Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2003, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2003, Side 25
Fimmtudagur 9. október 2003 Magasín 29 Hvað um helgina? Egiii Heigason Óvinafagnaður á Eddunni „Á föstudagskvöldið fer ég á Edduhátíðina sem verð- ur haldin á Hótel Nordica. Mér hefur alltaf þótt gaman að þessari hátíð og vissulega hlakka ég til að mæta á staðinn. Hins vegar vilja skemmtanir þar sem fólk úr sama geira hittist gjarna fara úr böndunum, enda vakna þá manna á meðal óskaplega sterkar tilfmning- ar," segir Egill Helgason sjónvarpsmaður. Ekki upphaf eða endir tilverunnar Egill er við þriðja mann tilefndur sem sjónvarps- fréttamaður ársins fyrir þátt sinn, Silfur Egils, sem nú er að flytjast yfir á Stöð 2. „Ég átti alls ekki von á því að komast á þennan lista og lít alls ekki á það sem upphaf eða endi tilverunnar að vera útnefndur fréttamaður ársins. Hef reyndar alls enga trú á því að svo verði," segir Egill. Hann bætir því við að á Edduhátíðinni hitti hann gjarnan vini sína..og óvini mína einnig ef svo ber undir," einsog hann kemst að orði. Um heigina að öðru Ieyti segir Egill að kona sfn dragi sig stundum í Kringluna en miðbæjarferðir freisti sín þó frekar. „Síðan fmnst mér og syni mínum afar gaman að fara eitthvað út í sveit og sjá skepnur. Hins vegar þarf maður að fara orðið býsna langt út fyrir borgina ef FRÉTTAMAÐURINN: „Mér hefur alltaf þótt gaman að þess- ari hátíð og vissulega hlakka ég til að mæta," segir Hgill Helgason. maður ætlar að sjá eitthvað annað en bara hesta eða hunda. Þá þarf að fara upp í Borgarfjörð eða austur yfir Fjall. Hins vegar ræðst þetta alveg af veðri og verði tíð- in leiðinleg dettur botninn alveg úr manni." sigbogi@dv.is Hvað ertu að hlusta á? Ólafur Þórðarson Berfætta söngkonan „Um daginn var ég að hlusta á John Pizzarelly sem er fantagóður djassgítaristi og söngvari. Hann er amerísk- ur af ítölskum ættum, frábær listamaður með notalega tónlist sem er vel spiluð - og sungin," segir Ólafur Þórð- arson hjá Þúsund þjölum, umboðsskrifstofu lista- manna. Einnig er Ólafur vel þekktur hjá þjóðinni úr Ríó Tríóinu. „Af og til set ég undir geislann einhverja af plötum Cesariu Evora, berfættu söngkonunnar frá Grænhöfða- Rifja upp grip og tóna eyjum sem syngur á portúgölsku. Ædi hún falli ekki undir það sem kallað er heimstónlist en það er í raun blanda hvers konar tónlistar þar sem meginatriðið er þó að mest eru notuð hvers konar órafmögnuð hljóð- færi," segir Ólafur. Hann segir að síðustu daga hafi hann einnig stund- um gripið í nýja diskinn sem Ríó Tríó er að senda frá sér. Utan af landi er titill disksins sem er væntanlegur í verslanir sfðari hluta þessa mánaðar. „Aðallega er ég að hlusta á þennan disk til að rifja upp grip og tóna því að til stendur að fylgja útgáfunni eftir með tónleikum sem haldnir verða víða núna í RÍÓMAÐURINN: „Fantagóður djassgítaristi og söngvari," segir Ólafur Þórðarson. haust. Á þessum diski leikum við þremenningamir í Ríó mest af lögunum sjálfír - ásamt völdum aðstoðar- mönnum - en á síðustu diskum sem við höfum gert höfum við haft með okkur sveit hljóðfæraleikara og lít- ið spilað sjálfir," segir Ólafur Þórðarson. sigbogi@dv.is Hvað ertu að lesa? Þóra Gunnlaugsdóttir Sálfræði og sálmur um blóm „Bókin sem ég er að lesa núna er Kona eldhúsguðs- ins eftir Amy Tan. Þetta er saga kínverskra innflytjenda sem koma til Bandaríkjanna og snýst að talsverðu leyti um frásögn móður til dóttur um lífið í Kína, þegar Jap- anir vom að ráðast inn í landið. Þetta er ekki fýrsta bók- in eftir Tan sem ég les, en þær em afar lærdómsríkar og kenna manni margt um lífið í hinum asíska heimi," Það er stórt púsluspil segir Þóra Gunnlaugsdóttir, nemi í hjúkmnarfræði við Háskóla íslands. Hún segir að lestur sinn taki að öðm leyti mikið mið af náminu, en um þessar mundir er hún meðal annars að lesa fög eins og lífeðlisfræði, sálfræði, hjúkmnar- fræði og fleira slíkt. „Ef þetta væri fyrir