Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2003, Blaðsíða 16
16 Magasín Fimmtudagur 30. október 2003 Líf og yndi Eyjólfur Sverrisson knattspyrnukappi kominn heim KÓPAVOGSBÚI: Eyjólfur Sverrisson, leikmaður með Tindastóli, Stuttgart, Beziktas og Herthu Berlín auk landsliðs fslands. „En það hefur ekki verið kæft enn þá að ég leiki einn leik með Tindastóli og nái 100 leikja markinu. Kannski verður það bara 10 mínútur og ein snerting við boltann," segir Eyjólfur hér í viðtaiinu. ert á þegar menn voru að skjóta upp í loftið. Ég var leigður frá Stutt- gart til Beziktas, en svo seldur til Berlínar og ætlaði að vera 3 ár hjá Herthu Berlín, enda strákurinn kominn í skóla hér heima, en það lengdist upp í 8 ár. En nú er ég loks- ins kominn heim, enda tími til kominn, 35 ára gamall. Ég vildi hætta áður en fólkið f stúkunni segði: Nei, sjáðu gamla manninn, hann er enn þá að drattast þarna í vörninni." Eyjólfur segir að á þeim tíma sem hann spilaði með Herthu hafi verið mikil uppbygging hjá liðinu, meðal annars hafi það verið með milli- göngu Sport-Five sem keypti Eyjóíf frá Stuttgart. „Christoph Daum, sem þjálfaði hjá Stuttgart, hvatti mig til að fara til Berlínar því að hann kæmi á eftir mér. En Dieter Höenes var ráðinn svo að ekkert varðafþví." „En þegar maður fór að finna graslyktina á vorin vaknaði knattspyrnu- áhuginn, og þegar slyddan fór að berja mann í andlitið á haustin byrjaði körfuboltinn. En ég var mikið að hugsa um að hætta í fótboltan- um og æfa körfubolta einnig yfir sumartím- ann.“ Ungur maður frá Sauðárkróki skorar sex mörk með 21-árs landsliði fslendinga í knatt- spyrnu í landsleik á Akureyri gegn Finnum. Áhugi á frammi- stöðu hans er vakinn erlendis og njósnarar frá liðum í Þýska- landi, Belgíu og Noregi reyna að fá hann í sínar raðir Leikmaðurinn sem lék með 2. deildar liði Tindastóls á Sauðár- króki er á leiðinni út í frægðina og framann. Án þess að hafa leikið með úrvalsdeildarliði á íslandi. Og verður líklega aldrei úr því sem komið er. En leikirnir með Tinda- stóli urðu 99 talsins, og nú þegar at- vinnumannsferlinum er lokið kitlar það að leika einn leik í viðbót, ná 100 leikja markinu. Fótbolti eftir kvöldmat Eyjólfur Sverrisson heitir þessi maður, sem hleypti heimdragan- um skömmu eftir stúdentspróf á Sauðárkróki. Hann segir það ekki hafa vakað fyrir sér lengi að verða atvinnumaður í knattspyrnu, enda að spila í annarri deild. Þá byrjaði dagurinn á sumrin með vinnu í tré- smiðjunni, síðan var hlaupið heim um kvöldmatarleytið til að ná fót- boltaæfingu. Til baka eftir hana til „Ég vil meira samspil við A-landsliðið, að spilað sé svipað kerfi. Enda á 21 -árs liðið að vera undirbúningur fyrir A- liðið eða atvinnu- mennsku. Á þessum tíma eru strákar að taka út sinn mesta þroska.“ að sinna einhverri næturvinnu í að minnsta kosti tvo tíma. Á þessum tíma taldi Eyjólfur að næturvinnan mundi skila sé aftur. Hugmyndin var að fara í skóla í Reykjavík. Geta í knattspyrnu ætti að stuðla að því að fá íbúð og bfl í náminu en aukavinnan gæti þá orðið einhver vasapeningur. Sveigjanlegur í hugsun „Von um atvinnumennsku blundar alltaf í strákum sem stunda knattspyrnu af einhverri al- vöru," segir Eyjólfur. „Þetta er orð- ið nær en var áður, strákar eru mik- ið að fara út til reynslu til erlendra liða í dag. Á þessum tíma fyrir norðan var ég líka í körfuboltanum og hafði kannski meiri áhuga á þeirri íþrótt á þessum tíma. En þeg- ar maður fór að finna graslyktina á vorin vaknaði knattspyrnuáhug- inn, og þegar slyddan fór að berja mann í andlitið á haustin byrjaði körfuboltinn. En ég