Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003 Varað við fjármálafyrirtæki Flugleiðir hætta við kaup á Boeing 757 VIÐVÖRUN: Fjármálaeftirlitið sendi enn eina ferðina frá sér viðvörun í gær vegna erlends fjármálafyrirtækis sem ekki hef- ur starfsleyfi hér á landi, né heimildirtil stofnun útibús fjár- málafyrirtækis eða til að veita slíka þjónustu án stofnunar úti- bús. Nú er um að ræða fyrirtæki sem nefnt er Cambridge Global Inc. sem skortir m.a. áðurnefnd- ar heimildir og hefur ekki heim- ild til móttöku endurgreiðan- legra fjármuna frá almenningi, eða innlána. Ekki heldur til út- gáfu og umsýslu greiðslukorta eða viðskipta og þjónustu með fjármálagjerninga samkvæmt lögum um verðþréfaviðskipti. Margar slíkar aðvaranir hafa verið sendar út á síðustu mán- uðum. ÞJÓNUSTA: Flugleiðir hafa náð samkomulagi við Boeing-fyrirtæk- ið í Seattle um að falla frá samningi um kaup á nýrri Boeing 757 flug- vél sem átti að afhenda til félagsins í mars 2005. Flugleiðir og dótturfé- lög þeirra starfrækja nú 16 þotur í millilandaflugi. Þar af eru 14 Boeing 757 þotur. Af þeim 14 flug- vélum á félagið sjálft 6 en leigir 8. Flugleiðafyrirtækin starfrækja Boeing 757 flugvélar í áætlunar- flugi lcelandair, fragtflugi hjá Flug- leiðum Frakt ehf. og leiguflugi hjá Loftleiðum ehf. I langtímaáætlun- um Flugleiðasamstæðunnarer gert ráð fyrir að nota þessa flug- vélagerð áfram. Boeing-verksmiðj- urnar hafa tilkynnt að framleiðslu Boeing 757 flugvéla verði hætt eft- ir rúmt ár, en verksmiðjurnar munu þjóna eigendum þessararflugvéla- tegundar um ókomna framtíð. Boeing 757 flugvélin hentar afar vel í leiðakerfi lcelandair, dótturfé- lags Flugleiða, vélin er hæfilega stór, sparneytin og tæknilega full- komin. Hún hefureinnig reynst vel í leiguflugi og fragtflugi. Flugleiðir Frakt, dótturfélag Flugleiða, starf- rækir eina fragtflugvél af þessari gerð og mun á næstunni taka aðra slíka í notkun. Neytendasamtökin gagnrýna eftirlitsstofnanir og tryggingafélög vegna hækkana: Ónákvæmt og villandi segir forstióri TM Neytendasamtökin hafa gert skýrslu um vátryggingamarkaðinn á íslandi sem þau segja einkennast af mikilli samþjöppun og fákeppni og stórfelldum hækkunum ið- gjalda. Þrjú tryggingafélög og dótturfélög þeirra ráði 95 prósent- um af þessum markaði og iðgjöld- in hafi hækkað um 70 prósent síð- astliðin sex ár. Jóhannes Gunnars- son, formaður NS, segir trygginga- félögin hafa svigrúm til að lækka iðgjöldin eftir stórfelldar hækkanir síðustu ára. f skýrslunni, sem kynnt var í gær, segir að samþjöppun á markaði og hækkanir iðgjalda hafi skilað eigend- um tryggingafélaganna miklum hagn- aði á undanfömum árum. Góð afkoma félaganna birtist meðal annars í „óeðli- legum vexti tjónasjóða sem gerir félög- unum kleift að fresta skattgreiðslum af tekjum sínum". Þá segir að þróunin gefi opinberum aðilum tilefni til að grípa til ýmissa ráðstafana í því skyni að tryggja hagsmuni neytenda. Opin- berar eftirlitsstofnanir þurfi að veita tryggingafélögunum mun öflugra að- hald og grípa inn í þegar hagsmunum almennings er ógnað, m.a. vegna skorts á samkeppni. Tvöföldun iðgjalda I skýrslunni er vakin athygli á tvö- földun iðgjalda lögbundinna bifreiða- trygginga, síðastliðin sex ár hafi ið- gjöldin nokkmm sinnum hækkað um 