Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Page 6
22 DVSPORT MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 Engin heimsmet á fyrsta gullmóti ársins FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR: Tvö frá- bær 5000 m hlaup, þar sem höggvið var nærri heimsmet- um hjá báðum kynjum, og frá- bær frammistaða Yamile Aldama í þrístökki kvenna var það sem bar hæst á fyrsta gull- móti sumarsins í frjálsum íþróttum sem haldið vará Bis- lett-leikvanginum í Ósló. Þetta var síðasta mótið sem haldið er á þessum sögufræga frjálsí- þróttaleikvangi en byggja á nýjan völl sem tilbúinn verður til notkunarárið 2005. Berhane Adere frá Eþíóþíu var ekki nema rúmri sekúndu frá því að bæta heimsmetið í 5000 m hlaupi kvenna en frábær endasprettur hennar síðustu 200 m hlaupsins dugði ekki til. Þótt tíminn í 5000 m hlaupi karla hefði ekki verið alveg eins nálægt heimsmetinu var hlaup- ið frábær skemmtun og mun- aði aðeins 7/100 úr sekúndu á fyrstu tveimur mönnunum, Kenenisa Bekele og Sammy Kipketer. Það var Bekele sem hafði sigur og tryggði þar með Eþíópíu tvöfaldan sigur í 5000 m hlaupi.Yamile Aldama náði besta árangri ársins í þrístökki, þegar hún stökk 15,11 m í fyrstu tilraun, og þykir hún mjög líkleg til að ná sér í hluta af gullpottinum.en hannfá þeir sem vinna sína keppnis- grein á öllum sex gullmótum sumarsins. 100 m hlaup karla olli nokkrum vonbrigðum en þar var það Bretinn Mark Lewis Francis sem bar sigur á býtum á tímanum 10,12 sek. Mark Lewis Francis sést hér koma í mark á undan Dwain Chambers frá Bretlandi (til vinstri) og Ato Boldon frá Trinidad (til hægri). ÚRSLIT STELPNA 11- 12ÁRA Kúluvarp I.Helga Þorsteinsd., USVH 10,43 m 2. Arna Ómarsdóttir, [R 8,77 m 3. Sara Úlfarsdóttir, FH 8,13 m Spjótkast 1. Arna Ómarsdóttir, (R 28,15 m 2.Helga Þorsteinsd., USVH 26,51 m 3. Salbjörg Sævarsd., USVH 20,45 m 60 metra hlaup 1. Helga Þorsteinsd., USVH 8,41 sek. 2. Sara Úlfarsdóttir, FH 8,74 sek. 3. Rakel Snæbjörnsd., HSÞ 8,78 sek. 800 metra hlaup 1. Þuriður Helgad., Breiðablik 2:35,19 2. Helga Þorsteinsdóttir., USVH 2:38,61 3. Heiður Eggertsdóttir, FH 2:43,73 4x100 metra boðhlaup I.Sveit Breiðabliks 58,27 sek. 2. Sveit HSÞ 59,67 sek. 3. Sveit FH 60,03 sek. Hástökk I.Salbjörg Sævarsd.,USVH 1,50 m 2. Rakel Snæbjörnsd., HSÞ 1,45 m 3. Þuríður Helgad., Breiðablik 1,40 m Langstökk 1. Helga Þorsteinsdóttir., USVH 4,89 m 2. Rakel Snæbjörnsd., HSÞ 4,50 m 3.Þuríður Helgad., Breiðablik 4,47 m ÚRSLITTELPNA 13-14 ÁRA 80 m grindahlaup I.Brynja Finnsdóttir,UMFA 13,07 sek. 2. Kristjana Kristjánsd., UMSS 13,19 sek. 3. Harpa Jónsdóttir, UMSS 13,77 sek. Spjótkast I.Guðrún Þorsteinsd.,USVH 31,58 m 2. Elín Vilhjálmsdóttir., UMFA 30,91 m 3.Soffía Felixdóttir, (R 27,34 m Kúluvarp I.Guðrún Þorsteinsd.,USVH 11,05 m 2. Ragnheiður Þórsd., Bblik. 