Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Page 8
8 OVBÍLAR LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ2003
REYNSLUAKSTUR
Haraldur Jónasson
hari@dv.is
Lancer var um tíma sölu-
hæsti bíllinn hér á landi
Reynsluakstur nr. 775
MITSUBISHI LANCER 1,6 COMFORT
Vél:
Rúmtak:
Ventlar:
Þjöppun:
Gírkassi:
1,6 lítra benslnvél
1584 rúmsentímetrar
8
10:1
5 gíra beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: MacPherson
Fjöðrun aftan: Fjölarma
Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS
Dekkjastærð: 195/60 R15
YTRITÖLUR:
Lengd/breidd/hæð:
Hjólahaf/veghæð:
Beygjuradíus:
4485/1695/1480 mm
2600/165 mm
10 metrar
INNRI TOLUR:
Farþegar með ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 5/6
Farangursrými: 591—1079 lítrar
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 7 lítrar
Eldsneytisgeymir: 50 lítrar
Ábyrgð/ryðvörn: 3/6 ár
Grunnverð: Liggur ekki fýrir
Umboð: Hekla
Staðalbúnaður: Álfelgur, útvarp með geisla-
spilara, rafstýrðir útispeglar,hiti (speglum og
framsætum, rafdrifnar rúður að framan og aft-
an, hiti í framsætum, handvirk loftkæling, fjar-
stýrðar samlæsingar, 6 öryggispúðar, vindskeið,
hliðarlistar.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 98/5000
Snúningsvægi/sn.: 150 Nm/4000
Hröðun 0-100 km: 12,6 sek.
Hámarkshraði: 181 km/klst.
Eigin þyngd: 1345 kg
Heildarþyngd: 1780 kg
Nýr Lancer með stærri
vélum en áður
Amma mín er töffari. Þegar ég
var nýbúinn að fá bílprófið átti
amma gamla silfurlitan Mitsu-
bishi Lancer af flottustu gerð.
Sá bíll var með topplúgu, sjálf-
skiptur, álfelgur, vindskeið og
allur pakkinn.
Ég vissi vel sem var að amma er
sanngjörn kona og ef ég myndi þrífa
drossíuna og bera nokkra innkaupa-
poka, reyta arfann í garðinum, sópa
stéttina, klippa trén og helluleggja á
bak við hús myndi sú gamla lána
mér Lancerinn. Ég man það eins og
það hefði gerst í gær þegar ég bauð
sætu stelpunni úr Breiðholtinu far í
kagganum og á einu augnabliki upp-
skar ég launin. ,Átt þú þennan bfl?“
„Jebb.“ „Nei, í alvörunni, æðislega er
hann gæjalegur." Það eina sem dró
kvöldið niður var að ég þorði ekki að
segja henni að amma mín ætti kagg-
ann, þannig að ég bauðst ekki til að
fylgja henni heim það kvöldið og
forðaðist að láta sjá mig á ryðgaðri
Daihatsu- Charade-beyglunni
næstu vikurnar í skólanum.
Sterk rallhefð
Nú, tíu árum seinna, bauðst mér
tækifæri sem ég gat ekki hafnað.
Kynning á nýjum og endurbættum
MMC Lancer í Finnlandi. Nánar til-
Kostir Gallar
Mjúk fjöðrun, hljóðlátur gfrkassi 1.6 Iftra vélin mætti hafa meira afl
tekið við borgina Javaskila í miðju
þessu landi vatna og trjáa. Bfllinn
sem tók á móti mér á flugvellinum
var sem gamail vinur. Eknar voru
nokkrar sérleiðir úr 1000 vatna rall-
inu, enda völdu MMC-menn þenn-
an kynningarstað með tilvísun í
sterka rallhefð Mitsubishi. í útliti er
nýr Lancer nokkuð hefðbundinn og
fer engar óhefðbundnar leiðir í þeim
efnum. Framendinn setur þó sterk-
an svip á bflinn en Lancer er fyrsti
bfllinn frá MMC með nýjum fram-
enda sem sjást mun í næstu bílum
frá Mitsubishi, s.s. Colt, Grandis og
fleiri bflum. Merkið er silfurlitað eins
og í nýja Pajeronum en er komið
með meiri þrívídd og dregur upp
skarpa línu á vélar Jflífmni.
