Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Burrell vill skamma prinsa
BRETLAND: Paul Burrell, fyrr-
um bryti Díönu heitinnar
prinsessu á Englandi, segist í
viðtali við breska ríkissjónvarp-
ið BBC myndu vilja segja prins-
unum sonum Díönu til synd-
anna og að tími sé kominn til
að þeir fullorðnist.
Burrell hefur valdið miklu upp-
námi innan konungsfjölskyld-
unnar með bók sinni um
Díönu sem kemur í bókabúðir í
dag. Prinsarnir Vilhjálmur og
Harrý sögðu fyrir helgi að með
bókinni væri Burrell að svíkja
móður þeirra og sverta minn-
ingu hennar. Burrell segir með-
al annars frá því að Díana hafi
óttast um líf sitt. I viðtalinu
segir Burrell að með einu sím-
tali hefði verið hægt að fá
hann til að hætta við allt.
Fogh óhress
DANMÖRK: Anders Fogh
Rasmussen, forsætsiráðherra
Danmerkur, og embættismenn
í ráðuneyti hans voru óhressir
með Per Stig Moller utanríkis-
ráðherra og menn hans þegar
Danir gegndu formennsku í
ESB. Utanríkisráðuneytið vann
þá að friðaráætlun fyrir Mið-
Austurlönd án þess að hafa
forsætisráðuneytið með.
Ekkert látá skæruárásum í Bagdad:
Að minnsta kosti
18 létust í morgun
Að minnsta kosti átján manns
létu lífið og tugir slösuðust þeg-
ar þrjár öflugar bílsprengjur
sprungu í Bagdad í morgun
nálægt byggingu sem alþjóða
Rauði krossinn hefur til umráða
í miðborginni og utan við tvær
lögreglustöðvar.
Fyrsta sprengingin varð fyrir
utan byggingu Rauða krossins og
munu að minnsta kosti tíu manns
hafa látist í sprengingunni og allt
að flmmtán særst. Að sögn sjónar-
votta voru tveir bflar í björtu báli
eftir sprenginguna og að sögn ör-
yggisvarðar var annar þeirra
sjúkrabíll sem nálgast hafði bygg-
inguna á miklum hraða og sprung-
ið um leið og hann lenti á steinvegg
framan við anddyrið.
Bandarískir hermenn rýmdu
svæðið af ótta við fleiri bflsprengjur
en aðeins nokkrum mínútum síðar
sprakk önnur í nágrenninu og sagði
í óstaðfestum fréttum að hún hefði
sprungið utan við lögreglustöð ná-
lægt byggingu íraska iðnaðarráðu-
neytisins. Að sögn sjónarvotts slös-
uðust að minnsta kosti fjórir í
sprengingunni en ekki vitað hvort
nokkur lét lífið.
Þriðja sprengingin varð utan við
lögreglustöð í norðurhluta borgar-
innar og herma fréttir að að
minnsta kosti átta hafi látist.
íbúðarhús hrundi
Sprengingin, við byggingu Rauða
krossins, var svo öflug að hús í
nágrenninu hrundi yfir fjölskyldu
sem svaf værum blundi og sagði
húsmóðirin að tvö börn hennar
hefðu slasast. „Við vöknuðum við
það að loftið hrundi yfir okkur,“
sagði móðirin.
Sprengjuárásirnar í morgun eru
gerðar aðeins sólarhring eftir að
skæruliðar gerðu flugskeytaárás á
Rashid-hótelið í miðborg Bagdad í
gærmorgun, á meðal Paul Wolfo-
witz, aðstoðarvarnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, var staddur þar í
þriggja daga heimsókn til fraks, en
hótelið hefur verið helsti dvalar-
staður bandarísku herstjórnarinn-
ar í borginni og því vel gætt af
bandarískum hermönnum.
Wolfowitz slapp ómeiddur en
einn bandarískur herforingi lést
auk þess sem sautján aðrir slösuð-
ust og þar á meðal ellefu Banda-
ríkjamenn.
Flugskeytin í kerru
Svo virðist sem árásarmennirnir
hafi komið akandi á sendibfl með
Þríðja sprengingin varð
utan við lögreglustöð í
norðurhluta borgar-
innar og herma fréttir
að átta hafi látist.
flugskeytin í kerru í eftirdragi og
skilið hana eftir í nálægum garði
um 400 metra frá hótelbygging-
unni. Þaðan hafa þeir svo miðað
hótelið út og tengt flugskeytin með
tímarofa áður en þeir flúðu af vett-
vangi nokkrum mínútum fyrir árás-
ina.
Martin Dempsey, liðsforingi í
Bandaríkjaher, sem fer með stjórn
öryggismála í Bagdad, segir að
árásin hafi verið vel skipulögð og
ólfldegt að henni hafi verið beint
gegn Wolfowitz.
„Það er engin spurning að hún
hefur verið lengi í undirbúningi,
kannski í nokkra mánuði og því
ólíklegt að henni hafi sérstaklega
verið beint gegn Wolfowitz," sagði
Dempsey og bætti við að ætlunin
hafi frekar verið að veikja tiltrú
fólks á aukinni öryggisgæslu.
