Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2003, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2003, Side 26
42 TILVERA MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2003 íslendingar Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Netfang: aettir@dv.is Sími: 550 5826 Fólk í fréttum Ingibjörg R. Guðmundsdóttir nýkjörinn voraforseti ASÍ Ingibjörg Rannveig Guðmunds- dóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, var kjörin varaforseti ASÍ á ársfundi sambandsins sl. fimmtudag. Starfsferill Ingibjörg fæddist í Reykjavík 19.8. 1949 og ólst þar upp í for- eldrahúsum. Hún gekk í ísaksskóla, Melaskólann og Hagaskólann og lauk síðan stúdentsprófi frá VÍ 1971. Ingibjörg hóf sumarstörf hjá Eimskip er hún var sextán ára og starfaði þar í farþegadeild til 1973 en hóf síðan störf hjá Flugleiðum seinni hluta þess árs og starfaði þar til október 2002. Hún varð þá framkvæmdastjóri tengslasviðs VR. Ingibjörg sat í stjórn VR 1976-89, er fulltrúi VR í skólanefnd VÍ, var formaðúr byggingarnefndar VR- hússins í Hvassaleiti, starfaði í framkvæmdanefnd um launamál kvenna í mörg ár, var varaformaður VR í þrjú ár og er formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna frá 1989. Hún situr í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna, var fýrsti varaforesti ASÍ 1992-1996 og annar varaforseti ASÍ 1996-2000 og hefur sinnt ýmsum störfum innan ASÍ og verklýðshreyfingarinnar sem landssambandsformaður. Fjölskylda Fóstursynir Ingibjargar eru Bjarni Jónsson, f. 10.11. 1982, búsettur í heimahúsum; Andrés Jón Esrason, f. 29.11.1986, búsettur í heimahúsum. Ingibjörg átti eina systur, Maríu Guðmundsdóttur, f. 9.3. 1943, d. 23.10. 1980, skrifstofumaður í Reykjavík og síðar húsmóðir í Bandaríkjunum. Foreldrar Ingibjargar: Guð- mundur Jónsson, f. 2.11. 1908, d. 13.3. 1973, starfsmaður Rafmagns- veitu Reykjavíkur, og k.h., Helga Sigríður Eiríksdóttir, f. 22.6.1915, d. 15.8. 2003, húsmóðir og starfsmað- ur við Landsbókasafnið. Ætt Föðurbróðir Ingibjargar var Jón, framkvæmdastjóri H. Benedikts- sonar í Reykjavík. Guðmundur var sonur Jóns, verslunarmanns í Reykjavík, bróður Guðmundar, for- seta borgarstjórnar. Jón var sonur Ásbjörns, tómthúsmanns á Eyrar- bakka, Ásbjörnssonar og Guðrúnar Sigurðardóttur, b. í Efra-Seli í Flóa, Björnssonar, b. f Garðhúsum, Sig- urðssonar. Móðir Guðmundar var Þórunn Gunnarsdóttir í Gunnarshúsi á Eyr- arbakka, bróður Gísla, b. á Högna- stöðum, langafa Sigurðar E., fyrrv. forstjóra Húsnæðisstofnunar, Kristins yfirlæknis og Þorgríms, for- manns Lögreglufélags Reykjavíkur, Guðmundssona. Gunnar var sonur Jóns, b. á Effa-Langholti, Magnús- sonar, b. þar, bróður Helga, langafa Magnúsar Guðmundssonar ráð- herra. Helgi var einnig langafi Sig- urbjargar, móður Björgvins, fram- kvæmdastjóra VSÍ, og dr. Jakobs, Sigurðssona. Þá var Helgi afi Val- gerðar, ömmu Guðmundar í Víði. Annar bróðir Magnúsar var Þor- steinn, langafi Ingigerðar, langömmu Karls Steinars, forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins. Þriðji bróðir Magnúsar var Jón, langafi Margrétar, ömmu Halls og Símon- ar Símonarsona, margfaldra ís- landsmeistara í bridge, og langömmu Friðriks Ólafssonar stórmeistara. Systir Magnúsar var Ingunn, ættmóðir Reykjaættar, langamma Sigríðar, móður Ólafs Skúlasonar biskups. Ingunn var einnig langamma Magnúsar, prófasts og alþm., föður Péturs ráð- herra. önnur systir Magnúsar var Margrét, langamma Stefáns í Núpskoti, afa Brynjólfs Bjarnason- ar, heimspekings og ráðherra. Magnús var sonur Eiríks, ættföður Bolholtsættar, Jónssonar. Móðir Gunnars var Kristín