Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Side 14
14 Magasín Fimmtudagur 30. október 2003 Undur veraldar Britney segist bitur Britney Spears sagði í viðtali nú á dög- unum að hún væri bitur í garð karl- manna eftir sambapdsslitin við Justin Timberlake. Britney segir að henni hafi verið brugðið er Justin fór að tjá sig um það hvernig hann svipti Britney mey- dómnum. „Ég veit að ég er ekki samkynhneygð, en samt verð ég alltaf bitur þegar ég hitti nýja menn. í augnablikinu er ég ekki með neinum en ég vonast til að hitta draumaprinsinn og eignast með honum fjölskyldu innan fimm ára,“ er haft eftir Britney. Drullumall í Kína 78 ára kona í Kína hefur greint frá því að hún hafi borðað um það bil 10 tonn af drullu og leðju á síðustu sjö áratugum. Konan segist hafa byrjað að borða drullu þegar hún var átta ára og hefur hún að eigin sögn ekki sleppt úr degi síðan. Konan segist finna til ánægju eftir að hafa borðað drulluna og seg- ir hana mjög holla. Svo mikið er víst að hún er við hestaheilsu - enn sem komið er. Þjófur í prísund Nítján ára japanskur unglingur var handtekinn eftir að hafa reynt að stela 43 pökkum af sígarettum úr sjálfsala. Pilturinn hafði fest höndina í sjálfsalanum og gat með engu móti losað sig. Þegar lögreglu bar að spurði hún drenginn hvað hann væri að gera og hann sagðist einfaldlega vera að ræna sjálfsalann. Eftir margar tilraunir lögreglu tii að losa drenginn var kallað á slökkviliðið sem náði loks að losa hann úr þessari undarlegu prísund Aftur í sviðsljósið Agnetha Faltskog er nú að hljóðrita plötu eftir 16 ára hvíld frá tón- listarbransanum. Þessi fyrrverandi ABBA-stjarna segir að það sé skemmtilegt að vera komin aftur í stúdíó og búist er við því að platan verði gefin út í mars á næsta ári. Faltskog býr á lítilli eyju rétt utan við Stokkhólm og nýtur sín í kyrrðinni þar. Hún byrjaði að vinna að nýju plötunni fyrir þremur árum, en hvort sú verður eins vinsæl og þær sem hún hljóðritaði með ABBA forðum daga verður bara að koma í ljós. Alexandra í tíma- mótabíltúr Danska prinsessan Alexandra, sem gift er yngri bróður Friðriks krónprins, Jóakim, og á með honum tvö böm, brá sér nýlega í bíltúr sem hún segir vera mesta og skemmtilegasta bíltúr sem hún hafi nokkm sinni farið í. Farar- tækið var Porsche GT3, sem í sumar var sýnd- ur hérlendis. Þetta gerðist þegar hún heim- sótti, ásamt vinkonu sinni, bílasýninguna „Racing Event" í sýningarhöllinni Bella Cent- er. Sá sem þessar línur ritar rengir ekki orð prinsessunnar því að hann ók sjálfitr slíkum bil hérlendis. Til ham- ingju, Alexandra! Líf og yndi Danir vilja óvenjuleg sumarhús Leita að Emil í Kattholti Danirtelja sænska sveitaróm- antík mjög eftirsóknarverða, og þegar þeir sem hafa á því efni leita eftir sveitabýli eða sumarhúsi horfa þeir ekki síst yfir sundið, á Skán í Svíþjóð. Þetta er ámóta og á íslandi, þar sem allir vilja nú eiga sumarhús fyrir austan fjall eða uppi í Borgarfirði. Nýja brúin yfir Eyrarsund auð- veldar Dönum leitina að sælureit í sveitinni. Hús og jarðir á Skáni eru ódýrari en sumarhús á dönsku strandlengjunni við Eyrarsund. Eft- irsóknin hefur aukist um 15% á síð- ustu þremur ámm og hafa á því tímabili selst yfir 2.000 eignir til Dana. Þeir hafa stofnað með sér félagsskapinn Danske torpare sem hefur blásið út og á síðasta ári bættust við yfir 1.000 nýir meðlim- ir. Ekta sænskt eins og Kattholt Danir vilja hafa húsin ekta sænsk, og helst yfirgefin býli frá 19. öld, eða eins og þeir hafa séð í kvik- myndunum um prakkarann Emil í Kattholti sem á að hafa búið á Skáni, samkvæmt sögum Astrid Lindgren. Þær kann hvert einasta mannsbarn í Iöndum Skandinavíu og raunar mun víðar. Eða geta ekki Danir vilja hafa húsin ekta sænsk, og helst yf- irgefin býli frá 19. öld, eða eins og þeir hafa séð í kvikmyndunum um prakkarann Emil í Katt- holti. allir haft yfir sögurnar um þennan litla pottorm sem skotið var út í smíðaskúr í refsingarskyni eftir hvert prakkarastrik? Þar tálgaði hann í hverri betmnarvist litla spýtukarla - sem á endanum vom orðnir því sem næst óteljandi margir. Rauð timburhús með lítilli ver- önd með hvítum köntum og horn- um, rétt eins og Lonneberga, en það hét heimili Emils á sænsku. En „einkakattholtið" má ekki vera lengra burtu en sem svarar tveggja tíma akstri frá Helsingborg. Þarf helst vera í suðurhluta Smáland- anna, Norður-Skáni, Vestur-Blek- inge eða suðurhluta Hallands. Vilja engin þægindi Sumir Dananna vilja alls ekki nútímaþægindi í húsin, eins og kló- sett og sturtu, og helst ekki renn- andi vatn. Best er að sækja það í bmnn, sem þó má ekki vera of langt í burtu. Það er nefnilega eng- in vinnukona lengur á bænum sem er skotin í vinnumanninum. Dan- irnir vilja heldur ekki neinn þjóð- veg í nágrenninu, en við það sætta Svíar og Þjóðverjar sig sem þarna kaupa hús. En þessi hús kosta skildinginn, eða allt að níu milljónum króna, Standi þau við vatn með skógi í kring má bæta tveimur milljónum króna við verðið. Skyldi engum Dana hafa dottið í hug að leita í Sví- þjóð að Sjónarhóli Línu Langsokks, Villa Villekulla? Þessi undarlegi vemleiki frá Skandinavíu leiðir huga okkar að öðm. Hvernig geta íslenskar sögur eflt sumarhúsabyggðirnar? Geta Borgfirðingar ekki haldið einhverjum sögum á lofti sem draga enn fleiri í héraðið til að byggja sér þar sumarhús? Og munu draugasögur þær sem Sunnlend- ingar kynna nú sérstaklega heillað fólk svo rækilega upp úr skónum að fólk vilji hvergi annars staðar eiga sér sælureit í sveit. gg@dv.is KATiHYLTINGURINN: Emil með systur sína fdu í kerrunni og ef til vill er þetta eitt af ótal mörgum prakkarastrikum hans. Fáar sögur fyrr og síðar hafa notið viðhka vinsælda og ævintýri Emils og nú eru þau meira að segja farin að stjórna sumarhúsakaupum í Skandinavíu. Stór pizza með 4 áleggstegundum Aukaálegg að eigin vali kr. 150 r Smáauglýsingar $ py í 550 5000 { við birtum - ^ það berárangur ^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.