Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Síða 14
14
Menning
Serge Comte sýnir verk samsett úr ótal iitlum punktum í Nýlistasafninu:
Nútímalist er hiö sanna frelsi
Serge Comte meö landið svífandi fyrir aftan sig
Viö hliö hans standa gamiir vinir, gaidrakariinn meö pípuhattinn og
snigittinn.
Uppi á þriðju hœðinni í Nýló við
Vatnsstíg - fyrir ofan Dag - sýnir
franski myndlistarmaðurinn Serge
Comte eins konar innsetningu sem við
fyrstu sýn er nokkuö á tvist og bast.
Öðrum megin í salnum eru tvö mynd-
bandsverk sem ganga bœði í einu, þó
ekki í takt. Ekki eru þetta lifandi
myndir heldur eru myndböndin sam-
sett úr Ijósmyndum teknum á digital-
vél, annars vegar af stúlku sem villist
í skógi og hins vegar af stúlku sem er
lokuð inni í biluðum bíl. Á langveggn-
um hinum megin í salnum er mynd
sem í fyrstu viröist vera geysistórt
landakort í felulitum, fyrir framan
það stendur maður meö pípuhatt og
viö hliö hans snigill. í gluggunum eru
gegnsœjar andlitsmyndir af konum og
á endaveggnum stór konumynd sem úr
jjarska sýnist vera málverk.
En þegar nær er komið reynast all-
ar andlitsmyndirnar vera gerðar úr
lituðum plastperlum sem eru límdar
saman með straujárni - eins og börn-
in gera. Karlinn með pípuhattinn og
snigillinn eru úr legókubbum, landa-
kortið er myndað úr litlum minnis-
miðum í brúnum og dimmgrænum
litum, og auðvitað eru myndirnar á
myndbandinu gerðar úr ótal litlum
punktum. Það er kjarni málsins.
Ástin lokkaði hann til íslands
Serge er frá Grenoble og þar gekk
hann í listaskóla. Það var ástin sem
teygði Serge til íslands og hér hefur
hann verið búsettur í ein sex ár. Kon-
an hans kennir frönsku við Háskól-
ann og þau eiga son á þriðja ári sem
er að kenna pabba sínum íslensku.
Það gengur býsna vel, svo vel að Serge ætlar
að halda fyrirlestur á sunnudaginn á ís-
lensku - enda talar hann málið skýrt og vel
þó að stundum þurfi hann að leita að orðum.
„Þessi sýning er mér mikilvæg,“ segir
hann, „því þetta er fyrsta einkasýningin mín
hér á landi. Ég hef tekið þátt í samsýningum
en einkasýningar hef ég bara haldið úti í
Evrópu, í París og fleiri borgum í Frakk-
landi, Þýskalandi, Spáni og Póllandi og ein-
staka sinnum í Bandaríkjunum. Ég velti þess
vegna talsvert fyrir mér hvernig ég ætti að
sýna íslendingum það sem ég er að gera. Ég
vildi síður gera yfirlitssýningu yfir feril
minn, mér finnst það meira fyrir gamla lista-
menn, en þó búa til svolitlar rætur undir
nýju verkin. Til dæmis er snigillinn vísun í
nokkur eldri verk og galdramaðurinn með
pípuhattinn hefur líka skotið upp kollinum í
verkum mínum áður, en ekki alltaf í þessu
gervi. Þetta gerir mönnum kannski erfitt um
vik að ná þeim undir eins, en það er eitt sem
tengir þau öll saman og það er „pixel“ -
punkturinn. Öll verkin eru úr eins konar
punktum, bæði myndpunktum og sögupunkt-
um, sem sjáandinn tengir saman.“
Eins og eðlilegt er eru þetta nokkuð flökt-
andi verk - myndirnar vilja leysast upp í
punkta þegar maður kemur nær, og það eiga
þær líka að gera. Landakortið gerir enn þá
betur því miðarnir vilja flögra niður á gólf
þegar fólk gengur fram hjá með tilheyrandi
gusti. Þá myndast fleiri víkur í landið og
jafnvel stöðuvötn.
Serge segir að stúlkan Wanted á enda-
veggnum sé sú persóna í heimi sýningarinn-
ar sem vísi til framtíðar. Hún sé sú eina sem
sé alveg ný á þessari sýningu (sem heitir í
höfuðið á henni) og hún komi til með að
kynna sig betur á næstu sýningum. Kannski
verður hún þá á myndbandi með tónlist, því
Serge semur sjálfur tónlistina við myndbönd-
in sín.
