Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2003, Side 4
4
MÁNUDAGUR 24. MARS 2003
Fréttir DV
Nýr meirihluti í bígerð í Eyjum:
Framsóknarfulltrúinn
án umboðs flokksins
Fulltrúaráð Framsóknarflokks
og óháðra í Vestmannaeyjum
veitir Andrési Sigmundssyni ekki
heimild til meirihlutaviðræðna
við Vestmannaeyjalistann vegna
trúnaðarbrests við stjórn og full-
trúaráð flokksins. Fjórtán manns
sátu fund um málið; 9 greiddu at-
kvæði gegn nýjum meirihlutavið-
ræðum en 5 voru hlynntir þeim.
Andrés Sigmundsson, bæjarfull-
trúi Framsóknarflokksins, segist
harma þessa niðurstöðu og segir
engan trúnaðarbrest hafa orðið.
Haft er eftir Víkingi Smárasyni,
formanni Framsóknarfélagsins í
Vestmannaeyjum, að félagið
muni starfa áfram sem flokkur og
beita sér áfram í bæjarmálum
eins og kostur er. Andrés Sig-
mundsson sleit meirihlutasam-
starfi við sjálfstæðismenn sl.
fimmtudag vegna tillagna í sam-
göngumálum Vestmannaeyinga.
„Það er tæknilegt atriði sem ég
á eftir að færa út að hafa ekki
meirihluta fulltrúaráðsins á bak
við mig. Ég finn hins vegar fyrir
gríðarlegum stuðningi við mig
hér í bænum og er sannfærður
um að ég er að gera rétta hluti í
þágu Vestmannaeyinga. Við hitt-
umst í dag og stefnum á að ljúka
viðræðunum fljótlega, allt eins í
dag. Við höfum enn ekki rætt
skipan forseta bæjarstjórnar eða
formanns bæjarráðs en rætt mál-
efnasamning og hvernig ferillinn
yrði á næstunni. Ingi Sigurðsson
verður eflaust bæjarstjóri eitt-
hvað fyrst um sinn en hann var
ráðinn að kröfu Sjálfstæðis-
manna. Það munu halda áfram
rannsóknir á auknum sam-
göngubótum. Þessi samgöngu-
ráðherra verður ekki lengi enn í
embætti," segir Andrés Sig-
mundsson. -GG
Þaö gustar í Eyjapólitíkinni og flokkurinn í miöju aö klofna í átökum um
meiríhlutasamstarfiö.
Norðaustursiglingaleiðinni eykst fylgi:
Birgöastöö og olíuhreinsistöö
á íslandi vænlegur kostur
Vænlegur kostur
Noröaustursiglingaleiöin er æ oftar fær flutningaskipum. Hún styttir leiöina
frá íslandi til Japans um helming og er þar af leiöandi gríöarlegt
hagsmunamál fyrir sjóflutninga á milli þessara heimshluta.
íslendingar
tóku þátt í störf-
um nefndar fyr-
ir um 15 árum
sem fjallaði um
möguleika sigl-
inga Norðaust-
urleiðina
svokölluðu norð-
ur fyrir Noreg
og Rússland um
Beringssund, en sú siglingaleið
styttir siglingatímann til Japans
um helming. Auk íslendinga tóku
þátt í störfum nefndarinnar Jap-
anir, Norðmenn og Rússar.
Ólafur Egilsson sendiherra tók
þátt í störfum nefndarinnar á sín-
um tíma. Hann segir að Barents-
ráðið hafi verið sett á fót til þess
að flýta efnahagsuppbyggingunni
í vesturhéruðum Rússlands og
það sé rammi utan um samstarf
Norðurlandanna og Rússlands. Á
þessum slóðum var m.a. hent
mjög ábyrgðarlaust kjarnorkuúr-
gangi í Ishafið og spurningin var
sú hvað yrði um þennan úrgang
sem og eldri kjarnorkuver á
svæðinu, bæði á Kolaskaga og
víðar. Tekist var því á við um-
hverfisvandamál á Kolaskaga og
suður úr. íslendingar hafa ekki
sömu forsendur til þess að vera
virkir þarna vegna fjarlægðar-
innar en reyndu að koma að mik-
ilvægi siglingaleiðarinnar á kom-
andi árum og að sett yrði upp
birgðastöð eða umskipunarhöfn á
íslandi tengd þessari siglingaleið.
