Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Side 8
DVSPORT MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 Lucio fer ekki KNATTSPYRNA: Brasilíski varn- armaðurinn Uucio hefur ákveð- ið að vera um kyrrt hjá liði sínu Bayer Leverkusen á næstu leik- tíð en talið var að hann væri á leið til Roma á ftalíu.Viðræður við Roma-liðið voru komnar langt en upp úr þeim slitnaði um helgina vegna svimandi hárra launakrafna frá þeim brasilíska. til Roma „Ég hef tekið þá ákvörðun að leika annað tímabil með Leverkusen.Við erum með sterkt lið og mér og minni fjöl- skyldu líður vel í Þýskalandi. Ég mun leggja mig allan fram við að koma liðinu í Evrópukeppn- ina á ný," sagði Lucio. Jeffs meiddur KNATTSPYRNA: Hinn breski miðvallarleikmaður (BV, lan Jeffs, verður frá knattspyrnuiðkun næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla sem hann hlaut í leikn- um gegn Þrótti í síðustu viku. Þetta er nokkurt áfall fyrir Eyjaliðið þar sem Steingrímur Jóhannesson er enn frá vegna höfuðmeiðsla og leikmanna- hópurinn er ekki ýkja stór. Mallorca vann KNATTSPYRNA: Real Mallorca tryggði sér á laugardagskvöldið spænska bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu þegar liðið sigraði Recretavio örugglega i úrslita- leiknum, 3-0. Walter Pandiani skoraði fyrsta markið en Samu- el Eto'o hin tvö. Aðeins sólar- hring síðar var Eto'o mættur til Frakklands til að spila annan úr- slitaleik - með landsliði Kamer- bikarinn ún í úrslitum álfukeppninnar. Eto'o tileinkaði samherja sínum frá Kamerún, Mark-Vivien Foe, sigurinn og mörkin tvö en hann lést sem kunnugt er á fimmtudag í leik gegn Kolomb- íu. Þetta er í fyrsta skipi í sög- unni sem Mallorca vinnur spænsku bikarkeppnina. SHELLMÓTSMEISTARAR A-liö Utanhússmeistarar l.sæti Njarðvík 2. sæti FH 3. sæti Stjarnan 4. sæti Þróttur R Úrslitaleikur: Njarðvík-FH 1-1 Sindri Jóhannsson - Kristján Gauti Emilsson. Njarðvlk vann á þvl að skora á undan (leiknum. Innanhússmeistarar Lsæti Stjarnan og lR 2. sæti Völsungur og lA 3.sæti Haukarog Breiðablik B-lið Utanhússmeistarar l.sæti lA 2. sæti Breiðablik 3. sæti Fjölnir 4. sæti Fylkir Úrslitaleikur: fA-Breiðablik 2-0 Ragnar Þór Gunnarsson, Sigurður Búi Rafnsson. Innanhússmeistarar Lsæti Fjölnir og Breiðablik 2. sæti Grótta og FH 3. sæti Grindavík og IR C-lið Utanhússmeistarar Lsæti Vlkingur 2. sæti HK 3. sæti Breiðablik 4. sæti Grindavík Úrslitaleikur: Víkingur-HK 2-1 Óli Pétur Friðþjófsson, Patrik Snær Atlason - Sjálfsmark. Innanhússmeistarar 1. sæti Haukar og Afturelding 2. sæti Fjölnir og IBV 3. sæti Breiðablik og Fylkir 2 D-lið Utanhússmeistarar 1. sæti Leiknir 2. sæti Fjölnir 3. sæti ÍA 4. sæti KR Úrslitaleikur: Leiknir-Fjölnir 1-0 Eyþór Úlfar Þórðarson. Innanhússmeistarar l.sæti I A og Völsungur 2. sæti Breiðablik og Grindavlk 3.sæti HaukarogV(kingur2 MARKAKÓNGAR MÓTSINS A-lið Arnþór Hermannsson, Völsungi 17 B-lið Tómas Hrafn Jóhannesson, Fylki 18 C-lið Aron Jóhann Péturssön, FH 13 Snorri Davíðsson Aftureldingu 13 D-lið Elías Már Ómarsson, Keflavik 16 Alls voru mörkin í Shellmótinu 1740 talsins. SHELLMÓTSLIÐIÐ 2003 Markvörður: Kristján Orri Jóhannsson, Þrótti R. Aðrir leikmenn: Kristján Gauti Emilsson, FH Alexander Freyr Sindrason, Haukum Anton Oddsson, Fylki Arnór Ingvi Traustason, Njarðvlk Arnþór Hermannsson,Völsungi Guðni Freyr Sigurðsson, ÍBV Haukur Atli Hjálmarsson, (A Hörður B. Magnússon, Fram