóti og sýndi hún oft á tíðum
mjög góð tilþrif. Æflngar hennar á tví-
slá vora mjög vel heppnaðar og einnig
var hún með gríðarlega erfitt stökk.
Tanja B. Jónsdóttir, Björk, kom einnig
sterk til leiks eftir að hafa átt í meiðsl-
um að undanfómu og Hera Jóhanns-
dóttir var ömgg í sínum æfingum.
Meiri keppni en áöur
„Sif Pálsdóttir er að keppa í fyrsta
skipti með Gróttu á bikarmóti og hún
er vissulega mikil styrkur. Grótta er
með tvær landsliðskonur, Sif og Hörpu
Hauksdóttur, og Sif er að fá um eða yf-
ir átta í einkunn á langflestum áhöld-
um og er eiginlega í sérflokki þó svo
að fleri stúlkur séu ekki langt frá
hennar getu. Svo það var eiginlega al-
veg vitað fyrirfram að mesta keppnin
yrði um annað sætið,“ segir Hlín
Bjamadóttir, sem starfar í tækninefnd
kvenna í áhaldafimleikum ásamt því
að vera þjálfari hjá Gerplu og alþjóð-
legur dómari í fimleikum. Hún segir
að það sé greinileg framíor í íslensk-
um kvennafimleikum. „Það eru fleiri
efnilegar stúlkur að koma upp en áð-
ur. Ungar stelpur sem em ennþá í 2.
þrepi em sumar að gera jafn erfiðar
æfingar og keppendur í frjálsum æf-
ingum em að gera,“ segir Hlín.
„Það er ekki lengur svoleiðis að eitt-
hvert eitt lið hafi algjöra yfirburði.
Efniviðurinn er þannig vissulega
meiri en áður og það er alveg ljóst að
það er meiri keppni nú en fyrr.“ -vig
Unslitin á
bikanmotinu
Karlar
Gólf
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu .8,50 stig
2. Grétar Sigþórsson, Ármanni 8,20 stig
3. Gunnar Sigurðsson, Árm. . .7,90 stig
Bogahestur
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu .8,25 stig
2. Viktor Kristmanns., Gerplu .. .8,10 stig
3. Anton H. Þórólfss., Ármanni 7,50 stig
Hringir
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu .9,20 stig
2. Jónas Valgeirsson, Árm. . .7,10 stig
3. Axel Ó. Þórhanness., Gerplu6,90 stig
Stökk
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu .8,75 stig
2. Grétar Sigþórsson, Ármanni 8,40 stig
2. Viktor Kristmannss., Gerplu . .8;30 stig
Tvlslá
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu .9,20 stig
2. -3. Viktor Kristmanns., Gerplu 7,15 stig
2. -3. Jónas Valgeirss., Árm. .. .7,15 stig
Svifrá
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu .8,05 stig
3. Anton H. Þórólfss., Ármanni 7,10 stig
2. Viktor Kristmannss., Gerplu . .6,70 stig
Samanlögö stig
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu 51,95 stig
2. Viktor Kristmannss., Gerplu .44,30 stig
3. Anton H. Þórólfss., Árm. . .42,50 stig
Lokastaða liða
1. Gerpla .................169,75 stig
2. Ármann ..................165,60 stig
Konur
Stökk
1. Tanja B. Jónsdóttir, Björk 8,300 stig
2. Sif Pálsdóttir, Gróttu . . .8,250 stig
3. Inga Rós Guðmunds., Gerplu 8,150 stig
Tvíslá
1. Sif Pálsdóttir, Gróttu .. .8,000 stig
2. Inga Rós Guðmunds., Gerplu 7,067 stig
3. Hera Jóhannsdóttir, Gróttu 6,867 stig
Slá
1. Sif Pálsdóttir, Gróttu . . .8,175 stig
2. Harpa S. Hauksdóttir, Gróttu 8,100 stig
3. Tanja B. Jónsdóttir, Björk 7,950 stig
Gólf
1. Sif Pálsdóttir, Gróttu . . .8,500 stig
2. Kristjana Ólafsdóttir, Gerplu 8,000 stig
3. Tanja B. Jónsdóttir, Björk 7,970 stig
Samanlögö stig
1. Sif Pálsdóttir, Gróttu . .32,925 stig
2. Tapja B. Jónsdóttir, Björk 30,987 stig
3. Hera Jóhannsdóttir, Gróttu .29,967 stig
Lokastaða liða
1. Grótta...................92,621 stig
2. Gerpla ..................84,218 stig
3. Björk ...................80,871 stig
Rúnar Alexandersson keppti á íslandi í fyrsta skipti í langan tíma um helgina:
Markmiðið er að komast á OL
Rúnar Alexandersson var mættur í
höllina um helgina þar sem hann
sigraði ásamt félögum sínum í
Gerplu. Eitt ár er liðið síðan Rúnar
keppti síðast hér á landi og kveðst
hann alltaf sakna Islands jafnmikið.
