Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 Sport Komnir: Hermann Albertsson frá Leiftri/Dalvík, Sverrir Garöarsson frá Molde (lán), Allan Borgvardt frá AGF Árhus (lán) og Tommy Nielsen frá AGF Árhus (lán). Farnir: Benedikt Ámason í Stjöm- una, Hilmar Bjömsson i KR og Jó- hann Möller í Val. FH-ingar skiptu um þjálfara síöast- liðið haust. Sigurður Jónsson var lát- inn fara eftir að árangur liðsins hafði valdið vonbrigðum og við stöðu hans tók Ólafur Jóhannesson, ekki alls ókunnur í Hafnarfirði. Ólafs bíður erfitt verkefni. Hann hefur misst besta mann liðsins undan- farin tvö ár, fyrirliðann Hilmar Bjömsson, til KR og miðað við þá leik- menn sem hafa komið er ekki sjáan- legt að þeir hafi fundið leikmann til að leysa Hilmar af hólmi. Þeir hafa þó fengið Hermann Albertsson og Sverri Garðarsson. Hermann er vinstri bak- vörður og ætti að styrkja liðið mikið en Sverrb", sem er 19 ára gamall, er miðvörður og spuming hvort hann er tilbúinn. Koma Dananna Allan Borgvardt og Tommy Nielsen til liðs- ins var lífsnauðsynleg enda liðið búið að spila mjög illa í vetur en þaö er þó aldrei að vísan að róa með erlenda leikmenn eins og reynslan hefur sýnt. Það er mat DV-Sport að FH-liðið hafi nokkum veginn staðið í stað hvað varðar styrkleika ef Danimir tveir standa undir væntingum. Bnkunn DV-Sports: 0 Komnir: Baldur Bjamason úr Stjömunni, Kristinn Tómasson úr Fylki, Ragnar Árnason úr Stjömunni, Stefán Eyjólfsson úr Hetti og Tómas Ingason úr Val. Farnir: Thomas Rutter til Bandarikjanna. Framarar hafa styrkt hóp sinn mikiö frá síðasta sumri. Baldur Bjamason, sem hefur dregið fram skóna eftir nokkurt hlé, hefur ver- ið að spiia í vöminni hjá þeim en hann er mjög fjölhæfur og virðist vera í góðu formi þrátt fyrir langt hlé. Ragnar Árnason er einnig fjöl- hæfur, getur spilað allar stöður frá vöm til sóknar og það er þýðingar- mikið fyrir Framara að hafa slíka leikmenn innanborðs. Kristinn Tómasson styrkir Framara einnig mikið því að þá hefur sárlega vant- að framherja sem hefur getað hald- ið boltanum frammi. Kristinn er stór og sterkur og ólíkur hinum framherjum liðsins sem eru flest- allir fljótir og vilja frekar hlaupa í svæði en fá boltann í fætur. Thomas Rutter er horfinn á braut til Bandaríkjanna en ólíklegt er að Framarar sakni hans - því slíkir voru ekki knattspymuhæfileikar hans. Framarar hafa styrkst mikið. Þeir hafa kannski ekki fengið til sín nein „stór“ nöfn en menn sem munu hjálpa liðinu mikið. Byrjunin á tímabilinu lofar einnig góðu og nýjum mönnum hefur gengið vel að komast inn í leik liðsins. Bnkunn DV-Sports: ^ Komnir: Andri Steinn Birgisson úr Fjölni, Haukur Ingi Guðnason úr Keflavík, Kjartan Antonsson úr ÍBV, Ólafur Ingi Skúlason úr Arsenal (lán) og Ólafur Páll Snorrason úr Stjömunni. Farnir: Björgvin Vilhjálmsson til Danmerkur, Kristinn Tómasson til Fram, Ómar Valdimarsson til Selfoss, Steingrímur Jóhannesson tfl IBV. Þó nokkrar breytingar hafa orð- ið á Fylkisliöinu frá því í fyrra og hafa fjórir lykilmenn liðsins horfið á braut. Ómar Valdimarsson, Björgvin Vilhjálmsson, Kristinn Tómasson og Steingrímur Jóhann- esson léku allir lykilhlutverk hjá Fylki á síðasta tímabili, mismikil þó, en það er þó ekki hægt að segja annað en Fylksimönnum hafi tek- ist vel upp í að fylla þeirra skörð. Ólafur Ingi Skúlason er kominn frá Arsenal í stað Björgvins, Ólaf- ur Páll Snorrason fyrir Kristin Tómasson, Haukur Ingi Guðnason fyrir Steingrím Jóhannesson og Kjartan Antonsson fyrir Ómar Valdimarsson. Allir fjórir eru þeir betri en forverar þeirra en mesta spumingarmerkið er Kjartan en hann hefur verið mikið meiddur undanfarin ár. Það er mat DV- Sports að Fylkismenn hafi styrkt lið sitt mjög mikið fyrir komandi tímabil. Einkurai DV-Sports: Lee Sharpe; her i leik með Bradford i báráítu við Paut Scholes hjá Manchester United fyrir fjórum árúm, er gertginn t raöir Grindvikinga og ftejstar jþess aö koma knattspphuferlinum a rétlan kjöl. Reuters - þrjú efstu liðin í fyrra, KR, Fylkir og Grindavík, Það er við hæfi þegar aðeins einn og hálfur mánuður er í að flautað verði til