Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ2003 DVBÍLAR 5
Ódýrari Touareg væntanlegur
JEPPI: Volkswagen hefur sett á
markað nýjar útgáfur af Tou-
areg-jeppanum sem verða þaer
dýrustu og ódýrustu. Sá ódýrari
verður með 2,5 lítra dísilvél
með forþjöppu og sex gíra
beinskiptum kassa. Hann verð-
ur einnig fáanlegur með sex
þrepa valskiptingu. Að sögn
JónsTrausta Ólafssonar, kynn-
ingarfulltrúa Heklu, verður
þessi útgáfa bílsins aðeins ódýr-
ari en V6 bensínbíllinn. Dísilvél-
in er 172 hestöfl og hefur 400
Nm snúningsvægi sem er meira
en ÍV6 bílnum. Hann verður þó
ekki fljótari í hundraðið en dísil-
bíllinn er 12,4 sekúndur á móti
9,9 ÍV6 bílnum. Á næsta ári er
svo von áTouareg í dýrri 12
strokka útgáfu, en sú vél verður
sex lítrarað rúmmáli.
BMW X5 fær andlitslyftingu
KRAFTUR: BMW kynnir nýjan
X3 sportjeppling á næsta ári
og því mun X5 fá andlitslyft-
ingu en sá bíll verðurfrum-
sýndur á bílasýningunni í
Frankfurt í september. Breyt-
ingarnar verða þónokkrar ut-
andyra, aðallega á framenda
og afturbrettum, auk nýrra aft-
urljósa. Einnig er afturhleri
endurhannaður og hliðar-
speglar líka sem verða með
innbyggðum stefnuljósum.
Dísilvélin, sem í boði er í dag,
fær meira afl, úr 184 hestum í
230, auk nýrrar sex gíra bein-
skiptingar. Orðrómur er einnig
um að bætt verði við afl 4,6
lítra bensínvélarinnar og að
hún fari yfir400 hestöfl. Bíllinn
fer á markað í Evrópu um ára-
mót.
OTUT: Nýr Nissan X-trail kemur á markað í
desember í Evrópu.
STÝRI: Meðal búnaðar í bílnum sem er á
markaði í Japan er stýri sem hægt er að
smella upp til að auövelda aðgang.
Nýr X-trail í Evrópu
fyrir áramót
Breytingar á jepplingamarkaði eru
örar og nýir bflar skjóta upp koliin-
um eins og gorkúlur. Því þurfa ffam-
leiðendur að vera á tánum og kynna
ört andlitslyftingar eins og Nissan
hefur gert með X-trafl. Bfllinn verður
kominn á götuna fyrir áramót í Evr-
ópu en er þegar á markaði í Japan.
Breytingamar em ekki miklar að
utan þótt sjá megi nýtt grfll, felgur og
stuðara. Þakbogamir em mun verk-
legri en áður og fremst í þeim em
reyklituð ljós. Nokkrar breytingar
hafa verið gerðar á honum innan-
dyra og hlutir færðir tU í mælaborði.
Spumingin er þó hvort fídusar eins
og stýrishjól, sem hægt er að smeUa
upp tU að auðvelda aðgang í sæti, nái
tfl Evrópu. Ný dísUvél verður einnig á
boðstólum sem er mun öflugri, eða
136 hestöfl. Óvíst er ennþá hvort
boðið verður upp á þessa útgáfu
hérlendis. njall@dv.is
Innköllun Toyota
og Mitsubishi
Samkvæmt fréttum frá NHTSA,
umferðaröryggismáiastofhuninni í
Bandaríkjimum, ætlar Toyota að
innkaUa 123.360 paUbfla af Tacoma-
gerð þar í landi. InnköUunin er
vegna vandamáls sem kom upp
vegna bensínleka f árekstrarprófun-
um en hluti yfirbyggingarinnar rakst
í leiðsluna úr bensíntankinum.
Toyota mun setja hlíf utan um leiðsl-
una tfl að laga vandamálið. Sam-
kvæmt fféttaskeyti Reuters þarf
Mitsubishi lfka að innkaUa 43.649
Outlander-jepplinga. Er það tfl kom-
ið vegna vatns sem hafði komist inn
í rýmið fyrir neðan gólf bflsins og gat
það leitt tíl skemmda á vírum sem
tengjast öryggispúðum bflsins og
einnig sætisbeltum og bremsum. Að
sögn Jóns Trausta Ólafssonar, kynn-
ingarfuUtrúa Heklu, á þessi innöUun
ekki við hérlendis þar sem bflamir
voru ekki komnir í sölu á Evrópu-
markaði þegar þessi innköUun er
gerð. „Outlander er ffamleiddur í
Japan og hefur verið seldur á Amer-
flcumarkaði og heimamarkaði í Jap-
an undir nafninu Airtrek í nokkum
tfma. í fyrstu sendingu, sem okkur
barst, vom 10 bflar sem þurftu á
þessari aðgerð að halda og í gæða-
eftirliti, sem ffamkvæmt er af tækni-
mönnum okkar fyrir afhendingu,
vom þeir lagfærðir þannig að þessi
innköUun mun ekki hafa áhrif á okk-
ar markað. Við höfðum áður fengið
um það tifkynningu ffá Mitsubishi
þannig að þetta gekk vel fyrir sig,“
sagði Jón Trausti.
Hjólafestingar á þakið
Kajakfestingar
THUIT Toppur.inn
Skíðaklemmur
Farangursbox, ymsar stærðir
Hjólafestingar á dráttarkúlu
0] Stilling
www.stilling.ls IbV
DALSHRAUN113 - SÍMI 555 1019
EYRARVEGI 29 ■ SlMI 483 1800 SKEIFUNNI 11 • SÍMI 520 8000
SMIÐJUVEGI 68 • S(MI 544 8800 BfLDSHÖFÐA 16 SlMI 5771300
Smáauglýsingar
tómstundir og afþreying
njall@dv.is