Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Síða 3
MÁNUDAGUR 30. JÚNl2003 DVSPORT 19 Pétur Freyr ekki Pálmi Freyr LEIÐRÉTTING: Þau leiðinlegu mistök áttu sér stað þegar DV- Sport fjallaði um íslandsmótið í holukeppni unglinga á dögun- um að nafn eins sigurvegarans misritaðist. Pétur Freyr Péturs- son úr GR var sagður vera Pálmi Freyr og er beðist vel- virðingará þessum leiðinleg- um mistökum. Pétur Freyr sþil- aði mjög vel á mótinu og fagn- aði sigri í yngsta flokki stráka eftir bráðabana við Björn Guð- mundsson úr GA. Pétur Freyr var þar með eini keþpandi mótsins sem vann bæði högg- leikinn og holukeppnina en hannr lék frábærlega í högg- leiknum þar sem hann var með besta skor allra þrátt fyrir að spila í yngsta flokknum. Minnesota og Milwaukee skipta á leikmönnum KÖRFUBOLTkTalsverðar leik- mannahræringar urðu í NBA- deildinni um helgina þegar lið- in Minnesota Timberwolves og Milwaukee Bucks skiptu á leik- mönnum. Stærsta nafnið í þessum skiþtum er sennilega leikstjórnandinn Sam Cassell en hann fer ásamt miðherjan- um Ervin Johnson til Minnesota í skiptum fyrirfram- herjann Joe Smith og bakvörð- inn Anthony Peeler. Þessi skipti þykja gefa til kynna að stjórnendur Milwaukee ætli sér að þjóða Gary Payton lang- tímasamning og eins að for- ráðamenn Minnesota séu að fá Kevin Garnett til að gera slíkt hið sama en samningur hans við liðið rennur út eftir næsta tímabil. 1-1 jafntefli í seinni leiknum gegn bosníska liðinu FK Sloboda á Akureyrarvelli á laugardaginn KA-menn eru úr leik í Inter- toto-keppninni eftir tap gegn bosníska liðinu FK Sloboda á Akureyrarvelli á laugardaginn. Hetjuleg barátta norðanpilta endaði með vítaspyrnukeppni þar sem heimamenn misnot- uðu þrjár vítaspyrnur og end- aði leikurinn því 3-4. KA var mun betri aðilinn í leikn- um og hefði fyllilega átt skilið að ljúka leiknum á venjulegum leik- tíma, átti miklu fleiri og betri mark- tækifæri en bosníska liðið. Upp úr föstu leikatriði á 19. mín- útu náðu gestirnir hins vegar for- ystu í leiknum með hárri sendingu fyrir mark úr aukaspyrnu þar sem hinir hávöxnu varnarmenn Sloboda voru búnir að koma sér fyrir og náði Crnogorc Gradimir að stökkva manna hæst og skalla bolt- ann í mark fram hjá Sören Byskov í markinu. Skömmu seinna munaði engu að Steinar Tenden ræki stórutána í boltann fyrir framan mark Sloboda en skórnir voru númeri of litlir og gestimir sluppu með skrekkinn. Á 26. mínútu fékk Pálmi Rafn svipað færi og Þorvaldur í byrjun leiks, sendingu frá Dean að nærstönginni en stórgóður markvörður gestanna varði skalla hans vel. Gestimir áttu í miklum erfiðleikum með að finna göt í vamarvinnu KA-manna, Slobodan Milisic og Ronnie Hartvig stóðust allar árásir gestanna og varnarvinna miðjuleikmanna KA var frábær og var Þorvaldur Örlygs- son þar fremstur í flokki, vann öll einvígi maður á mann, og sýndi ungu mönnunum í liðinu gott for- dæmi með vinnusemi og dugnaði. Skömmu fyrir leikhlé fékk Þorvald- ur Guðbjömsson dauðafæri en skot hans frá markteig fór yfir slána og því fóm gestimir með eins marks forystu til búningsherbergisins í leikhlé. Það tók heimamenn um 10 mín- útur að koma á jöfnunarmarki, Dean Martin sendi boltann fyrir frá hægri væng og hann rataði til Þor- valds Makan sem var utarlega vinstra megin í teignum og tók við honum og þmmaði honum óverj- ani í marknetið. Þetta er eitt af glæsilegri mörkum sem skomð hafa verið á Akureyrarvelli og ör- ugglega með þeim mikilvægari. Jafnræði var með liðunum það sem eftir lifði leiks. Leikurinn endaði því með jafntefli, 1-1, og vegna þess að leikurinn ytra fór alveg eins þurfti að grípa til framlengingar. Það var nokkuð sem KA-menn vildu helst ekki lenda í því greinilegt var að flestir leikmenn liðsins höfðu gefið allt sem þeir áttu í 90 mínúturnar og vom að keyra sig áfram á bens- íngufunum sfðustu mínúturnar. Gestirnir í Sloboda virtust Furðulegt þótti manni að sjá tvo leikmenn sem komið höfðu inn á og ekki komist í takt við leik- inn taka vítaspyrnur á svona ögurstundu. ferskari í framlengingunni. Heima- menn vom greinilega orðnir ör- þreyttir en samt sem áður sást ekki glufa á vamarvegg KA-manna og vom Slobodan Milisic og Ronnie Hartvig sem ókljúfanlegur múr í miðju sterkrar varnar. Ekkert mark var skorað