Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Side 10
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 DV 10______ Fréttir Skoðanakönnun DV fyrir öll kjördæmi landsins Rvk norður SV-kjördæmi Rvk suður Allt landið Mjóu súlurnar sýna úrslit kosninga 1999 Frjálslyndir fá sex menn Frjálslyndi flokkurinn ynni mikinn kosningasigur ef kosiö væri nú, fengi 9,8 prósenta fylgi á landsvísu og alls 6 menn kjörna á þing. Framsókn geldur hins vegar afhroö, fengi ekki nema 8 þing- menn og er úti i kuldanum í Reykjavík. Hvorki Halldór Ás- grímsson né Jónína Bjartmarz kæmust á þing. Stjómarmeirihlut- ann vantar einn mann til að halda, er fallinn. Þá er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, forsætisráð- herraefni Samfylkingarinnar, einnig úti i kuldanum og á langt í land meö að ná kjöri. Samfylking- in er næststærsti flokkur lands- ins, fengi alls 20 þingmenn. Vinstri grænir missa mann en fengju þrjá menn kjöma í Reykja- víkurkjördæmunum. Þetta eru helstu niðurstöður skoðanakönn- unar DV sem gerð var í öllum kjördæmum landsins í gærkvöld og fyrrakvöld. Úrtakið var samtals 1800 manns, 300 manns í hverju kjör- dæmi fyrir sig, jafnt skipt milli kynja. Spurt var: Hvaða lista mundir þú kjósa ef þingkosningar færu fram núna? Niðurstöður könnunarinnar voru settar inn í reiknivél á kosningavef Ríkisút- varpsins sem úthlutaði flokkun- um kjördæmakjörnum þingmönn- um og uppbótarþingsætum í sam- ræmi við niðurstöður í hverju kjördæmi fyrir sig og á landsvísu. Óákveðnir og þeir sem neituðu að svara spurningunni voru að jafnaði 31,1 prósent. Þetta hlutfall var hæst i Norðausturkjördæmi, 40 prósent, en minnst í Suðuvest- urkjördæmi, 26,7 prósent. Hlutfallslegar fylgistölur flokk- anna í hverju kjördæmi fyrir sig og á landsvísu má sjá í meðfylgj- andi grafi. Framsókn dalar Þegar miðað er við þá sem af- stöðu tóku sögðust 12,8 prósent mundu kjósa Framsóknarflokk- inn, 37,6 prósent Sjálfstæðisflokk- inn, 9,8 prósent Frjálslynda flokk- inn, 30,2 prósent Samfylkinguna og 8,4 prósent Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Önnur framboð fá samtals 1,2 prósenta fylgi. Framsókn tapar 5,6 prósentu- stiga fylgi frá kosningunum 1999, Sjálfstæöisflokkur tapar 4,1 pró- sentustigi, Frjálslyndir stökkva upp um 5,6 prósentustig, Samfylk- ingin bætir við sig 3,4 prósentu- stigum og Vinstri grænir tapa 0,7 prósentustigum. í töflunni má sjá breytingarnar frá könnun DV á mánudagskvöld en hún sýndi Framsókn með 2,2 prósentustigum meira fylgi en nú, Sjálfstæðisflokk með 5,1 prósentu- stigi meira fylgi, Frjálslynda með 4,2 prósentum minna fylgi, Sam- fylkingu með 3,1 prósentustigi minna fylgi og loks Vinstri græna með 1 prósentustigi meira fylgi. Úthlutun þingsæta Þegar þingmönnum er úthlutað til flokkanna fengi Framsókn 8 menn kjöma, missti 4 frá kosning- unum 1999, Sjálfstæðisflokkur fengi 24 menn, tapaði 2, Frjáls- lyndir fengju 6 menn, bættu við sig 4, Samfylking fengi 20 menn kjöma, bætti við sig 4, og Vinstri grænir fengju 5 menn, töpuðu ein- um. Fjölda þingsæta má sjá í með- fylgjandi grafi. Af 63 þingsætum eru uppbótar- þingsæti 9, þarf af 2 í hvoru Reykjavíkurkjördæmanna og 2 í SV-kjördæmi (Kraganum). Samfylkingin fengi flest uppbót- arþingsæti eða 3 - bæði uppbótar- sætin í SV-kjördæmi og uppbótar- þingsætið í NV-kjördæmi. Vinstri grænir fengju 2 uppbótarsæti, eitt í hvoru Reykjavíkúrkjör- dæmanna. Frjálslyndir fengju einnig 2 uppbótarsæti, í Reykjavík norður og Suðurkjördæmi. Þá fengi Framsókn uppbótarsætið í NA-kjördæmi og Sjálfstæðisflokk- ur í Reykjavík suður. Þingmönn- um þjóðarinnar samkvæmt þess- ari könnun er raðað upp í réttri röð hér til hliðar og eru uppbótar- þingsætin síðust í röðinni. Afhroð Framsóknar Þegar litið er á gengi flokkanna í einstökum kjördæmum þá geld- ur Framsókn afhroð í báðum Reykjavíkurkjördæmunum sem verða að teljast tíðindi þar sem formaður flokksins er í framboði í Reykjavík norður. Framsókn er minnsti flokkurinn í Reykjavík. Framsóknarmenn standa sig hins vegar best í Suðurkjördæmi, þar sem Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra er oddviti, og í NA- kjördæmi, þar sem Dagný Jóns- dóttir fær uppbótarþingsæti. Sjálfstæðismenn hrósa hátt í helmingsfylgi í báðum Reykjavík- urkjördæmunum og fá 6 menn í norðurkjördæminu þar sem Dav- íð Oddsson forsætisráðherra leið- ir D-listann. Hins vegar fær Sjálf- stæðiflokkurinn slæma útreið í NA-kjördæmi þar sem Halldór Blöndal þingforseti er efstur á blaði og yrði 3. þingmaður kjör- dæmisins. Þá er útkoma D-listans í SV-kjördæmi vonbrigði fyrir ófáa sjálfstæðismenn. Frjálslyndir ná feiknafylgi í NIÐURSTÖÐUR SKOÐANAKANNANA DV - til samanburðar eru niðurstöður fyrri kannana DV og úrslit þingkosninga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.