„Það eru ekki lengur bara myndlistar-
menn og tónlistarmenn og arkitektar og svo
framvegis heldur fólk sem er að reyna að
skapa heim - og í heiminum er þetta allt;
myndir, hljóð og rými. Þannig listamaður er
ég.“
Friður til að skapa
Serge hefur einkum sýnt erlendis en hon-
um finnst gott að búa hér. „ísland er
staður til að lifa á og vinna. Úti í
París er maður sífellt kallaður hing-
að og þangað en hér er friður. Og
mér finnst afskaplega gott að koma
hingað heim eftir sýningarferðir til
útlanda. Það er ekki hægt að sýna ef
maður fær ekki tíma tO að hugsa og
skapa.“
Serge notar samt dýrmætan tíma
hér heima til að kenna við Listahá-
skólann. Erlendis tekur hann að sér
stutt námskeið og hann kann því vel
að vera með hópinn sinn hér heilu
misserin. Það gefur líka góða
„heima-tilfmningu“.
„Ég byrjaði að kenna þeim að búa
til myndbandsverk en það hefur
tognað úr því verkefni í allar áttir.
Til dæmis reyni ég að ræða við þau
á raunsæjum nótum um myndlist,
tala við þau um peninga ekki síður
en drauma og rómantíska ímynd list-
arinnar."
- Hvaða hlutverki gegnir nútíma-
list í lífi nútímamanna?
„Góð spurning," segir Serge og
hlær við. „í mínum augum tjáir hún
það eina frelsi sem til er. Ekki frels-
ið sem auglýst er sem mest í sjón-
varpi heldur opnar listin okkur leið
til raunverulegs frelsis. Það er ekki
hægt að skipa neinum að vera frjáls
eða segja honum að hann verði frjáls
með því að kaupa eitthvað. Það er
bara hægt að vera frjáls með því að
skapa úr hugsun sinni og sýna það
öðrum sem hafa kannski ekki tíma
til að skapa sjálfir. Þegar þeir koma
og skoða sköpunarverkin sjá þeir að
kannski er til leið til frelsis. Það er
köllun nútímalistar."
Næsta helgi er sú síðasta á verkum Serge
og líka á sýningu Dags Sigurðarsonar á neðri
hæðinni. Leiðsögn um sýningu Dags verður
kl. 14 laug. og sun. og heimildamynd Kára
Schram, Dagsverk, verður sýnd kl. 17 báða
dagana. Á sunnudag kl. 15 heldur Serge Com-
te fyrirlestur sem hann nefnir „Með munn-
inn fullan af hamingju" og fjallar þar um
myndlist sína í ljósi alþjóðlegra strauma í
samtímalist. Aðgangur er ókeypis og allir
eru velkomnir.
Wanted
Þessi perlustúlka á eftir aö sjást aftur.
Silfurgripir eftir breska og íslenska listamenn til sýnis í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar:
Stórgripir þótt smáir séu
Á morgun kl. 15 mun
Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra
opna sýningu á skúlptúr-
um úr silfri í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar. Sýn-
ingin ber heitið Sterling
Stuff og kemur til íslands
fyrir milligöngu breska
bronssteypufyrirtœkisins
Pangolin Edition. Hún var
áöur sýnd í Gallery
Pangolin og í maímánuöi
næstkomandi verður hún
til sýnis í Royal Academy í
London.
Forstöðumaður Pangolin, Rungwe King-
don, bað fimmtíu og einn þekktan listamann
að vinna verk sem steypa mætti í silfur; ekki
mátti verkið vera stærra um sig en 15 sentí-
metrar. Á sýningunni gefst mönnum tækifæri
til að sjá verk eftir helstu núlifandi mynd-
höggvara Bretlands ásamt verkum eftir ís-
lendingana Pétur Bjarnason, Jóhönnu Þórðar-
dóttur og Sigurjón Olafsson. Meðal listamann-
anna má nefna Lynn Chadwick, Nigel Hall,
Damien Hirst, Jonathan Kenworthy, David
Nash og Phillip King, sem nú er forseti Kon-
unglegu bresku akademíunnar.
Á síðari árum hefur verið tilhneig-
ing til að kenna allt við „skúlptúr“
þó að upphaflega hafi orðið merkt
hlut sem skorinn var út eða höggv-
inn í stein. Slíkir „hlutir", stórir eða
smáir, hafa ætíð haft mikið aðdrátt-
arafl, hvort sem það hafa verið risa-
styttur, goðum og höfðingjum til
dýrðar, eöa örsmáir gripir sem rúm-
ast í lófa manns. Á þessari sýningu
má ganga úr skugga um að stærð
hlutarins skiptir ekki öllu máli - lít-
ill skúlptúr getur verið stórbrotinn í
formi og hlutfóllum. „Sjáum bara
Venus frá Willendorf," segir Rungwe
Kingdon, „hún er örsmá, en hefur þó
aðdráttarafl sem ekki hefur dvínað á
þeim 30.000 árum frá því hún var
sköpuð.“
Breski sendiherrann á íslandi, John Culv-
er, verður viðstaddur opnunina og einnig
nokkrir listamannanna. Sýningin verður
opin daglega nema mánudaga milli klukkan
14 og 17 og henni lýkur sunnudaginn 4. maí.
