Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Page 2
2 DVBfLAR LAUGARDAQUR 28. JÚNÍ2003
Innlendar fréttir
BMW X3 kynnt-
ur með ísland í
bakgrunni
Hafin er alþjóðleg kynning á nýj-
um BMW X3, nýjum sportjepplingi
frá bæverska framleiðandanum.
Kynningarmyndatökur íyrir bílinn
fóru fram hérlendis í síðustu viku og
fór myndatakan afar hljótt fram,
svo hljótt að umboðið vissi varla af
henni. Nýi bíllinn verður ffumsýnd-
ur á bílasýningunni f Frankfurt í
september og kemur á markað í
Evrópu næsta vor.
Margar nýjungar
Eins og sjá má hefur bíllinn sinn
eigin stíl þótt einkenni BMW, eins
og tvískipt „nýrnagrillið", séu aug-
ljós. Hjólahafið er mikið og skögun
því lítil. Meðal nýjunga í bílnum er
svokallað xDrive-fjórhjóladrif sem
getur fært átak á milli fram- og aft-
uröxuls á augabragði sem bætir
mjög stöðugleika bílsins á malbiki.
Hægt er að slökkva á kerfinu að vild
en þegar kveikt er á því kemur það í
veg fyrir undir- og yfirstýringu.
Utan vega færir það aflið til þeirra
hjóla sem hafa mesta gripið sem
bætir enn torfærueiginleika bílsins.
DSC-stöðugleikakerfið er einnig
tengt nýja kerfinu og hægt verður
að fá sérstakt kerrustöðugleikakerfi
fyrir þá sem þess þurfa, auk HDC-
hallaviðnáms. Billinn verður búinn
bæði bensín- og dísilvélum - meðal
annars þriggja lítra bensínvél sem
skilar 231 hestafli. Hægt verður að
fá „High Speed‘‘-útgáfu og nær bíll-
inn þá 225 km hraða. Önnur þriggja
lítra dísilvél er 204 hestafla línusexa
sem hefur 410 Nm af snúningsvægi.
Sá bíll verður með sex gíra bein-
skiptingu sem staðalbúnað en
einnig verður hægt að fá hann með
fimm þrepa sjálfskiptingu.
AUDI: Bílarnir á lóðamörkum Sæbólsbrautar 42 og 40 í Kópavogi hafa verið þar síðan snemma í vor og það vekur athygli að ekki
skuli nást samkomulag milli nágrannanna.
Bílar skilja að nágranna
Síðan snemma í vor hafa bílar
staðið í röðum í grunni á lóðamörk-
um Sæbólsbrautar 42 og 40 í Kópa-
vogi. Bílum hefur verið komið þarna
fyrir af íbúa Sæbólsbrautar 40 til að
koma í veg að íbúi Sæbólsbrautar 42
geti lokið við framkvæmdir á lóð-
inni. Upphaf deilunnar mun vera
það að nágrannarnir gerðu með sér
samning um að íbúi Sæbólsbrautar
42 fengi aðgang að lóð nágranna
síns meðan á framkvæmdum stæði
hjá honum sem ná alveg að lóðá-
mörkum. Greiðslan var m.a. frá-
gangur lóðar, malarofanfburður o.fl.
í innkeyrslu. Tímamörk munu
reyndar ekki hafa staðist og þegar
nágranninn krafðist svo hárrar pen-
ingaupphæðar fyrir afnotin til við-
bótar við áðurnefnd skilyrði var því
neitað. Hann brást þá skjótt við,
náði í ógangfæra bíla og raðaði
þeim á lóðamörkin svo ógjömingur
er að ljúka verkinu. Við svo búið
stendur enn. Bílar em því greinilega
til ýmissa hluta nytsamlegir þótt
ekki sé hægt að aka þeim. gg@dv.is
ÓDÝRARI: Porsche Cayanne er nú fáenlagur í V6 útfærslu og þannig búinn fer hann
undirToyota Landcruiser 100 í verði.
Porsche Cayenne
á 6,4 milljónir
Bílabúð Benna, umboðsaðili
Porsche á íslandi, hefur fengið
aukningu á innflutningskvóta á
Cayenne-jeppanum og fær fyrir-
tækið nokkra bíla í haust með 250
hestafla V6 vél. Heitir sá bíll
Cayenne en fyrir í framleiðsulín-
unni em Cayenne S sem er 340
hestafla og Turbo sem er 450 hest-
afla. Fyrsta sending af V6 Cayenne
er væntanleg í september og er
þegar farið að taka niður pantanir.
S-bíllinn kostar nú frá 7,9 milljón-
um króna en verðið á V6 bílnum
verður um 6,4 milljónir krónur.
Cayenne verður að mestu með
sama búnað og Cayenne S hvað
varðar innréttingu, leðurklæðn-
ingu og sama fjórhjóladrifskerfi.
Auk þessa er hægt að panta loft-
púðafjöðrun og annan aukabúnað
eins og í Cayenne S og Cayenne
Turbo. Frá því að Porsche Cayenne
var frumsýndur í Listasafni Reykja-
víkur hafa verið skráðir 15 slíkir bíl-
ar.
SUPERB: Nú styttist í að Skoda Superb verði boðinn hérlendis en hann verður vænt-
anlega kynntur innan fárra vikna.
Skoda Superb
ílúxusútgáfu
Skoda Auto sýndi nýlega sérstaka
útgáfu af Skoda Superb-lúxusbíln-
um á Brno Motor Show, bílasýn-
ingu í Tékklandi. Að sögn Jóns
Trausta Ólafssonar, kynningarfull-
trúa Heklu, styttist í að Hekla fái
fyrsta bílinn til landsins. „Við höf-
um nú í þó nokkurn tíma unnið að
því að hefja innflutning á Skoda
Superb til íslands. Það er nú loks að
verða ljóst að af því verður og em
allar líkur á að verð bílsins verði í
takt við okkar væntingar. Skoda
Superb er að mínu mati feikilega
spennandi bíll. Ef allt gengur sam-
kvæmt áætlun ætti bíllinn að verða
hér innan fárra vikna,“ sagði Jón
Trausti.
Bíllinn sem sýndur var í Brno er
með 2,8 lítra V6-vél sem skilar 190
hestöflum og er með fimm þrepa
valskiptingu. Hann er í sérstakri
lúxusútgáfu handa fyrirmönnum
og er þess vegna með festingar fyr-
ir fána á frambrettum. Að innan er ®
hann klæddur ljósu leðri og marg-
an lúxusbúnað er þar að finna, sér-
staklega í aftursæti. Má þar nefna
viðarhringborð í miðjustokki,
nettengingu, sjónvarp og DVD.
Skoda hefur líka látið gera sérstaka
leigubílaútgáfu af Superb, með
sömu áherslu á þægindi í aftursæt-
um, og verður sú útgáfa fáanleg
með 1,9 lítra TDI-dísilvélum, 100
og 128 hestafla, auk tveggja lítra
114 hestafla bensínvélar.
njall@dv.is