Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Glæpur
skekur
Kárahnjúka
Lögregla rannsakar nú
rán sem var framið í versl-
un á Kárahnjúkasvæðinu í
fyrrinótt. Samkvæmt heim-
ildum var um-
talsverðu fé
stolið og ganga
þjófarnir lausir.
Innbrotið
var framið í lítilli verslun í
eigu Impregilo s'erri ekki var
enn búið að opna formlega.
Eitthvað fé var þó geymt á
staðnum og munu þjófarn-
ir hafa horfið á brott með
það. Mun lögregla flýta
rannsókn eftir megni þar
sem meirihluti erlendra
starfsmanna á svæðinu fara
í tveggja vikna jólafrí til síns
heima í dag og næstu daga.
Upplýsingafúlltrúi
Impregifo, Ómar R. Valdi-
marsson, neitaði að tjá sig
um málið.
Ekki til
Betlehem
Yasser Arafat, forseti
Palestínu, fær ekki að fara
til Bedehem um jólin. Ara-
fát hafði hug á að sækja
messu í fæðingarkirkjunni
á jólanótt. Yfirvöld
í ísrael höfnuðu
beiðni Arafats í
gær og er þetta
þriðja árið í röð
sem forsetinn fær
neitun. Arafat hef-
ur verið í stofu-
fangelsi í Ram-
allah, sem er í um 20 kfló-
metra fjarlægð frá Bet-
lehem, síðastliðin þrjú ár.
Hann mun hafa haft að
venju að sækja jólamess-
una í Betlehem en af því
verður ekki nú.
Ástþór Magnússon,
boðberi friðar
Drepa Saddam?
„Viö búum ekki í villimanna-
þjóðfélagi og viljum ekki að
heimurinn sé byggður upp
með villimannslegum hætti.
Auðvitað á að fara með
Saddam Hússein fyrir alþjóða-
stríðsglæpadómstól eins og
aðra stríðsfanga. Mér finnst
ummæli Davíðs, um að drepa
Saddam, út úr kortinu og
skömm fyrir forsætisráðherra
Hann segir / Hún segir
að hafa svona eftir sér."
„Ég vil að hann fái bara sín
réttarhöld eins og allir menn
eiga skilið, sama hversu mikil
voðaverk þeir hafi unnið. Ég er
ekki sammála því að það eigi
að drepa hann, enda á móti
dauðarefsingum.Alþjóðasam-
félagið verður að sjá sóma
sinn íþví að réttlætið nái fram
að ganga."
Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
alþingiskona
Hilmar Sæmundsson sjómaður hafði aldrei tekið upp puttaling þegar hann bauð
Þórarni Inga Tómassyni, námsmanni á Laugum, far í fyrradag. Skömmu síðar valt
bíllinn og námsmaðurinn bjargaði dóttur Hilmars.
„Ég veit ekki hvernig hefði farið ef strákurinn
hefði ekki verið með mér í bflnum. Hann náði að
losa sig og halda höfði dóttur minnar upp úr vatn-
inu,“ segir Hilmar Sæmundsson sjómaður sem
lenti í þeirri skelfllegu lífsreynslu að bfll hans valt
í mikilli hálku á Leiruvegi á Akureyri í fyrradag.
Hilmar var að koma ásamt tveggja ára dóttur
sinni, Helenu Ósk, frá Eskifirði og var förinni heit-
ið til Akureyrar þar sem þau eru búsett. Skammt
frá Laugum tók Hilmar sextán ára námsmann,
Þórarin Inga Tómasson, upp í bflinn.
„Þetta gerðist allt mjög hratt. Bfllinn fór yfir á
rangan vegarhelming, valt og hafnaði á hliðinni í
flæðarmálinu. Ég hugsaði fyrst og síðast um Hel-
enu litlu sem sat í aftursætinu. Ég sá að höfuð
hennar var fyrir neðan vatnsborðið og hrópaði til
Þórarins hvort hann kæmist aftur í. Ég var fastur í
beltinu og gat mig hvergi hreyft," segir Hilmar
Þórarinn skarst illa á hendi við bflveltuna en
tókst með harðfylgi að losa bflbeltið. Hann fór
þegar í stað aftur í og ætlaði að losa stúlkuna úr
bflstólnum. „Ég reyndi en höndin var alveg dofrn.
