Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 DV Fréttir Félagsfundur í Stangaveiöifélagi Reykjavíkur í gærkvöld: Hörð átök um stofnun hluta- felags og laun formanns DV-MYND E.ÓL Frá félagsfundi Stangaveiöifélags Reykjavíkur í gærkvöld Átök voru m.a. um taunagreiöslur til formannsins, Bjarna Ómars Ragnarsson- ar, í tengslum viö stofnun hlutafélags. Hörð orðaskipti voru á félags- fundi Stangaveiðifélags Reykjavík- ur í gærkvöld. Þar voru til um- ræðu hugmyndir stjórnar félags- ins um stofnun hlutafélags og einnig var hart tekist á um laun formanns fyrir þessa vinnu. Félagsfundur Stangaveiðifélags- ins hófst á því að formaður félags- ins, Bjami Ómar Ragnarsson, gerði grein fyrir hugmyndum að stofnun hlutafélags fyrir hönd stjórnar en þær hafa ekki fengið góðar undirtektir hjá mörgum fé- lagsmönnum og hafði fundargerð- um m.a. verið lokað fyrir þeim. Bjarni Júlíusson beindi þeirri spurningu til formanns hvort stjórn SVFR hefði ákveðið að stofna hlutafélagið eða ákveðið að stefna að því að stofna hlutafélag- ið. Formaður svaraði því til úr sæti sínu að stjórnin hefði ákveðið að stofna félagið. Bjami sagði þá búið að framkvæma glæpinn og stjórnin því fallin. Kári Kort Jónsson sagði að SVFR væri áhugamannafélag og að það ætti alls ekki að vera lokað fyrir félagsmönnum og vísaði þar til lokunar fundargerða og væri ósammála því að formaður SVFR fengi greitt fyrir sitt framlag. Jón Gunnar Baldvinsson sagðist lengi hafa beðið eftir að þessi fund- ur yrði haldinn til að kynna hluta- félagið félagsmönnum og hvað væri félaginu fyrir bestu. Jónas Jónasson úr fulltrúaráði SVFR sagði að þessi umræða um að ráða formanninn ylli félaginu skaða og væru það grundarvallarmistök. Ólafur E. Jóhannesson sagði að vanda ætti allan undirbúning áður en málið væri komið á ákvörðun- arstig. Þá sagði Sigurður Jónsson meðal annars að fresta ætti mál- inu til næsta aðalfundar og fund- artími nú afleitur enda menn í vinnu. Haraldur Blöndal hrl. sagði stofnun hlutafélags ekki eitt af hlutverkum SVFR og því þyrfti að boða til aðalfundar til að ljúka málinu og breyta samþykktum. Spurði Haraldur hvaða heimildir stjóm hefði til þess að setja for- mann á laun. Spurðist hann fyrir um laun til formanns og sérfræð- inga fyrir þessa undirbúnings- vinnu, hver þau væru. Loftur Atli Eiríksson hafði áhyggjur af félaginu því það ætti að keyra málið í gegn á miklum hraða. Bjarni formaður talaði síðastur og sagði að kostnaður yrði greidd- ur samkvæmt reikningum og spurði Haraldur Blöndal þá hvert tímagjaldið yrði, 5, 50, 500 eða 5000 kr. á tímann. Formaður sagði að tímagjaldið yrði miðað við laun, 250-300 þúsund á mánuði. Að- spurður sagði formaður að ekki hefði verið full eining í stjóminni um málið. -G.Bender Ljós á Hlemmi á aö koma í veg fyrir dópneyslu: Enn finnast nálar Sérstakur ljósabúnaður hefur um hrið verið í lofti salema á strætisvagnabiðstöðinni við Hlemm. Slík ljós hafa verið not- uð víða erlendis, t.d. á lestar- stöðvum, en þau gefa frá sér dauft blátt ljós sem gerir sprautufíklum erfiðara fyrir að greina æðar á líkömum sínum. Með þessu hefur verið reynt að koma í veg fyrir fíkniefnaneyslu inni á salernum biðstöðvarinn- ar. Starfsmenn á Hlemmi segja að á árum áður hafi talsvert veriö um neyslu inni á klósettum bið- stöðvarinnar og þess vegna hafi verið ákveðið að setja þennan sérstaka ljósabúnað upp. Brynjólfur Kristinsson, hús- vörður á Hlemmi, segir að nokk- ur ár séu síðan búnaðurinn var settur upp en síðan þá hafi til- fellum fækkað að einhverju leyti. „Við finnum samt enn þá nál- ar og annað í þeim dúr þarna inni á klósettunum en það er ekki mjög algengt. Það er og verður alltaf eitthvað um slíkt og þessi ljós ein og sér geta ekki komið alfarið í veg fyrir neyslu þarna inni,“ segir Brynjólfur. -áb Sérstakt Ijós á Hlemmi Bláa Ijósiö í lofti salernanna á Hlemmi á aö koma í veg fyrir aö fíklar finni æöarnar á líkama sínum, en salernin hafa ítrekuð verið notuö sem afdrep fíkniefnaneytenda. Fíklarnir viröast samt ekki deyja ráðalausir. Scheving