Búið væri þá að hlaða upp birgð-
um á íslandi sem tekið yrði til
við að flytja þegar siglingaleiðin
opnaðist á haustin.
„Spurningin er hversu mikla ís-
brjótaþjónustu þarf til þess að
þetta geti verið hagkvæmt auk
þess sem í þetta þarf sterkari
skip. Styttingin á leiðinni þarf að
vega upp á móti þessu tvennu. Ég
tók síðast þátt í þessum umræð-
um fyrir fimm árum svo ég hef
ekki fylgst með því nýjasta þó ég
hafi reynt að halda þessari um-
ræðu vakandi. I Barentsráðinu
var starfandi undirnefnd undir
forystu Rússa sem vann að þess-
um málum. Vaxandi hlýindi og
minni hafis koma til góða og
kveikja að nýju líf í þetta mál.
Á sínum tíma höfðum við sam-
band við Rússa sem báru höfuðá-
byrgð á þessu starfi til að fá
gleggri uppýsingar en þá lágu fyr-
ir en þá vildi svo undarlega til að
það voru allt aö þvi önugheit sem
komu til baka á þá leið að það
væri búið að birta allt um þetta
og við gætum bara flett því upp.
Hagsmunum Rússa var því mjög
illa sinnt af þeirra eigin mönnum.
Hverjir eru hinir þrengri hags-
munir skipafélaganna í þessu
sambandi? Ef skipafélögin telja
þrátt fyrir allt meiri hag í því að
sigla þessar löngu leiðir og verð-
leggi flutningana í samræmi við
það er það kannski spurning um
hvort einhver tekur frumkvæðið
því um leið og búið væri að sýna
fram á að sigling Norðausturleið-
ina væri hagkvæm gæti slíkt
frumkvæðisfélag boðið lægri
fraktgjöld og þá yrðu allir hinir
að skipta einnig yfir á þessa sigl-
ingaleið," segir Ólafur Égilsson.
- Hafa íslendingar sýnt þessu
máli fálæti í seinni tíð?
„Nei, ekki miðað við aðstæður.
Utanríkisráðuneytið hélt ráð-
stefnu um þetta fyrir mörgum
árum og einnig hefur Ólafur
Ólafsson, forstjóri Samskipa, sýnt
þessu máli mikinn áhuga. Hann
var auk þess búinn að ferðast
víða um Rússland í sínum fyrri
störfum, áður en hánn kom til
Samskipa, og þekkir því vel þenn-
an hluta Rússlands, m.a.
Kamtsjaka og Murmansk.
Aukið forræði jákvætt
Með þeim þjóðfélagslegu breyt-
ingum sem urðu þegar Sovétríkin
hrundu og hreyfing varð í þá átt
að draga úr valdi Moskvu og færa
valdið meira út til héraðanna og
þar með forræði þeirra yfir sín-
um auðlindum, auk þess sem
efnahagur Rússlands vonandi
styrkist á komandi árum, má bú-
ast við að meira verði um flutn-
inga frá þessum höfnum á norð-
urströnd Rússlands. Þegar
birgðaflutningar þaðan aukast
skapast betri forsendur fyrir ís-
brjótaþjónustuna og mun líflegra
verður á þessum slóðum.
