Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 DV Fréttir Framsóknarflokkurinn kynnir stefnuskrá sína: Skattar verði lækkaðir í tengslum við kjarasamninga Framsóknarmenn af öllum gerðum Þrjár konur leiöa lista Framsóknarflokksins og þrír karlar. í efstu fjórum sætum framboöslista eru 13 karlar og 11 konur. Þriöjungur allra frambjóöenda eryngri en 35 ára og 29% frambjóöenda í efstu fjórum sætum. Framsóknarflokurinn vill aö skattalækkanir, sem flokkurinn boðar fyrir kosningarnar, verði gerðar í tengslum við kjarasamn- inga þar sem áhersla verði lögð á hækkun lægstu launa. í stefnuskrá flokksins, sem kynnt var í gær, er lögð megin- áhersla á að lækka tekjuskatt ein- staklinga úr 38,55% í 35,2% og hækka barnabætur. í því sam- bandi segir Halldór Ásgrimsson, formaður flokksins, mikilvægt að kaupmáttaraukning á næstu miss- erum verði fyrst og fremst með skattalækkunum frekar en með kauphækkunum sem gætu ógnað stöðugleika í efnahagslífinu. Fjölþrepakerfi ógæfa Halldór segir best að ná fram tekjujöfnun í gegnum persónuaf- slátt, bamabætur og vaxtabætur. „Það væri mikið ógæfuskref að taka upp margþrepa tekjuskatt. Það yrði til þess að hækka skatta á millitekjufólk og gera skattkerf- ið miklu flóknara og óskilvirkara. Það er mjög óhentugt fyrir þjóðfé- lag þar sem tekjur eru sveiflu- kenndar. Almenningur þyrfti að telja fram tvisvar; áætla fyrst tekj- ur sínar fyrirfram til að fá úthlut- að álagningarprósentu og telja síð- an fram á nýjan leik að árinu loknu og þá kemur lokauppgjör skattsins. Það er afskaplega undarlegt að stjórnarandstaðan skuli vera í þessu tali og hafa þar að auki ekk- ert lagt fram um hvemig hún ætl- ar að útfæra þetta heldur vera með einhverjar almennar hugleið- ingar sem enginn fær botn í,“ seg- ir Halldór. Ekki niðurskurður í stefnuskránni segir að greiða eigi ótekjutengdar barnabætur með öllum börnum að 16 ára aldri í stað 7 ára eins og nú er en upp að sjö ára aldri verði upphæðin tvisvar sinnum hærri eða 73 þús- und krónur á ári. Samtals eru þessar breytingar verðmetnar á um 16 milljarða króna og leggur Halldór áherslu á að ekki þurfl að koma til niðurskurðar vegna þessa heldur sé verið að ráðstafa hluta af tekjum ríkisins af þeim hagvaxtarauka sem spáð er að verði næstu misseri. Að auki telur Framsóknarflokkurinn svigrúm til þess að hækka að einhverju marki frítekjumark, barnabætur og persónuafslátt. Krónur og aurar Boðaðar breytingar á tekju- skatti og barnabótum þýöa að ráð- stöfunartekjur hjóna með tvö börn og 400 þúsund króna mánaðartekj- ur aukast um tæpar 22 þúsund krónur á mánuði. Barnlaus hjón með sömu tekjur fá tæpar 13 þús- und krónur á mánuði út úr breyt- ingunum. Ráðstöfunartekjur einstaklings með 100 þúsund krónur á mánuði hækka um 3,7% á mánuði en tekj- ur einstæðs foreldris með eitt barn um 9,2%; með tvö börn um 10,5% og með þrjú börn um 13,7%. Eftir því sem ráðstöfunartekjur foreldra eru hærri fela breyting- arnar í sér minni hlutfallslega hækkun tekna þeirra en hins veg- ar meiri hækkun í krónum talið. Hækka atvinnuleysisbætur í stefnuskránni segir að hækka beri atvinnuleysisbætur og stefna að því að þær verði ekki lægri en lægstu launataxtar en Halldór bætir við að fyrst og fremst vflji flokkurinn stuðla að nægri at- vinnu fyrir alla. Af öðrum stefhumálum má til dæmis nefha: að endurgreiðslur af lánum LÍN verði lækkaðar; að hluti af lánum LÍN breytist í styrk ef fullu námi er lokið innan tiltekins tíma; framfærslugrunnur LÍN verði end- urskoðaður; lánshlutfali almennra íbúðalána verði hækkað í 90%; lang- veikum verði veittur aukinn fjár- hagslegur og félagslegur