Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2003, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2003 DVSPORT 31
Kobe-málið fyrir dómstóla
KÖRFUBOLTI: Stórstjarna Los
Angeles Lakers, Kobe Bryant, er
á leið í löng og erfið réttarhöld.
Það ákvað dómari í Colorado-
fylki í gær en Bryant er ákærður
fyrir að hafa nauðgað 19 ára
stúlku. Bryant hefur játað að
hafa haft kynmök við stúlkuna
en segir að það hafi verið með
samþykki beggja aðila. Sak-
sóknarar lögðu fram gögn í
bráðabirgðaréttarhöldunum
þar sem fram kemur að stúlkan
hafi verið marin á kjálkanum og
þar að auki hafi blóð hennar
verið á bol Bryants. Það telur
saksóknari vera merki um átök
og á það sættist dómarinn og
því verður gripið til réttarhalda.
Kobe á yfir höfði sér lifstíðar-
fangelsi verði hann fundinn
sekur.
f VONDUM MALUM: Kobe var
ekki hress í gær.
Solano stunginn af?
KNATTSPYRNA: Sögusagnir
frá Bretlandseyjum í gær
herma að Perúmaðurinn Nol-
berto Solano sé stunginn af og
ætli sér ekki að leika aftur með
Newcastle. Solano var ekki í
leikmannahópi Newcastle um
helgina og hann svaraði með
því að keyra burt frá vellinum
og sá því ekki félaga sína sigra
Boro. Solano hefur ítrekað lent
upp á kant við Bobby Robson,
stjóra Newcastle, þegar hann
hefur frekar valið að leika fyrir
Perú en Newcastle. Ef satt
reynist að hann hafi látið sig
hverfa fær hann örugglega
háa sekt frá félaginu og ekki
þarf að koma á óvart ef
Newcastle ákveður að rifta
samningi sínum við Perúbú-
ann skapbráða.
Gunni semur
KNATTSPYRNA: Gunnar Ein-
arsson hefur skrifað undir nýj-
an þriggja ára samning við (s-
landsmeistara KR. Þeir hafa
jafnframt boðið Sigurvini
Ólafssyni nýjan samning og
þar að auki eru þeir á höttun-
um eftir Ágústi Gylfasyni og
hafa þeireinnig boðið honum
samning. Þetta kom fram í
Olíssporti á Sýn í gær.
ÁFRAM Á SKAGANUM: Hjálmur Dór Hjálmsson verður áfram á Skaganum næsta sumar
eins og væntanlega flestir félaga hans. DV-mynd ÞÖK
Að smella saman
segir Gunnar Sigurðsson um leikmannamál ÍA
Bikarmeistarar ÍA ætla sér stóra
hluti á næstu leiktíð í knattspyrn-
unni og forráðamenn félagsins
hafa ekki setið auðum höndum
undanfarið heldur samið um
áframhaldandi samninga við hvern
leikmanninn á fætur öðrum. Þegar
þeirri vinnu er Iokið munu þeir líta
í kringum sig eftir frekari liðsstyrk
en þar er helsta forgangsmál að fá
sterkan framherja.
„Gunnlaugur Jónsson og Kári
Steinn Reynisson skrifuðu undir
nýja samninga um helgina og svo
erum við að vonast til þess að
ganga frá samningum við aðra leik-
menn sem eru með lausa samninga
á næstu dögum. Þetta er allt að
smella saman," sagði Gunnar Sig-
urðsson, formaður rekstrarfélags
ÍA, í samtali við DV Sport í gær. „Eg
geri fastlega ráð fyrir því að við
klárum samning við Hjálm Dór
Hjálmsson á næstu dögum en það
eru aðeins smáatriði eftir þar. Svo
er ég einnig bjartsýnn á að við ná-
um samningum við Grétar Rafn
„Við fengum fyrirspurn
frá Tranmere um það
hvort við hefðum
áhuga á því að selja
Julian. Ég er að hugsa
málið."
Steinsson og Baldur Aðalsteinsson
en það verður rætt við þá á næstu
vikum," sagði Gunnar og bætti við
að einnig hefði verið framlengdur
samningur við unga og efnilega
leikmenn á borð við Helga Pétur
Magnússon.
Julian til Tranmere?
Enska félagið Tranmere Rovers
hefur lýst yfir áhuga á því að fá fær-
eyska landsliðsmanninn Julian
Johnson í sínar raðir og Gunnar
segir ekkert ákveðið í þeim efnum
enn sem komið er.
„Við fengum íyrirspurn frá Tran-
mere um það hvort við hefðum
áhuga á því að selja Julian. Ég er að
hugsa málið og hef ekki gefið þeim
svar enn þá. Þeir eru ekki að spá í
að fá Julian til reynslu heldur vilja
þeir semja beint við hann og það
ætti að skýrast fljótlega hvort eitt-
hvað verður af þessu. Þeir verða þó
að greiða fyrir hann þar sem hann
er samningsbundinn okkur til
2005.“ henry@dv.is
Hetjan Hemmi
Árangursríkt þing'
Björn Jónsson endurkjörinn formaður UMFÍ
skoraði sigurmarkið gegn Blackburn
Hermann Hreiðarsson skoraði
eina mark leiksins þegar
Charlton sigraði Blackburn með
einu marki gegn engu. Þetta
var þriðji sigur Charlton í röð en
aftur á móti fjórða tap Black-
burn á heimavelli. Mark Her-
manns var mjög glæsilegt -
fastur skalli eftir hornspyrnu
Paolos Di Canios.
