Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2003 Fréttir DV Býðursig fram til endurkjörs Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlar að bjóða sig fram til endurkjörs í kosningunum sem fram fara í Rússlandi í mars á næsta ári. Pútín tilkynnti þetta í gær. Talið er að Pútín vinni kosningarnar með yfirburðum. Pútín myndi þannig hefja annað kjörtímabil sitt en reglur segja til um að forsetar megi bara sitja tvö kjör- tímabil. Pútín segist sam- þykkur þeirri reglu. Þá herma fregnir að Kommún- istaflokkurinn og tveir flokkar frjálslyndra ætli að hvetja fólk til að sniðganga kosningarnar. Þessir flokk- ar töpuðu miklu fylgi í kosningum til dúmunnar sem fram fóru fyrir stuttu. Hugmyndin með að snið- ganga kosningarnar er að koma kjörsókn niður fyrir 50% en þar með væru kosningarnar ekki gildar. Dauði Díönu rannsakaður Réttarrannsókn á dauða Díönu prinsessu af Wales hefst á þrettándanum. Dánardómstjórinn í Surrey, Michael Burgess, greindi frá þessu í gær og bætti við að rannsókn á dauða ást- manns Díönu, Dodi Al- Faeyd, hæfist sama dag. Þetta verður í fyrsta sinn sem vitnaleiðslur í málinu fara fram á Englandi og verða þær opinberar. Vonir standa til að rannsóknin leiði í ljós hvað gerðist í raun og veru í París í ágúst 1997. Mohamed A1 Faeyd, faðir Dodis, sagðist í gær fagna þessum tíðindum. Skýrsla í Hafnarfirði sýnir að stúlkum er mismunað í íþróttafélögum. Hörð við- brögð frá formanni íþróttabandalags Hafnarfjarðar. Svipuð skýrsla gerð í Reykja- vík með sömu niðurstöðum. Sleggjudómup ylir íþróflahreyfingunni „Að ráðast á íþróttahreyfmguna, einstök félög og stjórnir með þeim hætti sem gert er í skýrsl- unni er höfundi og vinnubrögðum hans ekki til framdráttar," sagði Jón Gunnar Grjetarsson, for- maður Iþróttabandalags Hafnarfjarðar. Nýleg skýrsla sem greinir frá jafnréttismálum innan íþróttafélaganna í Hafnarflrði hefur valdið mikl- um titringi og ekki eru allir á eitt sáttir um niður- stöðurnar. „Það er þó öllu verra að níða niður uppbyggingarstarf íþróttahreyfingarinnar með sleggjudómum byggðum á röngum forsendum og lélegum vinnubrögðum." Ekkert jafnrétti en engin mismunun Jón bendir á að það sé löngu vitað að færri stúlkur stunda íþróttir en drengir. „Það eru færri konur í stjórnum íþróttafélaga, alveg eins og það eru færri konur í stjórnunarstöðum fyrirtækja og færri konur en karlar á þingi." Jón sagði ekkert mæla á móti því að þessir hlutir séu at- hugaðir. „Það er verð- ugt verkefni fyrir íþróttahreyfinguna og samfélagið í heild sinni að velta fyrir sér hvers vegna ástandið er svona og snúa þró- uninni við.“ „Það stóð til að kynna skýrsluna hlut- aðeigandi aðilum í dag en því var frcstað," sagði Jón og tók fram að ekki væri búið að hafa samband við íþróttafélögin og að ekkert samband hefði ver- ið haft við þau meðan vinna skýrslunnar fór fram. „Það er satt að það er ekki jafnrétti í gangi en það er ekki verið að mismuna eftir kynjum." Jón sagði að Iþróttabandalag Hafnarfjarðar biði eftir um- ræðu um skýrsluna innan bæjarins. „Við viljum ræða hana á faglegum nótum." Jón Gunnar Grjetarsson „Það er satt að það er ekki jafnrétti í gangi en það er ekki verið að mismuna eftir kynjum." Brotalöm í jafnréttismálum „Þessi skýrsla sem var gerð í Hafnarfirði er mjög jákvæð að því leyti að hún sýnir hlutina svart á livítu," sagði Ragnhildur Helgadóttir, jafn- réttisfulltrúi íþrótta