Olíuhreinsistöð á íslandi
Hugmyndir voru einnig uppi
hér á sínum tíma um að taka upp
samstarf við Rússa annars vegar
og Bandaríkjamenn hins vegar
um að setja upp olíuhreinsistöð á
Reyðarfirði en það rakst á við
umræður við Norðmenn um álver
á vegum Norsk Hydro og var eig-
inlega undir í umræðunni. Hug-
myndin var að taka olíu úr olíu-
lindum allra nyrst í Rússlandi og
flytja hana til íslands á þeim tíma
sem minnstur ís var því Rússar
töldu sig geta fengið hærra verð
fyrir hana ef um afgreiðslu væri
að ræða á henni frá íslausum
höfnum, eins og á íslandi. Af-
greiðslunni mætti þá treysta. Síð-
ar varð umræða um að reisa olíu-
hreinsistöð í Skagafiröi."
Ólafur Egilsson telur að þenn-
an stóriðjukost ætti að skoða
frekar ef einhver skriða kemst nú
á umræðu um siglingar norðaust-
urleiðina um Beringssund, eða
norðvesturleiðina vestan við
Grænland með strönd Kanada. ís-
lendingar verði að halda vöku
sinni til þess að missa ekki af
lestinni. -GG
Sekkur aftur
ogaftur
Gamli trébáturinn Ólafur GK,
sem sökk í Fossvogi fyrir all-
nokkru, náðist þar á flot og var
dreginn til hafnar í Kópavogi.
Hann sökk þar aðfaranótt miðviku-
dagsins þegar verið var að snúa
honum í höfninni og hann hallað-
ist skyndilega á stjórnborða. Unnu
starfsmenn Köfunarþjónustu Árna
Kópssonar í Kópavogi og Kópa-
vogshafnar allan miðvikudaginn
við að ná honum á flot. Það tókst
síðdegis á miðvikudag. Á fimmtu-
dagsmorgun var hann aftur sokk-
inn, og aftur var hafist handa við
að koma honum á flot á fimmtu-
dag. Það tókst um síðir. Báturinn
var kominn að bryggju í morgun,
en spurningin er hvað nú tekur
við. Frá áramótum hefur staðið til
að draga hann til Þorlákshafnar,
en beðið er eftir hentugri norðan-
átt.
Báturinn mun eiga að fara til
Þorlákshafnar á sjóminjasafn, en
hann var upphaflega gerður út
þaðan og hét þá Friðrik Sigurðs-
son. Útgerð hans þaðan var fyrsti
vísir að stórútgerð í Þorlákshöfn.
_________________________-GG
Félag íslenskra nuddara:
Telja enótískt nudd
hreina vanvirðingu
„Þetta er hrein vanvirðing við
starfsheiti okkar,“ sagði Guðbrand-
ur Einarsson, nýkjörinn formaður
Félags íslenskra nuddara, eftir að-
alfund félagsins sem haldinn var sl.
laugardag. Þar var fjallað um ýmis
hagsmunamál nuddara, þar á með-
al notkun starfsfólks á erótiskum
afþreyingarstöðum á starfsheiti
þeirra. Það var aðalfundur Félags
íslenskra nuddara sem haldinn var
á laugardaginn.
Fundurinn samþykkti ályktun
þar sem gagnrýnt er afskiptaleysi
stjómvalda af rekstri erótískra
nuddstofa. Orðrétt segir i ályktun
fúndarins:
„Félagsmönnum í FÍN er annt
um starfsheiti sitt, nuddari, og telja
það vanvirðingu að blanda því við
rekstur fyrrgreindra stofa. Að
gefhu tilefni fordæmir fundurinn
yfirvöld fyrir að láta viðgangast
rekstur svokallaðra erótískra nudd-
stofa (sbr. frétt í DV 20. mars).
Samkvæmt íslenskum lögum er
sala á kynlífi ólögleg. Eftir lýsingu
DV er ekki um annað að ræða en
sölu á kynlífi. Fundurinn skorar á
yfirvöld að kynna sér þá starfsemi
sem fram fer á þessum stofum.
Mikil óánægja ríkir hjá félags-
mönnum FÍN vegna auglýsinga á
erótísku nuddi undir yfirskriftinni
„nudd“ og er það eindregin ósk fé-
lagsins að aðhafst verði í þessum
málum.“ -JSS