Jóhann Leifsson, Þór BESTI LEIKMAÐUR MÓTSINS Kristján Gauti Emilsson FH BESTI MARKVÖRÐURINN Kristján Orri Jóhannsson Þrótti R. PELTA ÍW m E gi' - BESTU LIÐIN: Hér að ofan eru samankomin lið Njarðvíkur og FH sem spiluðu annað árið í röð til úrslita á Shellmótinu í Vestmannaeyjum. Líkt og í fyrra voru það Njarðvikingar sem fi 1 -1 jafntefli. Njarðvikingar voru á undan að skora í úrslitaleiknum og teljast því sigurvegarar. Nja rðvík varði tit Glæsilegu Shellmóti lauk íEyjunum ígærkvöld - Njarðvík, ÍA, Víkingur og Leiknir urðu me\ Shellmótinu lauk í gærkvöld eftir fjögurra daga stanslausa knattspyrnuveislu í Eyjum. Mótið tókst mjög vel, eins og reyndar gerist nánast undan- tekningarlaust, enda fagnaði mótshaldið tuttugu ára af- mæli og mikil reynsla er í her- búðum Eyjamanna. Njarðvík- ingar vörðu Shellmótsmeist- aratitilinn og eru því áfram ríkjandi meistarar. Þegar hefur verið sagt frá fyrstu tveimur dögum mótsins en á laug- ardaginn byrjuðu liðin að leika um það hver kæmust áfram. Þannig komust tvö lið upp úr hverjum riðli en hin fjögur léku öll áfram um sæti. Þau lið sem unnu svo leikina eft- ir riðlakeppnina komust í undanúr- slit og svo var leikið um fyrsta sætið og þriðja sætið. Þau lið sem töpuðu hins vegar í leikjunum eftir riðla- keppnina léku um 5.-8. sæti en þau lið sem komust ekki upp úr riðlun- um léku svokallaða jafningjaleiki þar sem lið, svipuð að styrkleika, mættust án þess þó að vera að leika um eitthvert sérstakt sæti. Þetta skipulag gerir það að verk- um að sigurvegurum er hampað en í raun lenda engin lið í neðsta sæti og ekki er gefin út opinber röð liða nema í efstu fjórum sætunum. Um kvöldið var svo griliveisla og þrautakeppni en hápunkturinn þar var svo landsleikur Shellmótsins þar sem landsliðið mætti pressulið- inu. Lokatölur f þeim leik urðu 3-1 fyrir landsliðið eftir að staðan hafði verið 1-0 íhálfleik. Sunnudagurinn rann svo upp og var veðrið með miklum ágætum eftir mikla rigningu á laugardaginn. Hápunktur hvers móts er svo að sjálfsögðu úrslitaleikur A-liðanna, og þar mættust Njarðvík og FH, en þessi lið mættust einmitt líka í úr- slitum 2002. Þá sigruðu Njarðvík- ingar 1-3 og voru Hafnfirðingar ákveðnir í að láta það ekki endur- taka sig. Leikurinn var jafn og spennandi en Njarðvíkingar voru með undir- tökin í fyrri hálfleik. Hvorugu liðinu tókst hins vegar að skora í fyrri hálf- Það er mál manna að Shellmótið íár hafi tek- ist fullkomlega leik en í þeim síðari komust Njarð- víkingar yfir strax á upphafsmínút- unum með þrumuskoti. Þar með var ljóst að ef FH-ingar ætíuðu að vinna mótið þyrftu þeir að skora tvö mörk en Njarðvíkingum dugði jafntefli þar sem fyrsta mark leiks- ins ræður úrslitum ef jafnt er í leiks- lok. Liðin skiptust á að sækja og fengu bæði ágæt færi á að skora. FH-ingum tókst loks að brjóta ís- inn undir lok leiksins, þegar þeir skoruðu með góðu skallamarki, en tíminn reyndist þeim of naumur og fljótíega eftir það var flautað til leiksloka. Leikurinn var prúð- mannlega leikinn og gaman að sjá að í leikslok fögnuðu bæði liðin SKAGAMENN MEISTARAR: Skagamenn urðu meistarar hjá B-liðum eftir 2-0 sigur á Breiðabliki í úrslitaleik. Hér hafa bæði liðin stillt sér upp en það má sjá greinilega á nokkrum Skagamönnum hvort liðið hafði nýlokið við að tryggja sér titil. DV-mynd Ómar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.