Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2003, Page 2
2
Magasín
Fimmtudagur 9. október 2003
Viðtalíð Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir lýkur meistaranámi í djasssöng
Ótal víddir í heillandi heimi
Mér finnst alltaf gaman að
syngja og á stundum er það
nánast heilt ævintýri. Ekki síst
þegar maður er með góðu fólki
sem flytur tónlistina af sannri
gleði.
Það er líka alltaf ánægjulegt að
starfa með flinkum hljómlistar-
mönnum sem nálgast tónlistina
sem þeir eru að spila af virðingu,"
segir Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir
söngkona. Hún lauk fyrr á þessu ári
meistaranámi í djasssöng frá Kon-
unglega tónlistarháskólanum í
Haag í Hollandi. Svo vitað sé er hún
fyrst íslendinga til að ná slíkri
gráðu - og þar býr að baki mikil
saga og söngur allt frá barnæsku.
Nánast óþolandi
Guðlaug hefur sungið allt frá
barnæsku. Faðir hennar er Sunn-
lendingurinn Ólafur Þórarinsson
sem löngum hefur verið kenndur
við hljómsveitina Mána. „Sjálfsagt
„Þótt ég hafi gaman af
flestum tegundum tón-
listar er það samt sem
áður alltaf djassinn sem
ég set undir geislann
þegar ég vil heyra tón-
list sem ég hef virkilega
gaman af.“
hefur áhrif á mig að pabbi hefur
alltaf verið í tónlist. Hann hefur
sagt að ég hafi alla tíð verið syngj-
andi sem stelpa og fyrir vikið á köfl-
um verið nánast óþolandi," segir
Guðlaug og hlær.
Hún er að mestu alin upp í Vest-
mannaeyjum og tók virkan þátt í
tónlistarlífinu þar, sem löngum
hefur verið mjög öflugt. Kornung
var Guðlaug meðal þátttakenda í
uppfærslu Leikfélags Vestmanna-
eyja á söngleiknum Oklahoma og
söng einnig á Eyjakvöldum á
skemmtistöðum bæjarins. Upp úr
tvítugu, eða um 1990, fór hún svo
til Reykjavíkur og var þá meðal
annars söngkona hjá föður sínum í
sveitinni Karma, sem þá kom
reglulega fram á stöðum eins og
Hótel íslandi og Kaffi Reykjavík.
f skóla hjá Guðmundu
„Það var afar lærdómsríkt að
syngja á dansleikjum. Lögin voru
hvert öðru ólíkara, rétt eins og að-
stæðurnar og fólkið. Og allflest
kvöld var þetta skemmtilegt," segir
Guðlaug, sem kveðst alla tíð munu
búa að þeim skóla sem hljóm-
sveitaslarkið hafi verið.
Að koma til höfuðborgarinnar
markaði einnig upphaf eiginlegs
söngnáms Guðlaugar. Hún sótti
tíma í Söngskólanum í Reykjavík og
einnig og helst einkatíma hjá Guð-
mundu Elíasdóttur. „Það var mikill
skóli að fara í tíma hjá Guðmundu
þar sem við fórum í ýmis grunnat-
riði eins og til dæmis öndun, texta-
framburð, líkamsbeitingu og fleira.
Þetta skipti miklu máli fyrir mig í
upphafi námsins og gerir enn - þó
svo að meiri lærdómur og lengri
skólaganga geri manni ljóst hve lít-
ið maður kann í raun.“
Smitaðist af djassinum
Árið 1996 var Guðlaug komin
með fimmta stig í söng og hélt þá
utan til Hollands í frekara söng-
nám. Maður hennar, Vignir Þór
Stefánsson, hafði þá ári fyrr haldið
utan til tónlistarnáms þar ytra og
lagði áherslu á djasstónlist. Segir
Guðlaug að í gegnum Vigni hafi
hún raunar smitast af djassinum og
ekki hafi verið aftur snúið.
„Djassinn er afar heillandi heim-
ur og hefúr ótalmargar víddir. Þetta
er tónlist sem hefur algjörlega fang-
að mig og þótt ég hafi gaman af
flestum tegundum tónlistar er það
samt sem áður alltaf djassinn sem
ég set undir geislann þegar ég vil
heyra tónlist sem ég hef virkilega
gaman af.“
Opinberun á hverjum degi
Þegar út til Hollands kom nam
Guðlaug fyrsta árið dægurlagasöng
í Rotterdam, en fann sig ekki þar.
„Það er margt sem ræður því
hvort maður fínnur sig í námi; skól-
inn, kennararnir og fleiri atriði. Eins
og þetta var þarna fyrsta veturinn
fannst mér það hafa verið lærdóms-
ríkara að syngja á öldurhúsum
heima en vera í þessum skóla," seg-
ir Guðlaug, sem á öðrum vetri fékk
inngöngu í djassdeild tónlistarhá-
skólans í Haag. Sá skóli er virtur og
einn sá besti á sínu sviði.
„Ég naut þess að vera í því námi
sem var mér sem opinberun á
hverjum degi,“ segir söngkonan.
