Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2003, Qupperneq 18
42
MÁNUDAGUR 24. MARS 2003
Skoðun X>V
Röng fongangsnööun
Skoöun
Guðmundur G.
Þórarinsson
verkfræöingur
Að undanförnu hefur
mönnum í auknum mæli
oröiö starsýnt á áhersiur
og forgangsrööun stjórn-
málamanna.
í fersku minni er áramótaræöa
forseta íslands. Þar sendi hann út
ákall til ríkisstjómar og þjóöar
um að gæta okkar minnstu
bræöra. Bilið milli ríkra og fá-
tækra er að breikka og fjöldi
þeirra sem berjast í bökkum fer
vaxandi. Sífellt kemur fram að
stjórnvöld sjá sér ilia fært að út-
vega fé til ýmissa bráðnauðsyn-
legra verkefha.
Vandkvæði ríkisstjómarinnar
sem koma upp á borðið eru fjár-
skortur við aö halda gangandi
deildum fyrir aldraða og heilabil-
aða, féleysi við að reka bamageð-
deild, fjöldi aldraðra bíður eftir
aðstöðu á hjúkrunarheimili en fé
er ekki til að leysa málin. Upp-
hæðimar em ekki alltaf stórar.
Spamaður við að loka deild fyrir
heilabilaða átti að vera innan við
20 m.kr. og úrbætur á barnageð-
deild voru taldar kosta innan við
50 milljónir svo sæmilega stæði.
Yfir 300 aldraðir bíða eftir hjúkr-
unaraðstöðu og fjölskyldur þeirra
eru í alvarlegum vandræðum.
Hvert fer féð?
íslendingar eru rík þjóð. Þeir
hafa úr talsverðu að spila. Er-
lendis segja menn jafnvel að ís-
lendingar hagi sér eins og þjóð
sem viti ekkert hvað hún á að
gera við peningana. Kosningabar-
„Bretar töldu sig ekki hafa efni á að vera með í Schengen. Ávinningur okkar er
nánast enginn, við önnumst bara vegabréfaeftirlit fyrir Evrópubandalagið.
Rekstrarkostnaður á ári er hundruð milljóna króna. Hvar er stjómarandstaðan?
Hún virðist vera handónýt. “
áttan í Danmörku og Þýskalandi
og e.t.v. fleiri löndum snerist tals-
vert um að fækka sendiráðum og
minnka kostnað við utanríkis-
þjónustuna. Á þessum tíma hafa
Islendingar verið aö stórauka ut-
anríkisþjónustima. Fjölgim sendi-
ráða vekur athygli. Yfir 1000
milljóna íjárfesting í sendiráði í
Japan ásamt ærnum rekstrar-
kostnaði, sendiráð stofnuð í Finn-
landi, Mósambík, Kanada, eru
ekki tveir ambassadorar þar nú?
Var ekki líka stofnað sendiráð í
Vín? Hér er um að ræða kostnað
upp á hundruð milljóna á ári.
Við erum aö ráðast í ærnar
jarðgangaframkvæmdir. Kosta
ekki Siglufjarðargöngin 6-8000
milljónir króna? Schengendæmið
er líka stórt spurningarmerki
sem enginn svarar. Kostnaðar-
áætlun við byggingu vegna
Schengen var 4000 milljónir
króna og ráða varð 50-70 nýja
starfsmenn til þess að annast
vegabréfahliðin. Bretar töldu sig
ekki hafa efni á að vera með í
Schengen. Ávinningur okkar er
nánast enginn, við önnumst bara
vegabréfaeftirlit fyrir Evrópu-
bandalagið. Rekstrarkostnaður á
ári er hundruð milljóna króna.
Hvar er stjórnarandstaðan? Hún
virðist vera handónýt.
Hrapalleg þjóöfélagsþróun
Ljóst er að stjómvöld og Al-
þingi hafa brugðist við að gæta
hagsmuna almennings. Þau verð-
mæti sem þjóðin hefur verið að
öngla saman á síðustu 100 árum
lenda nú hjá fámennum hópum
manna sem kunna að nota sér
kerfið. Annars vegar hafa stjórn-
völd afhent fiskimiöin þeim sem
áttu fiskiskip í þrjú ár á níunda
áratugnum, um 300 þúsund millj-
óna virði og hins vegar hafa þau
ekki megnað að móta eðlilegar
leikreglur á fjármálamarkaði sem
vex eins og óðfluga leysing og af-
leiðingin er þróun sem þjóðinni
ofbýður.
