Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2003, Qupperneq 10
10 Magasín Fimmtudagur 9. október 2003 STOLTIR FORELDRAR: „Við erum með eitt nafn ákveðið í huga," segir Hugrún Jónsdóttir sem hér er með manni sínum, Frið- geir Erni Gunnarssyni, og litlu dótturinni. Með kolsvart hár eins og ég „Það gengur ailt alveg Ijómandi vel með litlu prinssessuna okk- ar. í rauninni er þetta alveg eins og í lygasögu. Þetta er myndarleg stúlka sem braggast vel," segir Hugrún Jóns- dóttir. Hún og unnusti hennar, Friðgeir Örn Gunnarsson, eignuð- ust dóttur þann 19. september - og er þetta þeirra fyrsta barn. Framtíðarplönin eru mörg Hugrún er norðan frá Akureyri - en Friðgeir er úr Reykjavík. Þau hafa verið saman síðan 1997 og hafa búið syðra síðustu þrjú árin. „Framtíðarplönin eru mörg, svo sem komast í góða vinnu, kaupa sér fbúð og vera hamingjusöm. Og allt er þetta að takast, svona í áföng- um," segir Hugrún. Hún hefur síðasta árið starfað á smáauglýsingadeild DV og reiknar með að koma þangað aftur til starfa þegar fæðingarorlofi lýkur. Friðgeir hefur síðustu þrjú sumrin starfað sem flugþjónn hjá Icelandair. „Við höfum ferðast talsvert saman, meðal annars farið þrjár ferðir til Bandaríkjanna. í tvígang höfum við farið til New York - sem var mikið ævintýri." Skiptar skoðanir um svipinn Aðspurð segir Hugrún að erfitt sé að segja ákveðið til um hverjum dóttirin sé lík. Um það séu býsna skiptar skoðanir meðal ættingja og vina. „Hún er með alveg kolsvart hár eins og ég, það er hið eina sem við sjáum eins og sakir standa að hún taki frá okkur foreldunum. Það kemur svo í ljós í fyllingu tímans hvert hún sækir svipinn; yfirleitt sést slíkt ekki fyrr en börn eru orðin þetta þriggja til fjögurra mánaða gömul," segir Hugrún. Ekki er enn búið að nefna litlu prinsessuna. „Við erum með eitt nafn ákveðið í huga en erum ekki búin að afráða neitt. Þetta skýrist alveg á næstunni," segir móðirin að lokum. sigbogi&dv.is t I H)i □aQQia □□□□!!□□ Hl(ðasmára17, Kópavogi Sími: 564-6610 www.allirkrakkar.is Brúður úr Bárðardal „Við höfðum tvo daga í huga varðandi brúðkaupið okkar og var í raun sama hvor þeirra yrði fyrir valinu. Þetta réðst bara af því hvorn daginn presturinn væri laus. Því varð 12. júlí niðurstaðan," segir María Sigurðardóttir á Akur- eyri. í sumar gengu hún og Kristján Valur Gunnarsson í heilagt hjóna- band í Akureyrarkirkju og voru gef- in saman af sóknarpresti í höfuð- stað Norðurlands, sr. Svavari Alfreð Jónssyni. Skemmtilegur dagur María er frá bænum Lækjarvöli- um í Bárðardal en Kristján er Akur- eyringur í húð og hár. Fjögur ár eru síðan þau rugluðu saman reytum og síðustu þrjú árin hafa þau búið á Akureyri. María starfar sem þroska- þjálfi við leikskólann Kiðagil, en eiginmaður hennar er íþróttakenn- ari við Lundaskóla og jafnframt nuddari. Þau hjón eiga tvær dætur; Eygjó Björk sem er fjögurra ára og Kötlu Maríu eins og hálfs árs. „Brúðkaupsdagurinn var mjög skemmtilegur," segir María. „Fyrst var faileg athöfn í kirkjunni og síð- an fórum við í myndatökuna suður í Kjarnaskóg. Síðdegis var haldin al- veg yndisleg brúðkaupsveisla í Lóni þar sem var sungið, dansað, farið í leiki og margt fleira. Á brúðkaups- nóttina gistum við á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit." Hrærivél og Kaupmannahöfn Þau María og Kristján voru dreg- in úr hópi fjórtán brúðhjóna sem Dagsljós á Akureyri myndaði og fengu þau titilinn Sumarbrúðhjón- in 2003. Þessu fylgdu vegleg verð- laun frá BYKO, Grænlandsflugi og líkamsræktarstöðinni Bjargi. „Ég er nýbúin að fá hrærivélina góðu frá Byko og er enn ekkert byrj- uð að nota hana. Líkamsræktin er komin á stefnuskrána en þetta er árskort sem við fengum. Síðan er það Kaupmannahafnarferðin með Græniandsflugi. Hún er á stefnu- skrá um páskana - og ég er strax farin að hlakka til fararinnar." sigbogi@dv.is HJÓNIN: „Þar var sungið, dansað, farið í leiki og margt fleira," segir María Sigurð ardóttir sem hér er ásamt manni sínu, Kristjáni Val Gunnarssyni. Gefin voru saman í Hálskirkju f Fnjóskadal þann 16. ágúst sl. af séra Sigurði Guðmundssyni vígslubiskup þau Vilhelm Þorri Vilhelmsson og Berglind Aradóttir. Þau em til heimilis á Akureyri. Gefin vom saman hjá Sýslumanninum í Reykjavík þann 19. júlí sl. þau Árni Bergþór Sverrisson og Gréta Sævars- dóttir. Þau kynntust í athvarfinu Dvöl en hafa búið saman sl. tvö ár. Meðal áhugamála þeirra em ferðalög vítt og breitt um landið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.