Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Blaðsíða 20
X
20 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003
Fókus 0V
Stjörnuspá
Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismað-
ur er 36 ára í dag. „Sjálfsþekking
mannsins og meðvitund munu auðga
líf hans framvegis ef
hann áttar sig á
> líðan sinni og
! finnurtjáningar-
máta sem kemur í
veg fyrir að hann
lendi í einhvers
konar varnar-
stöðu,"
segir í
stjörnu-
spá
hans.
Guðlaugur Þ. Þórðarson
VV Vatnsberinn
VV ------------------------------
Ekki sætta þig við minna en þú
átt skilið eða þráir en þú nærð árangri
með lagni og skynsemi og ættir aldrei að
láta neinn telja þér trú um annað. Hlust-
aðu vel á tilfinningar þínar næstu daga í
stað skynseminnar sem á það til að koma
fram hjá þér ómeðvitað.
H
T
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
Þú ert forrituð/forritaður til að
bæta tilveru þína í sífellu sem er án efa
ágætt í alla staði en það getur einnig
leitt til þess að græðgin komi í veg fyrir
innra jafnvægi þitt.
Hrúturinnf,?;./Mrs-w.opri?;
Ef þú finnur að eitthvað höfð-
ar sterklega til þín um þessar mundir
ættir þú ekki að hika við að vinna í því
en staldraðu jafnframt við og áttaðu þig
á því að umhverfið er oft á tíðum ekki
tilbúið að taka samstundis við því sem
þú hefur fram að færa hverju sinni.
NaUtíð (20.apríl-20.maí)
Ö
n
Þú býrð yfir hæfileika sem
felst í því að taka öllu sem gerist á já-
kvæðan hátt og ættir að nýta þann eig-
inleika hvern dag.
Tvíburarnir (2lmal-21.júnl)
Ef þú tileinkar þér þolinmæði
af alhug finnur þú sannarlega lykilinn
að eigin velgengni en á sama tíma er
þér ráðlagt að sýna staðfestu í verki og
hlúa vel að kærleikanum sem einkennir
þig hérna svo sterkt.
Krabbinng2.j(im'-z?./u/<)________
Jafnvægi ríkir hér þegar
stjarna þín birtist yfir hátíðarnar. Þú
ættir að temja þér að veita því athygli
sem aðrir eru að gera í kringum þig og
ekki hika við að veita þeim viðurkenn-
ingu.
Ljonið (23.júll-22. ágúst)
Ef þú temur þér að huga að
jr- jákvæðum gjörðum sem stuðla að vexti
hjá þér og ekki síður náunganum ein-
kennastávextir verka þinna þegar fram-
t(ð þ(n er skoðuð af gleði, Ifamingju og
ekki síður velgengni/
Meyjan (23. ágúst-22. sept.)
Ekki leyfa þér að láta líf þitt
stjórnast af peningum því þá stíflar þú
framgang mála til betrumbóta hjá sjálf-
n Vogin (23.sept.-23.okt.)
Búðu þig undir stórt stökk í
átt að velgengni. Sættu þig við núver-
andi aðstæður og taktu öllu sem gerist
með réttu viðhorfi án þess að láta skap
þitt eyðileggja fyrir þér á nokkurn hátt.
ni
Sporðdrékinn ^.c*r.-/;.nw
Ef þú lifir í falskri imynd um
eigin mikilfengleika á einhvern hátt
ættir þú að leysa orku þína úr læðingi
og sætta þig við sjálfið eins og þú í
rauninni ert og vittu til, þú munt njóta
þin að fullu og njóta mikilleika tilver-
unnarfull/uraf orku.
/
Bogmaðurinnpznw.
Hættu að vera móðgunar-
gjarn/gjörn og efldu með þér léttlyndi.
Ekki réttlæta langanir þínar fyrir sjálfinu
heldur fullvissaðu sjálfið að þrár þínar
komi til með að rætast í fyllingu timans.
z
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Gleymdu ekki að fortíð þín er
aðeins eign vitundar þinnar og fram-
haldið eftirvænting ein sem þú þýrð til í
eigin hugskoti. Nýttu þér styrk þinn og
efldu sjálfstraust þitt með því að leggja
öðrum lið næstu daga og vikur.
SI»AMAÐUR.IS
Örlagaríkt ár hjá Britney
Spears Öskrar hærra í
ráminu en á sviöi
Poppprinsessan Britney Spears hefur á þessu
ári þurft að svara fyrir margan skandalinn eftir
að hafa áður gefið sig út fyrir að vera óskabarn
Ameríku, óspjölluð mey sem stóð föst á sínu og
sagði auk þess nei við fíkniefnum og áfengi.