var mikið að hugsa um að hætta í fótboltanum og æfa körfubolta einnig yfir sum- artímann. En menn eins og Páll Ragnarsson og Bjarni Jóhannesson, nú þjálfari Blika, voru alltaf að hvetja mann til knattspyrnuiðkun- ar. Enda erfitt að vera í báðum íþróttum. Mér fannst ég alltaf vera betri körfuboltamaður en fóltbolta- maður! En maður þarf að vera mjög sveigjanlegur í hugsun, það sann- aðist þarna." Víkingurinn sem varð ekki körfuboltamaður Á sínum tíma fór Eyjólfur í tíu daga æfingabúðir til Stuttgart og var eftir það boðinn samningur sem hann þáði. Brann í Noregi og Lokeren í Belgíu höfðu þá einnig boðið Eyjólfi í sínar raðir. „Ég var hjá Stuttgart í 5 ár, síðan eitt ár í Tyrklandi hjá Beziktas og 8 ár hjá Herthu Berlín. Ég fór út fyrir tilstilli Henson, Páls Ragnarssonar og Ásgeirs Sigurvinssonar. Það má segja að þeir beri sameiginlega ábyrgð á því að ég varð ekki körfu- boltamaður," segir Eyjólfur og brosir. í Þýskalandi var hann yfir- leitt kallaður víkingurinn, en ís- lendingar í fótboltanum eru yfir- leitt kallaðir ísmenn eða víkingar. Miklar öfgar milli gleði og haturs - Islendingar líta stundum á Tyrki sem hálfgerða villimenn. Hvernig komu þeir þér fyrir sjónir? „Þetta er allt annar heimur; önn- ur trúabrögð og lífsstfll. Mér leið alls ekki illa í Tyrklandi og var fljót- ur að aðlagast þjóðlífinu þarna. En þarna er spilaður mjög „agressívur" fótbolti, og það hentaði mér, ég var sjálfur harður í horn að taka og lét andstæðingana finna fyrir mér. Evrópuhluti Tyrklands er alls ekki svo fjarlægur okkur en þegar komið var upp í fjöllin var komið í allt annan heim. Pressan var mikil, krafist var sigurs í hverjum leik og þegar Beziktas varð svo meistari í Tyrklandi varð allt vitlaust. Enda ekki orðið meistarar í 24 ár. Það varð líka allt vitlaust þegar leikur tapaðist, þarna eru miklar öfgar milli gleði og haturs. Mér leist ekk- Tíu mínútur og ein snerting Úrvalsdeildarlið hérlendis leit- uðu eftir því að fá Eyjólf í sínar rað- ir, en hann ákvað að taka sér frí. Nefnt var við hann að taka að sér þjálfun á Fylki. Segir hann það ekki hafa verið hugsað sem verkefni með bróður sínum, Sverri, sem hef- ur leikið með Fylki. „En það hefur ekki verið kæft enn þá að ég leiki einn leik með Tinda- stóli og nái 100 leikja markinu. Kannski verður það bara 10 mínút- ur og ein snerting við boltann. Ég er nú þjálfari 21-árs landsliðsins auk þess að sinna sparkvalla- og út- breiðsluátaki KSÍ. Ég hafði þetta alls ekki í sigtinu þegar ég kom heim þótt ég hefði áhuga á þjálfun. Ég tek þetta verkefni að mér af krafti. Ekki neinu hálfkáki og til að hafa bara eitthvað að gera. Það verður dregið í riðla í desember og ég ætla að mynda mér skoðun á þeim leikmönnum sem koma til greina, og fara á leiki og fylgjast með. Ég vil meira samspil við A- landsliðið, að spilað sé svipað kerfi. Enda á 21-árs liðið að vera undir- búningur fyrir A-liðið eða jafnvel atvinnumennsku. Á þessum tíma eru strákar að taka út sinn mesta þroska sem leikmenn". Á HK-svæðinu Kópavogsbúinn Eyjólfur Sverris- son á tvo syni. Sá eldri er 13 ára og leikur með HK en sá yngri er fjög- urra ára og segist æfa með HK, Liverpool og Herthu Berlín! Búast má því við Eyjólfi meðal stuðnings- manna HK í framtíðinni. gg&dv.is r r r •• ODYR SIMTOL TIL UTLANDA fleiri lönd - fleiri mínútur ATLAS FRELSI INTERNATIONAL CALLING CARD More countries - more minutes • less price ALÞJOÐLEGT SIMAKORT fæst hjó Olís um land allt 220 mín. til 8 helstu landa r A vefsíðunni www.atlassimi.is er að finna gjaldskrá og sölustaði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.