Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Síða 13
Fimmtudagur 30. október 2003 Magasín 13 „Mér eldri menn á Al- þingi hafa auðvitað margfalt meiri lífs- reynslu á að byggja og ég geri mér grein fyrir mínum takmörkunum." Jafnrétti til náms þarf að tiyggja Ágúst Olafur er meðal þeirra þingmanna sem telja að þörf sé að gera verulega bragarbót í mennta- málum þjóðarinnar. Alþjóðlegur samanburður sýni að ísland stend- ur sig ekki þegar kemur að fjár- magni á hvern nemanda og því þurfi að gera miklu betur í þessum málaflokki. Allt of margir flosni upp úr framhaldsnámi og færri ljúka námi hérlendis en í samanburðar- löndunum. „Umræða um hugsanleg skóla- gjöld við Háskóla íslands, sem Páll Skúlason opnaði nú um helgina á háskólahátíð, vekur með mér ugg. Þessi viðhorf koma ekki til af öðru en því að háskólinn er í fjársvelti. Að mér læðist sá illi grunur að verið sé að svelta skólann út í að neyðast til að taka þessi gjöld upp. Hluti af hugmyndafræði margra hægri- manna er einmitt að skólagjöld séu nokkuð sem koma skuli og sé af hinu góða. Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að sporna gegn þessari þróun, sérstaklega hvað varðar skólagjöld í grunnnámi há- skólans. Tel að næstu fimm ár eða svo muni ráða úrslitum í þessu efn- um. Þessi umræða væri ekki í gangi ef háskólinn hefði nægt fjármagn til að sinna sínum skyldum vel. Jafn- rétti allra til náms, óháð efnahag, þarf að vera tryggt." Eymdin stakk í augun Eitt af mörgu því sem Ágúst Ólaf- ur segir að hafi aukið þroska sinn og víðsýni eru ferðalögin. „Ef fólk vill læra eitthvað um lífið er upp- lagt að leggjast í ferðalög en ekki eingöngu að grúfa sig niður í bæk- ur. Maður á að reyna að kynnast aðstæðum fólksins frá fyrstu hendi og ræða við það.“ Eins og segir hér að framan hefur Ágúst Ólafur ýmsar slóðir veraldar- innar fetað, en nefnir sérstaklega ferð sem hann og bróðir hans fóru um lönd SA-Asíu árið 1998. í þeirri ferð fóru þeir um Indland, Nepal, Víetnam, Kambódíu, Laos, Tafland, Malasíu, Singapore, Indónesíu, Brunei, og enduðu austur í Japan. „Þessi ferð var fróðleg og þá sér- staklega að koma til Indlands. Þar stakk fátækt fólksins og hin mann- lega eymd í augun. En líka vakti það athygli mína hvað fólkið var samt-lífsglatt og bjartsýnt þó að- stæður þess væru mjög bágar í mörgum tilvikum. Að sjá þetta hafði mikil áhrif á lífsviðhorf mfn og ég varð eindregnari í þeirri af- stöðu minni að við ættum að Ieggja meira af mörkum til þróunarhjálp- ar. Rétt eins og hér heima; við eig- um að gera miklu betur við það fólk sem höllustum fæti stendur og það eru allt of margir." Ekki fórnarlömb flokksagans I kosningunum sl. vor gerðist það að konum sem sæti eiga á Al- þingi fækkaði nokkuð og þótti mörgum það vera bakslag f jafn- réttisbaráttuna. Á hinn bóginn „Háskólinn er í fjársvelti og að mér læðist sá illi grunur að verið sé að svelta skólann út í að neyðast til að taka skólagjöld upp ... Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að sporna gegn þessari þróun.