bjargað frá uppboði „Þið getið sparað ykkur sporin, það verður ekkert uppboð,“ sagði Valdimar Jónsson hjá Lykilhótel- um í gær. Tvö af stærstu og dýr- ustu listaverkum þjóðarinnar hafa þrívegis verið auglýst til sölu á uppboðum að kröfu fyrirtækis- ins Cornerstone, en það fyrirtæki er undir stjórn Arnars Sigurðs- sonar. „Það er búið að greiða og það verður ekkert uppboð," sagði Valdimar í gær. Hér er um að ræða málverk eftir Gunnlaug Scheving, annað 7 fermetra að stærð og hitt litlu minna. Verk þessi glöddu augu gesta í Valhöll á Þingvöllum í eina tíð. Listfræð- ingar telja verkin vera 4-5 millj- óna króna virði. Valdimar sagöi að málverkin tvö væru „í geymslu á góðum stað“, en ekki var hann tilbúinn að leyfa myndatöku af sér og þeim. Lögmaður Arnars Sigurðssonar hjá Cornerstone, Birgir Birgisson hjá lögmannsstofunni Logos, sagöi í gær að samningar væru að nást um greiðslu á kröfunni en uppboðið væri afturkallað. Ekki vildi Birgir greina frá því hversu há krafa Cornerstone væri; það væri trúnaðarmál. Hann vildi heldur ekki gefa upp símanúmer skjólstæðings síns né heldur að greina frá eðli starfsemi Corner- stone sem ekki er í símaskrá Reykjavíkur. Þuríður Jónsdóttir, uppboðs- haldari sýslumannsins í Reykja- vík, vissi ekki til þess skömmu áður en rætt var við Valdimar að búið væri að greiða gerðarbeið- anda kröfuna. Málverkauppboðið hefur verið auglýst þrívegis en í tvö skipti var uppboði frestað vegna formgalla, að sagt var. Mál- verkin átti að bjóða upp á Skúla- götu 26 kl. 14 í dag, en þar geymdi gerðarbeiðandi listaverkin sem höfðu verið vörslusvipt. Uppboðið hefur verið auglýst í DV en auk þess auglýsti gerðarbeiðandi sjálf- ur sérstaklega með litmynd af hluta málverkanna. Valdimar Jónsson sagði að krafa Cornerstone stafaði frá gjaldþroti Samvinnuferða-Land- sýnar, en þá hefðu Lykilhótel tap- að tugum milljóna króna i kröfum sem ekki fengust greiddar. Kröf- una hafi Cornerstone keypt af ís- landsbanka, víxla þar sem Sam- vinnuferðir voru greiðandi en Lykilhótel útgefandi. -JBP Skjálftahrina í Bláfjöllum: Starfsfólk hrökk vlð Skjálftahrina hefur staðið yfir síðan í nótt á Bláfjallasvæðinu. Fyrsti skjálftinn kom fram á mæl- um Veðurstofu íslands klukkan 05.23 í nótt og var upp á 1,6 á Richter. í kjölfarið hafa fylgt fleiri skjáiftar og sá stærsti upp á 2,3 á Richter kom klukkan 05.36 í morg- un. Fram til hálfníu í morgun urðu um tuttugu skjálftar á svæð- inu. Upptök skjálftanna virðast vera rösklega 2 kílómetra aust- norðaustur af Bláfjallaskálanum. Pétur Guðmundsson, svæðis- stjóri í Bláfjöllum, sagðist hafa orðið vel var við skjálftana í morgun. „Við hrukkum upp rétt fyrir sex og mér fast snarpasti skjáift- inn verða um 13 eða 14 mínútur fyrir sex. Þá var þetta komiö hér suðvestur af Bláfjallaskálanum. Það er eins og skjálftavirkni fari eftir fjallahryggnum. Það virðist byrja í tindi sem heitir Hákollur, norðaustan í Fram-svæðinu. Síðan er eins og þetta fari eftir hryggn- um í suðvestur." Pétur segir að munir hafi þó ekki hreyfst úr stað, en vel hafi hrikt í húsinu sem er gamalt timburhús. Þá hafa einnig mælst skjáiítar í sjó suðvestur af Reykjanesi, í námunda við Geirfugladrang, samkvæmt skjálftakortum Veður- stofu íslands. Bergþóra Þorbjarnardóttir jarð- eðlisfræðingur segir of snemmt að segja til um hvort þessir skjálftar boði eitthvað meira. Hún segir að náið verði fylgst með svæðinu. -HKr. Háskólinn í Reykjavík: Útskrifa nemendur dr verslunarstjóranámi Háskólinn í Reykjavík og Hag- kaup útskrifuðu í gær fímmtán manns úr verslunarstjóranámi Hagkaupa. Námið byggist á sér- sniðinni lausn fyrir stjórnendur í verslunum Hagkaupa og voru nemendur verslunarstjórar Hag- kaupa, aðstoðarverslunastjórar og innkaupamenn á matvörusviði. Markmiðið með náminu er að efla þekkingu nemenda á grund- vallargreinum í viðskiptafræðum og verslun og gera þá betur í stakk búna til þess að sinna verslunarstjórnun. -EKÁ lá»<ÍL feminmP GJAFIR HHÆOURNIR 'ORMSSON $

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.