og tómstundaráðs Reykjavík- ur. „f könnun sem við gerðum fyrir nokkrum árum komumst við að svipuðum niðurstöðum." Ragnhildur sagði að oft hefði maður á tilfinning- unni að brotalöm væri í jafnréttismálum. „Skýslur sem þessar staðfesta þá tilfinningu." Sem jafnréttisfulltrúi hefur Ragnhildur ekki Ragnhildu Helgadóttir „Þessi skýrsla sem vargerö iHafn- arfirði er mjög jákvæð að því leyti að hún sýnir hlutina svart á hvitu," beinan aðgang að stjórnum íþróttafélaganna. Þar eru ákvarðanir varðandi skiptingu peninga og áherslur teknar. „Sú leið sem við gætum farið er að skilyrða styrkina þannig að þeir renni jafnt til karla og kvenna," sagði Ragnhildur. „Svo höfum við gert þjónustusamninga við íþróttafélögin þar sem við setjum þau markmið að hlutfall kynjanna sé sem jafnast. „Við vinnum líka að jafnrétti í víðari skilningi," sagði Ragnhildur og benti á að meistaraflokkar íþróttafélaganna fái mikið fjármagn meðan for- eldrar eigi alltaf að borga fýrir krakkana. „Starf barna og unglinga á auðvitað að vera niðurgreitt." Barnastarfið niðurgreitt Jón Gunnar benti á að íþróttabandalag Hafn- arfjarðar hefði gert sérstakan samning við bæjar- yfirvöld og Alcan til að efla og styrkja íþróttastarf- ið og bæta aðgengi barna og unglinga að íþróttum „Þeir samningar fela meðal annars f sér að bærinn greiðir félagsgjöld fýrir börn yngri en tíu ára,“ sagði Jón. „Hins vegar greiða bærinn og Alcan sér- stakan styrk til íþróttafélaganna sem fer eftir fjölda iðkenda yngri en sextán ára í hverju félagi og menntunarstigi þjálfara." í gær átti að kynna skýrsluna en því var frestað þangað til á næsta ári. Samkvæmt heimildum DV hefur því ferli nú verið flýtt og stendur til að kynna skýrsluna milli jóla og nýárs. simon@dv.is „Það erþó öllu verra að níða niður uppbyggingarstarf íþróttahreyfingarinnar með sleggjudómum byggðum á röngum forsendum og léleg- um vinnubrögðum." Ég hefþað alveg dásamlegt. Það væri nú mikið vanþakk- læti að vera ekki glaðuryfir þeim viðtökum sem bókin mín fær,"segir Þráinn Bertelsson rithöfundur sem kominn erí Hvernig hefur þú það? jólaskap.„Nú er ekki annað en bara bíða eftirað þau bresti á,"segir hann sæll með sitt. Tölvu stolið af auglýsingastofu - fjögur rán á þremur mán- uðum Auglýsingamaður býðui þjófi 200 þúsund Þekktur auglýsingamaður býður 200 þúsund krónur fyrir þriggja ára gamla fartölvu sem var stolið úr aug- lýsingastofú hans í borginni í gær- morgun. Hann vill ekki láta nafri síns getið af ótta við að fleiri steli frá honum til að fá fundarlaun. Hann er reiðubúinn að borga sjálfum þjófinum fundarlaun og er alveg sama hver kemur með tölv- una. Tölvan sjálf er lítils virði, en það er innihaldið sem skiptir þess meira máli. Þar liggur öll vinna auglýsinga- mannsins síðustu þrjú ár, meðal annars mikilvægt verkefni sem hann er að vinna að þessa dagana. Segir hann innihaldið ekki nýtast neinum öðrum en honum sjálfum. Auglýsingastofan hefur verið rænd fjórum sinnum síðustu þrjá mánuði og hafa ný öryggiskerfi engu breytt. Securitas kemur ekki fyrr en eftir fimm mínútur og þá er þjófur- inn horfinn á brott. Nú íhuga aug- lýsingamennirnir sígild- ar lausnir - að fá sér varðhund. Fundarlaun Gamalli töivu augiýsinga- manns var stolið i gær- morgun. Hann þarfnast gagnanna svo mikið að hann vill launa þjófinum með 200 þúsund krónum fyrir jólin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.