Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 Skoðun I>V Uppbygging þorskeldis Sigriður Ingvarsdóttir alþingismaður skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins í Norð- austurkjördæmi Skoðun bHHuL Seiöaeldi Tilraunir eru frekar skammt á veg komnar hér á landi en talið er aö allar forsendur fyrir stórfelldu þorskseiðaeidi séu hér til staöar, sem og öll grundvallarþekking. Mjög hröð aukning hefur átt sér stað í fiskeldi í heiminum á undanförnum árum og höfum við íslendingar reynt eftir megni að fylgja þeirri öru þróun eftir. Hér á landi höfum við prófað að ala ýmsar fisktegundir, reyndar með misjöfnum árangri, og þróunin hefur verið fremur hæg nema hvað varðar beikjueldi sem og lúðueldi í Eyjafirði. En í gegnum þetta ferli höfum við öðlast dýr- mæta þekkingu og reynslu. Nú velta menn fyrir sér hvort framtíð sé í þorskeldi á íslandi, en í öðrum löndum, eins og í Nor- egi, Skotlandi og Kanada, hefur áhugi á þorskeldi einnig farið ört vaxandi og í Noregi er jafnvel gert ráð fyrir að framleiðsla þorskseiða verði um 50 milljónir árið 2005 og framleiðsla á eldis- mDjP Áriö 2003 er Evrópuár fatlaðra LANDSSAMBAND FATLAÐRA Reykjavík, 2003 Agæti lesandi! Bréf þetta er sent til þín með von um góðar viðtökur á Evrópuári fatlaðra, við fjáröflun sem Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra stendur fyrir. Markmiðið er að safna fé til breytinga og stækkunar á íbúðum fyrir hreyfihamlaða í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12 í Reykjavík. I því skyni hefur fjöldi hljómlistarmanna lagt Sjálfsbjörg lið með því taka þátt í útgáfu hljómdisksins „Astin og lífið“ en hann inniheldur 14 áður útgefin lög með, m.a. Björgvin Halldórssyni, Stefáni Hilmarssyni, Sigríði Beinteinsdóttur, Eyjólfi Kristjánssyni, Ragnhildi Gísladóttur, Bjarni Ara, Vilhjálmi Vilhjálmssyni og mörgum fleiri ástsælum dægurtónlistarmönnum. Á næstu dögum mun starfsfólk okkar hringja út vegna þessa átaks. Það er von okkar að landsmenn sýni velvilja og skilning. Rétt er að taka fram að Sparisjóður vélstjóra styrkir verkefnið með því að greiða allan kostnað við útsendingu. Banka nr. 1175-26-10656 kt: 570269-2169. Nánari upplýsingar í síma 800 6633 grænt númer. Með von um jákvæðar undirtektir og fyrirfram þakklæti. F.h. Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, Arnór Pétursson formaður arro@mmedia.is Sigurður Einarsson framkvæmdastjóri sigurd@sjalfsbjorg.is II spv www.spv.is 2003 Árið 2003 er Evrópuár fatlaðra Hátúni 12 105 Reykjavík ísland/lceland Sími/Tel.: +354-552 9133 Bréfsími/Fax: +354-562 3773 Póstfang/E-mail: mottaka@sjalfsbjorg.is Heimasíða/Home page: http://www.sjalfsbjorg.is Um er að ræða bæði stór og smá fyrirtæki sem eru að gera athyglisverðar tilraunir með þorskeldi og hefur svokallað áframeldi með þorsk skil- að góðum árangri. þorski verði allt að 150 þúsund tonnum árið 2007. í ljósi mikil- vægis sjávarútvegs fyrir íslend- inga er það í hæsta máta eðlilegt að taka þátt í þessu starfi af full- um þunga. Mörg öflug íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa kosið að setja aukinn slagkraft í upp- byggingu í þorskeldi og er þetta ein af leiðum sjávarútvegsfyrir- tækja til að mæta samdrætti í aflaheimildum. Um er að ræða bæði stór og smá fyrirtæki sem eru að gera athyglisverðar tO- raunir með þorskeldi og hefur svokallað áframeldi með þorsk skilað góðum árangri. Þessar til- raunir hafa einnig kennt okkur margt varðandi ýmsa þá þætti sem áhrif hafa á vaxtarhraða þorsksins: fóðrið, ytri aðstæður, eins og áhrif sjávarhita, og fleira. En betur má ef duga skal. Ef við ætlum að halda í við samkeppnis- þjóðir okkar verður að huga að seiðaeldi og kynbótum. Tilraunir með seiðaeldi eru frekar skammt á veg komnar hér á landi en talið er að allar forsendur fyrir stór- felldu þorskseiðaeldi séu hér til staðar, sem og öll grundvaliar- þekking. Það er afar brýnt að áfram sé unnið að mótun al- mennrar stefnu í rannsóknar- og þróunarvinnu varðandi þorskeldi í samstarfí við stofnanir og fyrir- tæki og faglega sé staöið að atferl- is- og eldisrannsóknum. Ef rétt er að málum staðið hér á landi varð- andi þessa atvinnugrein á hún ör- ugglega framtíðina fyrir sér. Bakkabræður og Samfyikingin Karl Ormsson skrifar: Ósjáifrátt kemur manni í hug ævintýrið um Bakka- bræður þegar hugsað er um Samfylking- una. Á Bakka bjuggu bræð- umir Gísli, Ei- ríkur og Helgi, ávallt nefndir Bakkabræður, og þóttu eink- ar skrýtnir og vitgrannir. Samfylkingin sam- anstendur af sex eða sjö flokksbrot- um og eru stefnur þeirra jafnmarg- ar ef ekki fleiri. Hugsið ykkur ef svo iiia færi að Samfylkingin kæm- ist til valda 10. maí. Sjáiö Jóhönnu, Össur, Ingibjörgu Sólrúnu, Mar- gréti Frímanns og Helga Hjörvar skipta meö sér ráðherrastólum? Eða Guðmund Árna Stefánsson, Gísla S. Einarsson, Rannveigu Guðmundsdóttir, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur. Þetta yrði svipað og hjá Bakkabræðrum, ekkert sam- komulag og eintómt rifrildi. Þó er nú sennilega spaugilegast, og mest athugandi fyrir Samfylkinguna (sá beiski bikar að bergja) að ekki er hægt að koma Ingibjörgu Sólrúnu á þing nema kjósa Helga Hjörvar fyrst, en það er piltur sem fæstir gætu hugsað sér eð kjósa. Bakkabræður. Blýantsteikning frá 1923 eftir Mugg, Guð- mund Thorsteinsson, sem heitir Ekki er kyn þótt keraldið leki. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.is Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.