„Þeir virðast hafa nýtt sér það að
næturútgöngubanninu í borginni
var aflétt um helgina í upphafi
föstumánaðar múslíma, Ramadan.
Tímasetningin kemur því kannski
ekki á óvart en það þýðir ekki að
gefið hafi verið eftir hvað varðar
öryggisgæsluna. Hún hefur verið
efld til mikilla muna," sagði
Dempsey.
Wolfowitz virtist sleginn
Paul Wolfowitz virtist sleginn
þegar hann ræddi við fréttamenn
eftir árásina í gær en sagði að hún
hefði engin áhrif á áætlanir Banda-
ríkjamanna um uppbygginguna í
frak. „Við látum ekki kúga okkur til
uppgjafar og þessum hryðjuverka-
mönnum mun aldrei takast að
stöðva okkur í að ljúka ætlunar-
verkinu, sem er að hjálpa írösku
þjóðinni að losa sig við þá glæpa-
menn sem standa að árásum sem
þessari," sagði Wolfowitz.
Colin Powell, utanríksráðherra
Bandaríkjanna, sagði í sjónvarps-
viðtali í gær að hann hefði ekki átt
von á svo öflugri andstöðu og að
hún stæði svo lengi eftir frelsun
íraks. „Við eigum enn í átökum og
ég held það hafi aldrei verið ætlun
forsetans að gefa neitt eftir. Við
eigum langt í land og við munum
aldrei stökkva frá borði," sagði
Powell.
ÖFLUG ÖRYGGISGÆSLA: Öflug öryggis-
gæsla kom ekki í veg fyrir árás á Rashid-
hótelið í Bagdad í gær.
Neyðarástand vegna skógareldanna í Suður-Kaliforníu:
Fjórtán látnir og hundruð
heimila eru rjúkandi rústir
Neyðarástandi hefur verið lýst
yfir í fjórum sýslum í sunnan-
verðri Kaliforníu þar sem
skógareldar hafa orðið allt að
fjórtán manns að bana og
eyðilagt um 600 heimili. Ekki
er gert ráð fyrir að ástandið
skáni neitt í dag.
Eldarnir hafa logað stjórnlaust í
tæpa viku og hafa tugþúsundir
manna þurft að yfirgefa heimili
sín. Þá hefur þurft að loka fjöl-
mörgum vegum í ríkinu.
„Þetta eru verstu eldarnir sem
við höfum þurft að glíma við í
Kaliforníu í tíu ár," sagði Gray
Davis, fráfarandi ríkisstjóri.
Hlýrra verður í veðri í sunnan-
verðri Kaliforníu í dag og þurrir
hlýir vindar munu ekki gera neitt
annað en að breiða eldinn enn
EYÐILEGGING: Á sjöunda hundrað heimila
hafa brunnið til kaldra kola I skógareldun-
um (sunnanverðri Kaliforníu síðustu daga,
þar á meðal þetta stóra hús í bænum
Ramona.Tugþúsundir hektara eru sviðin
jörð eftir eldana.
frekar út.
Slökkviliðsmenn berjast nú við
eldana á tíu mismunandi stöðum
í fjórum sýslum í kringum Los
Angeles og San Diego. Rúmlega
áttatíu þúsund hektarar lands
hafa þegar orðið eldinum að bráð.
Eyðileggingin sem þegar er orð-
in er metin á milljónir dollara.
Talað er um að rúmlega þrjátíu
þúsund heimili séu í hættu.
„Við gerum ráð fyrir að veðrið
haldist eins fram f miðja næstu
viku," sagði Eric Lamoureux, tals-
maður almannavarna.
San Diego-sýsla varð verst úti í
eldunum f gær. Þar brann mikið
land og að minnsta kosti átta
manns fórust. Ákveðið hefur verið
til öryggis að flytja ruðningsleik,
sem átti að fara fram í San Diego í
kvöld, til Arizona.
Jöfnuðu þrjú hús
á Gaza við jörðu
ísraelski herinn jafnaði þrjú há-
hýsi á Gaza við jörðu með
sprengiefni í gær, í hefndar-
skyni fyrir mannskæða árás á
landtökubyggð gyðinga. Bygg-
ingarnar voru í eigu palestínsku
heimastjórnarinnar.
Hermenn fluttu rúmlega tvö
þúsund manns burt úr nærliggj-
andi húsum áður en íbúðaturnarn-
ir voru sprengdir í tætíur. ísraelar
sökuðu harðlínumenn um að hafa
skipulagt árás á nærliggjandi byggð
gyðinga, þar sem þrír ísraelskir her-
menn féllu, úr turnunum.
„Ég vona að palestínska heima-
stjórnin læri af þessu að leyfa ekki
notkun húsakynna sinna til hryðju-
verka," sagði ísraelskur herforingi
við fréttamann Reuters.
Terje Röd-Larsen, sendifulltrúi
Sameinuðu þjóðanna, harmaði
eyðileggingu húsanna og sagði
(RÚSTUNUM: Palestínskur drengur geng-
ur um rústir þriggja háhýsa sem ísraelskir
hermenn jöfnuðu við jörðu á Gaza í gær.
hana hreint og klárt brot á alþjóða-
lögum og reglum.