Gísladóttir. Móðir Kristínar var Ástríður, systir Einars, langafa önnu, móður Ing- ólfs Jónssonar ráðherra. Ástríður var dóttir Gunnars, hreppstjóra í Hvammi á Landi, Einarssonar og Kristínar Jónsdóttur yngra, b. að Vindási, Bjarnasonar, ættföður Vík- ingslækjarættar, Halldórssonar. Móðir Þórunnar var Ingibjörg, systir Margrétar, móður Ólafs Gíslasonar stórkaupmanns, föður Gísla læknis. Ingibjörg var dóttir Guðmundar á Eyrarbakka, bróður Aldfsar, langömmu Manfreðs Vilhjálmsson- ar arkitekts. Önnur systir Guð- mundar var Ingigerður, langamma Þorgerðar Ingólfsdóttur söngstjóra. Guðmundur var sonur Þorsteins, b. á Vorsabæ, Jörundssonar. Helga Sigríður var dóttir Eiríks, járnsmiðs í Reykjavík, Jónssonar, b. á Keldunúpi, Pálssonar, b. í Hraun- koti, bróður Páls, langafa Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkis- ins. Móðir Jóns var Ingibjörg Þor- láksdóttir. Móðir Eiríks var Helga Eiríksdóttir. Móðir Helgu Sigríðar var María, systir Jóns, föður Aðalsteins efna- verkfræðings og Harðar efnaverk- fræðings. Systir Maríu var Jóhanna, amma Guðlaugs Björgvinssonar, forstjóra Mjólkursamsölunnar. María var dóttir Bjarna Jónssonar, b. á Geirlandi, og Sigríðar, systur Þorvarðar, prófasts og skólastjóra í Vík, afa Sigurgeirs ráðuneytisstjóra og Ólafs yfirlæknis Jónssona. Sig- ríður var dóttir Þorvarðar, pr. á Prestsbakka, bróður Friðriks, langafa Ólafs, afa Ólafs Ragnars forseta. Þorvarður var sonur Jóns, pr. á Breiðabólstað í Vesturhópi, Þorvarðssonar. Móðir Sigríðar var Valgerður Bjarnadóttir, pr. á Sönd- um, Gíslasonar, pr. á Hafsteins- stöðum, Oddssonar pr. sem hvarf frá Miklabæ, Gíslasonar, biskups á Hólum, Magnússonar. Móðir Odds var Ingibjörg, systir Sigríðar, móður Sigurðar Stefánssonar Hólabisk- ups. Ingibjörg var dóttir Sigurðar lögsagnara Einarssonar, Hólabisk- ups Þorsteinssonar. Móðir Gísla var Guðrún Jónsdóttir, pr. f Goð- dölum, Sveinssonar. Andlát Hannes G.Tómasson fyrrv. stýrimaður og skipstjóri Hannes Guðjón Tómasson, fyrrv. stýrimaður og skipstjóri, Elliheim- ilinu Grund, Hringbraut 50, lést á Grund 14.10. sl. Útfór Hannesar var gerð frá Neskirkju sl. fostudag. Starfsferill Hannes fæddist á Miðhúsum í Vestmannaeyjum 17.6. 1913 en var ætíð kenndur við Höfn. Hann ólst upp í Eyjum, var í bamaskóla frá tíu ára aldri, stundaði síðan nám við unglingaskóla í Vestmannaeyj- um í tvo vetur, lauk prófi í Eyjum til skipstjómarréttinda á þrjátíu tonna bát, stundaði síðar nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík, farmannadeild, og lauk þaðan próf- um 1942. Hannes fór ungur til sjós, réðst á norska flutningaskipið Bisp frá Haugasundi í marsmánuði 1936 og sigldi með því fram í september 1939. Að loknu námi við Stýri- mannaskólann var Hannes stýri- maður á ms. Eddu og ms. Kötlu í Ameríkusiglingum, síðan á ms. Sæ- fellinu frá Vestmannaeyjum og á Vatnajökli. Hann var stýrimaður og skipstjóri hjá Skipadeild SÍS 1949-62 en réðst þá til starfa hjá Skeljungi hf. og starfaði þar við Smáouglýsingar / DVsíí! f lestun og losun olíuskipa til 1990 er hann lét af störfum fyrir aldurs sak- ir, sjötíu og sjö ára. Fjölskylda Hannes kvæntist 31.8. 1944 Krist- ínu Jónsdóttur, f. 3.4. 1919, d. 14.6. 2002, húsmóður. Hún var dóttir Jóns Valdimars Jóhannessonar, f. 21.9. 1873, d. 15.6.1959, sjómanns frá Hellissandi, og Hildar Sigurðardótt- ur frá Hraungerði á Hellissandi, f. 14.4. 1885, d. 24.2. 1962, húsmóður. Synir Hannesar og Kristínar em Sverrir, f. 13.8. 1944, stýrimaður og skipstjóri og nú flutningastjóri hjá Samskipum hf., kvæntur Helgu Vallý Björgvinsdóttur, f. 20.9. 1945, og eiga þau tvö böm, Hannes, f. 10.6. 