25-30 prósent. Einu dæmin um lækk- un hafi verið vegna samkeppni af hálfu erlendra tryggingafélaga. Þá hafi tjóna- sjóðir tryggingafélaganna vaxið um 13 milljarða, eða 54 prósent á síðustu fimm árum. Mun ítarlegri úttektir þurfi af hálfu Fjármálaeftirlitsins til að fá niðurstöðu um hvort tjónasjóðimir byggist á raunhæfum áædunum um kostnað við uppgjör tjóna. „Trygginga- félögin hafaýmsan hag af því að byggja upp tjónasjóði umfram það sem nauð- synlegt er til að mæta tjónum. Þau geta með því frestað skattgreiðslum og einnig varist nýjum keppinautum á vá- tryggingamarkaðnum." Umburðarlyndi eftirlitsstofnana Athygli vekur gagnrýni á Fjármála- eftirlitið og Samkeppnisstofnun, þær tvær stofnanir sem eftirlit hafa með vá- tryggingamarkaðnum. Kærum sem borist hafi þessum stofnunum hafi sumum verið vísað frá eða úrskurður dregist úr hömlu. Miðað við aðstæður á markaðnum hafi afskipti þessara tveggja eftirlitsstofnana ekki verið mik- il. í skýrslunni segir: „Ekld verður annað sagt en að af- staða eftirlitsstofnananna tveggja til vátryggingastarfseminnar hafi á und- anfömum misserum einkennst af miklu umburðarlyndi í garð vátrygg- ingafélaganna." í skýrslunni er vakin at- hygli á tvöföldun ið- gjalda lögbundinna bif- reiðatrygginga, síðast- liðin sex ár hafi iðgjöld- in nokkrum sinnum hækkað um 25-30 pró- sent. Þar segir að ýmis varúðarljós hafi kviknað hjá opinberum aðilum vegna ffamvindunar á vátryggingamarkaðn- um, varúðarljós sem dragi heilbrigði hans í efa. Er þar nefnd veruleg sam- þjöppun markaðshlutdeildar, miklar hækkanir iðgjalda, misheppnaðar til- raunir nýrra aðila til að ná fótfestu á markaðnum og náið samstarf starfandi tryggingafélaga. Þá veki góð afkoma tryggingafélaganna og hraður vöxmr tryggingasjóða í þeirra vörslu spum- ingar um sanngimi í ákvörðun iðgjalda sem Fjármálaeftirlitið geú varla vikið sér undan. Opnað fyrir nýja samkeppnisaðila Neytendasamtökin gerðu „einfalda" könnun á verði trygginga á Norður- löndunum en samanburður er erfiður og flókinn vegna ólíkra skilmála. Þó er komist að þeirri niðurstöðu að eigna- tryggingar séu ódýrari hér á landi en ílVTEHÖÁ r O KIN HÆRRITRYGGINGAIÐGJÖLD: Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, telur að tryggingafélögin geti lækkað iðgjöld eftir stórfelldar hækkanir undanfarin ár. DV-mynd E.ÚI. ábyrgðartryggingar talsvert dýrari. Loks er vakin athygli á miklum hagnaði íslensku tryggingafélaganna. Hlutfall hagnaðar af eigin iðgjöldum hafi verið 10 prósent að meðaltali und- anfarin ár og arðsemi eigin fjár oftast á bilinu 10-20 prósent. Eigið fé hafi þre- faldast á fimm ámm. í lok skýrslunnar em nokkrar ábend- ingar um breytta opinbera stefriu í málefrium trygginga. Þar er í fyrsta lagi lagt til eflt opinbert eftirlit með rekstri vátryggingafélaganna, athuganir á rekstrinum fari ffarn með reglulegum og skjótum hætú. Leita þurfi leiða til að draga úr tilhneigingu til „óþarfrar sjóðasöfhunar vátryggingafélaganna". Opinberir aðilar verði að hlutast til um skipulag vátryggingamarkaðarins, koma í veg fyrir að samstarf verði um viðskipti mÓli vátryggingafélaganna. Loks verði tryggt með ýmsum ráðum að nýir samkeppnisaðilar eigi greiðan aðgang að vátiyggingamarkaðnum. Höfum lækkað „Þetta em mikið til gamlir hluúr sem hafa verið