Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003 TILVERA 27 John Travolta og Samuel Jackson ffyrsta sinn saman sfðan Pulp Fiction, f þessari mögnuðu spennumynd. Sýnd kl.6,8 og lO.B.i. 16.ára Sýnd kl. 6,8 og 10. B.i. 12 ára. USSSS....: Sýnd kl.6.10og 10,10. B.i. 12 ára. HOLLYWOOD ENDING: Sýnd kl. 5.50,og 10.B.Í. 12 ára. DARK BLUE: Sýnd kl.8.B.i. 14 ára. RESPIRO: Sýnd kl. 8. B.i. 12 ára. NÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6. Sýnd m.enskum texta. English subtitles. ALF AB AKM John Travolta og Samuel Jackson í fyrsta sinn saman sfðan Pulp Fiction, f þessari mögnuðu spennumynd. Sýnd kl. 5.50,8 og 10.10. B.i. 16ára. Stelpudagar kr. 300 í bíó 28. til 31. júlr John Travolta og Samuel Jackson í | fyrsta sinn saman síðan Pulp Fiction, ■ í þessari mögnuðu spennumynd. Sýndkl. 3.45,5.50,8og 10.10. B.i.16ára HBuBæSESESraBfi I Lúxus VIP kl.5.50,8 og 10.10. B.i.16ára Sýnd kl.3.45,5.50,8og 10.10 Sýnd kl. 3.45,5.50,8 og 10.10. Tilboð kr. 300. LIZZIE MAGUIRE: Sýnd kl. 4 og 6. Tilboö kr. 300. BRINGING DOWN THE HOUSE: Sýnd kl.4. Tilboð kr. 300. 1 _ _ _ LIZZIE MCGUIRETHE MOVIE: ■■■ Sýnd kl. 6.15 og 8. JETLAG: ★★★ Ó.H.T. Rás 2 Sýnd kl. 8. Tilboð kr. 300. 2 FAST 2 FURIOUS: Sýnd kl. 8B.i. 12ára. HOWTO LOSE A GUY IN 10 DAYS: Sýnd kl. 10.10. Tilboð kr.300. | KANGAROO JACK: Sýndkl.4og6 || MATRIX RELOADED: Sýnd kl. 10.B.Í. 12 ára. KRINGLAN tS 588 0800 ÁLFABAKKI tS 587 8900 |ÉK FJÖLMIÐLAVAKTIN Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sigrun&okusJs Morgunhanar og 70 mínútur Morgunþátturinn fsland í bítið er orðinn fastur liður í tilveru margra Islendinga enda skemmtilegur þáttur á ferðinni. Þau Ásta Hrafnhildur Garðars- dóttir og Fjalar Sigurðsson stjórna honum þessa dagana og standa sig ágætlega, bæði tvö. Efnistökin eru fjölbreytt og það er kostur hversu óþvingaður þáttur- inn er. Að vísu mætti fylgjast bet- ur með heimasíðunni en þar eru enn þá inni á forsíðu upplýsingar um hvað var í Islandi í bítið síð- asta fimmtudag. Það glittir í þáttinn 70 mínútur eins og gull í grjótinu sem er á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Popptíví. Þar sitja þeir Auddi og Sveppi við stjómvölinn þessa dagana en Simmi er í fríi. Af ein- hverjum undarlegum orsökum er maður hættur að láta hið yfir- þyrmandi og ljóta Pepsi- og Doritos-umhverfi pirra sig og horfir á þáttinn kvöld eftir kvöld, yfirleitt í hláturskasti. Falda myndavélin, tilraunin og liður þar sem strákarnir gera grín að öðm sjónvarpsefni er nokkuð sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Götuspjallið mætti missa sig en þar fylgjast strákarnir með fólki spjalla saman á fömum vegi og tala svo yfir það. Það var fynd- ið í vissan tíma en er löngu farið að missa marks. Það má segja margt ljótt um 70 mínútur. Settið er hörmung, aug- lýsingaflóðið er óþolandi, innslögin em of löng og mynda- takan léleg. Á einhvem ótrúlegan