10,85 m 3. Oddný Pálmadóttir, UMSS 10,33 m 100 metra hlaup 1. Kristjana Kristjánsdóttir, (R 12,93 sek. 2. Guðrún Þorsteinsd., USVH 13,29 sek. 3. Brynja Finnsdóttir, UMFA 13,33 sek. 800 metra hlaup I.Asdls Lárusdóttir,|R 2:35,00 2.Vala Kristjánsdóttir., UMSS 2:35,85 3. Hulda Frostadóttir.UMSS 2:37,95 4x100 metra boðhlaup I.Sveit (R 52,94 sek. 2. Sveit FH 54,86 sek. 3.Sveit UMSS 55,83 sek. Hástökk l.lðunn Arnardóttir,FH 1,50 m 2.Guðrún Þorsteinsd., USVH 1,50 m 3. Ólöf Kristjánsdóttir, UMSE 1,50 m Langstökk 1. Brynja Finnsdóttir, UMFA 5,09 m 2. Guðrún Þorsteinsd., USVH 5,08 m 3. Kristjana Kristjánsdóttir, (R 4,74 m Stangarstökk 1. Brynja Finnsdóttir, UMFA 2,20 m 2. Saga Davlðsdóttir, UMFA 2,00 m ÚRSLIT STRÁKA 11-12ÁRA 80 m grindahlaup 1. Brynja Finnsdóttir, UMFA 13,07 sek. 2. Kristjana Kristjánsd., UMSS 13,19 sek. 3. Harpa Jónsdóttir, UMSS 13,77 sek. Spjótkast I.Bogi Eggertsson,FH 34,81 m 2. Svavar Ingvarsson, HSÞ 33,42 m 3. Börkur Sveinsson, HSÞ 26,72 m Kúluvarp 1. Svavar Ingvarsson, HSÞ 11,18 m 2. Börkur Sveinsson, HSÞ 10,63 m 3. Bogi Eggertsson, FH 9,42 m 60 metra hlaup I.Guðm. Guðmundss.,FH 8,54 sek. 2. Númi Stefánsson, FH 8,68 sek. 3. Þorkell Einarsson., HSÞ 8,70 sek. 800 metra hlaup 1.FannarEgilsson,USÚ 2:30,91 2. Guðm. Guðmundss., FH 2:34,38 3. Ingvar Ingimundarson 2:36,19 4x100 metra boðhlaup I.Sveit Fjölnis 58,58 sek. 2.Sveit Breiðabliks 61,14 sek. Hástökk 1. Svavar Ingvarsson, HSÞ 1,35 m 2. Magnús Óskarsson, Fjölni 1,30 m 3. Sigurður Arnarson, (R 1,30 m Langstökk 1. Magnús Óskarsson, Fjölni 4,67 m 2. Guðm. Guðmundss., FH 4,64 m 3.Þorkell Einarsson.,HSÞ 4,59 m SIGURLIÐIÐ: Þeir voru kampakátir, krakkarnir í sigursveit FH,eftir að úrslit lágu fyrir. Sveitin hlaut samtals 318 stig á mótinu og var verðskuldaður sigurvegari. DV-myndHari „Mótið gekk mjög vel" segir Hlynur Guðmundsson, mótsstjóri Gogga galvaska Hlynur Guðmundsson, for- maður frjálsíþróttadeildar Aftureldingar, var mótsstjóri á Gogga galvaska um helg- ina. Hann er öllum hnútum kunnugur um hvernig vel heppnað mót skal halda enda að koma nálægt framkvæmd mótsins í tíunda sinn. var ánægður með hvernig til tókst á Gogga gal- „Það er gríðarleg vinna sem býr að baki þessu móti. Undirbúningur hefur staðið lengi, eða frá því í haust, en síðustu tvo mánuðina er- um við að halda verkefnafundi um þrisvar í viku. Allt er þetta gert í sjálfboðavinnu og þeir sem standa næstir þessu nota sitt sumarfrí fyrir alla undirbúningsvinnuna," segir Hlynur í mótslok við DV-Sport, en það sást vel á andliti hans að vinn- VEL HEPPNAÐ: vaska um helgina. an var vel þess virði - gleðin skein af krökkunum og það var það sem skipti máli. „Þetta hefur gengið gríðarlega vel og fjöldi goggameta hefur failið um helgina. Engin íslandsmet voru reyndar slegin en það er eitthvað sem hefur ekki gerst síðustu tvö árin. Ástæðan fyrir þessum skorti á fslandsmetum veit ég ekki hver er,“ segir Hlynur en bætir við að ár- angur