Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Qupperneq 15
15 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 PV__________________________________________________________________________________________________Menning Það besta og það versta Tónleikar í gulri röð hjá Sinfóníuhljómsveit íslands í gærkvöldi voru hinir sögulegustu. Þar mátti heyra bæði það besta sem gerist á tón- leikapöllum hér heima og sennilega það versta. Á efnisskránni voru mjög vel þekkt verk og sal- urinn fullur. Hið síðarnefnda væntanlega miklu frekar vegna þess hve frægur hann er og dáður, einleikari tónleikanna, Joshua Bell fiðlusnillingur. Stjórnandi var Petri Sakari. Fyrsta verkið af þremur á efnisskránni heyr- ist ekki oft og greinilega ekki að ástæðulausu. Þetta var tónaljóðið Macbeth eftir Richard Strauss. Ljóst er að hægt er að leika þetta verk mun betur en gert var í gær. Hljómurinn í hljómsveitinni var sundurleitur, groddalegur og oft óhreinn. Tónlist Upphafstónarnir í næsta verki hrísluðust inn í sálina samfara miklum létti því þarna var hljómur allur annar og greinilegt að hljómsveit- in var - eins og kannski má orða það - með á nótunum. Joshua Bell reyndist hafa mjög vel mótaðan og skýrt skilgreindan karakter í leik sínum. Tónn hans var kraftmikill og ástríðu- fullur án þess að daðra nokkru sinni við væmni eða tilfinningasemi. Hann fór með djörfum hætti hægt í gegnum margar hendingarnar og lyfti þeim þannig í hæglátri spennu en alltaf fal- legri. Hann nánast andaði gegnum fiðluna og söngur hans var samfelidur og hrynrænt sér- lega lifandi. Kadensan í lok fyrsta kafla var fal- leg þversumma af stefjaefninu. Stjórnandinn mótaði ágætlega hlutfóll í hljóðstyrk en túlkun hljómsveitarinnar nálgaðist ekki hæðir einleik- arans. Síðust á efnisskránni var Sinfónía nr. 5 eftir Beethoven. Verk sem við höldum öll að við þekkjum en kemur okkur alltaf með einhverj- um hætti á óvart. Augnablikin eru svo mörg stórkostleg og möguleikamir á sjónarhomum óteljandi. En þau eru ekki öll jafn góð sjónar- hornin og flutningurinn nú sýndi það. Þetta var eins og að horfa á ballettsýningu baksviðs í hröðu tempói með eingöngu varadönsumm á sviðinu. Fyrsti kaflinn hafði verið sléttaður út og treginn dreginn úr honum eins og tönn úr manni með tannpínu - greinilega eitthvað sem taiið var að mætti missa sín. í öðrum kafla náð- ist örlítið meiri eining og túlkun varð fyrir það dýpri og nokkur augnablik þar mjög áheyrileg. Þriðji og fjórði kaflinn geymdu svo óteljandi augnablik er munu lifa sem dæmi um þá hryn- rænu flatneskju sem hægt er að framkalla úr efnivið jafn fjölbreyttum og snilldarlega ofnum og þessum. Það verður að játast að miklu skemmtilegra hefði verið að fara heim með fiðluleikinn í eyr- unum en hraðsoðna sinfóníu Beethovens. Það er auðvelt að vera vitiur eftir á, en má ekki fara að raða atriðunum á efnisskránni upp þannig að öruggara sé að menn fari heim glaðir í sinni? Má ekki bara enda á hápunktinum? Sigfríður Björnsdóttir Sinfóníuhljómsveit íslands í Háskólabíói 3.4. 03: Macbeth eftir Richard Strauss. Fiölukonsert eftir Johann- es Brahms. Sinfónía nr. 5 eftir Ludwig van Beethoven. Einleikari: Joshua Bell. Stjórnandi: Petri Sakari. Joshua Bell flðlusnillingur Hann nánast andaöi gegnum fiöluna ... DV-MYND PJETUR Draumarnir rætast Leikfélag Reykja- víkur og íslenski dansflokkurinn efndu í vetur til samkeppni um frumsamið dans- leikverk eða verk er flokkast gæti undir dansleikhús. Þátttakan var svo góð að níu hugmyndir voru valdar til áframhaldandi þróunar þótt upphaflega stæði til að þær yrðu aðeins sex. Þátt- takendur fá aðstöðu í Borgar- leikhúsinu og hjálp frá leikur- um þess og dönsurum til þess að vinna verkin. Þeir sem munu vinna hugmyndir sínar áfram eru Árni Pétur Guðjóns- son, Eva María Jónsdóttir og Marta Nordal, Gísli Örn Garð- arsson, Guðmundur Helgason, Helena Jónsdóttir, Jóhann Freyr Björgvinsson, Ólafur Egill og Gunnlaugur Egilssynir, Ólöf Ingólfsdóttir og Peter Anderson. Afrakstur hugmyndasam- keppninnar verður sýndur á Stóra sviði leikhússins laugar- daginn 7. júní. Samuel Wuersten, rektor dansakademí- unnar í Rotterdam og stjórnandi Holland Dance Festival, verður