Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 9
+
9
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003
I>V Fréttir
ir taldar hafa leitt til innlagnar á
sjúkrahús. Þar af voru 14 tilvik
talin hafa stofnað lífi sjúklings í
hættu, eins og áður sagði.
Magnús Jóhannsson segir að
þessi mörgu tilvik lifrarbólgu hjá
Herbalife-neytendum hafi valdið
áhyggjum. Hann hafi því gert ein-
falda tölfræðilega útreikninga á
því hvort marktækt væri að svo
mörg lifrarvandamál hefðu komið
í ljós í tengslum við neyslu Her-
balife en ekkert vegna ginseng.
Munurinn hafi verið marktækur.
Því hafi ekki verið hægt að út-
skýra þennan fjölda með einhverj-
um tilviljunum eins og talsmenn
Herbalife heföu viljaö gera. Hann
segist hafa fengið tölvupóst frá
talsmönnunum löngu eftir að nið-
urstöður könnunarinnar birtust,
þess efnis að þeir treystu sér ekki
til að draga þær í efa.
„Það virðist vera að þama hafi
verið tímabundið vandamál á ferð-
inni. Þá kemur sú hugsun upp
hvort tíndar hafi verið rangar og
eitraðar jurtir. Það hefur iðulega
komið fyrir í heiminum að upp
hafa komið alvarlegar aukaverkan-
ir og veikindi af völdum fæðubótar-
efna vegna þess að tíndar voru
rangar jurtir. Til er fjöldinn allur
af slikum tilfellum,“ segir Magnús.
Hann segir enn fremur að mik- '
ið skorti á að fylgst sé reglulega
með aukaverkunum og ofnæmi
sem fæðubótarefni og náttúrulyf
geta valdið. Þá virðist fólk al-
mennt ekki mjög meðvitað um
hvað það sé að setja ofan í sig.
„Ég tel að það þyrfti að vera
betra upplýsingaflæði, sambæri-
legt við það sem gerist um lyf,“
segir Magnús. „Komi upp alvar-
legar aukaverkanir sé það til-
kynnt til Lyfjastofnunar. Þar til
bært embætti fylgist síðan með og
skrái þessi tilvik. Fólk getur verið
að veikjast af þessu án þess að það
komist nokkurn tíma upp.“ -JSS
*
PEUGEOT
UMBOÐSAÐILAR: Reykjanesbær BfLAVÍK sími 421 7800 • Akranes BfLVER slmi 431 1985 • Akureyri HÖLDUR sími 461 3014 • Vestmannaeyjar BRAGGINN sfmi 481 1535
307
VATNAGARÐAR 24 - 26 • SlMI 520 1100
öryggi þitt skiptir Peugeot öllu máli.
Aksturseiginleikar bílsins eru með þeim
bestu í sínum flokki og öllum stjórn-
tækjum hugvitsamlega fyrirkomið til að
öryggistilfinning þín sé sem mest. Traust
yfirbygging bílsins er sérstaklega hönnuð
til að verja þig og farþega þína. ABS
bremsukerfi og 6 loftpúðar veita þér síðan
viðbótarvörn þegar mest á reynir. Láttu
draum þinn rætast. Fáðu þér fjölskyldubíl
sem flytur þig á öruggan hátt hvert á
land sem er.
Peugeot 307 1.6i Station
kostar aðeins frá
kr. 1.725.000,-
SJÁÐU VERÐIÐ
BÓNUSVÍDEÓ
Leigan í þínu hverfí