Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003
Vivuiu-
velar
t'bölu
Upplýsingar hjá
Vélaveri hf.
Sími 588-2600 og
893-1722
3cxSuper
JCB BcxSuper, árg. ‘97
Notkun 5.587 vst.
Verð 3.200.000 - án/vsk
JCB 3cxSuper
Árg. ‘96
Notkun n.ooo vst.
2.400.000 - án/vsk.
JCB 3cx
Árg. ‘99
Notkun 5.030 vst.
Verð 3.300.000 - án/vsk.
Ausa 108
Árg.‘oi
Notkun li vst.
Verð UOO.OOO - án/vsk.
JCB 4cx
Árg. ‘93
Notkun 8.800 vst.
Verð 1.800.000 * án/vsk.
VÉLAVERf
Uppl. hjá Vétaveri hf.
SimS 5S8-2600 og 893-1722
Fimm innbrot
ÞJÓFNAÐUR: Tilkynnt var um
fimm innbrot eftir hádegi í
Reykjavík í gær. Eitt innbrot-
anna var í bíl í Breiðholti en
hin voru i hús miðsvæðis f
bænum.Talsverðu varstolið
að sögn lögreglu. Síðdegis
var svo maður handtekinn í
tengslum við innbrotin og var
hann í yfirheyrslu þegar blað-
ið fór í prentun.
Kyrrsetningarkröfu Gaums á Thee Viking, skemmtibáti
Jóns Geralds Sullenbergers, hafnað öðru sinni:
Slegist um Hamleys
VlÐSKIPTl: Stjórn leikfanga-
verslunarinnar Hamleys dró
stuðning sinn við yfirtökutilboð
Baugs til baka í dag. Gerðist
það í kjölfar þess að Tim Water-
stone, stofnandi samnefndra
bókaverslana, hafði boðið bet-
ur í fyrirtækið á föstudag. Til-
boð Waterstones hljóðaði upp
á 230 pence fyrir hvern hlut en
tilboð Baugs frá í fyrri viku, sem
sett var fram í von um að verj-
ast frekari tilboðum keppi-
nauta, hljóðaði upp á 226
pence. Samkvæmt Reuters-
fréttastofunni nýtur Watersto-
ne stuðnings hlutabréfasjóðs-
ins Rhone Capital og á hann nú
eða ræður yfir 13,55 prósent-
um af hlutabréfum í Hamleys.
Ekki náðist í Jón Scheving, for-
stjóra Baugs ID, í morgun.
Stefna lögmanni Gaums
Dómari í Miami á Flórída í
Bandaríkjunum hafnaði á
fimmtudag kröfu Gaums um
kyrrsetningu á skemmtibátnum
Thee Viking sem er í eigu félags
Jóns Geralds Sullenbergers. Er
þetta annað kyrrsetningarmál-
ið sem höfðað var vegna báts-
ins, en því fyrra var vísað frá í
ársbyrjun. Lögmaður Gaums
neitaði að koma fram sem vitni
og var því stefnt af lögmanni
Jóns Geralds.
Jón Gerald Sullenberger sagðist í
samtali við DV í gær vera mjög
ánægður með þessa niðurstöðu
sem væri honum mjög mikilvæg,
en málaferlum væri þó engan veg-
inn lokið.
í niðurstöðu dómara á
Miami á fimmtudag var
kyrrsetningu Gaums á
bátnum Thee Viking
lýst ólögmætri en eigi
að síður hafnaði dóm-
ari kröfu Jóns Geralds
um að þinglýst skulda-
yfirlýsing vegna kyrr-
setningarkröfunnar
yrði afmáð úr veðbók-
um bátsins.
í niðurstöðu dómara réttarins í
Miami-Dade-sýslu á fimmtudag er
kyrrsetningu Gaums ehf. á bátnum
lýst ólögmætri en eigi að síður
hafnaði dómari kröfu Jóns Geralds
um að þinglýstri yfirlýsingu vegna
kyrrsetningarkröfunnar yrði afmáð
úr veðbókum. Gaumi var hins veg-
ar gefinn 14 daga frestur til að
leggja fram 250.000 dollara trygg-
ingu (um 19,1 milljón íslenskra
króna) fyrir áframhaldi málsins.
Verði umrædd upphæð ekki lögð
fram innan þessa frests verður
þinglýst krafa þeirra á bátinn felld
út. Gaumur var auk þess dæmdur
til að greiða allan málskostnað
vegna kyrrsetningarkröfunnar, sem
og lögfræðikostnað Jóns Geralds
Sullenbergers sem var með Jonath-
an Goodman sér til varnar. Jonath-
an er fyrrverandi saksóknari í Mi-
ami.
Hvorki Jón Ásgeir Jóhannesson
né Jóhannes Jónsson mættu til að
vera viðstaddir réttarhaldið, en þeir
munu þó hafa fengið frest til að
mæta vegna anna. - „Þeir áttu að
koma fyrir réttinn 2. og 3. júní en
við gáfum þeim frest þar sem þeir
voru uppteknir. Þeir áttu síðan að
koma 25. og 26. júní en komu ekki,“
sagði Jón Gerald.
Fyrir Gaum mættu þess í stað
tveir lögfræðingar frá New York og
tveir frá Miami. Aðallögfræðingur
DEILUFt SkemmtibáturinnThee Viking hefurverið þungamiðjan ílangvarandi deilu og
málaferlum á milli Jóns Geralds Sullenbergers og Baugsfeðga sem enn sér ekki fyrir end-
ann á.