Eftir fjögurra ára nám var hún kom-
in með svonefnda DM-gráðu, þ.e.
með burtfararpróf í djasssöng og
kennararéttindi. En svo góðum ár-
angri náði Guðlaug að skólayfirvöld
buðu henni að bæta við sig
meistaragráðunni - sem hún þáði.
HJÓNIN: Guðlaug Dröfn og Vignir Þór Stefánsson, eiginmaður hennar. f
gegnum hann smitaðist Guðiaug af djassinum, meira að segja svo að
straumhvörf urðu á hennar tónlistarferli svo ekki varð aftur snúið.
SÖNGKONAN: „Og þótt ég sé búin með skólann þá á ég eftir að fmna minn persónulega stíl í djasssöngnum og þróa hann
áfram. Fá þetta í blóðið," segir Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir meðal annars hér í viðtalinu.
Textatúlkun og leikhúslykt
„Það var aldrei ætlun mín að fara
í meistaranámið, en úr því þetta
tækifæri bauðst var ómögulegt
annað en taka því,“ segir Guðlaug,
sem í meistaranámi sínu lagði sér-
staka áherslu á textatúlkun. Það
„Tærnar á mér eru
hvergi nálægt hælunum
á þessum djassdrottn-
ingum. En til að syngja
sig inn í hug og hjörtu
fólks er það sönggleðin
og einlægnin sem skiptir
mestu.“
valdi hún sér sem kjörsvið.„Síðan
fór ég líka að flækjast í tíma í leik-
hústónlist og síðan þróuðust mál
svo að stjórnendur skólans buðu
mér að nema þau fræði einnig.
Námið í leikhústónlist segir hún
hafa verið ævintýri. „Ég þekkti leik-
húslyktina lftillega eftir að hafa
meðal annars tekið þátt í Súperstar
þegar það verk var fært upp í Borg-
arleikhúsinu 1995. Síðan var ég
þarna úti líka í uppfærslu kaffileik-
húss með náminu í sýningu sem
var sýnd í tvö ár. Það var heilmikill
skóli að standa á því sviði. Þar var
maður í mikilli snertingu við áhorf-
endur og þurfti að vera undir allt
búinn."
Eilífðarverkefni
En núna er djassinn efstur á blaði
hjá Guðlaugu. Hún lauk námi sínu
í Hollandi snemma í sumar sem
leið og kveðst vera „... búin að setja
á sig vængina til að fljúga út í heim-
inn,“ eins og hún kemst að orði,
„Og þótt ég sé búin með skólann
þá á ég eftir að finna minn per-
sónulega stíl í djasssöngnum og
þróa hann áfram. Fá þetta í blóðið.
Og slíkt er auðvitað eilífðarverkefni
því djassinn er til í svo óteljandi
stílum.“
Guðlaug er byrjuð að starfa sem
kennari við Tónlistarskóla FIH, en
hefur raunar mörg önnur járn í eld-
inum, jafnt við kennslu sem söng.
„Mér finnst ég algjörlega búin að
finna mig í lífinu sem söngkona og
kennari. Vera á réttri hillu."
Tuttugu söngkonur
Fyrirmyndir Guðlaugar ( djass-
söngnum eru margar. „Ég get nefnt
einar tuttugu söngkonur og aðra
tónlistarmenn og það er voðalega
erfitt að fara að pikka út úr þeim
hópi. En ég get gert tilraun. Til
dæmis er ég óskaplega hrifin af
yndislegri túlkun í söngnum hjá
Billy Holliday, sveiflunni hjá Ellu
Fitzgerald, skemmtilegri raddáferð
Söru Vaughan og Eva Cassedy er
yndislega einlæg. Svona gæti ég
haldið áfram," segir Guðlaug.
Hvergi nærri hælunum
En hvernig getur svo ung söng-
kona á landi norður við heim-
skautsbaug komist að minnsta
kosti með tærnar þangað sem
djassdrottningar höfðu hælana?
Söngkonurnar sem heilluðu heim-
inn.
„Tærnar á mér eru hvergi nálægt
hælunum á þessum djassdrottn-
ingum. En til að syngja sig inn í hug
og hjörtu fólks er það sönggleðin og
einlægn sem skiptir mestu,“ segir
Guðlaug. „Sé sungið frá hjartanu
nær söngurinn til hjarta þess sem
hlustar. Þetta er víst alltaf sama
sagan og breytist seint eða aldrei."
sigbogi@dv.is
DV Magasín
SlmL 550 5000 - Otgefandb Útgáfufélagiö DV. - Ábyrgöarmenn: Óli Björn Kárason og Jónas Haraldsson. - Umsjónarmaöur Stefán Kristjánsson sk@magasin.is
Blaöamaöur Sigurður Bogi Sævarsson sigbogi@dv.is - Auglýsingar: Katrín Theódórsdóttir kata@dv.is og Ingibjörg Gísladóttir inga@dv.is - Prentun: Árvakur hf.
Upplag: 80 þúsund eintök. - Dreifing: Póstdreifing ehf. - Dreift ókeypis á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Akranesi og til áskrifenda DV úti um land.