Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2003, Side 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 24. MARS 2003
T>V
rSTRÍD VIÐ
Atburðarásin á sunnudag
00:00 Naji Sabri, utanríkisráöherra
Iraks, nýkominn tU Sýrlands, hvetur
stjómir arabaríkja tU þess að mót-
mæla árásum bandamanna á írak og
hótar óvininum margfoldum harmi.
01:00 Fjórum öflugum sprengjum er
varpað úr bandarískum sprengjuvél-
um á svæði í norðurhluta íraks sem
eru á valdi íslömsku Ansar-harðlínu-
samtakanna.
02:22 Talsmaður Bandaríkjahers
staðfesth- að bandarískur hermaður
hafi verið handtekinn vegna hand-
sprengjuárásarinnar á tjald banda-
rískrar hersveitar i Norður-Kúveit.
02:30 Loftárásir á Bagdad halda
áfram í dögun.
05:20 Talsmaður bandaríska hers-
ins staðfestir að einn af þrettán banda-
rískum hermönnum, sem slösuðust í
handsprengjuárás bandarísks her-
manns í Kúveit, sé látinn.
05:30 Bardagar blossa upp í hafnar-
borginni Umm Qasr í suðurhluta Iraks
þegar bandarískar hersveitir reyna að
brjóta niður mótspymu.
06:15 Tilkynnt að breskrar herflug-
vélar sé saknað eftir leiðangur inn yf-
ir írak.
07:05 Skriðdrekaárás gerð á bæki-
stöðvar íraska þjóðvarðliðsins í Umm
Qasr.
07:45 Talsmaður bandaríska hers-
ins segir að um 120 íraskir þjóðvarð-
liðar hafi verið umkringdir í árás á
bækistöðvar þeirra í Umm Qasr.
09:04 íraska vamarmálaráðuneytið
segir að íraski herinn hafi skotið nið-
ur fimm bandarískar flugvélar og tvær
þyrlur.
09:13 Bandarískir embættismenn
neita staðhæfingum íraka um að þeir
hafi skotið niður bandariska hervél.
09:14 Tveimur öflugum sprengjum
varpað á bækistöðvar iraska hersins í
hafnarborginni Umm Qasr.
10:25 Yfirmaður breska heraflans,
staðfestir að bresk Tomado-herþota
hafi fyrir mistök verið skotin niður
með bandarískri Patriot-flaug þar sem
hún var á heimleið úr herleiðangri frá
írak, rétt viö landamæri Kúveits, og sé
hennar og áhafnarinnar saknað
10:35 Taha Yassin Ramadan, vara-
forseti íraks, segir að íraski herinn
hafi tekið 35 bandaríska hermenn til
fanga og að myndir af hópnum verði
bráðlega sýndar í íraska sjónvarpinu.
11:00 Bandarískir embættismenn
neita fullyrðingum íraka um að þeir
hafi tekið tugi hermenn bandamanna
til fanga og skotið niður eina herflug-
vél þeirra.
11:15 Bandarískar B-52 sprengju-
flugvélar undirbúnar til loftárása á
trak frá Fairford-herflugvellinum í
Gloucester í Bretlandi.
12:43 Fréttir berast af öflugum
sprengingum í vesturhluta Bagdad.
12:25 írakar leita hermanna banda-
manna i Tígrisánni í Bagdad eftir að
tilkynnt var að failhlif hefði fundist í
ánni.
13:50 Leyniþjónusta breska hersins
segir að Saddam hafi sennilega slopp-
ið lifandi úr fyrstu loftárásum Banda-
ríkjamanna á Bagdad á fimmtudaginn
14:05 Donald Rumsfeld, vamar-
málaráðherra Bandaríkjanna, segist
telja að nokkurra bandarískra her-
manna sé saknað í írak og að þeir
gætu verið í haldi íraka. Richard
Mayer, formaður bandaríska herfor-
ingjaráðsins, segir að þeir séu færri
en tíu.
14:30 Talsmaður bandaríska hers-
ins segir fjóra fallna og um fimmtíu
særða eftir átta klukkustunda bardaga
í og við borgina Nasiriya.
15.30 íraska sjónvarpið sýnir mynd-
ir af að minnsta kosti fjórum fóllnum
bandarískum hermönnum í borginni
Nasiriya á bökkum Efrat og einnig
viðtöl við fimm fanga.