stuðning- ur; heimaþjónusta fyrir aldraða verði aukin; verðtrygging lána til skemmri tíma en 20 ára verði af- numin; veiðigjaldi verði varið til uppbyggingar i sjávarbyggðum; byggðakvóti verði aukinn; stuðning- ur við fiskeldi verði aukinn og tekn- ar verði upp tilteknar línuívilnanir fyrir dagróðrarbáta. Flokkurinn hefur ekki lagt mat á kostnað af stefnuskránni í heild. -ÓTG Ólafur Ólafsson: Rangt að Kaup- ping hafi annast fjármögnun Eglu Ólafur Ólafsson, stjórnarfor- maður Eglu hf., segir í yfirlýs- ingu það rangt að samningar hafi legið fyrir um sameiningu Búnað- arbanka og Kaupþings áður en gengið var frá kaupunum á kjö- festuhlutnum í Búnaðarbankan- um eins og ýjað hafl verið að. Hins vegar hafi legið fyrir frá upphafi að kaupendur að kjö- festuhlutnum í Búnaðarbankan- um hafl stefnt að hagræðingu í rekstri bankans og vildu skoða tækifæri á samvinnu innlendra og erlendra aðila við að endur- skipuleggja íslenskan fjármála- markað til hagsbóta fyrir hlut- hafa, starfsmenn og neytendur í landinu. „Það er einnig rangt að Kaup- þing hafi annast fjármögnun Eglu í hlutunum í Búnaðarbankanum. Ker á tæplega helmings hlut í Eglu á móti þýska bankanum Hauck & Aufhauser Privatbanki- ers. Sú lánafyrirgreiðsla sem Egla fékk vegna kaupa sinna er alfarið frá Landsbankanum, viðskipta- banka Eglu og Kers. Það er einnig rangt að þýski bankinn Hauck & Aufhauser eigi ekki full- trúa í bankaráði Búnaðarbankans né hafi fulltrúar bankans ekki mætt á aðalfund Búnaðarbank- ans. Dr. Michael Sautter, fram- kvæmdastjóri Société Generale, var tilnéfndur sem fulltrúi Eglu og þar með þýska bankans í bankaráöið," segir Ólafur Ólafs- son. -GG Einsíæð móðir fékk Opel Corsa frá DV: Síðbúið aprílgabb? Það varð uppi fótur og fit fyrir utan leikskólann Austurborg í gær þegar starfsmenn DV mættu þang- að til að afhenda einum af leik- skólakennurunum fyrstu verðlaun í áskriftapotti blaðsins. Sú heppna, Helga Leifsdóttir, ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum þegar sam- starfsfólk hennar bað hana vinsam- legast að líta aðeins út. Þegar Finn- ur Thorlacius, markaðstjóri DV, sagði henni hvað væri á seyði varð hún í fyrstu orðlaus en spurði síð- an hvort þetta væri nokkuð síðbúið aprílgabb. Vinningurinn var ekki af verri endanum, splunkuný Opel Corsa-bifreið frá Bílheimum að verðmæti 1.390.000 krónur og hana fékk hún fyrir það eitt að vera áskrifandi að DV. „Ég var einmitt að segja það í gær hvað allir nema ég væru heppnir í happdrættum og svoleið- is en svo fær maður þetta bara í hendurnar strax daginn eftir. Ég bara trúi þessu ekki. Eruð þið al- veg örugglega ekki að grínast?" sagði Helga, undrandi. Helga starfar sem deildarstjóri á leikskólanum Austurborg í Reykja- vík en hún býr ein ásamt tveggja ára dóttur sinni í Breiðholti. Sam- starfsfélagar hennar samglöddust henni fyrir utan leikskólann í gær ásamt leikskólabörnunum sem þótti mikið til bílsins koma. „Þetta kemur sér ákaflega vel þar sem bíllinn minn er orðinn frekar gamall og er þar að auki alltaf að bila. Ég er bara orðlaus." Næstu mánuði munu fleiri veg- legir vinningar veröa dregnir út úr áskrifendapotti DV en eins og Helga getur vottað borgar það sig að vera áskrifandi. DV-MYNDIR E.ÓL Ja, hérna! Lífíö er stundum ótrúlegt en blessunarlega satt. Hér segir Finnur Thorlacius, markaösstjóri DV, Helgu frá vinningnum og viöbrögöin leyna sér ekki. Þaegilegur bíll Opelinn er Ijúfur borgarbíll og nýtur vinsælda. Tll hamingju! Helgu var vel fagnaö afmörgum i gærdag. Heppin einstæð móðir Helga meö dóttur sína í nýja bílnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.