Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Síða 12
12 SKOÐUN ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003
Úthaldið skilar árangri
Skammt er stórra högga í milli hjá íslenskri
erfðagreiningu. Á vísindadögum fýrirtækisins
um helgina voru kynntar niðurstöður úr viða-
miklum rannsóknum fyrirtækisins á ættlægni og
erfðafræði allra krabbameina sem greinst hafa á
íslandi síðan skráning hófst. Niðurstöðurnar
benda til þess að sterkir erfðaþættir tengist
krabbameini og flytji aukna hættu á myndun
krabbameins milli kynslóða. í flestum tilfellum
virðist áhættan ekki vera bundin við eina tegund
krabbameins heldur virðist áhætta á mörgum
mismunandi tegundum krabbameins aukin hjá
bæði náskyldum og fjarskyldum ættingjum
krabbameinssjúkra. Ekki hefur áður verið sýnt
fram á svo sterk tengsl milli ákveðinna tegunda
krabbameins á milli fjarskyldra ættingja.
Skömmu áður en íslensk erfðagreining kynnti
niðurstöður krabbameinsrannsókna sinna hafði
fyrirtækið í tvígang tilkynnt um árangur í gena-
leit. Vöktu þær niðurstöður mikla athygli erlend-
is. Annars vegar birti fslensk erfðagreining vís-
indagrein í Nature Genetics um fyrsta meingen
sem tengt hefur verið algengustu gerð heilablóð-
falls. Rannsóknin var unnin í samstarfi við lækna.
Setraðir innan erfðavísisins tengjast bæði auk-
inni og minnkaðri áhættu.
Hins vegar var greint frá áfanga í offiturann-
sóknum í samstarfi við lyfjafyrirtækið Merck um
þróun nýrra meðferðarúrræða við offitu. Vís-
indamenn íslenskrar erfðagreiningar uppgötv-
uðu erfðavísi sem tengist bæði auknum lflcum á
offitu og grönnum vexti. Erfðavísirinn var ein-
angraður með arfgerðagreiningu á sýnum frá
Ofangreint, sem kemur íkjölfar ann-
arra uppgötvana, er dæmi um vís-
indaafrek starfsmanna íslenskrar
erfðagreiningar.
1000 konum sem tekið hafa þátt í rannsóknum
fyrirtækisins á offitu. Niðurstöðurnar verða not-
aðar við lyfjaþróun.
Ofangreint, sem kemur í kjölfar annarra upp-
götvana, er dæmi um vísindaafrek starfsmanna
íslenskrar erfðagreiningar. Fyrirtækið hefur
vissulega verið umdeiit og beiðni þess um lög-
bundið einkaleyfi á aðgangi að sjúlaasögu þjóð-
arinnar vakti harkalegar deilur. Því verður hins
vegar ekki á móti mælt að rannsóknirnar eru
farnar að skila verulegum árangri. Fram kom hjá
aðstandendum vísindadaga íslenskrar erfða-
greiningar um helgina, þar sem niðurstöður
krabbameinsrannsóknanna voru tilkynntar, að
aðstæður hér á landi væru einstakar til að rann-
saka ættlægni og erfðafræði krabbameins. í
krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands eru
skráð öll krabbameinstilfelli sem greind hafa ver-
ið á landinu frá árinu 1955.
f ættfræðigrunni íslenskrar erfðagreiningar er
að finna upplýsingar um alla núlifandi fslend-
inga og sennilega meirihluta fslendinga sem
búið hafa á landinu frá landnámi. Þessi einstæða
skráning læknis- og ættfræðiupplýsinga hefur
gert vísindamönnum íslenskrar erfðagreiningar
kleift að rannsaka ætdægni allra krabbameinstil-
fella þjóðarinnar á tæplega fimmtíu ára tímabili.
Slfkt er einsdæmi í heiminum.
Uppgötvanir sérfræðinga íslenskrar erfða-
greiningar vekja vonir um að í framtíðinni verði
hægt að þróa lyf í baráttunni við alvarlega sjúk-
dóma og skilgreina og beita forvörnum í þágu
þeirra einstaklinga sem eru í meiri hættu en aðr-
ir vegna erfðaþátta.
Mikilvægt er þó að hafa í huga, þótt uppgötv-
anir sérfræðinganna veki vonir, að Iíftæknifyrir-
tæki eins og íslensk erfðagreinng hafa mikla sér-
stöðu. Sýnilegur árangur af lyíjaþróunartengd-
um rannsóknum skilar sér ekki fyrr en eftir
margra ára þróunarvinnu í framhaldi af uppgötv-
unum sérfræðinga þess.
Starfsemin kallar því á úthald og útsjónarsemi
langhlauparans.
gBERGMÁL
Eiríkur Bergmann Einarsson
stjórnmálafræöingur
Forystumenn Framsóknar-
flokksins hafa að undanförnu
lagt mikla áherslu á endurnýj-
un EES-samningsins þannig að
hann tryggi betur hagsmuni (s-
lands í Evrópusamvinnu til
framtíðar. Takist það ekki verði
að huga að ESB-aðild.
Til að mynda hafa bæði Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra og
Árni Magnússon, félagsmálaráð-
herra nýlega hnykkt á þessari
stefnu Framsóknarflokksins sem
samþykkt var á landsfundi flokks-
ins fyrir nokkmm ámm. Þessar yf-
irlýsingar Framsóknarráðherranna
eru stórmerkilegar fyrir þær sakir
að Evrópusambandið hefur fyrir
löngu svarað því til að efnisleg
uppfærsla EES-samningsins komi
alls ekki til greina af þeirra hálfu.