“ mörkuðu úrslit kosninganna þau tímamót að aldrei hefur jafn mikið af ungu fólkið verið kjörið til þing- setu; fólk sem er um og undir þrí- tugu. Sú lcynslóð sem í dag stendur í hinu venjulega basli og veraldar- volki; þvf að stofna fjölskyldu, koma sér þaki yfir höfuðið, borga af námslánum og feta sig áfram á vinnumarkaði í krafti menntunar og reynslu. „Ég vona að við unga fólkið, sem nú höfum verið kjörin til þingsetu, náum að koma ýmsum málum í gegn sem víkja að hagsmunum þeirra sem eru á okkar aidri. Mér finnst við hreinlega vera í skuld við okkar kynslóð að því leyti. Það snýr beint að hagsmunum ungs fólks að við tökum nú upp hreinskilnislega umræðu um inngöngu f ESB, tryggja þarf sömuleiðis árangursrík meðferðarúrræði fyrir ungt fólk í vanda, auka réttindi samkyn- hneigðra, gera landið að einu kjör- dæmi og auka frjálsræði í áfengis- málum. Allt eru þetta mál sem snúa að hagsmunum unga fólksins. Þetta er einnig sá hópur sem einna verst fer út úr jaðarsköttunum svo- nefndu - og finnur mjög fyrir skert- um barnabótum, háum leikskóla- gjöldum, háu matar- og húsnæðis- verði og þungri endurgreiðslubyrði námslána. Þessu verður að breyta og hér vil ég að yngsta fólkið á þingi myndi bandalag þvert á flokkslínur til að ná úrbótum fram. I þessum efnum megum við ekki vera fórnar- lömb flokksagans." Meirihlutinn jafnaðarmenn Sambýliskona Ágústs Ólafs er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, laganemi og fyrrum blaðamaður á DV. Þau hafa í vesturbænum búið sér og dótturinni Elísabetu Unu fal- legt heimili og öruggt skjól. „Dóttirin er sautján mánaða og auðvitað verður það að eignast barn til þess að breyta lífi manns og hugsun á allan hátt. Forgangsröð- unin breytist. Og maður fer einnig að hugsa nýja hluti svolítið póli- tískt; furðar sig stundum á því hversu dýrt er að vera með barn á leikskóla; jafn sjálfsögð þjónustu og þetta á að vera. Einnig sér maður hvað hæft starfsfólk í skólakerfinu er mikilvægt," segir Ágúst Ólafur. Bætir við að þau Þorbjörgu dreymi síðan vissulega um það í fyllingu tímans að eignast fleiri börn. „Við Þorbjörg höfum verið bless- unarlega ósammála um margt í pólitíkinni. Sjálfur hef ég alltaf talið mig jafnaðarmann en Þorbjörg er hins vegar hægrikona. En inn við beinið tel ég hins vegar hana vera jafnaðarmann, eins og 60% Islend- inga eru í raun og veru. Þau viðhorf að vilja búa öllum sem jöfnust og bærilegustu skilyrði eiga sér sterkar rætur meðal fólksins í landinu." „Því varð ég að setja hausinn undir mig og hespa þessu af í sumar. Ég náði að Ijúka 25 ein- ingum í sumar. Þetta var svolítill sprettur, en eftir á að hyggja var þetta aðeins skemmtilegt." Að breyta heiminum Fyrir utan stjórnmálin segist Ágúst Ólafur eiga fjölmörg áhuga- mál. Raunar hafi hið pólitíska starf verið sitt helsta áhugamál til skamms tíma. Nú sé það hugarefni orðið að atvinnu. „Vissulega eru það forréttindi þegar atvinna og áhugamál fara saman, en maður verður líka að eiga sér skjól í öðru. Mér er finnst alveg frábært að fara vestur á upp- eldisslóðirnar á Seltjarnarnesi einu sinni í viku og spila fótbolta með gömlu félögunum. Hér heima finnst mér síðan gaman að liggja í sagnfræði. Ferðast þannig í gegn- um aldirnar og kynnast straumum og stefnum - álitaefnum og átök- urn. Af sögunni má alltaf draga mikinn lærdóm og að þekkja til hennar er okkur sem fáumst við stjórnmál mikilvægt. Mest um vert er hins vegar að fólk fari í stjórn- málin vegna hugsjóna um að breyta heiminum til hins betra og þá eru brjóstvitið, hugsjónirnar og réttlætiskenndin það sem hafa verður að leiðarljósi öðru fremur," segir Ágúst Ólafur Ágústsson að síðustu. sigbogi&dv. is AFSLÁTTUR AF PIESEL SKÓm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.