í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnu- keppni. Liðmenn Sloboda tóku fyrstu spymuna og skomðu. Fyrstur KA- manna fram á völlinn var Hreinn Hringsson og átti markvörður gest- anna í engum vandræðum með að verja slaka spyrnu hans. Næstu spymu frá gestunum varði Sören Byskov og Steinn Viðar jafnaði leik- inn með sinni spyrnu, 2-2. Þriðja spyma Sloboda tókst og markvörð- ur Sloboda átti ekki í miklum vand- ræðum með slaka spymu Elmars Dans Sigþórssonar. Sören hélt þó KA-mönnum inni í leiknum með glæsilegri markvörslu í 4. spymu gestanna. Steingrímur Eiðsson jafnaði metin fyrir KA í fjórðu spymu, Sloboda komst aftur yfir með marki úr 5. spyrnu en það er síðan lokaspyrna Þorvalds Guð- björnssonar sem mistókst og sigur gestanna var staðreynd. Þetta var besti leikur KA-manna í mörg ár, aragrúi færa og barátta í 120 mínútur en niðurstaðan tap. Norðanpiltar eiga hrós skilið fyrir frábæran knattspyrnuleik en auk þess ber að hrósa dómara leiksins, Brian Lowler, fyrir frábæra dómgæslu og geta íslenskir dóm- arar tekið hann sér til fyrirmyndar. Hann leyfði leiknum að rúlla og lét leikmenn ekki að komast upp með neina sýndarmennsku. Oft er gott að vera vitur eftir á og gagnrýna orðinn hlut en furðulegt þótti manni að sjá tvo leikmenn sem komu höfðu inn á og ekki komist í takt við leikinn taka víta- spyrnur á svona ögurstundu. Hins vegar ber að hrósa þeim fyrir að hafa þor og dug til að lýsa yfir vilja sínum til að framkvæma spyrnurn- ar en eðlilegra hefði verið að láta leikmenn sem greinilega voru í betra formi, og höfðu sýnt það með leik sínum, framkvæma þessar mikilvægu spyrnur. akureyri@öv.is Vítaspyrnukeppnin 0-1 Sloboda mark - Hreinn Hringsson varið - Soboda Sören ver 1-1 Steinn V. Gunnarsson mark 1- 2Sloboda mark -ElmarDanSigurþórsson varið - Sloboda Sören ver 2- 2 Steingrímur Eiðsson mark 2-3 Sloboda mark - Þorvaldur Guðbjörnsson varið Slobodoa vinnur 3-2 „Vorum óheppmr7' sagði Þorvaldur Makan, fyrirliði KA-manna, eftir tapið Þorvaldur Makan Sigbjömsson, fyrirliði KA-manna, var að vonum vonsvikinn í leikslok. „Auðvitað er maður svekktur, mjög svekktur. Það var ekkert eitt sem klikkaði, við vomm einfald- lega óheppnir. Við gáfum engin færi á okkur og fengum fín færi, dauðafæri," sagði Þorvaldur Mak- an og sagðist ekki hafa gefið kost á sér til að taka vítaspyrnu „Ég held ég hefði ekki drifið að markinu, fæturnir bám mig varla í leikslok, tognaði aðeins í lærinu sem er nokkuð sem ég hef verið að glíma við í framhaldi af ökkla- meiðsium," segir Þorvaldur en hann og nafni hann örlygsson vom á bensíngufunum í lok leiks „Skapið í okkur nöfnunum hélt okkur gangandi." Þorvaldur vildi sem minnst tjá sig um vítaspymurnar, sagði ein- faldlega að það væm einhverjir sem þyrftu að taka þær. „Þetta var ekki þeirra dagur en þetta kemur bara næst.“ Spurður hvort leikur- inn muni sitja í leikmönnum þeg- ar kemur að bikarieiknum gegn Fylki á Akureyrarvelli á miðviku- daginn hafði Þorvaldur ekki trú á því, menn myndu hvíla sig á sunnudaginn og æfa mánudag og þriðjudag og mæta síðan galvask- ir til leiks á miðvikudaginn. akureyri@dv.is KA-Sloboda Tuzla 1 -1 (0-1) 0-1 Crnogorc Gradimir (19., skalli úr vítateig eftir aukaspyrnu rétt utan vítateigshorns). 1-1 Þorvaldur Makan Sigbjörnsson (55.., skot úr teig eftir sendingu frá Dean Martin). KA Sören Byskov Jón Örvar Eiríksson (55., Elmar Dan Sigþórsson Þorvaldur Guöbjörnsson Dean Martin Slobodan Milisic Þorvaldur Örlygsson Steinn Viðar Gunnarsson SteinarTenden (55., Hreinn Hringsson Þorvaldur Sigurbjörnsson Pálmi Rafn Pálmason (90., Steingrímur Eiðsson Ronnie Hartvig Samtals 14menn........ Dómari: Brian Lowlor (6). Ahorfendur: 850. Gul spjöld: 3 KA: Milisic (36.), 2 Elmar Dan (89.) 2) Tuzla: Stanlsa 3 (66.), Nedzad 3 (102.) 4 Rauð spjöld: 5 Engin. 2 Skot(ámark); 2 10(51-12(4) Ú Horn: 3 11-5 2 Aukaspyrnur: 2) 18-15 4 Rangstöðun 38 1-0 Varin skot: Sören 3- Mrsad 4. Sloboda Tuzla Dedic Mirsad Muslimovic Nusret Crnogorc Gradimir Kuduzovic Samir Bajrovic Nedzad Joldic Admir (78., Delic Armin Czesic Evjezdan (59., Jusufovic Muhamed Okahovic Tarik Nicolic Stanisa Hadzic Senad Hesanovic Aten Samtals 13 menn... 5 2 2 2 2 2 2) 2 2) 2 2 2 2 39 Maður leiksins hjá DV-Sporti: Þorvaldur Örlygsson, KA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.