Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2003, Qupperneq 10
70 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2003
BARÁTTUKONA: Jórunn
Anna Sigurðardóttir hefur
staðið í 12 ára baráttu við
heilbrigðiskerfið vegna
meintra læknamistaka og si
fellt rekið sig á veggi. Hún
segist hafa verið niðurlægð
og lítillækkuð og hennar
fjárhagslega staða er fyrir
löngu komin i rúst.
DV-mynd E. 61.
Ég hef verið niður-
lægð af kerfinu í 12 ár
Eins og að lenda í hakkavél, segirJórunn Anna Sigurðardóttir sem
baríst hefur fyrír dómstólum vegna meintra læknamistaka
Jórunn Anna Sigurðardóttir
segist hafa verið niðurlægð af
kerfinu allar götur síðan 1991
vegna baráttu sinnar við að fá
leiðréttingu vegna meintra mis-
taka sem áttu sér stað við
brjóstaminnkunaraðgerð á
Landspítala íslands. Þráfald-
lega hefur hún leitað til dóm-
stóla og ítrekað hefur Hæsti-
réttur ómerkt niðurstöður Hér-
aðsdóms Reykjavíkur.
„Þetta er mjög mikill áfellisdóm-
ur yfir vinnubrögðum Héraðsdóms
Reykjavíkur. Mér finnst héraðs-
dómari vera orðinn gjörsamlega
vanhæfur í mínu máli og meðdóm-
endur hans einnig. Hann er nú að
fá þetta í þriðja sinn í hausinn og ég
kæri mig ekki um að þessi maður
verði áfram í mínu máli,“ segir Jór-
unn og ætlar að krefjast þess að
skipt verði um dómara. Hún hefur
reyndar áður gert þá kröfu en verið
synjað af Hæstarétti sem vildi að
dómarinn kláraði málið. Jórunn
segir að þá hafi Hæstiréttur vísað
tíu spurningum til héraðsdóms
með ósk um að læknaráð tæki á
málinu.
Of stór og þung brjóst
Málsatvik eru þau að Jórunn leit-
aði til lýtalæknis í maí 1989 vegna
vöðvabólgu og höfuðverkja sem
stöfuðu af of stórum og þungum
brjóstum. Læknirinn var sammála
Jórunni og vildi láta framkvæma
brjóstaminnkunaraðgerð. Þá var að
minnsta kosti ársbið og ákveðið að
læknirinn hefði samband þegar að
því kæmi.
Fram kom f viðtali í DV, sem Þor-
björg Gunnlaugsdóttir tók við Jór-
unni í júlí 2000, að Jórunn varð
ófrísk og eignaðist dreng 1. ágúst
Brjóstaminnkunar-
aðgerðin leiddi afsér
níu aðrar aðgerðir.
1990. Til stóð að hún færi í
brjóstaminnkunaraðgerðina í maí
1991. Af því varð ekki vegna anna á
sjúkrahúsinu eftir bruna. Þann 21.
ágúst 1991 fékk Jórunn upphring-
ingu og henni tjáð að hún ætti að
leggjast inn daginn eftir, eða 22.
ágúst. Hún mætti á spítalann og fór
í ljósmyndatöku, blóðprufu og
skýrslútöku sem tekin var af lækna-
kandídat. Læknirinn sem sjá átti
um aðgerðina lét hins vegar ekki sjá
sig. Hjúkrunarfræðingur lét Jór-
unni hafa bækling og fór yfir fyrstu
síður bæklingsins sem fjölluðu um
það hvernig aðgerðin gengi fyrir
sig. Sjálf fletti hún bæklingnum
lauslega en var ekki með hugann
við að mistök gætu átt sér stað eins
og sfðar kom á daginn.
Jórunn segir að brjóstaminnkun-
araðgerðin hafi leitt af sér níu aðrar
aðgerðir. Fleiri aðgerðir hefur Jór-
unn þurft að fara í af öðrum orsök-
um, bæði á Landspítala íslands og
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, en þær hafa gengið vel, síðast
nú í ágúst.
Stefnt vegna mistaka
í stefnu Jórunnar var byggt á því
að mistök hefðu verið gerð við
framkvæmd og eftirmeðferð skurð-
aðgerðarinnar. Mistökin eru til-
greind f sex liðum. Haldið var fram
í stefnunni að skort hefði á ráðgjöf
og samráð við Jórunni fýrir aðgerð-
ina, að ekki hefði verið beitt réttri
eða viðurkenndri aðferð við
brjóstaminnkunina og/eða mistök
hefðu verið gerð við framkvæmd
aðgerðarinnar. Eftirlit með Jórunnr
hefði ekki verið nægjanlegt og eftir-
meðferð ófullnægjandi, útlitslegur
árangur hefði verið óviðunandi og
ekki í samræmi við óskir né vænt-
ingar Jórunnar. Loks að skinn hefði
verið tekið af röngum stað til
ígræðslu og það valdið óþarfa lýti.
Allt kollegar og vinir
Hún segir að f slíkum málum, þar
sem læknar eru kallaðir til sem
meðdómendur, sé skortur á óháð-
um aðilum. - „Þeir fyrirfinnast ekki
á íslandi því þetta eru allt kollegar,
vinir og kunningjar. Fulltrúar
læknaráðs vildu t.d. í fyrstu ekki
mæta fyrir dóm til að svara fyrir
sínar skýrslur og því þurfti ég að
kæra það til Hæstaréttar sem fékk
þá til að mæta. Sigurður landlækn-
ir kvittaði undir álit læknaráðs og
sat sjálfur fundinn sem álitsgjafi.
Stjórnsýslulega mátti hann þó ekki
Mál Jórunnar Sigurðardóttur
1989 1990 1991 1991-2001 2002 2003
Maí: Leitaði til lýtalæknis vegna vöðvabólgu og höfuðverkja sem stöfuðu afof stórum og þungum brjóstum. Aðgerð frestað vegna barns- fæðingar 1. ágúst 1990. Maí: Ekkert varð afaðgerð vegna annaá sjúkrahúsinu eftir bruna. 21. ágúst: Jórunni tjáð að hún ætti að leggjast inn daginn eftir. Fimmtudagur 22. ágúst: Jórunn mætir í blóðprufu, skýrslutöku og Ijósmyndatöku á Landspítalanum. Föstudagur 23. ágúst: Brjóstaminnk- unaraðgerð framkvæmd. Laugardagur 24. ágúst: Jórunn kvartar undan þrýstingi og miklum verkjum en ekki varkallaðá lækni. Sunnudags- kvöld 25. ágúst: Læknir sprettir upp saumumtil þess að hleypa út blóði þar sem sogkerin virkuðu ekki nógu vel. Mánudags- morgunn 26. ágúst: Afturþarfað hleypa út blóði en ekki fært í sjúkraskýrslur. Níu aðgerðir framkvæmdará Jórunni vegna afleiðinga mistaka. Jórunn greinist með æxli í móðurlífi sem fjarlægtvará Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Mars: Jórunn veikistalvarlega útafpokumá ristli sem sprungu. Ágúst: Ristilaðgerðgerð áJórunniá Landspítalanum.
1