Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 DVSPORT 31 t- DV Sport Neytendur Keppni i hverju orði Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 Hátt hlutfall fótasveppa á íslandi FÓTASVEPPASÝKING: Á bilinu 8-15% (slendinga þjást af fóta- sveppasýkingum ef marka má alþjóðlega rannsókn sem gerð varárið 1999. Samstarfsverkefni Rannsóknin var samstarfsverk- efni vísindamanna frá sex löndum: Bretlandi, Finnlandi, Hollandi, (talíu, Þýskalandi og (slandi, og höfðu húðsjúk- dómalæknarnir Bárður Sigur- geirsson, Jón Þrándur Steins- son og Jón Hjaltalín Ólafsson veg og vanda af rannsókninni hérá landi. Þetta hlutfall er hátt, hærra heldur en í öðrum löndum. „Nýleg bresk rannsókn sýndi að hlutfallið þar er 2%. Rann- sókn í Finnlandi bendir til að hlutfallið sé 8% en óhætt er að fullyrða að 8% eru neðri mörk- in hjá Islendingum," sagði Bárður Sigurgeirsson þegar niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar. Tíðar ferðir í sund Ein af meginástæðum fýrir háu hlutfalli fótasveppa á Islandi eru tíðar ferðir í sundlaugar en Fæturnir verða að vera í lagi Pétur Guðmundsson segir menn ekki ná langt án þess að gæta að fótasveppum rannsókn sem var gerð á gest- um Laugardalslaugarinnar leiddi í Ijós að tíðni sveppasýk- inga meðal sundlaugargesta er langt yfir meðaltali. Þar kom fram að þriðji hluti þeirra karl- manna sem sóttu laugarnar væru með sveppasýkingu en um 18% kvenna. EINKENNI FÓTASVEPPS Fótasveppasýkingar hafa augljós einkenni sem allir þurfa að huga að: • Kláði, sviti, stingir í húð á þeim stöðum sem sýkingin hefur náð fótfestu. • Rauð útbrot, litlar bólur, flögnun á iljum og hælum, í lófum, á svæði milli táa og fingra og f nöglum. • Roði og bólga í húð. • Blöðrur eða opin húð, vessandi útbrot, skorpa/hrúður. • Þurrkur með sprungum og hreistri. • Litabreytingar með þykknun á nöglum. I Fótasveppir hafa verið mikið vandamál meðal íþróttamanna undanfarin ár. Það er segin saga að ef fótasveppirnir fá að lifa góðu lífi getur það haft áhrif á íþróttamennina og minnkað afkastagetu þeirra. Körfuknatt- leiksmaðurinn Pétur Guð- mundsson er einn fjölmargra íþróttamanna sem ekki hafa farið varhluta af fótasveppnum og hann ræddi við DV sport um reynslu sína af honum og einnig um verkefni sem hann er að vinna að ásamt sjúkra- bjálfurum íþróttamanna á Islandi. Hvenœr og hvernig fékkstu fóta- svepp? „Þegar ég spilaði körfubolta í skóla í Bandaríkjunum var þetta nokkuð algengt vandamál því ég var alltaf að spila körfubolta og svitnaði mjög mikið. Ég passaði ekki alltaf að vera í hreinum sokk- um þannig að þetta var algjör veisla fyrir þessa sveppi." Hvaða áhrif hafði það á getu þína sem íþróttamaður? „Þetta er auðvitað fyrst og fremst óþægilegt, því mann klæjar svo í þetta. Það skiptir öllu máli að þér líði vel í fótunum þegar þú ert að spila körfubolta, annars ertu eins „Þegar ég spilaði körfu- bolta í skóla í Banda- ríkjunum varþetta nokkuð algengt vanda- mál því ég var aHtafað spila körfubolta og svitnaði mjög mikið." og hálfhaltur. Ef þetta kemst undir tánöglina geturðu ekki einu sinni farið í skó.“ Hvernig losnaðir þú við fóta- sveppinn? „Eg fékk mér að sjálfsögðu krem til þess að bera á þennan óþverra og kom með því í veg fyrir það að missa hreinlega úr æfingar og leiki." Hvað þarf fólk að varast varð- andi fótasveppi? „Menn þurfa fyrst og fremst að ver duglegir að skipta um sokka og „Það er ekki nokkur ástæða tilþess að menn séu að missa úr leiki vegna fótasveppa, en það getur hæglega gerst efmenn passa ekki upp á fæturna á sér. íþróttamenn ná ekki langt í sinni grein effæturnir eru ekki í lagi," ekki vera kærulausir þegar þá fer að klæja í tærnar heldur bera strax áburð á þær svo það verði ekki verra." Nú ert þú að vinna að verkefni varðandi fótasvepp. í hverju felst það? „F.g hef verið í sambandi við sjúkraþjálfarana sem eru að vinna með íþróttamönnum og spjalla við þá um hvort íþróttamenn komi til þeirra með svona vandamál. Einnig er ég að gera könnun hjá íþróttamönnum um hve algengt þetta sé hjá þeim. Það var gerð könnun í NBA og þar kom fram að u.þ.b. 90% leikmanna höfðu fengið fótasveppi einhvern tímann á ferl- inum. Þeir eru nokkuð margir hér á landi líka sem hafa lent í þessu og þeir eru allt of margir sem hafa ekki sinnt því og látið það versna svo að þeir hafa þurft að fara í læknismeð- ferð. Það er ekki nokkur ástæða til þess að menn séu að missa úr leiki vegna fótasveppa en það getur hæglega gerst ef menn passa ekki upp á fæturna á sér. íþróttamenn ná ekki langt í sinni grein ef fæturn- ir eru ekki í lagi,“ sagði Pétur Guðmundsson. FYRIRBYGGJANDI AÐGERÐIR Hægt er að verjast fótasveppasýk- ingu með margvíslegum hætti: • Vera í sandölum í sturtu og bún- ingsklefa. • Setja reglulega púður gegn sveppasýkingum í skóna. • Skipta reglulega um skó sem notaðir eru ef þess er kostur. • Vera alltaf í sokkum (skónum. • Þvo fætur daglega og þurrka þá vel. • Vera í skóm sem passa vel, hvar sem þú ert á ferð. LAUS UNDAN FÓTASVEPP- UM: Pétur Guðmundsson, frægasti körfuknattleiks- maCur fslands, fór ekki var- hluta af fótasveppum á ferli slnum. Leyfum tánum að njóta ... án sveppasýkinga O LAMISIL fSHINAFINÍ ...elnu sinnl ó dag f ©Ina vlku, drepur fótsvapplnn sín Lamisil inniheldur terbinafin sem er sveppadrepandi efni og vínnur á sveppasýkingum I húð af völdum húðsveppa, fótsveppa og litbrygða- myglu,"lifrarbrúnir blettir". Á ekki að nota gegn sveppasýkingum I hársverði, skeggi eða nðglum nema samkvæmt læknisráði.Má ekki nota ef þekkt er ofnæmi fyrir terbfnaflni eða óðrum innihaldsefnum f Lamisil. Lamisil er borið á einu sinni á dag I eina viku. Hreinsið og þurrkið sýkt svæði vel áður en Lamisil er borið á. Bera skal Lamisil I þunnu lagi á sýkta húð þannig að það þeki allt sýkta svæðið. Lamisjl er milt og veldur mjög sjaldan húðertingu. Géymist þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningaseðil sem fylgir hverri pakkningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.