„Það er mjög erfitt að vera svona mik-
iö í burtu frá landinu. Hér eru mínir
bestu vinir sem maður sér sjaldan og
auðvitað saknar maður þeirra," segir
Rúnar sem var bara nokkuð ánægður
meö frammistöðu sína á bikarmótinu
að undanskildum æfingunum á boga-
hestinum.
„Þessi bogahestur sem keppt var á
er einfaldlega nyög lélegur og það er
eiginlega voniaust aö ná jafnvægi á
honum. Ég heföi þurft að minnsta
kosti viku bara til að finna taktinn á
honum. Það er ekki boölegt aö hafa
svona lélega bogahesta á móturn,"
segir Rúnar. Hann hrósaði félögum
sínum í Gerplu í hástert.
„Þeir eru alltaf að bæta sig og em
orðnir miklu betri en fyrir fáeinum
árum. Gæði fimleikanna á Islandi eru
alltaf að verða meiri og meiri.“
Rúnar stundar æfingar í Svíþjóð og
æfir hann tvisvar á dag í alls 5-6
kiukkustundir samtals. „En ég er
ekki alveg nægilega ánægður í Sví-
þjóð. Ég er þar að æfa meö einstak-
lingum sem eru ekki í sama styrk-
leika og ég. Ég verð helst að fara eitt-
hvað þar sem ég fæ meiri keppni á æf-
ingum,“ segir Rúnar og bætir viö að
hann hafi ekki verið ánægður með
frammistöðu sína á síðasta ári. „Ég
veit vel að ég get gert miklu betur. En
það eru mörg mót fram undan þar
sem ég get vonandi sýnt mitt rétta
andlit,“ segir Rúnar. Hann mun á
næstunni fara á mót í Kaupmanna-
höfn, Stuttgart, Frakklandi og víðar.
Allt er þetta hluti af undirbúningnum
fýrir heimsmeistaramótið sem fer
fram í ágúst en þar er eina tækifærið
til að ná lágmarkinu á ólympíuleik-
ana. Að þeim hefur Rúnar stefnt sið-
ustu þijú ár. „Að komast á ólympíu-
leikana er mitt takmark og þangað
langar mig. Þar tel ég mig eiga mögu-
leika á að vera á meðal 36 efstu í sam-
anlagðri keppni ásamt því að ég stefni
hátt á bogahestinum,“ segir Rúnar
sem er greinilega fullur bjartsýni. En
hann viðurkennir að fimleikar snúist
að miklu leyti um dagsformið.
„Og svo má ekki gleyma heppn-
inni. Á síðasta Evróðumóti lenti ég í
9. sæti og það kom sjálfum mér mjög
á óvart. En ég hef oft gert ein mistök
á mótum og þá er allt erfiðið til
einskis," segir Rúnar og kveöst vissu-
lega geta bætt sig sem alhliða fim-
leikamaður. „Ég get bætt mig vem-
lega í stökki og á gólfæfingum en mig
einfaldlega vantar styrkinn í fætuma.
Á æfingum legg ég ekki mikía áherslu
á stökkin og í gólfæfingunum reyni ég
að bæta og fmpússa annað heldur en
stökkin. Það skilar sér vonandi,“ seg-
ir þessi frábæri íþróttamaður að lok-
um.
-vig
íslandsmeistarinn Sif Pálsdóttir stóö sig best kvenna á bikarmótinu um
helgina. Hér sést hún f æfingum sinum á tvfslá. DV-mynd Hari