Mjúkur og hljóðlátur í akstri
Það sem skipúr nokkru máli fyrir
Mitsubishi Lancer er að hann er nú
boðinn með stærri vélum, 1,6 og
tveggja lftra f stað 1,3 lítra véiarinnar.
Með 1,6 lítra vélinni verður hann fá-
anlegur bæði beinskiptur og sjálf-
skiptur en aðeins beinskiptur með
stærri vélinni. Lancer kemur í tveim-
ur gmnnútgáfúm, sem stallbakur og
langbakur, og eru nokkur mismun-
andi afbrigði af bflnum. Er mér tam-
ast að nefna sportútgáfu og þæg-
indagerð. Comfort-bfllinn kemur
með 1,6 lítra vél sem gefur 98 hestöfl,
beinskiptur eða sjálfskiptur. Þegar
maður byrjar að keyra bflinn finnur
maður fyrir tveimur kostum um leið,
mjúk ijöðrunin og hve Jfljóðlátur
Lancerinn er. Aflið var svo sem ekk-
ert til að hrópa húrra fyrir enda ekk-
ert verið að leggja áherslu á það í
Merkið er silfurlitað
eins og í nýja Pajeron-
um en er komið með
meiri þrívídd og dregur
upp skarpa línu á vélar-
hlífinni.
þessari gerð. Þó svaraði beinskipú
bfllinn örlítið betur en sá sjálfskipti,
eins og búast mátti við. Sjálfskipting-
in í bflnum er skemmtileg valskipt-
ing sem hægt er að stjóma hand-
virkt. Sportútgáfan er öÚu skemmti-
legri bfll, enda einungis fáanlegur
beinskiptur og þá fimm gíra. Sá bíll
er tveggja lítra og 135 hestöfl og var
mjög skemmúegur í akstri. Fjöðmn-
arbúnaðurinn í sportútgáfunni er
örlítið stífari og lægri til að bfllinn
liggi betur og kom það vel út.
Lancer var um tíma söluhæsti bfll-
inn hér á landi og var MMC með um
20% markaðsJflutdeild þegar best
lét. Á íslandi em því Mitsubishi-bif-
reiðir næststærsti flotinn á eftir
Toyota. Með þessum nýja Lancer
vilja Mitsubishi-menn reyna að ná
aftur til fyrri kaupenda Lancer-bfla.
Lancer verður kynntur hér á landi í
ágúst en ekld er enn komið verð á
bflinn. Vænta má þess að hann verði
á samkeppnishæfú verði miðað við
aðra svipaða bfla frá þessum heims-
hluta.
fj Mælaborðið er sportlegt með Jivítum mælaborðsbotnum og einnig er
sportlegt útlit á stýrinu.
Rl Farangursrýmið er með því lengsta sem gerist i þessari gerð bíla þegar búið
er að leggja niður sætin og 591 lítri er heldur ekki svo slæmt með sætin
uppi*
Q 1,6 lítra vélin er aðeins átta ventla og því ekkert sérlega aflmikil en fyrir þá
sem vilja meiri kraft er hægt að fá tveggja Ktra, 135 hestafla vél.
□ í armpúða milli aftursæta eru tvö glasastatíf.
Q Pláss (aftursætum er þokkalegt og hér situr Jón Trausti Ólafsson kynningar-
fulltrúi fyrir til að sýna það.
H Reynsluaksturinn fór meðal annars fram á malarvegum 1000 vatna rallsins
þar sem bíllinn stóð sig með ágætum.
V3j Framendi bílsins er nokkuð óvenjulegur og ber þar mikið á hryggsúlunni
“■ sem fer upp með miðri vélarhlífinni. Þetta sást fyrst á Outlander og verður
ættarsvipur Mitsubishi-bíla framtíðarinnar. Ljósin eru með þvottakerfi sem
staðalbúnað.
jl Bíllinn kemur strax bæði sem stallbakur og langbakur, beinskiptur eða sjáif-
skiptur, og í Comfort- eða Sport-útgáfum.
S Afturendinn er nokkuð sérstakur og ber þar mest á háum stefnuljósum.