Tugmilijóna og hundruð millj-
óna starfslokasamningar og æv-
intýralegir kaupaukasamningar
sem að hluta virðast byggjast á
uppgjörsreglum sem jafnvel pró-
fessorar við háskólann mótmæla
hástöfum. Hvað eru margir for-
stjórar á starfslokasamningum
hjá símanum og byggðastofnun
núna? Ja, það er ekki furða þó lít-
ið sé afgangs til þess að halda
uppi barnageðdeild.
Drengileg afstaða
Edda Guömundsdóttir skrifar:
Ossur
Skarphéðinsson.
Sérstakar
þakkir og
ánægja með
málflutning
Össurar
Skarphéð-
inssonar,
formanns
Samfylking-
arinnar,
bæði í Kast-
ljósinu og
morgunsjón-
varpi RÚV.
Ég er algjörlega sammála hon-
um um að það verða fyrst og
fremst óbreyttir borgarar, ekki
síst saklaus böm, sem verða
fórnarlömb stríðsins. Banda-
ríkjamenn eru á villigötum, og
við eigum ekki að elta þá út í
fenið. Afstaða Össurar var skýr
og drengileg. Þannig tala for-
ystumenn á ögurstundu. Er
honum einnig sammála um að
ekki kæmi til mála að við léð-
um land eða lofthelgi undir
heraíla sem Bandaríkjamenn
ætla að nota til árásarstríðs.
Hann kom að kjarna málsins
þegar hann spurði hvort
Saddam Hussein væri slík ógn
við heimsfriðinn, að hrinda
þyrfti af stað styrjöld sem græfi
undan þessum sama friði. Á
meðan getur enginn maður
skilið hvað blessaður utanríkis-
ráðherrann er að fara og grefur
Framsóknarflokknum gröf með
afstöðu sinni. Vona að Össur
fari aldrei með honum í ríkis-
stjóm.
Fjöldafylgi harðstjóranna
Ragnar Haraldsson
skrifar:
Það vafðist ekki fýrir vesælum
aumingjum hér á landi að taka af-
stöðu með harðstjóranum Saddam
Hussein og hans hyski. - Því auð-
vitað er ekki hægt að flokka þá
sem nú mótmæla harkalegum að-
gerðum til að steypa haröstjóran-
um af stóli undir annað en „óupp-
lýstan pupulinn". Aðallega vinstra
liðið sem dýrkar og dáir ríkisfor-
sjá á sem flestum sviðum og hefur
kastað fyrir róða þeirri litlu sjálfs-
bjargarhvöt sem það kann að hafa
fengið í vöggugjöf.
Það er sárt að sjá fólk á besta
aldri dvelja tímunum saman í
mótmælastöðu, oft til að krefjast
meiri ölmusu og spilapeningum
frá ríkinu. Nemar Leiklistarskóla
íslands gerðu það heldur ekki
endasleppt sl. fimmtudag er þeir
lögðust í jörðina við Stjórnarráðið
og léku fórnarlömb eftir að hafa
roðið sig „blóði“ í bak og fyrir.
Voru sennilega að þakka okkur
skattgreiðendum og yfirmönnum
menntamála fyrir sjálfrennandi fé
í ósómann.
Þá eru stjórnmálamenn vinstri-
flokkanna ekki mikið skárri. Þeir
reyna að tína til ómerkilegustu
hluti, varðandi hina sjálfsögðu
þátttöku okkar íslendinga í banda-
lagi hinna staðfóstu þjóða, og
alltaf úr takt við umræðuefnið.
Krefjast fundar í utanríkismála-
nefnd til aö síspyrja um hvers
vegna ísland styðji aðgeröir gegn
Saddam Hussein og gera „bókan-
„Þá eru stjómmálamenn
vinstri flokkanna ekki
mikið skárri. Þeir reyna
að tína til ómerkilegustu
hluti varðandi hina sjálf-
sögðu þátttöku okkar ís-
lendinga í bandalagi
hinna staðföstu þjóða, og
alltaf úr takti við um-
ræðuefnið. “
ir“ í leiðinni. Allt til að sýnast. Og
svo á fólk að kjósa þetta góðgæti
til að sitja í ríkisstjóm Islands!
Guð foröi þjóðinni frá því óláni.
