Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 27. OKTÚBER 2003 OTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: örn Valdimarsson AÐALRfTSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýslngar auglys- ingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Einstæðri móður allar bjargir bannaðar - frétt bls. 4 Landsbankinn tekur 23 milljarða króna lán - frétt bls. 6 Hefur háð baráttu við kerfið ítólf ár -fréttbls. 10-11 Arsenal á toppinn - DV Sport bls. 29 Þjóðin drekkur ekki nóg vatn - Líkami og sál bls. 40 Bíó og sjónvarp - Tilvera bls. 44-45 Risahárvöndull fannst í maga 12 ára stúlku Tólf ára gömul stúlka frá bæn- um Ciudad Neily á Costa Rica var um helgina flutt á sjúkrahús í bæn- um eftir að hafa fengið heiftarleg- an magaverk. Eftir nákvæma rannsókn var ákveðið að skera stúlkuna upp og kom þá í ljós stærðar hárvöndull í maga hennar. Að vonum voru læknarnir furðu lostnir þegar þeir uppgötvuðu þennan risavöndul, sem vó um 700 grömm og var um 40 sentf- metrar íummál. „Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar ég sá vöndul- inn og að hún skuli ekki hafa orðið vör við hann fyrr, þar sem hann fyllti mestallan magann," sagði Willian Arce skurðlæknir, en eng- inn virðist hafa gert sér grein fyrir þeirri áráttu stúlkunnar að éta sitt eigið hár. Kjálkabrotinn VETRI FAGNAÐ: llokárlegs dansleiks sem hljómsveit Geir- mundar Valtýssonar heldur í Hótel Borgarnesi fyrsta vetrar- dag, þ.e. sl. laugardag, kom til allumfangsmikilla slagsmála. Ekki er enn Ijóst hversu margir tóku þátt í þeim slagsmálum, en einn maður lá eftir kjálka- brotinn. Lögreglan í Borgarnesi var kölluð á staðinn og segir eftir slagsmál hún að um miðaldra fólk hafi verið að ræða, ekki unglinga. Síðar um nóttina var lögreglan svo kölluð í heimahús til að skakka leikinn þar sem sums staðar kom til ryskinga. Einnig var kallað út vegna hávaða í heimahúsum. Þar kom víða við sögu fólk sem hafði verið á Geirmundarballinu í Hótel Borgarnesi. Dekkjaþjófnaður KÆRLEIKSSKORTUR: Bíræfni þjófa á sér oft engin tak- mörk. Þessi Hyundai Accent stóð skammt frá Hallgríms- kirkju á föstudeginum og einhver í dekkjaþörf hafði gert sér lítið fyrir og tekið HYUNDAI: Þessum b(l var ekki ekið langt fyrr en bætt hafði verið úr dekkjaskorti. framdekk undan bílnum. Það hefur ekki ríkt friður og kærleiki í huga þjófsins í ná- lægð guðshússins. Þeir sem gætu hafa séð til ferða manna við að skipta um dekk á þessum stað um miðja nótt eru beðnir að hafa samband við lögregl- una í Reykjavík. Tólfmanna hópur frá Reykjavíkurborg Kynnti sér létt- lestir í Þýskalandi Tólf manna hópur frá Reykja- víkurborg var alla síðustu viku í Þýskalandi að kynna sér létt- lestir sem rætt hefur verið um að nota í Reykjavík. I hópnum var öll samgöngu- nefnd Reykjavíkurborgar, skipuð fimm manns, fimm embættismenn frá skipulags- og byggingarsviði og umhverfís- og tæknisviði borgar- innar og loks forstjóri og stjórnar- formaður Strætó. Lagt var upp á mánudag og fjórar borgir í Þýskalandi - af svipaðri stærðargráðu og höfuðborgar- svæðið - heimsóttar áður en hóp- urinn sneri aftur. Eftir því sem DV kemst næst má gera ráð fyrir að kostnaður á hvern ferðalang í slíkri ferð sé á bilinu 150 til 200 þúsund krónur og ferðin hafi því alls kostað um það bil 1,8-2,4 milljónir króna. „Við eigum eftir að klára skýrslu og grein- argerð um ferðina og skrifa niðurstöður," segir Árni Þór Sigurðs- son. Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar, segir að ekki sé hægt að útlista ávinning af ferðinni enn sem komið er. „Við eigum eftir að klára skýrslu og greinargerð um ferðina og skrifa niðurstöður," seg- ir Árni en bætir við að iðulega sé nokkur ávinningur af kynnisferð- um sem þessum. Hann segir al- gengt að hver nefnd borgarinnar fari í eina kynnisferð á kjörtímabili. Ekki er langt síðan þeirri hug- STRÆTÓ ENN UM SINN: Um 2 milljónir króna fóru í að senda 12 manna hóp í vikuferð til Þýskalands til þess að kynna sér léttlestir, en hvað sem líður ávinningi af slikri ferð verður strætó helsta almenningssamgöngutækið enn um sinn. mynd var varpað fram hvort svo- kallaðar léttlestir gætu orðið hluti af almenningssamgöngum í Reykjavík. Þær eru sumar hverjar nokkurs konar nútímaútgáfur af hefðbundnum sporvögnum en aðrar líkari venjulegum lestum. Fram hefur komið að það kosti um einn milljarð króna að leggja hvern kílómetra í leiðakerfí slíkra lesta. Ekki hefur komið fram hve um- fangsmikið slíkt leiðakerfi ætti að verða hér. olafurissdv.is Sifjaspellsdómur: Tveggja ára fangelsi fyrir brot gagnvart þremur stúlkum F.r hægt að finna týndan draum? Ásamt vinum sínum ákveður Eyjadís að ffeista þess og leitin snýst upp í mikla háskaför. Töffandi saga eftir Unni Þóru Jökulsdóttur um hugrakka krakka og ævintýralegt ferðalag. Mál og menning edda.is Héraðsdómur Suðurlands kvað á fimmtudag upp dóm yfir manni sem var gefið að sök að hafa á tímabilinu 1997 til 2002 haft uppi kynferðislega tilburði gagnvart þremur ungum stúlk- um. Var maðurinn fundinn sek- ur og dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar, auk þess að greiða fórnarlömbum sínum og aðstandendum miskabætur. Foreldrar einnar stúlkunnar til- kynntu barnaverndarnefnd sumar- ið 2002 að maðurinn hefði haft í frammi kynferðislegt athæfi gagn- vart tólf ára gamalli dóttur þeirra. Var hann þá meðal annars sakaður um að hafa þuklað á henni og sagt við hana mjög ósæmilegar setning- ar. Síðar sama ár tilkynnti móðir annarrar stúlku lögreglu að maður- inn hefði sýnt kynferðislega til- burði gagnvart dóttur sinni. 1 fram- haldi af skýrslutökum vegna þess- ara tveggja mála beindist rannsókn lögreglu síðar að meintum brotum hans gagnvart þriðju stúlkunni, dótturdóttur mannsins. Ákærði neitaði alla tíð sök í fýrstu tveimur liðunum en neitaði þó ekki afdráttarlaust sök gagnvart dóttur- dóttur sinni. Hann viðurkenndi meðal annars að hafa strokið lík- ama hennar en sagði að um dóm- greindarleysi hefði verið að ræða og að honum hefði ekki staðið neitt kynferðislegt til. Hann neitaði hins vegar alfarið ásökunum um að hafa látið stúlkuna snerta kynfæri sín eða að hafa snert kynfæri hennar. Dómurinn taldi framburð stúlknanna aftur á móti trúverðug- an og var maðurinn fundinn sekur um að hafa brotið gegn þeim öllum þremur. Þá voru brot ákærða gagn- vart dótturdóttur sinni talin vera sérstaklega alvarleg og segir í dómi að með óviðeigandi hegðun sinni hafi maðurinn m.a. brugðist trausti stúlkunnar á mjög viðkvæmum tíma í lífi hennar. Var hæfileg refs- ing því talin vera tveggja ára fang- elsisvist. Einnig var manninum gert að greiða allan sakarkostnað, um 300 þúsund krónur, auk miskabóta til aðstandenda brotaþolenda, alls um 950 þúsund krónur. agust@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.