Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003 SIGURSTRANGLEGUR: Wesley Clark var vikið úr hernum og sækist nú eftir útnefningu demókrata til forsetaframboðs. Atvinnu- og efnahagsmál geta ráðið því hvort Bush nær endurkjöri. Wesley Clark, fyrrum hershöfðingi, sækist eftir útnefningu demókrata til forsetaframboðs: Fjárvana en sigurstranglegur HEIMSUÓS OddurÓlafsson oddur@dv.is Af þeim tíu demókrötum sem lýst hafa vilja til að fá útnefn- ingu flokksins til forsetafram- boðs á næsta ári er Wesley Clark, fyrrum hershöfðingi, lík- legastur til að verða valinn til að keppa við Bush samkvæmt nýj- ustu skoðanakönnunum. Þessi fyrrverandi og brottrekni yfir- hershöfðingi Nató hefur enga reynslu af stjórnmálaþátttöku og er fjárvana miðað við aðra líklega frambjóðendur, hefur ekki nema 1,5 milljónir dollara til ráðstöfunar. Hann nýtur sívaxandi trausts og svo virðist sem tími sé til kominn að hershöfðingi setjist að í Hvíta húsinu, enda tímar viðsjárverðir og stríð háð á heimaslóð og í fjarlæg- um heimshornum. Wesley Clark hefúr ávallt verið hermaður. Hann útskrifaðist frá West Point með hárri einkunn, barðist í Víetnam og særð- ist fjórum sinnum. Hann varð yfir- hershöfðingi Nató og lauk frama hans þegar honum sinnaðist við yfir- stjómendur í Pentagon vegna ágreinings um hemaðinn í Kosovo. Hann er hermannlega vaxinn og útlit hans og framkoma vekur traust eins og greinilega sést á þeim viðtökum sem fram koma í skoðanakönnun- um. Að mörgu leyti er Wesley Clark algjör andstæða Bush forseta sem hann á ef til vill eftir að etja kappi við í forsetakosningum á næsta ári. Bush losnaði undan því að vera sendur tíi Víetnam á válegum tímum og er ekk- ert leyndarmál að það var fyrir tíl- stuðlan gamla Bush föður hans. Á þetta var illilega minnt þegar forset- inn, sem aldrei hefúr nálægt vígveUi komið, var klæddur í hermannabún- ing og flogið með hann um borð í flugvélamóðurskip tU að lýsa yfir sigri í stríðinu við frak. Clark er 58 ára að aldri. Hann fædd- ist í Littíe Rock í Arkansas eins og BiU Clinton. Faðir hans lést þegar hann var fjögurra ára en strákur spjaraði sig og með gáfum og viljastyrk var framabrautín greið og er nú sjálft Hvíta húsið komið f sjónmál. En fyrst þarf að ná útnefningu flokksins og þar eru margir um hituna. Góð reynsla af hersnöfðingjum Nokkrir hershöfðingjar hafa gegnt forsetaembættí í Bandaríkjunum. Þar ber hæst sjálfan Washington sem stendur næst aimættinu í banda- rískri sögu. Síðasti hershöfðinginn sem kjörinn var tíl forseta var Eisen- hower sem sat í Hvíta húsinu tvö kjörtímabil þegar kalda stríðið stóð hvað hæst og var vel látinn. Því er engin goðgá að kjósa hershöfðingja tU að leiða þjóðina þegar ófriðarblik- ur eru á lofti, þótt misjöfn reynsla sé af slíkum leiðtogum í öðrum ri'kjum á öUum tímum, ekki síst í nútíman- um, eins og dæmin sanna. Styrkur Clarks byggist meðai ann- ars á því að því er treyst að hann sé vel að sér í utanríkismálum og vití sitthvað um hernað. Bandarískir kjósendur eru orðnir iUilega varir við að umheimurinn skiptir máli og að utanaðkomandi hætta vofir yfir og hótanir um árásir á sjálf Bandaríkin eru ógnvekjandi. Hætta stafar frá Norður-Kóreu, Pakistan og Mið- Austurlöndum þar sem bandarískir hermenn láta lífíð nær daglega. Styrkur Clarks byggist meðal annars á því að því er treyst að hann sé vel að sér í utanríkis- málum og viti sitthvað um hernað. Bandarískir kjósendur eru orðnir illilega varir við að um- heimurinn skiptir máli og að utanaðkomandi hætta vofir yfir og hót- anir um árásir á sjálf Bandaríkin eru ógn- vekjandi. Vitað var að Bush var illa að sér í utanríkismálum þegar hann var kos- inn forseti, Clinton var aigjör græn- ingi þegar heimsmálin voru annars vegar. Nokkrir frambjóðenda demókrata lögðu blessun sína yfir innrásina í frak og gjalda þess nú. Sá frambjóðandi sem þótti sigurstrang- legur sem forsetaefni flokksins er Howard Dean, fyrrum rfldsstjóri f Vermont. Hann er sama marki Wesley Clark. brenndur og aðrir vinsælir stjóm- máiamenn í Bandaríkjunum að vera fákunnandi um stjómmál utan heimalandsins og hefur aldrei talið þau skipta verulegu máli. Nú gera nokkrir fréttaskýrendur því skóna að Dean verði sigurstrang- legur í baráttunni um forsetaemb- ættið ef honum tekst að fá Clark með sér sem varaforsetaefni. En eins og nú standa sakir sýnst ekki ástæða fyr- ir fyrrum yfirhershöfðingja að vera varaskeifa eins né neins. En oft skip- ast veður skjótt í lofti þegar stóm flokksþingin, sem velja forsetafram- bjóðendur, nálgast. Á það ekki síst við um demókrata sem velja stund- um óvænt en sigurstrangleg