TheeViking kyrrsettur Dómari í Miami á Flórída kyrrsetti í annað sinn bátinnThee Viking.
Jón Gerald Sullenberger.
Gaums, Judy Sullevan frá New
York, hafði daginn áður yfirheyrt
Jón Gerald vegna ýmissa reikninga
sem tengjast m.a. rannsókn hér
heima á málum Baugs og Nordica,
fyrirtæki Jóns Geralds.
Neitaði að vitna
Á fimmtudag var Judy Sullevan
hins vegar kölluð sjálf fyrir sem
vitni Jóns Geralds í málinu, en hún
neitaði að setjast í vitnastólinn og
mun það hafa valdið nokkru upp-
námi í réttarsal. Tildrög þessarar
vitnaleiðslu eru þau að þegar ljóst
var að fyrri tilraunir Gaums til að
kyrrsetja bátinn Thee Viking gengu
ekki upp skrifaði Judy Sullevan bréf
sem er þinglýst sem krafa á bátinn
þar sem hún staðfestir fyrir hönd
Baugsfeðga að þeir hafi lánað Jóni
Gerald Sullenberger 560.000 doll-
ara sem notaðir hafi verið til kaupa
á bátnum.
Jón Gerald segir að hún hafi ver-
ið kölluð sem vitni til að upplýsa
dóminn um það hvað hún hefði í
höndunum sem staðfesti að þessar
upplýsingar væru réttar. - „Við
vildum fá að vita hver hennar rök
væru fyrir að hafa skrifað þetta
bréf. Hún neitaði að svara því.“
Gaumi var gefinn 14
daga frestur til að
leggja fram 250.000
dollara tryggingu (um
19,1 milljón íslenskra
króna) fyrir áframhaldi
málsins.
Jón segir að þar sem hún hafi
neitað þessu þá hafi lögfræðingur
hans útbúið stefnu á hendur
kollega sínum fyrir framlagningu
gagna sem hún geti ekki staðfest að
séu rétt en eru samt lykilatriði í
kyrrsetningarkröfu Gaums. Var
Judy Sullevan afhent stefnan um
leið og hún yfirgaf dómhúsið á
fimmtudag.
Ekki hefur náðst í Jón Ásgeir Jó-
hannesson, forstjóra Baugs og einn
af aðaleigendum Gaums ehf.,
vegna málsins. Jóhannes Jónsson,
stjórnarformaður Baugs, viidi ekki
tjá sig um málið þegar DV hafði tai
af honum í morgun.
hkr@dv.is
f
Þrír fulltrúar hafa krafist fundar í utanríkismálanefnd:
Alls óvíst hvenær nefndin fundar næst
Formanni utanríkismálanefnd-
ar Alþingis er skylt að boða til
fundar í nefndinni þar sem þrír
fulltrúar Samfylkingarinnar
hafa farið fram á það, en þriðj-
ung nefndarmanna þarf til að
krefjast fundar.
Guðmundur Árni Stefánsson
segir að ræða þurfi í nefndinni þá
leynd sem hvili yfir viðræðunum
við Bandaríkjamenn um varnar-
mál, en bréfin sem gengið hafi á
milli aðila séu að sínu mati ekki
þess eðlis að það skaði hagsmuni
íslendinga að birta þau. í öðru lagi
þurfi að leggja fram viðræðuáætlun
ríkisstjórnarinnar og loks þurfi að
liggja fyrir hvort málið sé á forræði
forsætis- eða utanríkisráðherra.
„Það er langt síðan síðasti fundur
var haldinn í nefndinni, hlutirnir
gerast hratt og fundi ber að halda
reglulega svo að við getum fylgst
með framvindu málsins," segir
Guðmundur Árni. „Það er ekki eins
og nefndarmenn eigi að þakka fýrir
að fá fund og ríkisstjórnin hefur
nógu iengi haft frítt spil í þessu
máli."
Sólveig Pétursdóttir, formaður
utanríkismálanefndar, segist ekki
hafa séð bréf Guðmundar Árna né
rökstuðning hans fyrir beiðni um
fund. Ef rétt sé að þrfr fulltrúar
standi að beiðninni þurfi auðvitað
að skoða það mál.
„Það er hins vegar ekkert hægt að
segja til um það núna hvenær af
þeim fundi verður eða hvað verður
þar rætt,“ segir Sólveig. „Nefndin
fundar auðvitað ekki daglega en þó
má geta þess að það var haldinn
fundur í henni sl. föstudag, en það
gátu ekki allir mætt á þann fund.“
Sólveig segir að ekkert nýtt hafi
komið fram íviðræðum um varnar-
málin sem kalli á fund. „Ég er alveg
forviða á því hvernig sumir þing-
menn tala um þessi mál og krefjast
opinberrar umræðu sem ég tel að
þjóni ekki hagsmunum okkar ís-
lendinga á þessu stigi málsins.
Stjórnarandstaðan er að reyna að
skapa sér pólitíska sérstöðu með
alveg ótrúlegum yfirlýsingum og
það er athyglisvert að það eru ekki
bara nefndarmenn í utanríkismála-
nefnd sem blanda sér í þær um-
ræður.“ olafur&dv.is