sé í raun aukaatriði á móti sem þessu. „Þetta er mjög vinsælt mót fyrir aila krakka, yngri en 14 ára, og hingað koma þeir af öllu landinu, óháð því hvort þeir séu að koma til að vinna. Þeir koma bara til að hitta félagana og hafa gaman af því við erum að gera svo margt fyrir utan keppnina sjálfa,“ segir Hlynur og reynir að koma orðum að DV-mynd Hari því hversu mikla þýðingu svona hefur fýrir ungt frjálsíþróttafólk í landinu. „Þetta mót er eitthvað sem „Hingað koma þeir af öllu landinu, óháð því hvort þeir séu að koma til að vinna." krakkarnir óska eftir hjá foreldrum sínum strax um haustið, og um leið og komið er heim er talað um hvað það var gaman á Gogga Galvaska. Svo spyrja þeir í hvaða flokki þeir verði næst og hvort þeir geti yfir- höfuð verið með. Frjálsíþrótt er ekkert nema leikur við að leysa þrautir eins vel og maður getur. Við höfum það þannig að reglurnar eru ekki ofboðslega stífar. Við sjáum að allir eru að gera sitt besta og leyfum þeim að njóta sín til fullnustu og það skiptir ekki mestu hvort ein- hver gerir smávægileg mistök," segir Hlynur að lokum. vignir@dv.is SÚ YNGSTA: Yngsti keppandi mótsins, hin fjögurra ára gamla Þórunn Anný lngimundardóttir,sr///f/ sér upp ásamt Gogga sjálfum. Yfirþjálfari yngri flokka FH: Mót sem skilur mikið eftir sig „Ég er náttúrlega mjög ánægð með þetta því það er liðinn langur tími síðan við í FH unnum eitt- hvað í yngri flokkunum,“ sagði El- ísabet Ólafsdóttir, aðalþjálfari 16 ára og yngri hjá FH, í samtali við DV-Sport eftir verðlaunaafhend- inguna. Hún segir árangurinn í ár stafa af nokkrum þáttum. „Ég hef áhyggjur af því hversu margir þeir eru sem eru orðnir alltof feitir." „Við erum að reyna að leggja áherslu á markvissa þjálfun en líka á þennan félagsskap. Krakk- arnir hjá okkur æfa vel og mæta alltaf og eru í kjölfarið orðnir góð- ir félagar þannig að þetta helst allt í hendur. Aðspurð hvort hún hafi séð af- reksmenn framtíðarinnar á mót- inu um helgina svaraði Elísabet: „Inn á milli en ég samt sem áður óhress með hvað krakkar eru orðnir feitir í dag. Ég er einnig kennari og þetta sést vel. Ég hef áhyggjur af því hversu margir þeir eru sem eru orðnir alltof feitir," segir Elísabet og bætir við að það sé að mestu leyti á ábyrgð foreldra að hafa áhyggjur af þessu. Elísabet kvaðst ánægð með framkvæmd mótsins. „Þetta gekk mjög vel og ég held að allir séu mjög ánægðir. Þetta er svo miklu meira en keppni - þetta snýst um félagsskapinn og þetta er mikið eins og útilega. Allir krakkarnir í FH fóru mjög hamingjusamir í burtu. Þetta mót skilur eftir sig góðar minningar, foreldrarnir koma með og það mætti kalla þetta eina stóra ijölskylduhátíð.“ ÁNÆGÐIR ÞJÁLFARAR: Elísabet Ólafsdóttir og Ævar Örn Úlfarsson, þjálfarar sveitar FH, voru kampakát með sigurinn á Gogga galvaska. DV-mynd Hari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.