Marga grunaði að stúlkan væri ekki öll þar sem
hún er séð og fjöldi uppákoma í kring um príma-
donnuna síðustu mánuði hafa rennt stoðum
undir þær grunsemdir.
Rokkar í rúminu
Samband Justin Timberlake og Britney, sem
var eins konar svar Bandaríkjamanna við David
og Victoríu Beckham hvað fjölmiðlaumfjöllun
varðaði, fór út um þúfur í janúar þegar Justin
hafði fengið nóg af stelpunni. Margir héldu að
þessi kynþokkafyllsti karlmaður Kanaveldis
hefði bara fengið nóg af kynlífskorti enda gaf
Britney sig alltaf út fyrir að vera hrein mey og
þannig ætlaði hún að vera fram að giftingu. Ann-
að kom hins vegar á daginn enda tók Britney
fljótlega saman við handboltarokkarann Fred
Durst, aðafsprautu hljómsveitarinnar Limp
Bizkit. Fljótlega eftir að sögur þess efnis komust
á kreik birtist kappinn í viðtölum þar sem hann
talaði opinskátt um ágæti Britney í bófförum.
„Hún kom labbandi upp að mér í gegnsæjum
bol þannig að geirvörturnar á henni beinlínis
störðu á mig og það var nokkuð ljóst hvað hún
hafði í huga,“ sagði Fred um fyrstu kynni sín af
Britney.
„Hún var líka alveg jafn góð í rúminu og ég
hafði gert mér í hugarlund. Það voru mikil læti í
henni, alger þversögn við glansmyndirnar sem
hafa alltaf verið dregnar upp af henni," sagði
Fred og bætti því við að barmur Britney hefði eft-
ir hans bestu vitund ekki verið lagfærður af lýta-
læknum eins og margir hafa haidið fram.
Kókaín á klósettinu
Samband Britney og Fred Durst entist ekki
lengi og fljótlega eftir að Justin Tim-
berlake tók saman við
leikkonuna Cameron Diaz
snéri Britney sér að Jaret
Leto, sem áður hafði
verið með Diaz.
Kunnugir segja það
bara hafa verið gert
af hefndarþorsta
enda entist sam-
vistin ekki lengi.
Britney snéri sér
þess í stað að
leikaranum Col-
in Farrell sem
hefur verið
þekktur fyr-
ir óheil-
brigt líf-
erni og
segja þeir
sem til
þekkja að
þar sé
ágætis
efni í
nýjan
Robert Downie Jr. í kjölfarið fóru sögur að fljúga
um meinta neyslu Britney enda var það orðin al-
geng sjón að sjá stúlkuna með allt niðrum sig á
heitustu skemmtistöðum Bandaríkjanna. Hún
var svo á endanum gómuð inni á klósetti ein-
hvers klúbbsins þar sem hún var að fá sér kókaín
í nös ásamt vini sínum. í viðtali sagði hún hafa
prófað í þetta eina skipti af forvitni en hún sæi
eftir því í dag.
Næsti kærasti Spears var svo dansari nokkur
að nafni Colombus Short sem yfirgaf ófríska
konu sína til þess að geta verið með
poppprinsessunni. Hann fékk hins vegar
samviskubit og snéri aftur til konu og barns
eftir stutt gaman en Britney, sem átti að
koma fram á MTV verðlaunahátið í Edin-
borg daginn eftir, snéri þess í stað heim
til mömmu grátandi þar sem hún hefur
síðustu vikur hugsað ráð sitt.
Saknar Justin
Nýlega hafa svo birst yflrlýsingar frá
stúlkunni þar sem hún segist harma atburði
ársins og segir mikið þuglyndi í kjölfar sam-
bandsslita við Justin hafa útskýrt þessa
hegðun. Hún hafi byrjað að drekka stíft
en nú sé hún tilbúin að takast á við lífið á
ný. Hvort kossinn frægi við Madonnu sé
hluti af þessu „þunglyndi" stelpunnar
skal ósagt látið en hver veit nema að allt
karlavesenið á árinu hafl hreinlega orðið
þess valdandi að Britney hafi skipt um lið.
Framtíðin ein mun leiða það í ljós.
Britney Spears
Hefur ekki átt sjö dagana sæla
slðan hún hætti með Justin Tim-
berlake i janúar. Á árinu sem senn
liður undir lok hefur hún verið við-
riðin fjölda karlmanna,
-f