Allt vel meinandi fólk í landinu
veit fullvel að hér er spurningin
um það eitt hvort við viijum standa
með okkar langtíma bandalagsþjóð-
um eða með ógnvaldinum Saddam
Hussein. Valið hlýtur að vera afar
auðvelt. - Það verður erfltt fyrir
alla „Ögmundana" og „Steingrím-
ana“ hér að standa keikir þegar
upp verður staðið og íraska þjóðin
fagnar falli kúgara síns.
Þróun í Framtak
Ólafur Kristjánsson skrifar:
Nú hefur Þróun-
arfélagi íslands
verið breytt í spaða
- eða þannig -
breyst í eitthvað
sem heitir Framtak
Fjárfestingarbanka
hf., sem er svo aft-
ur samsull úr Þró-
unarfélaginu og
Eignarhaldsfélagi Alþýðubankans.
Þar var Ásmundur Stefánsson,
fyrrum leiðtogi launþega aðalgúrú.
Eg sá nýlega í blaði mynd af As-
mundi sem var sagður hafa verið
„öflugur" í forystusveit verkalýðs-
ins. Eg man nú ekki eftir einu
skrefi sem hann steig fyrir okkur
launþega. Hann gerðist hins vegar
forstjóri í íslandsbanka. Og enn er
Ásmundur á ferðinni, nú fram-
kvæmdastjóri Framtaks Fjárfest-
ingarbankans hf. Það er ekki ónýtt
að hafa verið í forsvari fyrir okk-
ur launþegana. En við stöndum
undir batteríinu.
Göturnar í Kópavogi
Ástríður hringdi:
Ég þurfti í Kópavoginn nýlega
með rafmagnstæki til viðgerðar.
Fyrirtækið átti að vera við Dalveg,
og var það svo sem. Ég fer ekki oft
í Kópavoginn og þekki þar ekki
mikið til, en vissi hvar Daltún var,
þá ók ég sem leið liggur að þeirri
götu og svo upp og niður aðrar
hliðargötur þar í grennd til að leita
að Dalvegi, en fann ekki. Loks sá
ég mann á gangi (sem ekki er víst
algengt við íbúöagötur þar í bæ).
Sá vísaði mér í allt annan enda
bæjarins, nefnilega syðst í bæinn.
Ég hélt að í Kópavogi væri gjarnan
sú regla til hliðsjónar að hafa göt-
ur með samheiti (forskeyti eða við-
skeyti) saman, t.d. Dal- eitthvað.
Það virðist ekki vera raunin.
Þama hafa Reykvíkingar vinning-
inn (sbr. Vogar í einu hverfi, Teig-
ar o.s.frv.).
Yfinlýsing biskups
Hólmfriöur Gísladðttir skrifar:
Biskup íslands
hefur nú sent frá
sér yfirlýsingu.
Hún er enn ein
„hörmungin“, og
um þá hörmung
segir hann að nú
sé enn „gripið til
vígtólanna" og lát-
in skera úr deilu-
málum. Hann hvet-
ur nú presta til að hafa kirkjur
opnar á meðan átök standa, vitnar
í Jesaja spámann: (2:4) þar sem
segir, að enginn þjóð skuli sverð
reiða að annarri þjóð og ekki skuli
þær temja sér hernað framar. - Ég
veit nú ekki til þess að kirkjan
hafi beint slíðrað sverð sín þegar
krossfaramir fóm með brandi til
að leggja niður vígi Salahedíns
soldáns í Balbeck á svipuðum slóð-
um pg Saddam býr nú. Kannski
eru íslendingar orðnir svo kristnir
aö þeir streymi í kirkjur landsins
til að biðja fyrir írökum. Þeir hafa
ekki fýllt þær til þessa.
Silfrið - óskaþáttup
Vilborg skrifar:
Ég gæti ekki fyrirgefið þeim
sem yrðu þess valdandi að um-
ræðuþátturinn Silfur Egils hyrfi
af Skjá einum. Þetta er áreiðan-
lega einn vinsælasti sjónvarpsþátt-
ur sem hér hefur sést árum sam-
an - einstaklega líflegur og
óþvingaður. í hann hafa komið til
viðtals menn og konur sem verða
loks þau sjálf í afslöppuðu um-
hverfi þótt annars staðar séu þau
eins og fest upp á þráð.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.
Sverösoddar
krossfaranna
gleymdir?
Nú öflugurí
einkageiranum.