Helgarblaðið - 13.03.1992, Blaðsíða 2
blaðiö
Hljómsveit Finns Eydal meZ» söngkonunni Helenu Eyjólfs-
dóttur óriö 1980.
Nýrnasveifla á Sögu
Mikil sveifluveisla
verður haldin í Súlnasal
Hótel Sögu á sunnu-
dagskvöld ld. 21. Veisl-
an er haldin til að safna
fé til að borga gervinýra
fyrír hinn kunna bari-
tónsaxófónleikara Finn
Eydal.
Finnur hefur átt við
mikið heiisuleysi að
stríða að undanfömu og
heíur hann þurft að fljúga
þrisvar í viku frá Akur-
eyri til Reykjavíkur til að
fara i gervinýra. Félagar
hans hafa að undanfömu
safnað fé til kaupa á litlu
gervinýra til að hafa á
Akureyri og er það loks-
ins komið til landsins.
Enn vantar þó herslu-
muninn verður öllum
ágóða af tónleikunum á
sunnudag varið til þess
að greiða það sem upp á
vantar.
Þeir sem koma fram á
tónleikunum eru Sveiflu-
sextettinn, Kristján
Magnússon og hljóm-
sveit; Ami Scheving og
félagar; Bjöm Thorodd-
sen, Steingrímur Guð-
mundsson og þeirra lið;
Kuran swing; Tríó Carls
Möllers með söngvurun-
um Andreu Gylfadóttur,
Ellý Vilhjálms og Ragn-
ari Bjamasyni ásamt
blístraranum Ómari
Ragnarssyni. Síðast en
ekki síst mun hljómsveit
Finns Eydal leika, en auk
Finns em m.a. Ingimar
bróðir hans og Helena
Eyjólfsdóttir eiginkona
hans í hljómsveitinni.
Veislustjórar verða þeir
Hermann Gunnarsson og
Vemharður Linnet en
það er Jazzvakning og
Zonta-systur sem standa
að hljómleikunum.
5T?-
. . .. . ...... .
Hún ætlaði alltaf að verða leik-
kona. Löngunin var kannski
ekki ævinlega jafii brennandi
en hvarf þó aldrei alveg. Efiir
ótal útúrdúra stendur hún nú
hnarreist á sviði Garðaleik-
hússins í Félagsheimili Kópavogs í sínu fyrsta
stóra hlutverki. Þar túlkar hún tildurrófuna Est-
elle í leikriti Jean Paul Sartres, Luktar dyr, í
þýðingu Vigdísar Finnbogadóttur
og Þuríðar Kvaran.
Megi
draumarnir
aldrei rætast
Hverra manna ertu?
Eg er komin af íslenskum sjómönnum og
bændum. lnn í þetta blandast svo meðal annars
danskur kaupmaður og norsk formóðir sem
yfirgaf mann og böm fyrir ástina. Þá þótti það
glæpur.
Heimilishagir?
A götunni.
Aldur, menntun og fyrri störf?
Er yngri en móðir mín. Hef próf í lögfræði og
leiklist. Eg hef verið blaðamaður, kennari,
verkakona, gengilbeina, bilstjóri, hestaleiðsögu-
maður, skúringakona og lögfræðingur; nefndu
það. Er þó ekki enn farin að flokka rusl.
1 hvaða stjörnumerki ertu?
Ég er Vatnsberi.
Hver vildir þú vera ef þú værir ekki þú?
Kleópatra.
Hvað er það besta sem fyrir þig hefur kom-
ið?
Astin.
Hvaða bók lastu síðast?
Vegna hlutverksins í Luktum dymm hef ég ver-
ið á Sartre-fylliríi undanfarið en samtímis því
hafði ég hugsað mér að lúslesa Betra kynlíf. Ég
gaf systur minni þá bók í jólagjöf en hún hvarf
á aðfangadag og ég gruna föður minn um að
vera valdur að hvarfinu.
Hver er þinn uppáhaldsleikari?
Fyrir utan sjálfa mig?
En höfundur?
Sigurður Nordal, fyrir Fomar ástir.
Áttu þér draumahiutverk?
Já, sjö bama móðir.
Hvernig er Estelle í Luktum dyrum?
Hún stígur ekki í vitið, er hégómleg og tilfinn-
ingaköld, sannkallað flagð undir fögm skinni.
Miklar umbúðir utan um ekki neitt. Hún myndi
ekki afbera ellina. Hún er „pest, deigla, blóð-
suga og flagð,” stendur þar. Sem sagt víti til
vamaðar.
Hvernig semur þér við hana?
Leikari verður að elska, virða og skilja þá per-
sónu sem hann túlkar eins og sjálfan sig og
aðra. Annars kviknar engin list, annars er
ekkert líf.
Er eitthvað af henni í þér?
Svona manneskjur ku gera það gott í tilvemnni.