skýrðir gagnvart almenningi og margt er ónákvæmt og villandi í þessari skýrslu. Þama em fullyrðingar sem standast ekki. Þannig hafa bílaið- gjöld verið að lækka hjá okkur síðast- liðin tvö ár en ekki hækka. „Ekki verður annað sagt en að afstaða eftirlits- stofnananna tveggja til vátryggingastarfsem- innar hafi á undanförn- um misserum einkennst afmiklu umburðarlyndi í garð vátryggingafélag- anna." Ég held að Neytendasamtökin hefðu átt að eyða f meiri tíma f skýrsluna og vanda betur til verka áður en þeir fóm fram með þessum hætti. Við getum ekki endalaust verið að skýra hækkanir sem urðu á sínum tíma, vom réttlæt- anlegar og vom skýrðar mjög ítarlega fyrir neytendum," sagði Gunnar Felix- son, forstjóriTryggingamiðstöðvarinn- ar, við DV vegna skýrslu Neytendasam- takanna um trygingafélögin semicynnt var í gær. Gunnar sagði vátrygginga- rekstur og tölur þar um vera flóknar og að sérstaka þekkingu þyrfti oft til að lesa úr þeim. Hann benti á að stækkun tjónasjóðs Tryggingamiðstöðvarinnar hafi að miklu leyti komið til vegna sam- einingar við Tryggingu og yfirtöku tjónaskulda en því hafi að engu verið geúð í skýrslu Neytendasamtakanna. Gunnar ítrekar að hækkanimar 1999 hafi áú sér skýringar í breytingu á skaðabótalögunum og hafi verið skýrð- ar að fullu. hlh@dv.is Baugur í vátryggingabransann Dótturfyrirtæki Baugs-sam- stæðunnar, Hringur, hefur keypt helmingshlut í Verði - vá- tryggingafélagi á Akureyri. Óli Þór Ástvaldsson, fram- kvæmdastjóri Varðar, segir að fé- laginu verði nú breytt í hlutafélag og verður Hringur með helmings- hlut í því. Engin breyting verður á starfsemi félagsins sem hefur verið rekið sem alhliða félag. Framan af var það fyrst og fremst í skipatrygg- ingum, en árið 1997 var einnig far- ið út í eignatryggingar, ökutækja- tryggingar, fyrirtækjatryggingar, heimilistryggingar o.fl. Félagið hef- ur síðan aukið hlutdeild sína í tryggingum á Akureyri og nágrenni. Óli Þór segir að áfram verði starf- semin f Skipagötu 9 á Akureyri og ekki séu fyrirhugaðar neinar breyt- ingar á starfsmannahaldi, nema ef það skyldi stækka og starfsmönn- um fjölga. Hreinn Loftsson, stjórnarfor- maður Baugs, segir að um nokk- urt skeið hafi Baugur haft áhuga á þessu tryggingasviði og hafi fyrír þremur árum - í gegnum dótturfélag Baugs - tekið þátt í fjárhagslegri endur- skipulagningu Allianz-umboðsins og reksturinn á þvr' félagi gengið mjög vel undanfarin ár. „Það hefur verið vilji hjá okkur að útvíkka þá starfsemi og við höfum um nokkurt skeið átt í viðræðum við eigendur Varðar - vátrygginga- félag á Akureyri, og náð hluthafa- samkomulagi við þá sem nú er til skoðunar ásamt umsóknum hjá Fjármálaeftirlitinu. Eign þessa gagnkvæma tryggingafélags verður lögð inn í hlutafélag sem mun heita Tryggingafélagið Vörður. Auðvitað verður eitthvert samstarf á milli Varðar og Allianz, þó aðallega í sölumálum, en sammni þeirra er ekki fyrirhugaður, enda óskyld tryggingastarfsemi. Allianz er fyrst og fremst á sviði líftrygginga, við- bótarlífeyrissparnaðar og fleiri slíkra þátta. Auðvitað gemm við okkur vonir um að þetta félag blómstri í samstarfi okkar og höf- um trú á því að það sé lag og miklir möguleikar á þessu sviði,“ segir Hreinn Loftsson. gg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.