Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2003, Side 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090 SKAFTAHLÍÐ 24 ? 05 REYKJAÁ/ÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMI5SÖ500Q • „Ég ætla að nota peningana til að kaupa hamborgarahrygg og sprengja sjálfan mig,“ segir Örn Árnason sem hættur er að sprengja flug- elda á gamlárs- kvöld. Örn hefur lengi verið með- al helstu sprengjumanna og sjálfur flutt inn púðurkerl- ingar og rakettur. Reyndar voru það kvartanir frá yfirvöldum og nágrönnum sem urðu til þess að Örn ákvað að setja flugeldana á hilluna. Um síðustu áramót fékk hann ekki færri en 15 athugasemdir. Á undangengnum árum hefur Örn eytt milljónum í rakettur og ekki séð eftir krónu: „En núna er ég í einhverri lægð í þessum efnum og ætla að hlus- ta á þá rödd innra með mér sem segir að nú sé nóg komið í bili,“ segir hann Er þetta fótabað? Burt meO skápana Loks hægt að klæOa slg i sokka í Laogar- í undirbúningi er að fjarlægja helming fataskápanna í Laugardalslauginni og setja upp fatageymslu í staðinn. Er þetta gert til að mæta aukinni aðsókn sem fyrirsjáanleg er þegar bætt verður við nýrri laug á heilsusvæðinu sem verið er að byggja upp í Laugardalnum. „Ég lít á þetta sem framfarir því helmingur skápanna verður eftir og því fá fastagestirnir sitt þrátt fyrir breytingarnar. Það er ekki annað hægt en að skipta skápunum út því annars sjáum við einfaldlega fram á að það verði uppselt í laugarnar og það vill enginn," segir Kristján Ögmundsson, forstöðumaður í Laugardalslauginni. Samhliða niðurrifi skápanna verður bekkjum breytt þannig að þverspýta sem þar hefur verið í bakhæð verður fjarlægð en þverspýtan hefur komið í veg fyrir að gestir geti almennilega klætt sig í sokka eftir sundferð. Hafa oft verið gerðar athugasemdir við staðsetningu þverspýtunnar á bekkjunum en þeim ekki sinnt fyrr en nú. „Þá erum við að skoða nýja lása á þá skápa sem verða eftir. Erlendis er þró- unin hröð í þessum efnum og við höfum skoðað ýmsa möguleika. Það á aðeins eftir að taka ákvörðun um hvaða leið verður farin," segir Kristján í Laugardafs- lauginni sem er ánægður með það lásakerfi sem verið hefur í notkun í lauginni um árabil. Fá gestir mynt sem þeir stinga í rauf og kemur það í veg fyrir að lykl- Kristján Ögmundsson í Laugardalslauginni Helmingur skápanna hverfurog bekkirlag- aðir þannig aðhægt verði að klæða sig í sokka án þess að fara i bakinu. um af skápunum sé stolið og lendi í höndum þjófa. Á meðan venjulegt lyklakerfi var í Laugardalslauginni var laugin nær því daglega í fréttum vegna þjófnaðar- mála. Heyrir það nú sögunni til. Kristján Ögmundsson vonast til að gestir taki væntanlegum breytingum vel og verður reynt að stilla raski á starfsemi laugarinnar í hóf á meðan á þeim stendur. www.spil.is STONG HM i Catan 2003 var haldið sl. haust. Fyrir hönd íslands kepptu þeir Bunnar Jóhannsson og Baldur Már Jónsson. Þeir félagar stóóu sig með mikilli prýði og komst Gunnar í 16 manna úrstit. ERT ÞU EFNI I s HEIMSMEISTARA? Catan - Landnemarnir er eitthvert vinsælasta spil í heimi og hefur m.a. verið valið „Spil ársins" í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Árlega er haldið Heimsmeistaramót í Catan. Eftir áramót verður haldið íslandsmót og fara sigurvegarar þess á HM í Catan haustið 2004. Ert þú efni í heimsmeistara? Catan - Landnemarnir kom út í fyrsta sinn á íslensku í fyrra. Nú er hægt að fá stækkun við spilið, sem og framhalds-spilið Sæfararnir. Klaus Teuber, höfundur spilsins, hefur nýlega greint frá því að landnám íslands sé uppspretta Catan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.