16:10 Öflugar sprengingar í Bagdad.
Blossar íraskra loftvamaflauga lýsa
upp himininn.
Tugip þúsunda mótmæltu
stríðinu í írak um helgina
- fjölmennustu mótmæli í Lundúnum á stríöstímum
Tugir þúsunda friðarsinna mót-
mæltu stríðinu í trak víða um heim
um helgina og urðu mótmælin hvað
mest í stórborgum Evrópu.
í Bretlandi tóku hundruð þúsunda
þátt í mótmælum víða um land en í
Lundúnum hafa ekki sést önnur eins
mótmæli á stríðstímum.
Gengið var um miðborgina um
Downingstræti, fram hjá skrifstofum
forsætisráðuneytisins og inn á Hyde
Park þar sem haldinn var mótmæla-
fundur.
Sömu sömu sögu er að segja frá öðr-
um löndum Evrópu eins og Frakk-
landi, Þýskalandi, Finnlandi, Ítalíu,
Svíþjóð, Noregi og Danmörku.
Þrátt fyrir fjölmenniö bar lítið á
róstum en þó bárust fréttir af átökum
milli mótmælenda og lögreglu í Ósló
og í nokkrum borga Spánar.
I Ósló var grjóti kastað að lögregl-
unni og málningu skvett þegar hún
reyndi að hindra æsta mótmælendur í
því að komast að bandaríska sendi-
ráðinu í borginni og notaði lögreglan
táragas, hunda og hesta til þess að
stöðva gönguna.
Þá notaði italska lögreglan táragas
til þess að leysa upp mótmælafund við
breska sendiráðið í Feneyjum en þar
hafði málningu verið skvett á veggi
sendiráðsins.
í Sviss þurft lögreglan í Bern að
nota vatnsþrýstibyssur, gúmmíkúlur
og táragas gegn æstum hópi mótmæl-
enda sem lögreglan sagði að tilheyrði
öfgahópum. t fréttum frá Sviss segir
að tuttugu þúsund manns hafi mót-
mælt framan við þinghúsið.
í Aþenu var stríðinu einnig mót-
mælt hressilega en þar var bensín-
sprengju kastað inn á lóð bandaríska
sendiráðsins.
í Vínarborg í Austurríki lögðust
mótmælendur á götur og gangstéttir á
meðan spilaðar voru háværar upptök-
ur af byssuskotum og sprengingum.
Á Ástralíu og Nýja-Sjálandi var
einnig efht til fjölmennra mótmæla en
í Wellington hrópaði fólk „Ekkert
blóð fyrir olíu“. í áströlsku borgunum
Brisbane og Hobart stöðvaði lögreglan
mótmælagöngur.
í Bandaríkjunum tóku um hundrað
þúsund manns þátt í mótmælum í
New York en þar var gengið frá Time
Square til Washington-torgs í
Greenwich Village og segja fréttir að
gangan hafi fyllt nokkur stræti.
Mótmælin fóru að mestu friðsam-
lega fram en til átaka kom þó á milli
lögreglu og hóps sem hafði slitið sig
fi'á aðalgöngunni.
Charles Ragel, þingmaður New
York, sem þátt tók í göngunni sagði
að fólkið styddi hermennina sem
sendir væru til þess að berjast en ekki
forsetann. t Washington tóku nokkur
hundruð manns þátt í mótmælum við
Hvíta húsið.
í Asíu var einnig víða efnt til mót-
mæla og urðu þau kröftugust í Indó-
nesíu, Malasíu, Suður-Kóreu, Japan,
Indlandi og Pakistan.
Wfliif
WflflfMí
POWfllý
-ficoitish
j?octaliu
P*r(y
íco ttish
’ociðllst
farty
name
REUTERSMYN
Ekki í okkar nafnl
Tugir þúsunda friöarsinna mótmæltu stríöinu i írak víöa um heim um helgina og uröu mótmælin hvaö mest í stórborg-
um Evrópu. í Bretlandi hafa ekki oröiö önnur eins mótmæli á stríöstímum og kraföist fóik aö aögeröir yröu stöövaöar.
Donald Rumsfeld, landvarnaráðherra Bandaríkjanna:
Sýning á stríðsföngum er
brot á Genfarsáttmálanum
Donald Rumsfeld, landvarna-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði
það „óheppilegt" í gær ef sjón-
varpsstöðvar sýndu myndir frá
arabísku gervihnattarstöðinni al-
Jazeera sem sagðar eru vera af
föllnum bandarískum hermönn-
um og stríðsföngum í Bagdad.