forseta- efni á síðustu stundu. Þar má nefna bæði Carter og Clinton. Hinir herskáu Á sínum tí'ma sóttíst MacArthur hershöfðingi eftir forsetaembættínu og þá sem repúblikani. Það var eftir að Tmman rak hann sem yfirmann herja í Asíu og fór hann fyrir liði SÞ í Kóreustríðinu. Hann var einráður og var rekinn úr hernum fyrir að leggja til að kjarnorkuvopnum yrði beitt gegn flóðbylgju kínverskra hersveita sem komu Norður-Kóreumönnum til hjálpar. Eisenhower var aftur á móti sigursæll hershöfðingi sem stjómaði herjum bandamanna í Evr- ópu. Forsetaefnið Wesley Clark er óhjá- kvæmilega borinn saman við þessa kollega sína og óneitanlega líkist hann fremur hinum bardagaglaða MacArthur en Eisenhower sem lék golf þegar herir hans möluðu þýsku hemaðarmaskínuna í góðri sam- vinnu við Rauða herinn. Clark llkist miklu fremur MacArth- ur og brotthvarf hans úr hernum er af svipuðum toga. Þegar Natóherir réðust inn í Kosovohérað skaut rúss- nesk herdeild þeim ref fyrir rass og gerði skyndisókn og náði flugvellin- um í Pristina á sitt vald. Þar em ís- lenskir flugumferðastjórar nú æðstráðandi. Sem yfirhershöfðingi Nató fyrirskipaði Clark að Rússamir yrðu þegar í stað reknir á brott með hervaldi. En breski hershöfðinginn Jackson neitaði að hlýða og hafði á orði að hann ætlaði ekki að hefja þriðju heimsstyrjöldina fýrir Wesley Clark. Deilan var síðan leyst með samningum en yfirmaður banda- ríska herráðsins vék Clark frá störf- um. Síðan hafa fyrmrn samstarfs- menn hans í hernum varast að rækta neins konar kunningsskap við hann. Erfiður róður Þegar Clark er spurður hvers vegna hann valdi Demókrataflokinn sem sinn vettvang, svarar hann að sem hermaður hafi hann þjónað for- setum úr báðum flokkunum af trú- mennsku. En eftir að hann hættí í hernum og fór að líta á ástand ætt- jarðarinnar og hvert stefndi gætí hann ekki látið eins og alit væri í góðu lagi. Hann vilji leggja sitt af mörkum til að bæta úr og honum fyndist eðlilegt að styðja Demókrata- flokkinn, enda kæmi annað ekki tíl greina. Atvinnuástandið í Bandaríkjunum getur ráðið úrslitum um framtíð Bush í forsetaembætti. Ef atvinnu- leysið eykst á næstu mánuðum og skuldabyrði ríkisins verður illviðráð- anleg með tilheyrandi samdrættí er ekkert lfldegra en núverandi forsetí getí pakkað saman og flutt til Texas. En honum verður ekki einum kennt um því ótrú á stjómmálamönnum yfirleitt magnast þegar á mótí blæs innanlands sem utan. I því andrúmslofti verður ómetan- legt fyrir demókrata að geta boðið fram forsetaefni sem aldrei hefur komið nærri stjórnmálum en er vel þekkt fyrir önnur störf. Haft er fyrir satt að Dean hafi þegar boðið Clark af vera varaforsetaefni sitt ef hann hlýtur úmefningu á flokksþinginu. Mörgum málsmetandi demókrömm h'st vel á það tvíeyki og telur það sig- urstranglegt á mótí þeim Bush og Cheney en sól hins síðamefhda hef- ur bliknað mjög á síðustu missemm þegar ljóst er að hann hefur mis- reiknað sig illilega varðandi herskáa ráðgjöf í utanrfldsmálum. Er Bush sagður íhuga að velja sér annað að- stoðarforsetaefni fyrir næsm kosn- ingar. Leitað út fyrir hópinn Eins og fram hefur komið er Clark fjárvana miðað við það sem kosn- ingabarátta í Bandaríkjunum krefst. En Dean er aftur á mótí vel efnaður og kona hans forrík. Hún er að vísu repúblikani aftur í ættír en það sakar varla og má benda á hliðstæðuna í nýafstöðnum kosningum í Kalifom- íu þar sem eiginkona Schwartzen- eggers rfldsstjóra er dótturdóttir Jós- eps gamla Kennedys og Rose og em því Kennedybræðumir valdamikiu móðurbræður hennar. En hún smddi repúblikanann mann sinn dyggilega í kosningunum. Clark er 58 ára að aldri. Hann fæddist í Little Rock í Arkansas eins og Bill Clinton. Faðir hans lést þegar hann var fjögurra ára en strákur spjaraði sig og með gáfum og viljastyrk var framabrautin greið og er nú sjálft Hvíta húsið komið í sjónmál. En verði atgangur þeirra sem sækjast eftír útnefningu Demókrata- flokksins harður og mjótt á munun- um, því margir frambjóðenda em vel þekktír og málsmetandi stjómmála- menn, getur svo farið að ráðlegt verði að leita út fyrir hóp þeirra karla sem harðast sækja. Þá þarf að finna einhvern sem getíð hefur sér gott orð og gera framboðið heyrinkunnugt rétt fyrir flokksþingið og freista þess að bylgjan fleyti ffambjóðandanum fram fyrir alfa aðra meðal flokksjálkanna og helst alla leið inn í Hvíta húsið. Sá frambjóðandi hlýtur að vera Hillary Clinton sem hvorki játar né neitar að hún sækist eftír for- setaembættínu. (Meðal heimilda eru Berlingske Tidende og The Guardian)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.