Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Side 2
2 DVBfLAR LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ2003
Innlendar fréttir
PIACCIO: Skemmtilega öðruvísi bíll, eða ættum við að segja „hjólabíll". Kristín Harpa
Katrínar hallar sér út um hliðargluggann.
Þríhjóla Piaccio
á göturnar
Þríhjólabfll, eða kannski væri
nær að segja, vespa á þremur hjól-
um, hefur verið tekin í notkun hjá
Blómabúðinni Dalíu í Fákafeni í
Skeifunni. Bifreiðin er af gerðinni
Piaccio og verður notuð til þess
m.a. að sækja blóm á blómamark-
aðinn á Höfða og enn fremur til út-
keyrslu.
Eigendurnir hafa verið að berjast
fyrir að fá þennan ítalska „bíl"
skráðan sem bíl en ekki þungt bif-
hjól. Ef svo væri væri þetta 200 cc,
mun kraftmeira en 50 cc hjól sem í
dag eru leyfð til aksturs fyrir 15 ára
ökumenn. Piaccio-þríhjólabíllinn
nær 75 km hraða á klst. Þríhjólabíll-
inn er með vespustýri og getur bor-
ið allt að 600 kg á pallinum og dreg-
ið MCCamp-tjaldvagn. Hann er
skráður fyrir einn ökumann og tvo
farþega aftan við hann, sinn hvor-
um megin. Þríhjólabíllinn er því
allrar athygli verður. gg@dv.is
HÓPKEYRSIA Hópkeyrslan fór víða og ók um borg og bý, alla leið í Hafnarfjörð og aftur
til baka.
Hjólamessa á
Ingólfstorgi
Bifhjólasamtök lýðveldisins,
Sniglar, héldu um síðustu helgi há-
tíðlegan hjóladag sem er orðinn ár-
legur viðburður. Að þessu sinni
kallaðist uppákoman hjólamessa
sem hófst reyndar á föstudags-
kvöldi með hjólamílu uppi á
Kvartmílubraut. Hjóladaginn sjálf-
an var síðan safnast saman við fé-
lagsheimili Snigla í Skeljanesi og
ekið í hópkeyrslu um bæinn niður á
Ingólfstorg. Þar fór fyrst fram
messa sem Egill Hallgrímsson,
sóknarprestur í Skálholti, stjórnaði.
Einnig skemmti Ómar Ragnarsson
gestum, en hann er heiðurssnigill
númer 200, og hljómsveitin Moon-
boots spilaði. Um þessa helgi fer
svo fram landsmót Snigla að Njáls-
búð í Landeyjum og leikur Moon-
boots þar einnig. Má því búast við
fjölda hjóla á Suðurlandsundir-
lendinu um helgina. Bifhjólasam-
tökin óska því eftir samstarfl og
góðvild meðborgaranna í umferð-
inni um helgina. njali@dv.is
HJÓLAMESSA Egill Hallgrímsson, sóknar-
prestur í Skálholti, stjórnaði hjólamessu
með myndarskap á Ingólfstorgi en hann
ekur sjálfur mótorhjóli.
Fyrstu Ducati-
hjólin sýnd
Dælur ehf. frumsýndu um síð-
ustu helgi fyrstu sendinguna af
Ducati-hjólum í húsnæði sínu að
Bæjarlind 1-3 í Kópavogi. Sýnd
voru fimm hjól af mismunandi
gerðum og að sögn Hrólfs Péturs
Ólafssonar, sölustjóra Ducati, voru
viðtökurnar góðar og nokkur hjól
þegar seld.
Sterk í SBK-keppninni
Ducati hóf starfsemi í Bologna
árið 1926. í fyrstu framleiddi fyrir-
tækið allt frá rafmagnstækjum yfir í
myndavélar en eftir seinni heims-
styrjöldina sneri það sér einnig að
framleiðslu bifhjóla. Nánast frá
upphafi voru Ducati-bifhjólin
þekkt fyrir að vera fremst í flokki
keppnishjóla og hafa f gegnum árin
sópað til sín miklum fjölda viður-
kenninga og verðlauna um allan
heim. í SBK-keppni (superbike)
hafa þau tekið fjöldann allan af
heimsmeistaratitlum og til gamans
má geta þess að í keppni í dag eru
Ducati-hjólin með algera yfirburði
og eru í nær öllum efstu sætunum.
Mesta sigurganga Ducati-hjólanna
má segja að hefjist árið 1994 þegar
Ducati 916-hjólið kom fyrst fram.