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003
___________________________ÖV
Umsjón: Sílja Adalsteinsdóttír silja@dv.is
sveigir stein
Á morgun kl. 15.15 verða
Caputtónleikar í 15:15 röð-
inni á Nýja sviði Borgar-
leikhúss undir yfírskrift-
inni „Kjúklingur sveigir
stein sem kallar á engla í
spegli“. Þetta eru einleiks-
tónleikar Guðna Franzson-
ar á klarínettu og á efnis-
skrá eru tvö íslensk verk, Spring Chicken
eftir Hauk Tómasson og Flecte Lapis eftir
Atla Ingólfsson (frumflutningur), og tvö
erlend, Riflessioni eftir Ame Mellnás og
Calling Angels eftir Lai’s Graugaard
(frumflutningur).
„Ég skreið á fimmta aldurstuginn fyrir
um tveimur árum síðan og af því tilefni
fékk ég óforvarendis sent í pósti, sóló-
stykki, „Spring Chicken", frá Hauki
Tómassyni, þá stöddum í Hollandi, stykki
sem ég hef grun um að hann hafi strokið
á pappír á ekki mörgum dögum,“ segir
Guðni. „Ég renndi verkinu opinberlega í
gegn fyrir rúmu ári, hafði þá ekki haft
mikið næði til að vinna það í smáatriðum
en hef núna í kærkominni einangrun spil-
að þaö daglega, oftast fyrripart dags. Er
alltaf að finna nýja fleti á tónsmíðinni
sem lætur ekki mikið yfir sér í fyrstu en
leynir þokkalega á sér. Sennilega hefur
Haukur stundað einhvern galdur þegar
hann var að þessu, minnugur lífsreynslu
minnar þegar ég át kjúklinginn í Brasilíu,
kjúkling sem hafði verið slátrað eftir
þriggja daga trúarserimóníu með tromm-
um og tilbehör. Ég fékk í magann daginn
eftir!“
Messías í Langholtskirkju
Söngsveitin Fílharmón-
ía flytur óratóríuna Mess-
ías eftir Hándel í Lang-
holtskirkju 6. og 8. apríl
kl. 20. Einsöngvarar eru
Hulda Björk Garðarsdótt-
ir sópran, Sesselja Krist-
jánsdóttir alt, Eyjólfur
Eyjólfsson tenór og Ágúst
Ólafsson bassi. Kammersveit undir for-
ystu Rutar Ingólfsdóttur leikur með en
stjómandi er Bemharður Wilkinson, kór-
stjóri Söngsveitarinnar.
Messías er eitt ástsælasta verk Hándels.
Textinn er byggður á ritningargreinum og
fjallar um ævi Krists. Hándel var fæddur
í Þýskalandi en starfaði í Englandi stóran
hluta ævi sinnar og þar lést hann árið
1759.
Miðar eru seldir í Máli og menningu,
hjá kórfélögum og við innganginn.
Vortónleikar Stefnis
Karlakórinn Stefnir úr Mosfellsbæ held-
ur vortónleika ásamt gestum sínum, Borg-
arkvartettinum, í Miðgarði í Skagafirði í
kvöld kl. 21 og á morgun kl. 16 í Laugar-
borg í Eyjafjarðarsveit ásamt Karlakór
Eyjafjarðar, í Hlégarði í Mosfellsbæ fostu-
daginn 11. apríl kl. 20 og 12. apríl kl. 16 í
Langholtskirkju i Reykjavík. Á dagskrá
eru vel þekkt íslensk og erlend lög af létt-
ara taginu. Stjómandi er Atli Guðlaugs-
son og píanóleikari er Sigurður Marteins-
son.
Eivör í Kaffileikhúsinu
Hin frábæra færeyska
söngkona Eivör Pálsdóttir
verður með tónleika
ásamt hljómsveit sinni í
Kaffileikhúsinu í kvöld
kl. 21. Tónlistin er að
mestu leyti eftir Eivöru
sjálfa en einnig slæðast
með önnur lög, t.d. fær-
eyskar rímur og íslensk þjóðlög.
Aukalegur búálfur
HSunnudagana 6. og 13.
apríl kl. 14 verða auka-
sýningar á íjölskyldusöng-
leiknum Benedikt búálfi
sem byggður er á sam-
nefndum bókum eftir Ólaf
Gunnar Guðlaugsson, en
fólk skyldi athuga að nú
þegar er að verða uppselt á þær. Verkið
var frumsýnt í Loftkastalanum í október
sl. og meðal leikara em Björgvin Franz
Gíslason, Lára Sveinsdóttir, Selma Bjöms-
dóttir og Jóhann Sigurðarson sem leikur
hinn eina og sanna Daða dreka. Leikstjóri
er Gunnar Gunnsteinsson. Sjá nánar á
heimasíðu Benedikts: www.alfheimar.is.
Kjuklingur