1969, verkfræðing, og Sigur- laugu, f. 1.3.1973, flugfreyju en mað- ur hennar er HaUdór Hafsteinsson, f. 20.4. 1970, viðskiptafræðingur; Tómas, f. 22.11. 1945, starfsmaður hjá Þrótti. Albræður Hannesar: Martin Brynjólfur, f. 17.6. 1915, d. 1.1. 1976, útgerðarmaður i Vestmannaeyjum; Jóhannes, f. 13.3.1921, fyrrv. banka- starfsmaður í Vestmannaeyjum. Hálfsystkini Hannesar: Guðjón Tómasson, f. 29.9. 1925, d. 2.12. 1977, radíóvirki; Magnea Rósa Tómas- dóttir, f. 20.9. 1928, fyrrv. apótekari i Nesapóteki á Seltjamamesi; Gerð- ur Erla Tómasdóttir, f. 21.2. 1933, fyrrv. gjaldkeri hjá Slippfélaginu í Reykjavík hf.; Bragi Tómasson, f. 4.3. 1939, d. 2.8. 2002. Foreldrar Hannesar vom Tómas Maríus Guðjónsson, f. 13.1. 1887, d. 14.6. 1958, útgerðarmaður í Vest- mannaeyjum, og k.k., Hjörtrós Hannesdóttir frá Miðhúsum, f. 20.2. 1888, d. 26.3. 1926, húsmóðir. Seinni kona Tómasar var Sigríð- ur Magnúsdóttir, f. 4.10. 1899, d. 18.9. 1968, húsmóðir Ætt Tómas var sonur Guðjóns, b. í Sjólyst í Eyjum, Jónssonar, b. í Skál undir Eyjaíjöllum, Tómassonar, hreppstjóra í Teigi i Fljótshlið, Jónssonar. Hjörtrós var dóttir Hannesar Jónssonar, lóös í Vestmannaeyjum, sem talinn var elsti starfandi lóðs í heiminum á sínum tíma. Stórafmæli 95 ára Oddur Sigurðsson, Borgarbraut 65, Borgarnesi. 90 ára Þurlður Stefánsdóttir, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík. 85 ára Björg Sóley Rfkarðsdóttir, Lágholti 23, Mosfellsbæ. Valur Guðmundsson, Hringbraut 50, Reykjavík. Þórlaug Bjarnadóttir, Lönguhlíð 3, Reykjavík. 80 ára Bjöm Kristjánsson, Miklaholtsseli 2, Borgarnesi. Marfa Guðmundsdóttir, Lindargötu 26b, Siglufirði. Þórólfúr Helgason, Tungu, Sauðárkróki. 75 ára Gísli Þorleifsson, Hofsá, Dalvík. Guðrún S. Kristjánsdóttir, Árskógum 8, Reykjavík. Svava Auðunsdóttir, Samtúni, Reykholti. 70 ára Auður Sigurðardóttir, Reynihvammi 2, Hafnarfirði. Bruno M. Hjaltested, Borgartúni 30a, Reykjavík. Elsebeth Finnsson, Melseli 22, Reykjavík. Guðrún Esther Halldórsdóttir, Engjahlíð 1, Hafnarfirði. Reynir Lárusson, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík. Unnur Haraldsdóttir, Blikahöfða 5, Mosfellsbæ. 60 ára Aðalsteinn Karlsson, Baughóli 25, Húsavík. Erling Jóhannesson, Furuhlíð 13, Hafnarfirði. Jón Magnússon, Egilsbraut 12, Þorlákshöfn. Unnur Sigurðardóttir, Reykjavegi 65, Mosfellsbæ. 50 ára Elinborg Sigurðardóttir, Iðu 3, Selfossi. Elfsabet Ingibergsdóttir, Hringbraut 78, Hafnarfirði. Guðríður Björg Guðfinnsdóttir, Glæsivöllum 6, Grindavík. Jóhannes Þór Ingvarsson, Jöklafold 12, Reykjavík. Jón Magnl Sigurðsson, Neðstaleiti 7, Reykjavík. Magnús Óskarsson, Hlíðarvegi 13, Grundarfirði. Óskar Kárason, Góuholti 11, (safirði. Sigríður Jóna Friðriksdóttir, Baughúsum 22, Reykjavík. Sigrún Jónsdóttir, Oddeyrargötu 32, Akureyri. Sigurður Þorkelsson, Hlíðarvegi 22, Kópavogi. Þórhallur Jóhannesson, Laugarnesvegi 100, Reykjavík. 40 ára Auður Anna Torfadóttir, (shússtíg 3, Keflavík. Ásta Sfgfúsdóttlr, Spóaási 15, Hafnarfirði. Bára Friðriksdóttir, Arnarheiði 7b, Hveragerði. Ester Auður Elfasdóttir, Skipasundi 82, Reykjavík. Guðjón Gfsli Guðmundsson, Hrauntungu 16, Kópavogi. Jens Hansson, Barðavogi 20, Reykjavík. Jens Ólafsson, Heiðarvegi 17, Keflavík. Klara G. Sigurbjörnsdóttir, Flúðaseli 77, Reykjavík. Kolbrún Anna Jónsdóttlr, Aflagranda 26, Reykjavík. Oddur Gunnar Hauksson, Galtalind 6, Kópavogi. Rúnar Sigurjónsson, Laufengi 154, Reykjavík. Sigrfður Inga Elfasdóttlr, Völusteinsstræti 9, Bolungarvík. Sigrfður K Þorbjömsdóttir, Grænási 3a, Njarðvík. Smárl Garðarsson, Árvöllum 5, (safirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.