hátt gengur þetta samt allt upp enda alkunna að mínus og mínus verður plús. í 70 mínútum sann- ast lfka að góðir þáttastjórnendur geta gert kraftaverk og manni leiðist ekki í eina mínútu af 70. STJÖRNUGJÖF DV ★ ★★★ Nói albfnói ★ ★★lík Dark Blue ★ ★★ HULK ★ ★★ Phone Booth ★ ★★ Charlie Angels Full Throhle ★ ★ Hollywood Ending ★ ★ Anger Management ★ ★ 2 Fast 2 Furious ★ ★ Jet Lag ★ ★ Matrix Reloaded ★ ★ Bringing Down the House ★ ★ Lizzie McGuire Movie ★i Dumb and Dumberer KVIKMYNDAGAGNRÝNI Sif Gunnarsdóttir sif@‘dvJs Michael Douglas leikur Steve Tobias, CIA-njósnara sem er mitt í mjög leynilegu verkefni sem felst í því að koma upp um vopnasala. Þetta er vandasamt verkefni, ekki síst vegna þess að mitt í öllum bíla- eltingaleikjunum, flugferðum um hnöttinn þveran og endilangan, bar- dögum og svikum, þarf Steve líka að leika elskandi föður því einkasonur hans er að fara að kvænast huggu- legri stúlku. Það væri í sjálfu sér allt í lagi ef ekki væri fyrir föður stúlkunn- ■ ar, fótalækninn Jerry Peyser (Albert Brooks), sem er svo hræðslugjarn og heimakær að hann fær áhyggjukast af því að horfa á auglýsingar frá flug- félögum í sjónvarpinu. Einstaklega léleg tímasetning ræður því að þegar Steve hittir foreldra Melissu í fyrsta skipti þarf hann líka að hitta nokkra glæpamenn og til að auðvelda sér lífið stefnir hann öllum á sama veit- ingastaðinn. Það voru mikil mistök því Jerry fótalæknir rambar inn á vafasöm viðskipti á klósettinu og veit ekki fyrr en hann er farinn að flengjast um heiminn á einkaþotu Barbru Streisand með Steve - manni sem hann veit ekki hvort er svo leynilegur njósnari að CIA sé búið að gleyma honum eða bara geðsjúk- lingur með flugpróf og afar vafa- sama vini. Kvikmyndin The In-Laws er eins konar endurgerð á alveg óvenjulega minnisstæðri gamanmynd með sama nafni frá árinu 1979, með þeim Peter Falk sem njósnaranum og Alan Arkins sem tannlækni í aðalhlut- verkunum. En þótt grindin sé sú sama er heilmikið búið að breyta persónum og hleypa meiri tækjum og aksjón í söguþráðinn. Það sem gerir The In-Laws að al- veg prýðilegri gamanmynd er sam- band Steve og Jerry, en þeir Douglas og Brooks eru stórskemmtilegir sem Regnboginn/Laugarásbíó The In-Laws hinar fullkomnu andstæður. Mich- ael Douglas smellpassar í hlutverk njósnarans sem finnst h'tið mál að mæta í brúðkaup sonarins sama dag og hann ætlar að bjarga heiminum og Albert Brooks er alveg frábær f hlutverki hins endalaust áhyggju- fúlla læknis. Sum atriðin, þar sem Jerry þarf að takast á við alveg splunkunýjar aðstæður, eins og að þykjast vera leynimorðinginn Svarta Kóbran til að ganga í augun á frönsk- um vopnasala (dásamlega leikinn af David Suchet), eru alveg óborgan- lega fyndin. Aðrir leikarar í mynd- inni eru lítt minnisstæðir, fýrir utan Candice Bergen sem leikur fyrrver- andi eiginkonu Steves njósnara og hatar hann enn þá af svo