Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Side 8
8
Magasín
Fimmtudagur 30. október 2003
Foreldrar vikunnar
er
Hji
QQQqQ
OOQQqQQ
Hlfðasmára17, Kópavogí
Sími: 564-6610
www. aiiírkrakkar, is
Gefin voru saman í Laufáskirkju þann
26. júlí síðastliðinn, af séra Pétri Þórar-
inssyni, þau Hallgrímur Öm Karlsson
og Gunnhildur Lily Magnúsdóttir. Með
þeim á myndinni er Hrefna Lily dóttir
þeirra. Fjölskyldan er búsett í Svíþjóð.
Gefin voru saman í Dómkirkjunni í
Reykjavík þann 20. ágúst sl. af sr.
Hjálmari Jónssyni, þau Edda Herdís
Guðmundsdóttir og Hörður Kvaran
sem búsett eru á Seltjamamesi. Með
þeim á myndinni em synimir Ari og
Kári.
NÝGIFT: „Hárið er ljóst, en hver veit nema seinna verði það rautt eins og mamman hefur," segir Dagrún Ingvarsdóttir, hér
með Jósef Antoni Skúlasyni eiginmanni sínum og dótturinni Evelyn Þóm.
Grafarvogsstúlka
og gifting í laumi
Þegar þau Dagrún Ingvarsdótt-
ir og Jósef Anton Skúlason báru
dóttur sína til skírnar í Selfoss-
kirkju sl. sunnudag lumuðu þau
á leyniatriði í pokahorninu.
Ekki nema örfáir vissu hvað til
stóð; að þau hygðust láta gifta
sig í leiðinni.
„Jósep þurfti ekkert að biðja mín.
Við vorum búin að ákveða fyrir
löngu síðan að gifta okkur um leið
og fyrsta barnið yrði skírt. Hins veg-
ar neituðum við því við alla að
þetta stæði til þegar við vorum
spurð. Aðeins móðir mín og pabbi
Jósefs vissu hvað til stóð, en þau
voru svaramenn við athöfnina,"
segir Dagrún.
Nánasta fjölskylda
Dóttir þeirra Dagrúnar og Jósefs,
sem fæddist 27. ágúst, var skírð
Evelyn Þóra. Heitir stúlkan í höfuð-
ið á föðurömmu pabbans, en hún
Við vorum búin að
ákveða fyrir löngu síðan
að gifta okkur um leið
og fyrsta barnið yrði
skírt.
er bresk að ættum. „Af því þetta er
ekki íslenskt nafn og ekki við'ur-
kennt hér urðum við að fá sérstakt
samþykki mannanafnanefndar og
það fengum við formlega ekki fyrr
en síðasta föstudag," segir Dagrún.
Við athöfnina í Selfosskirkju um
helgina voru aðeins um tuttugu
manns, það er nánasta íjölskylda.
„Við Jósef erum bara þannig fólk að
við viljum sem minnst umstang og
hlutina yfirlætislausa. En auðvitað
er líka mjög gaman að fara í brúð-
kaup sem talsvert er lagt í. Þau eru
hins vegar ekki okkar stfll."
Augnsvipur frá pabbanum
Dagrún er rekstrarfræðingur að
mennt og starfar við bókhald hjá
Farmaco sem er fyrirtæki í bygging-
ariðnaði. Jósef er hins vegar húsa-
smiður og er með hamarinn á lofti í
byggingaframkvæmdum í Grafar-
holti. „Við erum bæði frá Selfossi
og mér fmnst ekkert ósennilegt að
við setjum okkur þar niður í fram-
tíðinni. Hins vegar líkar okkur afar
vel hér í Grafarvoginum þar sem
við búum í dag.“
Allt hefur gengið vel með dóttur-
ina, fyrir utan smáveikindi
skömmu eftir fæðingu sem ollu því
að hún þurfti að vera nokkra daga á
vökudeild. „En síðan hefur allt
gengið í haginn. Ég veit ekki hverj-
um ég á að segja að hún líkist; það
eina sem við sjáum er sterkur
augnsvipur frá pabbanum. Hárið er
Ijóst, en hver veit nema seinna
verði það rautt eins og mamman
hefur." sigbogi&dv.is
Sex ár eru liðin síðan Jóna
Svava Sigurðardóttir og Krist-
inn Helgi Guðjónsson kynntust
fyrst, en það var á skemmtistað
í Reykjavík. Strax blikaði á auga
þeirra beggja - og ekki varð aft-
ur snúið.
Ástin kviknaði og nú í lok sept-
ember gengu þau í heilagt hjóna-
band. „Þetta var sannkaliaður
hamingjudagur lífs okkar," segir
Jóna Svava en þau Kristinn voru
gefm saman af sr. Þórhalli Heimis-
syni. Brúðkaupið fór fram í Garða-
kirkju á Álftanesi þann 27. septem-
ber síðastliðinn. „Það er afar falleg
kirkja þar sem sést líka vel yfir
Hafnarfjörðinn okkar,“ segir brúð-
urin í samtali við DV-Magasfn.
Flauta og píanó
Þau Jóna Svava og Kristinn koma
hvort úr sinni áttinni. Kristinn, sem
er Reykvíkingur og vélfræðingur að
mennt, starfar sem slfkur hjá
Granda hf. Brúðurin er hins vegar
tónlistarkennari og kennir við Víði-
staðaskóla íHafnarfirði.
„Já, ég get spilað á hljóðfæri; það
er á flautu og píanó. Ég sleppti því
hins vegar alveg að spila íyrir gesti í
brúðkaupinu," segir Jóna og hlær.
Þau Kristinn eiga eitt barn, son-
inn BrynjarÁrna sem erþriggja ára.
Rauðhærður prestur
„Athöfnin í Garðakirkju tókst
afar vel og var falleg," segir Jóna
Svava og segir að prestinum, sr.
Þórhalli Heimissyni, hafi mælst vel.
„Hann talaði meðal annars til
stráksins okkar sem er rauðhærður
og sagði að þeir sem væru með
þannig háralit væru einatt stilltir og
prúðir. Sjálfur er Þórhallur rauð-
hærður og eins margir í fjölskyldu
okkar og vinahópi. Þessi orð hans
féllu því í afar góðan jarðveg.“
Tíu dagar á Krít
Brúðkaupsveislan var haldin á
Garðaholti sem er skammt frá
Garðakirkju. Tókst veislan vel - og
segir Jóna Svava að hápunkturinn
hafi líklega verið þega stöllur henn-
ar í Kvennakór Hafnarfjarðar komu
á svæðið sem leynigestir og sungu
nokkur lög til heiðurs þeim brúð-
hjónunum. Það hafi verið ánægju-
legt.
„Fáum dögum seinna fórum við
svo í brúðkaupsferðalag til Krítar á
Grikklandi. Það voru tíu sælir dagar
og ég mæii eindegið með þeim stað
hvert sem er tilefni fólks að fara í
gott frí í sólina," segir Jóna Svava
Sigurðardóttir að síðustu.
sigbogi@dv.is
Jóna Svava og Kristinn Helgi. „Athöfnin í Garðakirkju tókst afar vel og var falleg/
segir brúðurin.
Brúðhjón vikunnar
Sannkallaður
hamingjudagur