formaður fimm manna dóm- nefndar sem velur bestu dans- leikverkin. Tilgangur keppninnar var að gefa fólki tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sínum um dans og leikhús. Þetta er til- tölulega ung listgrein sem hefur verið í stöðugri þróun síðustu áratugi úti í hinum stóra heimi. íslenski dansflokkurinn og Leik- félag Reykjavíkur vilja leggja sitt af mörkum til að efla list- greinina og þróa áfram, og er keppnin skref í þá átt. BORGARLEIKHÚSIÐ Leikfélag Reykjavikur STÓRA SVH) PUNTILA OC MATTI Bertolt Brecbt 5. sýn. su. 6/4 kl. 20, blá kort Fi. 10/4 kl. 20 Su. 13/4 kl. 20 Lau. 26/4 kl. 20 LÁT HJARTAÐ RÁÐA FÖR iSLENSKI DANSFLOKKURINN - Þijú ný verk eftir Katrínu Hall, Láru Stefánsd. og Ed Wubbe í kvöld kl. 20 ATH. SÍÐASTA SÝNING SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sdlina og KarlÁgúst Úlfsson Lau. 5/4 kl. 20 Fö. 11/4 kl. 20 Lau. 12/4 kl. 20 Fö. 25/4 kl. 20 Lau. 3/5 kl. 20 ATH. Sýningum lýkur í vor NÝJA SVIÐ SUMARÆVINTÝRI e. Shakcspeare og leikhópinn Frumsýning fi. 10/4 kl. 20, UPPSELT Su. 13/4 kl. 14 - ATH. breyttan sýningrtíma Mi. 23/4 kl. 20 Lau. 26/4 kl 20 Su. 27/4 kl 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRIHATTUR eftir Peter Brook og Marie-HélÉne Estienne í kvöld kl. 20 Su 6/4 kl. 20 Fö 11/4 kl. 20 Fö 25/4 kl. 20 KVETCH eftirSteven Berkojf í SAMSTARFI VIÐ Á SENUNNI Su 13/4 kl. 20 Fi. 24/4 kl. 20 15:15 TÓNLEIKAR CAPUT SÓLÓ Lau. 5/4 kl. 15:15 ÞRIÐJA HÆÐIN PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Lau. 5/4 kl. 20 Su. 13/4 kl. 21. Ath. breyttan sýningartíma Lau. 3/5 kl. 20 Takmarkaður sýningafjöldi. LITLA SVIÐ STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN I SAMSTARFI VIÐ SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum - og ís á eftir! Lau. 5/4 kl. 14 - UPPSELT Lau. 12/4 kl. 14 Lau. 26/4 kl. 14 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í SAMSTARFI VIÐ VESTURPORT í kvöld kl. 20 Mi. 9/4 kl. 20 Lau. 12/4 kl. 16 Lau. 12/4 kl. 20 Fö. 25/4 kl. 20 FORSALUR LEIKHÚSMÁL götuleikhús Su. 6/4 kl. 20.15 - Umræðukvöld ALLIR í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA! Borgarleikhúsid er fjölskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá fritt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum. (Gildir ekki á söngleiki og barnasýningar.) BEYGbyR f IÐNO Fös. 11. apríl. kl. 21.00 Miðasalan í lönó er opin frá 10-16 alla virka daga, 14-17 um helgar og frá kl. 19 sýningardaga. Pantanir í s. 562 9700. Ósóttar pantanir eru seldar 4 döqum fyrir sýninqar. Hin smyrjQndi jómfrú Nærandi leiksýning fyrir líkamo og sól. Sýnt íIðnó: Fös. 4. apríl. kl. 20.00, uppselt Mið. 16. apríl, kl. 20.00, örfá sæti Lau. 19. apríl, kl. 20.00 Lau. 25. apríl, kl. 20.00 Sun. 26. apríl, kl. 20.00 Síðustu sýningar. „Maðurinn sem... er ævintýraferð um heilabörkinn, vitsmunalegskemmtun þar sem tilfinningarnar kvikna þar sem þær eiga heima: i huga áhorfandans" ÞTMbl „Maðurinn sem ... er mjög skemmtileg og áhugaverð sýning og sýnir vel Laugardagur 5. aprílkl. 14. Trompet og píanó. Einleikaraprófstónleikar frá Tónlistarskólanum í Rvík. Vilhjálmur Ingi Sigur&rson, trompet, og Hrefna Eggertsdóttir, píanó. Verðkr. 1.000/500. Sunnudagur 6. apríl TÍBRÁ: Frá „StröncT til fi rílkl.20. til fjarlægra stranda Helga Ingólfsdóttir leikur einleiksverk fyrir sembal efidr Haflitk Hallgrímsson, Henry Purcell, Elínu Gunnlaugsdóttur, Oliver Kentish, J. S. Bach, Georg Böhm og Leif Þórarinsson. Verðkr. 1.500/1.200. Þriðjudagur 8. apríl kl. 20. Fiða og píanó; Utskriftartónleikar frá Listaháskóla IsIands.Elfa Rún Kristinsdóttir, fida, og Kristinn Öm Kristinsson, píanó. Miðvikudagur 9. apríl kl. 20 Píanótvenna Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Þorsteinn Gauti Sigur&son leika tórdist fyrir tvær slaghörpur eftir Debussy, Fauré, Grieg, Shostakovich, Brahms, Tchaikovsky og Milhaud. Verð kr. 2.500/2.000/1.500 hvers megnugur hópurinn á Nýja sviði Borgarleikhússins er.... þarna er á ferðinni einn áhugaverðasti leikhópur landsins." MÞÞ RÚV G NOVARTiS hélt að konan hans væri hattur eftir Peter Brook og Marie-Héléne Estienne leikstjóri Peter Engkvist BORGARLEIKHUSIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.