Bandarískar sjónvarpsstöövar
sögðu að þær tækju myndunum
frá al-Jazeera með varúð, en þær
voru teknar af íraska sjónvarp-
inu. Sumar stöðvar birtu aðeins
hluta af viðtölunum við stríðs-
fangana. CNN sýndi til dæmis
myndir frá yfirheyrslu yfir
bandarískum stríðsfanga, en þó
ekki fyrr en stöðin hafði fengið
það staðfest að ættingjar her-
Fanganna gætt
Bandarískur hermaöur stendur v<
um íraska stríösfanga. Deilt er u
meöferö íraka á sínum föngum
mannsins hefðu verið látnir vita.
Rumsfeld sagði það brjóta í bága
viö Genfarsáttmálann um með-
ferð stríðsfanga að sýna „niður-
lægjandi" myndir af bandarísku
fóngunum.
Heimildarmenn í stjórnstöð
hernaðaraðgerðanna í Katar
sögðu að bandarísk stjórnvöld
hefðu sent fjölmiðlum tölvupóst
þar sem þeir voru beðnir um að
sýna ekki myndir af föllnum
bandarískum hermönnum eða
stríðsfóngum.
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International hvöttu íraka
til að fara ekki illa með banda-
ríska stríðsfanga sína og fjölmiðla
til að virða reisn fanganna.
Sahar íspaela um þátttöku
Naji Sabri, utan-
ríkisráðherra
íraks, sagði í gær
að ísraelskt flug-
skeyti hefði fund-
ist í Bagdad og
sakaði ísraela um
að taka þátt í her-
för Bandaríkja-
manna og Breta. Þá veittist Sabri
einnig að Kúveitum og sakaði þá
um hugleysi og samvinnu við
óvininn.
Samþykktu NflTO og ESB
Kjósendur í Slóveníu sam-
þykktu með yfirgnæfandi meiri-
hluta að ganga í Evrópusamband-
ið og NATO í þjóðaratkvæða-
greiðslu í gær. í ESB vildu 90
prósent og 66 prósent í NATO.
Kjörsókn var 60 prósent.
VonbPigði með vatnspáðstefnu
Þátttakendur á alþjóðlegri ráð-
stefnu um vatnsforðabúr heims-
ins urðu margir fyrir vonbrigð-
um með að í lokayfirlýsingunni
skyldi ekki bent á leiðir til að
leysa vatnsskortinn sem herjar á
milljónir manna.
Útiendap konur brælan
Stöðugt fleiri danskir karlmenn
sækja sér eiginkonur til útlanda
og í einstaka tilfellum er rætt um
fjöldainnflutning á konum sem
búa síðan sem hálfgerðir þrælar.
Bin Laden kannski í Pakistan
Hryðjuverkafor-
inginn Osama bin
Laden er hugsan-
lega í felum í
Pakistan, að því
er Asíuútgáfa
Wall Street Jo-
umal hafði eftir
Pervez Musharraf
Pakistansforseta. Ekkert hefur
spurst tU bin Ladens frá því
hann slapp undan bandarískum
hermönnum í Afganistan undir
árslok 2001.
Kosið um nýja stjórnarskpá
íbúar í Tsjetsjeníu greiddu í
gær atkvæði um nýja stjórnar-
skrá í þjóðaratkvæðagreiðslu sem
skipulögð var af stjórnvöldum í
Moskvu.
Óttast að stpíðið verði langt
Helen Clark,
forsætisráðherra
Nýja-Sjálands,
sagðist í gær ótt-
ast að stríð Banda-
ríkjamanna og
Breta í írak
myndi dragast á
langinn, eftir að
fréttir tóku að berast af vaxandi
andspymu íraka gegn innrásar-
liðinu.
Hindúar dpepnip í Kasmír
Tuttugu og fjórir hindúar hafa
verið drepnir í indverska hluta
Kasmírs. Ekki er vitað hverjir
voru þar að verki.
Eiturbarónar stóðu að morðinu
Serbneska-lögreglan sagði í gær
að hún hefði fengið það staðfest að
glæpagengi eiturlyfjasmyglara
hefði staðið fyrir morðinu á Zoran
Djindjic forsætisráðherra.