Hver heimsmeistaratitillinn á fætur
öðrum hefur fylgt Ducati 916 og
arftökum þess, 996 og 998. Arftaki
dagsins í dag, Ducati 999, hefur
fylgt í fótspor forfeðranna og hefur
algera yfirburði í sínum flokki í
keppni.
Meiri breidd en áður
Ducati framleiðir þó ekki aðeins
SÝNING: Fyrstu Ducati-hjólin voru frumsýnd um síðustu helgi og kom fjöldi forvitinna
hjólaáhugamanna til að skoða dýrðina.
keppnistæki. Hin þrodausa þróun-
arvinna sem unnin hefur verið fyrir
keppnishjólin hefur einnig verið yf-
irfærð á ferðahjól, borgarhjól og nú
loks fjölnotahjól. Ducati ST-línan
byggist á sama grunni en þægindi
hafa verið aukin til muna fyrir öku-
mann og farþega. Monster-línan,
hinir upphaflegu CafeRacerar, hef-
ur verið aðlöguð borgarakstri og
gert hann að ánægjulegri upplifun.
Multistrada er nýjasta útspil
Ducati, ædað fyrir misgóða vegi og
ferðalög.
I
15 söluhæstu
tegundirnar með
rúm 90% sölunnar
Ferð fyrir 7 á lands-
leik gegn Þjóðverjum
Fyrri helming ársins seldust á ís-
landi 5333 nýir fólksbflar - þar með
taldir jeppar. Það er tæplega 42%
meira en á sama tíma í fyrra en í
júnflok 2002 höfðu selst 3768 bflar.
Með sama áframhaldi ættu að selj-
ast nærri 10.700 nýir bflar í ár.
Toyota ber höfuð og herðar yfir
keppinautana nú eins og mörg
undanfarin ár og hefur selt nærri
þrjá bfla á móti hverjum einum
þeirrar tegundar sem næst kemur,
en það er Volkswagen. Af þeirri
gerð seldust 537 bflar þessa fyrstu
sex mánuði ársins.
Af 32 nefndum tegundum eru 15
þær söluhæstu með samtals 91,3%
heildarsölunnar en þær 17 sem þar
koma á eftir skipta á milli sín þeim
8,7% sem eftir eru. í þeim hópi eru
allt kunnugleg nöfn - nema hvað ef
til vill má segja að Lincoln sé frem-
ur fáséð nafn á lista yfir nýja bfla
hérlendis. Af þeirri tegund bárust
þó tvö ný eintök bfla á þessum
fyrstu sex mánuðum ársins. Þarna
má einnig sjá að 6 bflar af gerðinni
Lada hafa verið nýskráðir á þessum
tíma - sem um skeið var söluhæsta
tegundin á fslandi.
SÖLUHÆSTUR: Toyota Yaris var söluhæsti
bíll ársins 2002.
Taflan yfir 15 söluhæstu tegund-
irnar mánuðina janúar-júnf 2003
lítur þannig út:
15 SÖLUHÆSTU MERKIN
Tegund Fjöldi Hlutdeild %
Toyota 1514 28,4
Volkswagen 537 10,0
Hyundai 358 6,7
Suzuki 323 6,1
Nissan 310 5,8
Subaru 267 5,0
Skoda 260 4,9
Ford 255 4,8
Honda 230 4,3
Opel 193 3,6
Renault 172 3,2
MMC 138 2,6
Volvo 124 2,3
Peugeot 108 2,0
Citroen 78 1,5
I tilefni landsleikja íslands og
Þýskalands, sem fram fara í
haust, hafa Hekla, Icelandair og
KSÍ hafið samstarf um „Touran
landsleikinn". Þessi skemmtilegi
leikur fer fram í tengslum við
kynningu Heklu hf. á
Volkswagen Touran, nýjum 7
manna bfl frá Volkswagen. Með
reynsluakstri á Volkswagen
Touran gefst þátttakendum
kostur á að setja nafn sitt í pott
sem dregið verður úr 6. septem-
ber á heimaleik fslands og Þýska-
lands á Laugardalsvellinum. Þar
sem Touran er sjö manna bfll
hlýtur vinningshafinn ferð fyrir
sjö manns til Þýskalands á loka-
leik fslands í undankeppni EM,
miða á leikinn og gistingu fyrir
hópinn. Leikurinn fer fram 11.
október í Hamborg.
Auk þessa hefur nú verið gefið
út glæsilegt plakat með mynd af
Iandsliðsmönnum fslands og
hinum nýja Volkswagen Touran
og geta allir sem koma í heim-
sókn til Heklu eða í næsta sölu-
umboð Heklu fengið plakatið.
gg@dv.is