leiks í Símadeildinni í knattspymu að iíta aðeins yfir þær breytingar sem orðið hafa á leikmannahópum liðanna tíu sem spila í Símadeildinni á kom- andi tímabili. Flest liðin hafa gengið í gegnum miklar breytingar. Það vekur reyndar athygli að liðin tvö sem eru að koma upp úr 1. deild, Valur og Þróttur, hafa haft hægt um sig í vetur, sérstaklega ef miðað er við forvera þeirra í nýliða- stöðunni undanfarin ár sem hafa verið dugleg við að sanka að sér mönnum. Þessi tvö lið ætla sér væntanlega að treysta á sína eigin leikmenn sem er að sjálfsögðu virðingarvert og öðrum lið- um til eftirbreytni. Þrjú efstu lið deildarinnar í fyrra, KR, Fylkir og Grindavík, hafa styrkt leikmannahópa sína mest þannig að það virðist lítil hætta á því að hin lið- in sjö nái að velta þeim úr sessi sem þrjú bestu lið íslenskrar knattspymu. Meistararnir stórtækir Islandsmeistarar KR hafa verið hvað stórtækastir á leikmannamark- aðnum í vetur. Þeir byrjuðu strax eftir mót þegar þeir fengu fjóra leikmenn, Hilmar Bjömsson úr FH, Kristján Sig- urðsson úr KA, Scott Ramsey frá Grindavík og Garðar Jóhannsson frá Stjörnunni. Forráðamönnum liðsins fannst ekki nóg komið, jafnvel þótt lít- il skörð hefðu verið höggvin í hópinn í vetur, því í síðustu viku undirstrikuðu íslandsmeistaramir þá ætlun sína að verja titilinn með kjafti og klóm þegar bræðumir Arnar og Bjarki Gunnlaugs- synir skrifuðu undir samning við fé- lagið. KR-ingar verða seint sakaðir um að svífa um í sigurvímu eftir titilinn síðastliðið haust því önnur eins leik- mannakaup á einum vetri hafa verið sjaldséð hér á íslandi. Setja markiö hátt Fylkismenn setja einnig markið hátt. Þeir eru væntanlega orðnir þreyttir á aö horfa á eftir íslandmeist- aratitlinum fara eitthvað annað eftir að hafa verið í seilingarfjarlægð við hann undanfarin þrjú ár. Metnaðurinn er mikill hjá félaginu sem er sennilega það eina á íslandi sem hikar ekki við að kaupa leikmenn frá öðrum íslenskum félögum fyrir stórar upphæðar, samanber kaupin á Vali Fannari Gíslasyni frá Fram fyrir síðasta tímabil og kaupin á Hauki Inga Komnir: Jóhann Bene- diktsson úr Keflavík, Óðinn Ámason úr Þór Ak., Ólafur Gottskálksson frá Brentford, Sverrir Þór Sverrisson úr Njarðvík og Lee Sharpe frá Englandi. Farnir: Albert Sævarsson til Færeyja, Jóhann Aðal- geirsson til Sindra og Scott Ramsey til KR. Engum blöðum er um það að fletta aö Grindvíkingar hafa styrkst gífurlega i vet- ur. Þeir hafa fengið frábæran markvörð, Ólaf Gottskálks- son, sem leysir Albert Sæv- arsson af hólmi. Þeir hafa fengiö Jóhann Benediktsson, sem er góður vinstri bak- vörður. Óðinn Árnason er fjölhæfur leikmaður sem get- ur spilað allar stöður í vöm og sem afturliggjandi miðju- maður og síðan er ótalinn Lee Sharpe. Ef hann er í formi þá mun hann styrkja Grindavíkurliðið mjög mik- ið. Liðið hefur reyndar misst Scott Ramsey til KR en hann var ekki fastur maður í lið- inu hjá Grindavík í fyrra og virtist ekki eiga upp á pall- borðiö hjá Bjama Jóhanns- syni þjálfara. Bnkum DV-Sports: 0 Komnir: Andrés Vilhjálms- son frá KA, Stefán Þórðarson frá Englandi, Unnar Valgeirs- son frá Bruna og Þórður Þórð- arson frá KA. Famir: Ólafur Þór Gunnars- son í Val, Haraldur Hinriks- son í HK, Hálfdán Gíslason í Val og Sturla Guðlaugsson í Aftureldingu. Skagamenn hafa sótt liðs- styrk í sömu fjölskylduna þennan veturinn. Bræðumir Þórður og Stefán Þórðarsynir eru komnir til baka eftir mis- langa fjarvem frá heimaslóð- um. í staðinn fyrir Þórö hvarf markvörðurinn Ólafur Þór Gunnarsson til Vals og vom skiptar skoðanir um réttmæti þeirrar ákvörðunar. Báðir em góðir markverðir en rætur Þórðar í samfélaginu á Akra- nesi reyndust sterkari. Stefán hefur verið meiddur undanfar- ið ár og óvíst hvort hann nær fyrri styrk. Hálfdán Gíslason fór einnig í Val en ólíklegt að hans verði saknað þar sem hann náði ekki að festa sig í sessi i Skagaliðinu. Miðaö við óvissuna um heilsu Stefáns og svipaða getu markvarðanna þá er það mat DV-Sports að styrkur Skagamanna hafi lítið breyst. _ Bnkunn DV-Sports:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.