Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2003, Page 6
6
Magasín
Fimmtudagur 9. október 2003
Doktor.is
ÁRVEKNI: Til að minna á árvekni
gagnvart brjóstakrabbameini eru
valdar byggingar ár hvert lýstar
upp í bleikum lit. Að þessu sinni
er það Stjómarráðið. Ástríður
Thorarensen, kona forsætisráð-
herra, kveikti ljósin á dögunum.
Hér er hún með eiginmanni sfn-
um og Guðrúnu Agnarsdóttur,
forstjóra Krabbameinsfélagsins.
Hreyfing
dregur
úr hættu
Ég hef veríð með verki í
brjóstum, fyrst því vinstra og
nú íbáðum. Þau eru bólgin og
þrútin og ég fínn smáhnúða,
en þeir eru mjúkir. Er þetta
eitthvað sem ég þarf að hafa
áhyggjur af?
Svar:
Einkenni sem þessi eru ekki
þannig að þau veki grun um
brjóstakrabbamein, sérstak-
lega ekki ef þetta eru einkenni
sem koma og fara. Ef um unga
konu er að ræða er ráðlegt að
bíða fram yfir næstu blæðingar
og sjá hvort þessi einkenni
sveiflast með tíðahringnum. Ef
hins vegar um eldri konu er að
ræða, konu komna yfir fertugt
og jafnvel nýbyrjaða að taka
Þau eru bólgin og
þrútin og ég finn
smáhnúða
hormóna, er ráðlegt að láta
lækni líta á brjóstin og fara í
myndatöku. Það er erfítt að
skoða brjóst sem eru þrútin,
bæði fyrir konuna sjálfa og
aðra, og þess vegna er svo mik-
ilvægt að brjóstin séu mynduð.
Hefur mikið að segja
Hreyfing hefur einnig mjög
mikið að segja í þessu sam-
bandi. Jafnvel mjög lítil hreyf-
ing getur dregið úr líkum á því
að konur fái brjóstakrabba-
mein. Konur voru spurðar
hvort þær stunduðu reglulega
hreyfingu. Valinn var aldurinn
18, 35 og 50 ár. Dæmi um mikla
hreyfingu voru t.d. hlaup,
skokk, sund og tennis. Dæmi
um miðlungshreyfingu voru
t.d. hjólreiðatúrar en lítil hreyf-
ing, t.d. keila.
Svipuð niðurstaða
Af konum sem spurðar voru
fengu 1780 brjóstakrabbamein
á því 5 ára tímabili sem fylgst
var með þeim. 35 ára konur
sem stunduðu reglulega mikla
hreyfmgu voru 14% ólíklegri til
þess að fá brjóstakrabbamein.
Svipuð niðurstaða fékkst fyrir
18 og 50 ára konur.
www.doktor.is
Heimilislegt Móeiður Helgadóttir í eldhúsinu
Hrifin af fljótgerðum réttum
ELDHÚSSTÖRFIN: „Mér finnst mikilvægt að vera ekki bundin of lengi yfir elda-
vélinni ef ég býð gestum í mat,“ segir Móeiður Helgadóttir leikmyndahönnuður.
„Mér finnst mikilvægara að verja
tímanum sem ég hef með fjöl-
skyldu og vinum heldur en í
endalaus heimilisstörf og elda-
mennsku.
Vegna þess hve oft er mikið að
gera hjá mér er ég mjög hrifin af
mat sem fljótlegt er að útbúa," seg-
ir Móeiður Helgadóttir leikmynda-
hönnuður. „Mér finnst líka mikil-
vægt að vera ekki bundin of lengi
yfir eldavélinni ef ég býð gestum í
mat. Ég reyni því að velja mat sem
ég get undirbúið fyrir fram. Þannig
nýtist tíminn með gestunum best.
Mér finnst gaman að elda og baka
en vil geta gert það hratt og skipu-
lega."
Á kafi í vinnu
Móeiður hefur unnið við ýmsar
leiksýningar og núna sér hún,
ásamt Agli Ingibergssyni, um leik-
mynd, lýsingu og búninga í verkinu
Plómum sem verður frumsýnt í
Gamla bíói 12. október. Þetta er
enduruppsetning á verkinu sem
var sýnt í Tjarnarbíói síðastliðið
vor.
„Nú er ég, ásamt því að vera að
vinna að Plómum, einnig að að-
stoða við uppsetningu á tveimur
verkefnum sem ég vildi gjarnan
geta sinnt betur. Það fyrra er Aur-
ora Borealis, sem er sett upp af
Internetleikhúsinu Lab Loka, og
það seinna er verk sem sett er upp
af Kvenfélaginu Garpi og heitir
Riddarar hringborðsins með veskið
að vopni," segir Móeiður.
Veislumatur með brauði og
víni
Móeiður leyfði blaðamanni DV-
Magasíns að skyggnast inn í eld-
húsið sitt, þrátt fyrir mikið annríki,
og gefur lesendum tvær uppá-
haldsuppskriftir sínar. „Svona
lærði ég fyrst að elda pasta," segir
Móeiður.
„Ég hef breytt uppskriftinni mik-
ið og set raunverulega það sem mér
sýnist í þetta. Það virkar bæði sem
léttur kvöldmatur og þá notar mað-
ur mjólk í stað rjóma, en svo er
þetta veislumatur með hvítlauks-
brauði og hvítvíni."
300 grömm pastaskrúfur
1 /2 lftri rjómi
1/2 til 2/3 piparostur
sveppir og spergilkál
pepperoni eða skinka
2-3 hvítlauksrif
smávegis sveppakraftur
olía, salt og pipar
Vatn er sett í pott og suðan látin
koma upp. Þá er pastað sett ofan í
sjóðandi vatnið og saltað örlítið.