Hermann spilaði frábærlega í
leiknum og var klárlega maður
leiksins. Afrek hans í leiknum er
ekki síður glæsilegt fyrir þær sakir
að Hermann var veikur og það lá
ekki ljóst fyrir fyrr en tveim tímum
fyrir leik að Hermann myndi spila.
„Hermann vaknaði í morgun og
leið það illa að hann gat ekki æft
með okkur," sagði Allan Curbish-
ley, framkvæmdastjóri Charlton,
eftir leikinn. „En hann fór á fætur
um hádegið, sagði að sér liði betur
og sagðist vera klár f að spila klukk-
an 5. Markið var líka magnað þar
sem við vorum búnir að æfa þetta
alla vikuna án þess að Di Canio
næði boltanum í loftið. Hann gerði
það á réttum tíma.“ henry@dv.is
ÚRVALSDEILD
ENGLAND
M
Arsenal 9 7 2 0 18-7 23
Man. Utd 9 7 1 1 17-3 22
Chelsea 9 6 2 1 19-9 20
Birmingh. 9 4 4 1 8-5 16
Man. City 9 4 3 2 20-11 15
Fulham 8 4 3 1 15-9 15
Charlton 9 4 2 3 13-12 14
S'hampton9 3 4 2 14-9 13
Portsm. 9 3 3 3 11-9 12
Liverpool 9 3 2 4 12-10 11
Tottenham9 3 2 4 10-13 11
Newcastle 8 2 3 3 9-10 9
Everton 9 2 3 4 12-14 9
Aston V. 9 2 3 4 8-12 9
Blackburn 9 2 2 5 15-17 8
Bolton 9 1 5 3 8-18 8
Leeds 9 2 2 5 8-18 8
M'boro 9 2 1 6 7-15 7
Wolves 9 1 3 5 3-18 6
Leicester 9 1 2 6 11-17 5
HETJURNAR: Hermann Hreiðarsson og Paolo Di Canio fagna hér marki Hermanns í gær
sem Di Canio lagði upp. Reuters
43. sambandsþing UMFÍ var
haldið á Sauðárkróki um síð-
ustu helgi. Björn Jónsson var
endurkjörinn formaður en
helsta athygli vakti á þinginu
að ákveðið var að opna fyrir
íþróttabandalög til þess að
taka þátt í landsmótunum og
jafnframt var samþykkt að
veita þeim inngöngu í UMFÍ á
næsta ári ef þeim tekst að upp-
fylla ákveðin skilyrði.
„Þetta er ansi stór ákvörðun
enda hafa eingöngu ungmenna-
og héraðssambönd tekið þátt í
Landsmótum UMFÍ þau tæpu 100
ár sem það hefur verið til,“ sagði
Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, í samtali við
DV Sport í gær. „Á landsmótunum
á næsta ári verða Iþróttabandalag
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar því
með lið. Til þess að fá síðan inn-
göngu í UMFI þá verða þau upp-
fylla ákveðin skilyrði eins og að
breyta nafni sínu þannig að annað
hvort héraðs- eða ungmennasam-
band verði í því."
Þetta var nokkuð mikið átaka-
þing enda voru ekki allir á eitt sátt-
ir um það hvort hleypa ætti
íþróttabandalögunum inn og svo
rifust menn nokkuð um það
hvernig skipta ætti þeim tekjum
sem skapast af lottóinu. Niður-
staða málsins var sú að stjórn
UMFI var falið að ræða við stjórn
ÍSÍ um það hvernig best væri að
skipta ágóðanum og einnig hversu
mikið af ágóðanum eigi að renna
til sambandsaðila UMFÍ. Stjórn
UMFI hefur frest til 1. september
2004 til þess að ljúka málinu.
Björn Jónsson var síðan endur-
kjörinn formaður UMFÍ en for-
maður UMSK, Valdimar Leó Frið-
riksson, dró formannsframboð
sitt til baka á elleftu stundu.
Reyndar gerði Valdimar Leó enga
frægðarför í Skagafjörðinn því að
hann sóttist eftir kjöri í aðalstjórn
ungmennafélagsins en var ekki
kosinn. Þá sóttist hann eftir því að
komast í varastjórn en þar komst
Reyndar gerði Valdi-
mar Leó enga frægðar-
för í Skagafjörðinn því
hann komst hvorki í
aðalstjórn né vara-
stjórn.
hann ekki heldur inn. Þetta vakti
talsverða athygli enda er Valdimar
formaður stærsta sambandsaðila
UMFÍ og var talið að hann hefði
nokkurt fylgi á bak við sig sem síð-
an reyndist ekki raunin.
Að lokum var ákveðið að ung-
lingalandsrrtót verði á hverju ári í
framtíðinni og alltaf um verslun-
armannahelgina. Fastlega er búist
við því að næsta mót verði haldið
á Sauðárkróki. henry@dv.is