Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2003, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 29 4 Hvað þýða teningarnir? Á þessum tveimur síðum gefur DV-Sport liðunum tíu í Símadeild- inni á komandi sumri einkunn eftir því hvort þau hafa styrkst eða veikst í vetur. Einkunnimar eru frá einum til sex og táknar sex að liðið hefur styrkst gifurlega mikið, fimm að lið- ið hafi styrkst mjög mikið, fjórir að liðið hafi styrkst nokkuð, þrír að lið- ið sé jafnsterkt og í fyrra, tveir að lið- ið sé veikara en í fyrra og einn að liðið sé mun lakara en í fyrra. Hafa skal í huga að hér er einungis verið að fjalla um breytingar á liðunum - ekki annað. -ósk Rafpóstur: dvsport@dv.is - keppni í hverju orði Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir gengu í raðir KR-inga síöastliðinn föstudag og munu styrkja liðiö gífu Símadeildinni hafa styrkt sig í sumar: enífyppa hafa styrkt leikmannahópa sína mest í vetur Guðnasyni frá Keflavík í febrúar, ef það telur slík kaup þjóna hagsmunum félagsins. í haust hurfu nokkrir leik- menn á braut en þeir voru fljótt og ör- ugglega leystir af hólmi með sterkari leikmönnum. Það er mikill fengur fyr- ir liðið að fá Ólaf Inga Skúlason heim frá Arsenal. Hann er fjölhæfur leik- maður sem getur spilað bæði sem bak- vörður og miðjumaður. Kjartan Ant- onsson er frábær vamarmaður svo framarlega sem hann er heill heilsu og það efast enginn um hæfíleika Hauks Inga Guðnasonar til að gera vamar- mönnum á íslandi lífið leitt með hraða sínum þó hann mætti að ósekju skora meira af mörkum. Grindvíkingar fylgja með í humátt á eftir Reykjavíkurliðun- um tveimur kemur síðan Grindavík. Þar á bæ hafa menn ekki setið auðum höndum heldur sótt menn af innlend- um og erlendum miðum. Ólafur Gott- skálksson mun standa í marki Grind- víkinga í stað Alberts Sævarssonar, Óðinn Árnason og Jóhann Benedikts- son munu styrkja vömina en sá leik- maður sem menn bíða með mestri eft- irvæntingu er væntanlega Englending- urinn Lee Sharpe sem dreginn var á flot af dugmiklum bræðrum í Grinda- vík eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara á knattspyrnuvellinum um nokkra hríð. Grindvíkingar hafa styrkst mik- ið, meira en flest lið, en mikið veltur á því hvemig Lee Sharpe mætir til leiks. Framarar hafa einnig verið duglegir að bæta við sig mönnum en ekkert í líkingu við þrjú áðurtalin lið. Önnur lið hafa staðið í stað nema ÍBV og KA sem hafa veikst og hafa ekki nema einn og hálfan mánuð til að styrkja leikmannahópinn sinn. Margir spennandi ieikmenn Margir spennandi leikmenn munu spila i Simadeildinni í sumar. Það verður fróðlegt að fylgjast með tví- burunum Amari og Bjarka með KR- ingum í sumar. Sömuleiðis Lee Sharpe hjá Grindavík en auk þess hefur Dan- inn Sören Hermansen sýnt það í leikj- um sínum með Þrótti að þar er á ferð- inni mjög áhugaverður leikmaður. Ólafur Ingi Skúlason ætti að koma reynslunni rikari til Fylkis eftir rúm- lega eins árs dvöl hjá Arsenal. Sumarið í Símdeildinni ætti því að geta orðið skemmtilegt enda liðin flest orðin sterkari og fleiri spennandi leikmenn komnir i deildina. -ósk Komnir: Sören Hermansen frá Mechelen í Belgiu og ívar Sigur- jónsson frá Breiðabliki. Farnir: Enginn Þróttarar hafa líkt og Valsmenn farið sér hægt á leikmannamark- aðnum í vetur. Þeir hafa aðeins fengið tvo sóknarmenn til liðs við sig, þá ívar Sigurjónsson og Dan- ann Sören Hermansen, en á móti kemur að þeir hafa ekki misst einn einasta leikmann. ívar hefur reynslu úr efstu deild en það er ansi langt síðan hann var í al- mennilegu formi og það er vandséð hvemig hann á að komast í liðið hjá Þrótti. Hann styrkir þó ungan og reynslulítinn hóp. Sören Hermansen virðist vera stóri vinningurinn í lottóinu fyrir Þróttara ef marka má frammistöðu hans í deildabikamum. Hann er frábær leikmaður, mikill marka- skorari og góður að leggja upp færi fyrir aðra og gæti verið sá leikmað- ur sem gerir það að verkum að Þróttarar verða stórhættulegir í sumar. Hann er liðinu gífurlegur styrkur en vinnur þó ekki leiki upp á eigin spýtur. Þróttarar em með mun sterkara lið en í fyrra, þökk sé Sören, en þeir eru að spila í nýrri og sterkari deild og tilkoma hans jafnar sennilega út styrkleikamun- inn á tveimur efstu deildunum. Einkunn DV-SpoPts: ^ Komnir: Hálfdán Gíslason frá ÍA, Jóhann Möller frá FH, Kristinn Lárusson (byrjaður á ný) og Ólafur Þór Gunnarsson