Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Page 2
2 FÚSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 DV Fréttir Tvöföldun og tilfærsla á Reykjanesbraut í gegnum sunnanveröan Hafnarfjörð: Vegaframkvæmdir upp á rúman milljarð í Hafnarfirði Veruleg breytlng Á þessari teikningu, sem Línuhönnun hefurgert fyrir Vegageröina, sést glöggt hvernig ætlunin er aö færa veginn austur fyrir kirkjugaröinn. kallað. Kaldárselsvegur verður lagður frá núverandi legu Reykjanesbrautar að Ásbraut. Mun hann liggja á brú yfir Reykjanesbraut. Brúin verður 62 metra löng og 16 metra breið, eft- irspennt steinsteypt plötubrú. Hún verður með tveim höfum, steyptum miðstöpli og endastöpl- um. Tvær slaufur og rampar munu tengja Kaldárselsveg við Reykjanesbraut. Vestan kirkjugarðsins verður byggð 73 metra löng og 4 metra breið göngubrú yflr Reykjanes- braut. Þar er einnig um að ræða steinsteypta plötubrú en yfir fjögur höf. Stöplar brúarinnar verða steinsteyptir. Þá verða gerð steinsteypt undirgöng undir Reykjanesbraut fyrir Hamar- skotslæk og gangandi umferð. Þau verða 55 metra löng og 21 metra breið. Framkvæmdunum fylgir veruleg landmótun við vegi, stíga, brýr og undirgöng. Þá er gert ráð fyrir settjörmun við þessi mannvirki. -HKr. Verulegar breytingar verða á legu Reykjanesbrautar í gegnum ofanverðan Hafnarfjörð sam- kvæmt verklýsingum í yfirstand- andi útboði sem opnað verður 28. apríl. Áætlað er að framkvæmd- unum ljúki 1. júli 2004 en verkið er boðið út á Evrópska efnahags- svæðinu. Samkvæmt upplýsing- um frá Vegagerðinni er búist við að verkið komi til með að kosta ríflega einn milljarð króna. Vegurinn, sem nú liggur um brekku sunnan kirkjugarðsins í suðurhluta bæjarins, verður færður við tvöföldun Reykjanes- brautar austur fyrir kirkjugarð- inn. Um er að ræða mikla fram- kvæmd sem felur m.a. í sér gerð mislægra gatnamóta á mótum Reykjanesbrautar og Kaldársels- vegar meö slaufum og tilheyr- andi mannvirkjum. Markmiðið með tvöföldun og færslu Reykjanesbrautar er að auka öryggi vegfarenda og bæta þjónustustig vegarins sem stofn- brautar. í þessum tilgangi verða gatnamót mislæg og sömuleiðis „gönguþveranir", eins og það er Fyrirhuguö framkvæmd við Reykjanesbraut í Hafnarfiröi Þarna veröa tvær akreinar í báöar áttir og misiæg gatnamót. Hæstiréttur dæmdi dagföðurinn í átján mánaða fangelsi: Talið sannað að hann hefði verið valdur að dauða barnsins Hæstiréttur dæmdi í gær í dag- föðurmálinu svokallaða og komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að dagfaðirinn hefði hrist litla drenginn svo harkalega eða oröið valdur að áverkum hans með öðr- um hætti er hann var í gæslu hjá honum að hann lést tveimur dög- um síðar. Var hann dæmdur í átján mánaða fangelsi og til að greiða foreldrum barnsins rúm- lega tvær milljónir í skaðabætur. Sambýliskona mannsins var dæmd til að greiða þrjú hundruð þúsund króna sekt tú ríkissjóðs fyrir að hafa ásamt manninum tekið mun fleiri börn í gæslu en þeim var heimilt. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður dæmt manninn í þriggja ára fangelsi. Hæstiréttur féllst á þá niður- stöðu héraðsdóms að barnið hefði hlotið áverka sem samvör- uðu „Shaken Baby“ heilkennum og hefðu þeir leitt hann til dauða. Verjandi dagföðurins hafði lagt fyrir Hæstarétt álit fjögurra er- lendra sérfræðinga sem settu fram ýmiss konar tilgátur, stað- hæFingar eða vangaveltur um dánarorsök drengsins. Meðal annars var því haldið fram að drengurinn hefði getað látist af völdum ungbarnaskyrbjúgs, augnsjúkdóms eða vegna floga- veiki móður. Hæstiréttur taldi rétt að leita frekara álits lækna- ráðs sem hafnaði þeim skýring- um. Staðhæfði læknaráðið að all- ar tiltækar rannsóknir hefðu ver- ið gerðar til að útiloka aðrar dán- arorsakir en þá sem fram kom í krufningarskýrslu Þóru Steffen- sen réttarmeinafræðings. í niður- stöðum dómsins segir að engum gæti hafa verið til að dreifa öðr- um en dagfoðurnum og því talið sannað að hann hefði veitt barn- inu hina banvænu áverka. Segir að meðferð hans á barninu hefði verið slík að hann hefði mátt gera sér grein fyrir þeim hættu- legu afleiðingum sem henni gátu verið samfara og með því hefði hann sýnt af sér stórfellt gáleysi. Hann hefði tekið að sér umsjá barnsins og brugðist með fram- ferði sínu þeim sérstöku trúnað- arskyldum