mér ekkert ann- að en þurrt staðreyndastagl myndi ég væntanlega gef- ast fljótt upp á þessu námi. Það er gaman að þessum fögum, sérstaklega að vita hvemig líkaminn fúnkerar í raun og er samansettur. Það er stórt púsluspil," segir Þóra. Aðspurð um aðra höfunda segir Þóra að sér þyki gaman að bókum Hallgríms Helgasonar. „101 Reykja- vík og Þetta er allt að koma em bækur sem gripu athygli HÁSKÓLANEMINN: „Kenna manni margt um lífið í hinum asíska heimi," segir Þóra Gunnlaugsdóttir. rnína," segir Þóra sem einnig kveðst hafa gaman af bókum meistara Þórbergs Þórðarsonar, sérstaklega þá Sálminum um blómið; sögunni um Litlu Heggu sem átti sér athvarf hjá Sobegga afa og Mömmu Göggu. sigbogi@dv.is *Gordon Elliot, Follow that food. Rustichella Casarecciapasta með kantarellum, papriku- pestó og kjúklingabringum Rustichella d'Abruzzo „Pastað sem ber af öðru pasta!“* Fyrir 4-6 Hráefni: iV&ík 800 g beinlausar kjúklingabringur 3-4 msk papriku-pestó frá Rustichella (Crema dipeperoni) 2-4 hvítlauícsrif, eða eftir smekk nokkrir stönglar ferskt rósmarín 1 1/2 msk hvítvíns- eða sítrónuedik 2 1/2 dl kjúklingasoð 4 msk Oli ólífuolía • Hitið ofn í 175°C. Smyrjið botninn á eldföstu móti með ■papriku-pestóinu. • Sneiðið nvítlauk í þunnar sneiðar dreifið yfir pestóið. Leggið bringurnar í mótið. • Blandið saman ediki og kjúklingasoði og hellið yfir kjúklinginn. • Kryddið með salti og pipar, hellið olífuolíu yfir. Vökvinn á að ná upp að ca. miðjum bringum. Þannig mun kjötið soðna neðan frá og bakast ofan frá. • Bakið í opnu móti í ofninum í 15 -20 mínútur. Takið þá út og hrærið aðeins í. Leggið þá álpappír eða lok yfir mótið og bakið áfram í 10-15 mínútur eða par til kjúklingur er tilbúinn. • Berið fram með casarecciapastanu og kantarellum. Casareccia með kantarellum 30 - 40 gr þurrkaðar kantarellur frá Sabarot 1 hvítlauksrif, marið 2 msk Ruccola-pestó frá Rustichella (Crema diRucola) 6 msk ólífuolía 500 g pasta frá Rustichella (Casareccia) • Setjið sveppina í pott með vatni og sjóðið í ca. 10 mín. Skolið síðan vel oq saxið smátt. • Setjið ca 3 Itr. af vatni í pott, saltið vatnið og látið suðuna koma upp. Setjið pastað í og sjóðið í 10-12 mín. Bætið qjaman smá slettu af ISIO-4 matarolíunni út í sjóðandi vatnið. • Setjið sveppina á pönnu og steikið við miðlungshita í um 3-4 mínútur. Lækkið hitann á pönnunni oq setiið Ruccola- kremið á pönnuna ásamt hvítlauk og látio malla í um 3-4 mínútur. Látið renna af pastanu og blandið pestósveppunum saman við og berið fram. Rustíchella hefur unnið verðlaun á alþjóðlegu matvæla og sælkera- sýningunum; CIBUSI Parma, Ítalíu og Fancy Food show I New York. Rustichella pastað er frábrugðið öðru pasta þar sem það er ekki hefðbundin verksmiðjuframleiðsla, heldur er gömlum ítölskum hefðum haldið í heiðri við framleiðsluna. Eingöngu er notast við fyrsta flokks náttúruleg hráefni ásamt því sem bronspressur eru notaðar til að pressa pastað. Útkoman er pasta með grófri gljúpri áferð sem drekkur í sig pastasósuna mun betur en fjöldafram- leitt pasta. Þurrktlminn er slðan mjög lár og langur, heilar 56 klst, sem gerir pastað þétt í sér og bragðgott ásamt því sem það eldast sérstaklega vel og verður „al dente" nákvæmlega eins og best þykir. Vegna þéttleikans þá þarf mun minna af Rustichella pastanu til að metta. italíuferð með Heimsferðum: Fylltu út meðfylgjandi form, svaraðu spurningunni og sendu Meistaravörum ásamt strikamerki eða kassakvittun fyrir kaupum á einhverri Rustichella vöru og þú gætir unnið (talíuferð með Heimsferð- um. Dregið verður þann 5 desember. Að auki verða 10 glæsilegar ítalskar sæl- kerakörfur dregnar út 5. október og 5 nóvember. Nöfn vinnigahafa verða birt á www.meistaravorur.is. Hægt er að nálgast þátttökuseðil á www.meistaravorur.is Hver er þurrktíminn á Rustichella pastanu? Nafn Heimilisfang Sími Netfang Meistaravörur ehf. www.meistaravorur.is Funahöfða 17 a S: 568 7000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.