frá ÍA. Farnir: Tómas Ingason í Fram Valsmenn hafa klárlega styrkt sig frá því í fyrra enda eðlilegt þar sem þeir eru nýliðar. Ólafur Þór Gunnarsson er kominn af Skagan- um til að verja markið hjá Vals- mönnum og verður án efa mjög mikilvægur hlekkur í liðinu. Sóknarmennimir Hálfdán Gísla- son og Jóhann Möller hafa ekki náð að festa sig í sessi hjá sínum liðum undanfarin ár en hafa sýnt ákveðna hæfileika sem gætu blómstrað ef þeir fá tækifæri til að nýta þá. Kristinn Lárusson hefur tekið fram skóna á ný og reynsla hans og karakter kemur til með að vera dýrmæt í sumar. Valsmenn hafa aðeins misst markvörðinn Tómas Ingason yflr í Fram og þótt nýliðar í Símadeild- inni hafi oft verið atorkusamari á leikmannamarkaði fyrir tímabil þá hafa Valsmenn styrkst frá því í fyrra. Þeir eru hins vegar nýliöar og þvi metum við að það svo að liðið sé nokkurn veginn jafnt að styrk og í fyrra miðað við styrkleika- muninn á tveimur efstu deildun- um. Einkunn DV-Spopts: ^ Komnir: Scott Ramsey frá Grinda- vík, Hilmar Bjömsson frá FH, Garð- ar Jóhannsson frá Stjömunni, Krist- ján Sigurðsson frá KA, Bjarki Gunn- laugsson frá ÍA og Amar Gunnlaugs- son frá Skotlandi. Farnir: Þorsteinn Jónsson (hætt- ur), Magnús Ólafsson til Hauka og Tryggvi Bjarnason til ÍBV. Það þarf ekki að fara mörgum orð- um um það að íslandsmeistarar KR hafa styrkst gífurlega frá síðasta sumri og verðskulda í raun meira en fulla gjöf fyrir atorku sína á leik- mannamarkaðnum í vetur. Þeir fengu besta mann KA á síðasta sumri, Kristján Sigurðsson, til að efla varnarleikinn og nokkuð ljóst að hann gerir meira en að fylla skarð Tryggva Bjarnasonar sem spilaði lít- ið síðasta sumar. Hilmar Björnsson, sem hefur verið einn besti bakvörð- ur SímadeOdarinnar undanfarin tvö ár, er kominn heim á ný og um getu tvíburanna Amars og Bjarka Gunn- laugssona þarf vart að fjölyrða. Bjarki sýndi það á síðasta sumri að hann þarf varla að vera í formi tfl að vinna leUú upp á eigin spýtur og menn eru enn minnugir þess þegar Amar Gunnlaugsson spilaði hér á landi síðast, fimmtán mörk í sjö leikjum árið 1995. Þeir leikmenn sem eru horfnir á braut áttu ekki fast sæti í liðinu á síðasta tímabUi og heggur brotthvarf þeirra því ekki veruleg skörð í leikmannahóp KR. Einkunn ÐV-Sports: $ Komnir: Igor Kostic frá Vík- ingi, Steingrímur Jóhannesson frá Fylki og Tryggvi Bjamason frá KR. Farnir: Hlynur Stefánsson hættur, Ingi Sigurðsson hætt- ur, Niels Bo Daugaard tU Dan- merkur, Tómas Ingi Tómasson án félags, Olgeir Sigurðsson tU Breiðabliks, Kjartan Antons- son tU Fylkis. Eyjamenn hafa misst gríðar- lega mikið frá því í fyrra. Fam- ir eru reynslumestu leikmenn liðsins, Hlynur Stefánsson og Ingi Sigurðsson eru hættir og Tómas Ingi Tómasson fékk ekki samning sinn endurnýjað- an. Þó skal aldrei afskrifa Hlyn því hann tók fram skóna á síð- asta timabUi þegar neyðin var mest og gæti gert það í sumar. Það verður erfitt fyrir Eyja- menn að fyUa skarð Kjartans Antonssonar í vöminni og aUs óvíst að hinn efnUegi Tryggvi Bjamason sé tUbúinn tU þess. Hann hefur verið mikið meidd- ur undanfarið ár og skortir sár- lega reynslu. Það styrkir þó lið- ið að hafa fengið Steingrím Jó- hannesson tU baka en ef Eyja- menn styrkja sig ekki meira bíður þeirra sérlega erfitt sum- ar. Einkunn DV-Spopts: 0 Komnir: Jón Ö. Eiríksson frá Leiftri/Dalvík, Pálmi Pálmason frá Völsungi, Þor- leifur Ámason frá Leiftri/Dal- vík, Þorvaldur Guðbjömsson frá Leiftri/Dalvík, Örlygur Þór Helgason frá Þór Ak. og Stein- ar Tenden frá Stryn i Noregi. Farnir: Andrés VUhjálms- son og Þórður Þórðarson tU ÍA og Kristján Sigurðsson til KR. KA-menn misstu gífurlega mikið þegar Kristján Sigurðs- soon ákvað að söðla um og spUa með íslandsmeisturum KR á komandi tímabUi. Hann var þeirra besti maður síðasta sumar og algjör lykUmaður í sterkum varnarleUí liðsins. Miöað við þann mannskap sem þeir hafa fengið hafa þeir ekki fyllt skarð hans. KA- menn munu einnig finna fyrir því að hafa misst Þórð Þórðar- son úr markinu. Hann lék vel síðasta sumar og í ljósi þess að KA-menn hafa ekki fundið staðgengU fyrir hann enn sem komið er þá mæta KA-menn tU leUts með mun veikara liö en í fyrra. Þrír leikmenn eru komnir frá Leiftri/Dalvík en þeir hafa ekki sannað sig í efstu deUd. Norömaðurinn Steinar Tenden er spurninga- merki. Bnkinn DV-Sports: < r * *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.