Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 10
10 DVBlLAR LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003 REYNSLUAKSTUR Njáll Gunnlaugsson njall@dv.is „í beygjum liggur hann eins og hann sé á teinum" Sportlegur bíll sem segir sex Mazda 6 kom á markað í fyrra og hefur strax hlotið góðar viðtökur heimspressunnar. DV-bflar hafa þegar prófað fjög- urra dyra bflinn með 1,8 lítra vélinni og slógu því ekki hendinni á móti sporttýpunni þegar hún bauðst til reynsluaksturs á dögunum. Sá bfll er með 2,3 lítra vél og er fimm dyra og var reyndar í forvali á bfl ársins á íslandi á dögunum þar sem hann lenti í þriðja sæti yfír heildina. Sportleg innrétting Innrétting Mazda 6 er vel búin í grunninn og ekki síður í sporttýp- unni sem er búin leðurinnréttingu, rafdrifnum sætum og topplúgu. Það fer því vel um ökumann í þessum bfl og sportleg sætin gefa góðan stuðning. Stýri er einnig með að- drætti og þvf fæst kjörstaða bak við það. Önnur stjórntæki eins og gír- skipting eru þægilega staðsett og formuð og miðjustokkur gefur góð- an stuðning. Sportleg hönnun er nefnilega ekki síður mikilvæg inn- andyra í bfl sem vill gefa sig út fyrir sportlega eiginleika og eru þau at- riði í góðu lagi í þessum bfl. Innrétt- ingin sjálf er kannski ekki á við það besta í flokknum en hún er smekk- leg og takkar vel staðsettir og ein- faldir í notkun. Rúmgott farangursrými Pláss í Mazda 6 er gott, nánast hvar sem litið er í hann. Gott að- gengi er í gegnum dyr og það er þægilegt að setjast inn í hann þrátt fyrir frekar lág sæti. Rými í aftursæti er í góðu meðallagi og einnig í skotti sem er sérlega rúmgott. Afturhleri opnast líka vel upp og eini gallinn við afturendann er að einungis er Kostir Gallar Veggrip, farangursrými Veghljóð hægt að opna hann handvirkt en hafa hefði mátt barkaopnun eða jafnvel rafmagnsopnun til enn frek- ari þæginda. Undirritaður prófaði að flytja í bflnum stóran barnavagn sem taka þarf sundur í tvo hluta og komust þeir fyrir án vandkvæða hlið við hlið í skottinu sem verður að teljast nokkuð gott. Skemmtilegur akstursbíll í akstri er Mazda bfll sem segir sex og með 2,3 lítra vélinni er hann alveg sérlega skemmtilegur aksturs- bfll. Hann liggur betur með þessari vél en minni vélinni og kemur það lfldega til af betri þyngdardreiflngu. Einnig sakar ekki að gripmikil Bridgestone Potenza voru undir prófunarbflnum. Bfllinn er reyndar ekki eins hljóðlátur f akstri og helstu keppinautarnir og varla er hægt að kenna mjúkum Potenza-dekkjun- um um það nema að litlu leyti. Vél- in er þó frekar hljóðlát þó að hún urri aðeins þegar tekið er á henni, en þannig á það nú einmitt að vera í sportara eins og þessum. í beygj- um liggur hann eins og hann sé á teinum og hliðarvelta er mjög lítil. Undirrítaður prófaði að flytja í bílnum stóran barnavagn sem taka þarf sundur í tvo hluta og komust þeir fyrir án vandkvæða. Spólvörn grípur sárasjaldan inn í sem er kostur en hægt er að slökkva á henni kjósi menn svo. Krafturinn í vélinni er góður og jafn upp allt snúningssviðið sem hefur þann kost að hægt er að keyra bflinn hratt upp en einnig rólega á lágum snún- ingi þar sem togið kemur snemma inn. Þannig er gott að keyra bflinn innanbæjar og það hefur líka góð áhrif á bensíneyðsluna. Nokkuð gott verð Verðið á Mazda 6 með 2,3 h'tra vélinni verður að teljast nokkuð gott, 2.970.000 kr. með 2,3 lítra vél- inni sem skilar 166 hestöflum. Ekki alveg eins öflugur Lexus IS200 kost- ar 2.930.000 kr. og 190 hestafla Honda Accord 2,4 með sex gíra skiptingunni er á 2.740.000 kr. í Evr- ópudeildinni er Passat VR6 á 3.710.000 kr. Mondeo Ghia V6 á 2.995.000 kr. j Innstig er þægilegt þrátt fyrir frekar lága sætisstöðu og svört leðurinnrétt- ingin setur mikinn svip á hann að innan. ] 17 tommu álfelgur og diskabremsur á öllum hjólum eru staðalbúnaður. 3 Framljósin eru fallega löguð og Xenon-ljós í lága geislanum eru staðalbún- aður. Q Vélin í sportútgáfunni er 2,3 lítrar og hefur jafna og skemmtilega vinnslu. Q Mælaborðið er stílhreint og vel búið en mætti þó vera ögn nýtískulegra. Jj Tvöfalt pústkerfi aðgreinir sportútgáfuna frá öðrum sexum. JjJ Skottið opnast vel og rúmar stóran barnavagn. njall@dv.is MAZDA 6 2,3 MZR Vélbúnaður: Vél: 2,3 lltra bensínvél Rumtak: 2261 rúmsentímetri Ventlar: 16 Þjöppun: 10,8:1 Gfrkassi: 5 glra, beinskiptur UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: Fjölarma Fjöðrun aftan: Fjölarma Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD Dekkjastærð: 215/45 R17 YTRITÖLUR: Lengd/breidd/hæð: 4680/1780/1435 mm S Hjólahaf/veghæð: jÍpS 2675/150 mm Beygjuradius: 11,8 metrar INNRITÖLUR: Farþegar m.ökumanni: 5 Fjöldi höfuðpúða/öryggisi aúða: —K 5/8 Farangursrými: 492 lítrar HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: 9,1 lítrar Eldsneytisgeymir: 64 lltrar Ábyrgð/ryðvörn. 3/12 ár Grunnverð: 2.250.000 kr. Verð prófunarbíls: ' 2.970.000 kr. Umboð: j^^pagastSisaM Staðalbúnaður: Rafdrifnar rúður og speglar, útispeglar uppnitaðir, 8 öryggispúðar, rafdrifið öku- mannssæti, upphituð framsæti, samlæsingar, þjófavörn, armpúði, aðdráttarstýri, fjarstýrt útvarp og 6 diska geislaspilari með Bose-hátölurum,tölvustýrð miðstöð, skrikvörn.aksturstölva, skriðstillir, 17 tommu álfelgur, Xenon aðalljós,topplúga, leð- urinnrétting, vindskeið SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 166/6500 Snúningsvægi/sn.: 207 Nm/4000 Hröðun 0-100 km: 9 sek. | BAmarkshraðl: | 2í Ikpnú'fclst- ■ Eigin þyngd: 1430 kg Heildarþyngd: 3890 kg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.