sem á honum hvíldu. Hann hefði ekki haft fulla stjórn á gerðum sínum vegna þess gíf- urlega álags sem á honum hvíldi þar sem tuttugu og eitt barn var í daggæslu á heimilinu þennan dag og sambýliskona hans langt gengin með barn. Þótti refsing hans hæfileg fangelsi í átján mánuði. -EKÁ Fimmtán mánaða fangelsi fyrin kynferðisbrot Hæstiréttur staðfesti í gær fimmt- án mánaða fangelsisdóm yflr manni vegna kynferðisbrots og var hann einnig dæmdur til greiðslu hálfrar milljónar í skaðabætur. Hafði hann ruðst heimildarlaust inn í íbúð konu aðfaranótt laugardagsins 12. janúar 2002, lagst ofan á hana þar sem hún svaf í rúminu sínu og haft við hana samræði. Var hún í þannig ástandi að hún gat ekki spomað við verknaðinum sökum svefhdrunga. Maðurinn hafði borið fyrir dómi að konan hefði verið vakandi er hann kom í svefnherbergi hennar og hefði boðið honum umsvifaiaust upp í rúmið til sín og allt sem þar gerðist hefði verið með hennar sam- þykki. Þessi framburður þótti með öllu ótrúverðugur og í ósamræmi við allt annað sem fram hafði komið í málinu. -EKÁ Hefur viðurkennt að hafa stundað vændi Kona á þrítugsaldri hefur við yf- irheyrslu hjá lögreglunni í Hafnar- firði viðurkennt að hafa stundað vændi. Ekki er talið að fleiri tengist broti þessu og hefur málið verið sent ríkissaksóknara. Lögreglan í Hafnarfirði hefur nú í nokkum tíma unnið að rannsókn á meintu vændi. Að fengnum úr- skurði Héraðsdóms Reykjaness var í febrúar á þessu ári framkvæmd húsleit á tveimur stöðum i Hafnar- firði og haldlagðir þar munir sem taldir era tengjast starfseminni. Tveir einstaklingar vora handteknir og yfirheyrðir, kona á þrítugsaldri og sambýlismaður hennar á fertugs- aldri. -EKÁ Aftur verslað á BakkafinOi Matvöraverslun verður opnuö á Bakkafirði í dag. Þar hefur enginn verslunarrekstur verið síðan í lok nóvembermánaðar á sl. ári er versl- unin Sjafnarkjör hætti rekstri og Bakkfirðingar því þurft að leita til Þórshafnar eða Vopnafiarðar. Ámi Róbertsson, sem fyrir rekur versl- unina Kauptún á Vopnafirði, mun annast rekstur nýju verslunarinnar. Hann tekur einnig að sér bensín- sölu Esso á staðnum. Á ýmsu hefur gengiö undanfarin ár í verslunar- rekstri á Bakkafirði allt frá því að Lónið á Þórshöfn hætti þar rekstri, en Lónið var stofhað á rústum Kaupfélags Langnesinga sem varð gjaldþrota. -GG Stuttar fréttir Ræninginn enn ófundinn Maðurinn sem framdi vopnað rán í Sparisjóði Hafnar- fiarðar á þriðjudag er enn ófundinn. Lögreglan í Hafnar- firði hefur fengið fiölda vísbendinga um hver kynni að hafa verið þar að verki en þó hefur enginn verið handtekinn. Feröast í baðkari Stúdentsefni í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki ætla í dag að ýta baðkari frá Varmahlíð til Akureyrar. Áætlað er að koma til Akureyrar síðdegis í dag. Ráðstefna um samvinnu Á samvinnurekstur sér framtíð á íslandi á nýrri öld er megin- þema á ráðstefnu sem SÍS stendur fyrir á Bifröst á laugardag. Þar verða kynntar niðurstöður nýrrar skýrslu um stöðu samvinnustarf- semi. Jón Karl formaður Jón Karl Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags íslands, var í gær kosinn formaður Sam- taka ferðaþjónustunnar' á aðal- fundi samtakanna sem lauk síð- degis. Aðrir í stjóm eru Anna Sverrisdóttir, Steingrímur Birgis- son, Einar Bollason, Hrönn Greipsdóttir og Signý Guðmunds- dóttir. Engin olíulækkun Olíufélögin hafa engar ákvarðanir tekið um lækkan- ir bensínverðs þrátt fyrir að heimsmarkaðs- verð á olíu hafi hriðfallið í kjölfar Íraksstríðsins. Áfram deilt Ekki hefur náðst að jafna ágreining milli starfsmanna heilsugæslunnar og stjórnenda, þar sem er deilt um greiðslur fyr- ir akstur. Áfram verður reynt að ná lausn í málið og deiluaðilar hittast aftur fljótlega. -sbs/EKÁ l Helgarbiað íslensk sorg í Hanstholm í Helgarblaði DV á morgun er rætt við Kristínu Þorleifsdóttm-, ein- stæða 4ja bama móður á Jótlandi. Þorleifur sonur hennar lá vikum saman nær dauða en lífi á sjúkrahúsi vegna panódfleitr- unar og er varan- lega skaddaður eft- ir. Kristín segir okkur frá lífi sínu ytra sem er markað af áföllum. í blaðinu er einnig viðtal við for- mann frjálslyndra, tekið hús á Dóm- kirkjupresti, fiallað um viðhorf íslendinga til erlendra þjóðarleið- toga og úttekt gerð á aprílgöbbum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.