Minnkandi vægi EES
Frá því samið var um EES-samn-
inginn fyrir ríflega tíu árum hefur
orðið gerbreyting á samstarfi Evr-
ópuríkja og verulega hefur þrengst
um hagsmuni EES-ríkjanna, ís-
lands, Noregs og Liechtenstein, til
að hafa áhrif á hagsmunamál sín í
evrópsku samstarfi. f fyrsta lagi
hefur vægi EFTA-ríkjanna í sam-
starfinu minnkað eftir að bróður-
partur þeirra söðlaði um yflr í ESB
aðeins ári eftir gildistöku samn-
ingsins. í öðru lagi hefur hlutverka-
skipting innan ESB breyst þannig
að Ráðherraráðið og Evrópuþingið
hafa fengið aukin völd á kostnað
Framkvæmdstjórnarinnar sem
hefur umsjón með samningnum
og á að tala máli EES-ríkjanna inn-
an stofnana ESB en það hefur leitt
til þess að EES-ríkin eiga erflðara
með að fá hagsmunamálum sínum
framgengt. í þriðja lagi hefur sam-
starf Evrópusambandsins breyst
og færst út til nýrra sviða með nýj-
um sáttmálum frá Maastricht,
Amsterdam og Nice sem ekki er
endurspeglað í ESB. Þessi breytta
staða hefur orðið til þess að Evr-
ópusambandið tekur orðið mun
minna tillit til EES-ríkjanna en
áður.
Kröfum íslands hafnað
Þar sem það er tæknilega mjög
flókið að endurnýja EES-samning-
inn, en breytingar á honum þarf til
að mynda að samþykkja í þjóð-
þingum allra aðildarríkjanna, lagði
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins og utanríkis-
ráðherra, ofuráherslu á að nýta
tækifærið og uppfæra EES-samn-
inginn samhliða fyrirhugaðri
stækkun ESB til tfu ríkja í Austur-
Evrópu næsta vor.
Lögð var áhersla á fjóra þætti. í
fyrsta lagi að textar samningsins
verði aðlagaðir þeim breytingum
sem orðið hafa á sáttmálum ESB í
Maastricht, Amsterdam og Nice. f
öðru lagi að þátttaka Islendinga í
nefndastarfi ESB verði aukin. I
þriðja lagi að EFTA-ríkin geti á ein-
hvern hátt tekið þátt í ákvörðunum
á vettvangi Ráðherraráðsins og á
Niðurstaða samning-
anna sýnir, svo ekki
verður um villst, að
Evrópusambandið hef-
ur engan áhuga á að
framlengja EES-samn-
inginn enda fellur
hann orðið illa að
stofnanaramma
ESB og breyttum
aðstæðum í álfunni.
Evrópuþinginu. í fjórða lagi að ná
fram breytingum á bókun níu við
EES-samninginn sem kveður á um
tolla á fiskafurðum til að mæta lak-
ari markaðsaðgangi að mörkuðum
í Austur-Evrópu eftir stækkun.
í stuttu máli var kröfum íslands
alfarið hafnað af hálfu Evrópusam-
bandsins en bæði Layola de
UTANRÍKISRÁÐHERRA: Halldór
Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, hefur
lagt ofuráherslu á að EES-samningurinn
verði uppfærður samhliða
fyrirhugaðri stækkun ESB.
Allfjölmennt
Frjálslyndir hafa lagt fram
þingsályktunartillögu á Alþingi
um rekstur Ríkisútvarpsins þar
sem ýmsar tillögur eru gerðar um
endurbætur á rekstri þeirrar
Q stofnunar. Er þetta í fjórða skipti
sem þessi þingsályktunartillaga
_■ er flutt óbreytt. Ritari þessa korns
ö hefur ekki kynnt sér efni hennar
C áður en hnaut strax um j-lið,
þann er lýtur að skipan útvarps-
LO ráðs. Lagt er til að yfir stofnunina
*.
verði sett „allfjölmennt útvarps-
ráð, eins konar „akademía", e.t.v.
15 manna, sem valdir væru af
samtökum og stofnunum í sam-
félaginu: úr menningar- og lista-
heiminum, af fræðslustofnunum,
úrvísinda-og rannsóknargeiran-
um, af landsbyggðinni, frá al-
mannasamtökum launþega og
e.t.v. fleiri aðilum." Ófáum finnst
útvarpsráð vera leifar úr forn-
Bækistöðvar RÚV við Efstaleiti.
eskju og flokkspólitísk afskipti
þess hin verstu. Því þarf ekki að
undra að einhverjum þykí að far-
ið sé úr öskunni (eldinn að hafa
það „allfjölmennt" og skipað eins
og tillagan gerir ráð fyrir.
Hættulegir skátar
Dagbók lögreglunnar er oft
dapurleg lesning en þar getur
stundum að líta skondnar setn-
ingar um spaugileg tilvik. í dag-
bók helgarinnar má lesa eftirfar-.
andi: „Tæpum klukkutíma seinna
var tilkynnt um grunsamlegar
mannaferðir við skátaheimilið í
Hraunbæ. Við athugun kom í Ijós
að þar var alþjóðlegt skákmót í
gangi."
Með appelsínu
að vopni
Og síðar má lesa um mikið
reiðikast vegfaranda: „Síðdegis á
föstudag sá lögregla til manns
sem var mjög æstur, öskraði að
ökumanni bifreiðar sem þar var,
barði á rúður hennar, sparkaði í
bílhurðina og hrækti á rúðuna.
Að lokum fór hann í bíl sinn, náði
í appelsínu og henti henni í bíl-
rúðu fyrrnefndu bifreiðarinnar.
Þegar grennslast var fyrir um
háttalag mannsins kom í Ijós að
reiði hans var tilkomin vegna
ógætilegs akstur ökumannsins."