Það var því ekkert annað að gera en að halda
henni uppréttri þar til sjúkralið kom á vettvang,"
sagði Þórarinn í samtali við DV í gærkvöld.
Bíllinn hafnaði utan vegar Þámá teljast kraftaverk að
þremenningarnir sem voru i bllnum skyldu sleppa jafn vel og
raunin varð. Slysið varð á Leiruvegi i mikilll hálku i fyrradag.
Heil á húfi Hilmar og Helena Úsk sluppu ótrúiega vel úr bilveltu
Hilmar segir ferðina hafa gengið vel en það sé
engu líkara en æðri máttarvöld haft vakað yfir
þeirn feðginum. „Það er afskaplega skrýtið til þess
að hugsa að ég hef aldrei áður tekið upp puttaling.
Ég veit satt að segja ekkí hvað kom yfir mig en ég
verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa gert það.
Þórarinn Ingi á okkar bestu þakkir skildar. Hann
stóð sig með mikilli prýði."
Þórarinn Ingi var á leiðinni heim til Akraness
þar sem hann dvelur í jólafríinu. Fyrir utan hand-
armeíðslin sagðist hann óðum vera að jafna sig.
. Þau þakka ungum námsmanni að ekki fórr verr.
Hann þurfti ekki að taka rútuna suður því Hilmar
keypti fyrir hann flugfar í fyrrakvöld og komst
hann því hratt og vel á heimaslóðir.
„Þetta var ótrúleg lífreynsla og gott að við
sluppum jafnvel og raun ber vitni. Ég gerði bara
það sem allir hefðu gert,“ sagði Þórarinn og vildi
ekki gera mikið úr sínum þætti.
Hilmar og fjölskylda senda Þórarni bestu
kveðjur og eins öllum þeim er komu á slysstað og
aðstoðuðu við björgunina.
arndis@dv.is
€
Færeysk hjón með átta börn í kúlutjöldum
Missa forræði
yfir sex börnum
Færeysk hjón sem grunuð voru
um líkamlegt og kynferðislegt of-
beldi yfir börnum sínum fá ekki for-
ræði yfir þeim. Hæstiréttur stað-
festi f gær niðurstöðu Héraðsdóms
um að hjónin sem komu hingað til
lands í bfl, fengju ekki forræði yfir
þeim börnum sínum sem ekki eru
sjálfráða.
Fólkið kom hingað til lands með
sjö börn í bfl með Norrænu, ók með
allan hópinn suður á land og settist
að á tjaldstæði fyrir utan bæjarfélag
á Reykjanesi. Tjaldaði fjölskyldan
tveimur kúlutjöldum og hafðist þar
við með börnin.
Athygli barnaverndaryfirvalda á
staðnum var dregin að fjölskyld-
unni og kom upp grunur um að for-
eldrarnir beittu börnin líkamlegu
og kynferðislegu ofbeldi. Meðal
annars var konan grunuð um að
beita dóttur sína kynferðislegu of-
beldi. Barnaverndarnefndin svipti
foreldrana forsjá þeirra sex barna
sinna og gekk frá varanlegum fóst-
ursamningum vegna barnanna.
Tvö barnanna eru nú sjálfráða.
Kúlutjöld Færeyska fjölskyldan hélt til islíkum tjöldum þegar barnaverndaryfirvöld
veittu þeim athygli.
Dómurinn telur að miklir ann-
markar hafi verið á málsmeðferð
barnaverndarnefndar staðarins en
úr því hafi verið bætt þegar málið
fór fyrir barnaverndarráð. Þá var
leidd í ljós með aðstoð sérfræðinga,
alvarleg vanhæfni foreldranna og
að ástæða væri til að óttast um
börnin.
Færeysku hjónin búa enn hér á
landi og hafa eignast tvö börn til
viðbótar við þau sjö sem fýrir voru.