mikilli ástrfðu að hún þarf að taka með sér búddískan munk í brúðkaup sonar síns til að missa ekki stjórn á sér. Tónlist leikur afar stórt hlutverk í The In-Laws alveg frá því að Paul McCartney syngur Bond-lagið sitt, Live and Let Die, í upphafsbílaelt- ingaleiknum í Prag og þar til hið elskulega Raindrops Keep Falling on Your Head er notað mun bókstafleg- ar en upphaflega í Butch Cassidy and the Sundance Kid. í stuttu máli sagt er The In-Laws gamanmynd sem kemur manni til að hlæja og fátt er betra á regnvotu júlíkvöldi. Aðallelkaran Michael Douglas, Albert Brooks, Candice Bergen, David Suchet Leikstjóri: Andrew Fleming Handrit Nat Mauldin og Ed Solomon Tónlist Lalo Schifrin Hvoð er í sjónvarpinu í kvöld? Yfir strikið á RÚV Sjónvarpið kl. 21.25 ogkl. 22.20: Klukkan 21.25 sýnir Sjónvarpið norskan þátt sem nefnist Litla- Múrmansk. Þar er litast um í gamla iðnaðarbænum á Kirkjunesi sem hefur tekið stakkaskiptum eftir að landamærin að Rússlandi opnuð- ust fyrir rúmum fimmtán árum. Yfir strikið er breskur sakamála- þáttur sem hefst klukkan 22.20. f þættinum segir frá réttarsálffæð- ingi á öryggissjúkrahúsi sem að- stoðar lögregluna í leit hennar að hættulegum glæpamönnum. Sér- fræðiþekking konunnar gerir henni kleift að setja sig inn f hugarheim ofbeldismanna og koma auga á mikilvægar vísbendingar um fjöldamorðingjann sem gengur laus. Meðal Ieikenda eru Daniela Nardini, Anastasia Hille, Leslie Phillips, Danny Webb og Tim Dutton. MÚRMANNSK: Litast um f gamla iðnaðar- baenum Kirkjunesi sem þykir minna á Múrmansk. Lífíð .eftir vinnu Listasafn Sigurjóns: Tónlistarhóp- urinn Katla flytur verk eftir íslensk og önnur norræn tónskáld 20. aldar I Listasafni Sigurjóns á Laugarnestanga í kvöld. Kötlu skipa Svava Kristín Ingólfsdóttir, Ingibjörg Guðlaugsdóttir og Magnús Ragnarsson sem öll búa og starfa í Gautaborg. GaukurinmTónleikar verða á Gauknum í kvöld og hefjast þeir kl. 22. Þar koma meðal annars fram Þrír lúðrar sem flytja sjö ný íslensk tónverk fyrir málmblást- urshljóðfæri og rafhljómgjafar. Ólafsvík: Aðalheiður S. Eysteins- dóttir opnar eina af sínum 40 sýningum í Pakkhúsinu í Ólafsvík. Akureyri: Vesturíslenskur barna- og unglingakór syngur í Glerár- kirkju kl. 20.00. Stjórnandi er Rosalind Vigfússon. Deiglan: Ulla Mörch frá Dan- mörku sýnir verk sem hún hefur unnið í gestavinnustofu Gilfélagsins í Deiglunni í Listagili ídag kl. 13,00. Laugarbakki: Sýning á teikning- um Halldórs Péturssonar, sem unnar eru upp úr Grettis sögu, verður opnuð á Hótel Eddu á Laugarbakka í Miðfirði í dag. Teikningarnar, sem eru 14 talsins, hafa aldrei (heild sinni birst al- menningi fyrr en nú. Viöey: Gengið verður (kvöld um Viðey með ráðsmanninum, Ragn- ari Sigurjónssyni sem mun vekja athygli á fjölskrúðugu dýralífi eyj- unnar. Ferðin hefst kl. 19.30 með siglingu frá Sundahöfn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.