Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Síða 5
LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003 DVBlLAR 5 Smæsti 4x4 sportbíllinn Smæsti opni sportbíll í heimi er frá Daihatsu og kallast Copen og verður bráðum fáan- legur með fjórhjóladrifi. Bíllinn kemur á markað í haust og keppir við bíla eins og Smart Roadster og Ford StreetKa. Fjórhjóladrifsútgáfan kemur þó ekki á markað fyrr en 2004 og aðeins í Japan til að byrja með. Sá bíll verður með 1,3 lítra vél en núna er bíllinn með 660 rúmsentímetra vél sem skilar 64 hestöflum. 1,3 lítra bíllinn verður 86 hestöfl sem er ágætt fyrir bíl sem er aðeins 900 kíló. Upptak í hundrað ætti því að geta verið um 8,5 sek- úndurog hámarkshraði 180 km. Þrátt fyrir að bíllinn sé lítill og ódýr er búnaður hans eins og í stærri bílum og er til Mr. Bean klessti bílinn sinn dæmis skrikvörn, loftkæling og rafdrifin opnun á þaki staðal- búnaður. Að sögn Egils Jóhannssonar forstjóra Brimborgar er þess ekki að vænta að þessi bíll verði boð- inn hérlendis. Kemur það til vegna óhagstæðs verðs á Daihatsu-bílum hérlendis. Trúðurinn og leikarinn Rowan Atkinson er vel þekktur sem Mr. Bean og einnig Johnny English og hefur reyndar báðar þær persónur svolítið í sér. Þessi„nörd" keyrði nýlega allt of hratt í þriðja skiptið á stutt- um tíma í einum af sínum sportbílum, Aston Martin Zagato, bíl sem kostar enga smápeninga - verðið hleypur á tugum milljóna króna.Á 130 km hraða ók Atkinson inn í runna í nágrenni veðhlaupa- brautar skammt utan við London. Atkinson sagðist vera bæði stirður og í taugalosti yfir atvikinu. Ekki er Ijóst hvort það var vegna útafakstursins eða þess tjóns sem hann og trygg- ingafélagið urðu fyrir. Stór fjölnotabíll frá Mercedes frumsýnd- ur í sumar Á næsta ári mun Mercedes-Benz leysa V-línu sína af hólmi með al- veg nýjum bíl sem fær líka nýtt nafn, Viano. Bíllinn er mun stærri en sá sem hann leysir af hólmi og meiri fjölnotabíll. Hægt verður að velja um þrjár stærðir á yfirbygg- ingu upp í 5220 mm á lengd og hjólhaflð verður 3200-3400 mm. Innréttingar verða fjölbreyttar og hægt verður að klæðskerasauma bflinn eftir þörfum kaupenda sinna. Sætin verða sett í sérstakar brautir svo að hægt verður að end- urraða þeim eftir hentugleikum. Viano verður afturhjóladriflnn sem er nokkuð óvenjulegt í þess- um flokki en að sögn hönnuða Mercedes er það gert til að fá meira veggrip. Hægt verður að fá hann með bæði fjögurra og sex strokka vélum frá 88 upp í 218 hestöfl. Bfllinn verður frumsýndur á húsbflasýningunni í Dusseldorf í sumar en einnig má búast við honum á bflasýningunni í Frank- furt í september áður en bfllinn kemur á markað fyrir áramót. njatl@dv.is Norðmanna freistað með ofurbensíni Norðmanna er þessa dagana freistað með nýju en dýru ofur- bensíni sem á að fara betur með bflvélar, gefa möguleika á meiri hraða og t.d. styttri tíma fyrir bfl- inn í hröðun frá 0 til 100 km hraða og betri viðbrögðum bflsins í um- ferðinni. Það eru Shell og Statoil sem bjóða þetta ofurbensín. Shell segir W-Power svar við óskum þeirra sem vilja bensín á borð við það sem Ferrari-formúlubflar fá og þannig fái þeir sem það kaupi hámarksafköst úr úr mótor bflsins. Undir það tekur Statoil. Norsku neytendasamtökin eru ekki ýkja hrifm og segja m.a. að kannski þurfí fólk afls ekki að skipta um bfl ef trúa eigi orðum Shell og Statoil um nýja bensínið. Hvorki Hydro Texaco eða Esso hafa í hyggju að setja nýtt kraft- bensfn á markað en benda á að bæði með 95 og 98 oktana bensíni sé hægt að kaupa sérstakt efni sem auki kraft bensínsins, og það kosti ekkert aukalega, en hjá Shell og Statoil kostar nýja bensínið um 2 krónum íslenskum meira en venjulegt bensín. Norsku neytendasamtökin segja að tilboð um ofurbensín nú sé að- eins staðfesting á því að slagurinn um viðskiptavinina sé harðari en nokkru sinni fyrr, um hvern bens- índropa og hverja krónu. Kannski kaupa einhverjir dýrara bensín standi þeim það til boða, en bara af forvitni, en auðvitað sé til fólk sem vilji kaupa hreinna bensín vegna þess að það vill fá minna sót frá bflnum, en það hljóti að vera í miklum minnihluta. SKEIFUNNI 11 • SIMI 520 8000 SMIÐJUVEGI 68 • SIMI 544 8800 BÍLDSHÖFÐA16 • SÍMI 577 1300 EYRARVEGI 29 ■ SÍMI 483 1800 DALSHRAUN113 ■ SÍMI 555 1019 WWW.StillinQ.iS UisinnPlns o meira Fyrir ökumenn sem leggja mikla áherslu á öryggisþáttinn í umferóinni og sækjast eftir mikilli lýsingu. Innnnrlifn .* • • • | ■ | • Tvofold ending LongerLife perurnar höfóa alveg sértaklega til atvinnubílstjóra, t.d. leigubílstjóra og annarra sem aka mikió. Slíkir ökumenn aka gífurlegar vegalengdir á hverju ári. LongerLife perurnar eiga reyndar alveg sérstakt erindi til íslenskra bíleigenda því hér á landi er ekið með liósum allan daginn. ÍPHiUPS! sölutilkynningar og afsöl I 550 5000 gg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.