Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 FRÉTTIR 13
Þjóðminjasafnið og Hl semja
MENNTUN: Siðastliðið ár hafa við-
ræður staðið yfir milli Þjóðminja-
safns (slands og Háskóla Islands um
samstarf á sviði kennslu og rann-
sókna sem tengjast íslenskum
menningararfi og er árangur þess
víðtækur rammasamningur sem
undirritaður var í gær. Grundvöllur
samningsins er vilji til að nýta sem
best sérþekkingu, kunnáttu, efnivið
og aðstöðu þessara stofnana. Efla á
fræðilega og verklega menntun
nemenda á þessum sviðum og auka
rannsóknir og kynningu á menning-
ararfi þjóðarinnar. Háskóli (slands
gerir samninginn á vegum heim-
spekideildar, félagsvísindadeildar,
raunvísindadeildar og læknadeildar
og nær samningurinn til samstarfs á
fræðasviðum sem iðkuð eru á Þjóð-
minjasafni íslands.
ELDUR VIÐ LAUGAVEG: Rétt fyrir miðnætti laugardaginn 19. október barst tilkynning um eld í húsi við Laugaveg. Húsið gjöreyðilagðist
og varfjarlægt í kjölfar brunans.
Tveir stórbrunar
ættannót - garðveislur • afmali • brúðkaupsveislur - útiiamkomur • skemmtanir - tónleikar - sýningar • kynningar o.fl. o.fl. o.fl.
N
...og ýmsir fylgihlutir
# Ekki treysta á veðrið þegar skipuleggja á eftírminnilegan
viðburð. Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á staðinn
- það marg borgar sig.
• Tjöld af öllum stærðum frá 50-400 m2. t
• Leigjum einnig borð og stóla í tjöldin. kJjaidalelga skðta
...með skátum i heimavelli
WWW.skatar.is ^550 9800 - fax 550 980l - bis@skatar.fc
ÞARFASTl
ÞJÓNNINN!
í Reykjavík í fyrra
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins þurfti að takast á við tvo
stórbruna í fyrra en önnur út-
köll voru mun umfangsminni
samkvæmt nýútkominni árs-
skýrslu. Enginn lét lífið í elds-
voðunum.
Síðdegis miðvikudaginn 7. ágúst
var slökkviliðið kallað út vegna
mikils elds og reyks f kjallara að
Fákafeni 9. Eldurinn kom upp í lag-
errými þar sem geymd voru gólf-
efni og önnur eldfim efni. í næsta
rými voru tugir listaverka í eigu
Listasafns Reykjavíkur. Reykkafarar
komust fljótt að raun um að erfitt
yrði að komast að eldinum því að
um langan veg var að fara en mikill
eldur og reykur var í kjallaranum.
Starfsmönnum tókst að ná tökum á
eldinum að morgni 8. ágúst en þá
var þó enn mikill eldsmatur í kjall-
aranum og glæður í. Nær tveir sól-
Fjöldi íbúa og eigenda
verslana átti um sárt
að binda vegna elds-
voðans.
arhringar liðu frá því liðið var kall-
að út og þar til slökkviliðsmenn
gátu afhent lögreglu vettvanginn
og farið með tæki sín burt. Beita
varð óhefðbundnum aðferðum við
að komast að eldinum og var grafa
m.a. fengin til þess að grafa rásir
með fram vegg hússins og brjóta
þaðan op á vegginn. Allt lið slökkvi-
liðsins tók þátt í aðgerðunum og
beitti til þess öllum tiltækum bún-
aði. Að mati yfirmanna tókust að-
gerðir vel þrátt fyrir ýmsa erfiðleika
í slökkvistarfmu. Unnt reyndist að
hefta útbreiðslu eidsins og í ljós
kom að þrátt fyrir að ýmsu væri
ábótavant í brunavörnum kom frá-
gangur veggja og dyra í veg fyrir að
tjón yrði enn meira en raun bar
vitni.
Mikill bruni á Laugavegi
Rétt fyrir miðnætti laugardaginn
19. október barst tilkynning um eld
í húsi við Laugaveg. Fyrstu slökkvi-
liðsmennirnir voru komnir á vett-
vang örfáum mínútum síðar og
nokkru seinna var allt tiltækt lið
komið á staðinn. Strax við upphaf
aðgerðanna var geysilega mikill
eldur kominn í húsið. Veður var
afar óhagstætt, strekkingsvindur af
norðri og kalt í veðri. Slökkvistarfið
beindist því fljótlega að því að hefta
útbreiðslu eldsins og verja nær-
liggjandi hús. Það tókst en húsið
gjöreyðilagðist og var fjarlægt í
kjölfar brunans. Fjöldi fbúa og eig-
enda verslana átti um sárt að binda
vegna eldsvoðans. Margir misstu
nær allar eigur sínar og sumir voru
ótryggðir. Strax í kjölfar eldsvoðans
kom upp gagnrýni á það hvernig
hlúð var að fólki sem þurfti að yfir-
gefa heimili sín vegna eldsins.
Slökkviliðið og lögreglan buðu við-
komandi því til samráðsfundar og
þekktust tugir manna það boð.
Hreinskilnar umræður fóru fram á
fundinum og var ákveðið í fram-
haldi af honum að við aðstæður
sem þessar væri nauðsynlegt að
kalla út sérstakt hjálparlið til þess
að hlúa að fólki og veita nauðsyn-
legar uppiýsingar um gang mála.
erlakristin@dv.is
Fleiri útköll hjá
slökkviliðinu en í fyrra
Ársskýrsla: Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins sinnti nær 21
þúsund útköllum á síðasta ári og
var það nokkur fjölgun frá árinu
áður, að því er fram kemur í árs-
skýrslu slökkviliðsins fyrir árið.
2002. í skýrslunni kemur fram
að mikilvægir áfangar hafi náðst
í uppbyggingu á aðstöðu og
búnaði liðsins á sfðasta ári. Ný
slökkvi- og björgunarstöð var
tekin í notkun í Hafnarfirði og
hafist var handa við stórfellda
stækkun og endurbyggingu höf-
uðstöðva liðsins í Skógarhiíð. Þá
tók slökkviliðið í notkun nýjan
dælubíl og Flugmálastjóm af-
henti liðinu til afnota nýja
slökkvibifreið og tvo báta til
björgunarstarfa. Rauði kross ís-
lands afhenti liðinu jafnframt
tvær nýjar sjúkrabifreiðir og hef-
ur slökkviliðið nú yfir að ráða
tólf sjúkrabifreiðum sem aiiar
eru í eigu Rauða krossins.
Rekstrarkostnaður slökkviliðs-
ins nemur um það bil einum
milljarði króna og eru tekjur
liðsins að langstærstum hluta
framlög sveitarfélaganna sjö
sem standa að rekstrinum.
BOHUSWIPEO
Leigan i þlnu hverfl
Ertu að
selja bílinn?
birta
mynd?
• komdu með bílirn og
láttu okkur tak x myndina
• eða sendu okkur
mynd á .jpg sniði á
smaauglysingar@dv.is
ISmáauglýsingar
550 5000