Sveppir eru skornir í sneiðar og
spergilkál í greinar. Þá eru svepp-
irnir, spergilkálið og kjötið steikt
saman á pönnu í tvær til þrjár mín-
útur. Rjóma er hellt yfir, osturinn
skorinn f litla bita og settur út í
ásamt hvítlauk, krafti og salti.
Blandan er látin sjóða við vægan
hita þar til osturinn er uppleystur
og pastað soðið. Pastað er þá sett í
skál, sósunni hellt yfir og rétturinn
er tilbúinn.
Súkkulaðisæla fyrir fjóra
„Þessi eftirréttur er í algeru upp-
áhaldi hjá mér og á sérstaklega vel
við í matarboðum eða á jólunum,"
segir Móeiður. „Með þessu er mjög
gott að bera fram niðurskorna
ávexti og þeyttan rjóma. Sjálfri
finnst mér best að hafa með þessu
jarðarber eða bláber."
125gsmjör
125 g suðusúkkulaði (70%)
3egg
3 matskeiðar hveiti
2/3 bolli sykur
Fljótandi í miðjunni
Súkkulaði og smjör er brætt sam-
an í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði.
Á meðan eru eggin, hveitið og syk-
urinn sett í skál og hrært með þeyt-
ara, bara rétt til að blanda hráefn-
unum saman. Svo er súkkulaði-
blöndunni blandað vel saman við
eggjablönduna. Þessu er svo hellt í
eldfast mót og bakað í 10 mínútur
við 180°C.
„Kakan á að vera fljótandi í miðj-
unni en bökuð í hliðunum," segir
Móeiður. „Ef hún bakast í gegn er
hún ekki nærri því eins góð. Ég
útbý vanalega súkkulaðiblönduna
og sker niður ávextina rétt áður en
gestirnir koma. Set svo súkkulaðið
inn í ofn eftir mat og þeyti rjóma.
Þá er allt tilbúið á réttum tíma."
Sveppir í eggjaskera
„Það getur verið tímafrekt að
skera niður sveppi, sérstaklega
þegar nota á mikið af þeim. Til að
spara tíma er einfaldlega hægt að
sneiða sveppina í eggjaskera. Þetta
er mjög fljódegt og þægilegt," segir
Móeiður og bætir við:
„Þegar Óðinn, sonur minn, biður
mig um að baka hef ég ekki alltaf
tíma til þess. Stundum leyfi ég hon-
um því að fá ristaða brauðsneið
með smjöri og kanelsykri. Brauðið
bragðast líkt og heitir kanelsnúðar,
nema hvað það er miklu auðveld-
ara að útbúa það. Strákurinn er líka
alveg vitlaus í brauðið og gæti ör-
ugglega borðað slíkt brauð í hvert
mál."
tobba&dv.is
Mæður og kjarasamningar
Allir geta verið sammála um að
ekki sé hægt að meta móðurást-
ina til fjár. Allar tilfinningar eru
huglæg upplifun hvers og eins
sem ekki er hægt að mæla og því
ekki hægt að borga fyrir sam-
kvæmt samningum.
En ef útbúin væri starfslýsing fyr-
ir þau óteljandi verk og þá þjónustu
sem meðalmóðirin sér yfirleitt um
fyrir íjölskyldu sína og ráða ætti ut-
anaðkomandi aðila til að vinna þau
verk kæmi í ljós að borga þyrfti
þeim aðila væna fúlgu fyrir störf
sín. Sumir segja að ef mæður fengju
greitt fyrir störf sín á heimilinu
myndu þær fá frá 400 til 600 þús. kr.
krónur á mánuði.
Kokkur og sálusorgari
Hver móðir leggur mikið á sig til
að halda heimilinu gangandi. Flest-
ar þeirra leggja svo hart að sér að
þær hafa sjaldan tíma til að hugsa
um sjálfar sig. Sumar mæður sjá
um að ala upp börnin, elda matinn,
þvo þvotta, þrífa heimilið, hugsa
um gæludýrin, fara á foreldrafundi,
halda utan um fjármál heimilisins,
koma heimilisfólki á milli staða,
Það sem skiptir mestu
máli er að heimilismenn
taki þá vinnu sem móð-
irin innir af hendi ekki
sem sjálfsagðan hlut
heldur sýni henni að
vinna hennar sé vel met-
in.
hjálpa börnunum með heimalær-
dóminn, leysa ágreining milli
heimilismanna og eru í raun sálu-
sorgarar og sáttasemjarar heimilis-
ins.
Mæður eins og jójó
En móðir þarf ekki að vinna öll
sömu verkin á hverjum degi. í stað-
inn þeytist hún á milli hlutverka
eins og jójó og hefur alltaf nóg að
gera. Seint verður hægt að segja að
ekkert þurfí að gera á heimilinu því
þegar einu verki er lokið bíður ann-
að. Þó hægt sé að segja með fullri
vissu að á flestum heimilum axli
móðirin ábyrgðina á heimilishald-
inu eru feðurnir vonandi almennt
duglegir við
heimilið með
Vinna móðui
sjálfsögð
Hér er ekki
að halda því
að konur séu
mennt ósál
við að vinna þ
störf sem þa
til að hald
heimilinu
gangandi,
alls ekki. Það
sem skiptir
mestu máli ei
að heimilisme
sem móðirin
ekki sem sj
heldur sýni
hennar sé vel
við að vinna j
geri það að e
gleður móður
LAUN HEIMSINS: Vonandi
ganga ekki margir svo langt að hlekkja
konur við eldavélina eins og hefur verið gert í þessu tilviki.