Stundum óska ég þess að ég gæti hagað mér
eins og hún en yfirleitt hangi ég í þeirri rang-
hugmynd að maðurinn uppskeri eins og hann
sáir. Kannski er ég í leiklist til þess að fá meðal
annars tækifæri til að leika slíka tík og fá útrás
fyrir bælda illmennskuna.
A hvaða plötu hlustaðirðu síðast?
Adagio eftir Albinoni.
Ertu með einhverja dellu fyrir utan leiklist-
ardelluna?
Ég er sjúk í ranga menn.
Hvað er hamingja?
Að vakna og sofna með bros á vör.
Er þér meinilla við eitthvað?
Nei, ég umber allt og er meinilla við það.
Hver er þinn helsti löstur?
Ég er draumóragjöm og passa bara ekki inn í
tilvemna.
En kostur?
Að ég er draumóragjöm og passa ekki inn í til-
vemna.
Ertu sú sem þú sýnist?
Nei, miklu betri.
Ertu sátt við tilveruna?
Nei, ég vildi eiga heima í Paradís.
Hefurðu migið í saltan sjó?
Ja, ég hef að minnsta kosti ælt í saltan sjó.
Hvernig heldurðu að sé að búa með þér?
Hræðilegt, nema viðkomandi sé þeim mun blíð-
ari og skilningsríkari.
Ertu matvönd?
Nei. í útlöndum upplifði ég það iðulega að eiga
ekki fyrir næstu máltíð og er því þakklát fyrir
hvem bita sem býðst.
Áttu þér draum?
Já, alltof marga. Og megi þeir aldrei rætast svo
að þeir hætti ekki að vera til.
Ertu handlagin?
Ég er dugleg að sauma en get varla rekið nagla
í vegg. Það er ættgengt.
Hvernig myndirðu verja stóra vinningnum?
Ég gæti hugsað mér að skipta honum í íjóra
jafna parta og þætti gott ef minn hluti dygði
fyrir heimsreisu.
Ertu misskilin?
Herfilega - við fyrstu kynni.
Ferðastu með strætó?
Já, iðulega. Þegar ég er ekki á hjóli.
Kanntu brauð að baka?
Þegar ég var metnaðarfúil húsmóðir á
Táknafirði bakaði ég sex sortir af kökum á viku
en enginn át þær. Mig langar að læra að baka
franskbrauð a la amma.
Fer herinn?
Ég skal spyrja pabba.
Hvað er það sem þú hefur ekki glóru um?
Tækni.
Á hvað stefnirðu?
Að verða hamingjusöm til æviloka og helst
lengur.
Hvenær varðstu hræddust um dagana?
I Israel 11. nóv. 1987 og í Reykjavík 24. sept.
1991 þegar mér var hótað lífláti.
Hvað er fegurð?
Allt það sem gott er, gleður og göfgar.
Hvernig viltu verja ellinni?
í faðmi tuga bamabama sem spyija af hveiju
himinninn sé blár.
Danielle og „Rambó" - meft
flutningalest ril Kúrdistans.
Rambó til
hjálpar Kúrdum
Sylvester Stallone, hálf-
fimmtugur bandarískur kvik-
myndaleikari og heimsþekkt-
ur af aðalhlutverkinu í Ram-
bómyndunum, hefur um
nokkurt skeið látið í ljós leiða
á ímynd þeirri, sem það hlut-
verk og fleiri álíka hafa orðið
honum úti um. Hann hefur
gfc margsagt að hann vilji miklu
heldur láta að sér kveða í
friðar- og líknarstörfum.
Honum verður nú að þeirri
ósk, þar eð hann hefur gengið
til liðs við France-Libertés,
franska líknarstofiiun. For-
stöðumaður þeirrar stoíhunar er
engin önnur en Danielle Mitt-
errand, eiginkona Mitterrands
Frakklandsforseta. Hún hefur
einnig getið sér orðstír sem
talsmaður Kúrda.
Að sögn blaðsins Paris
Match leggur „Rambó“ fljót-
lega af stað með bílalest, sem
flytja skal lyf, sjúkragögn og
matvæli til Kúrda í Norður-Ir-
ak, sem margir líða enn sára
nauð. Er svo að heyra að Stall-
one verði einn þeirra sem hafa
yfirumsjón með flutningum
þessum. Þar fær hann væntan-
lega að sýna hvað í honum býr
á annan hátt en fyrr, þvi að
France-Libertés hyggst með
vorinu senda um 300 vöruflutn-
ingabíla með farmi til íraska
Kúrdistans.
Túrhestarnir
hurfu
Kjötkveðjuhátíð ársins í Rio
de Janeiro stendur nú sem
hæst. í ijóra daga samfleytt
er dönsuð samba, léttklæddar
konur og karlar á götum úti,
ámur á ámur ofan af brasil-
íönskum bjór og hefðbundin
uppgrip hjá vændiskonum,
vasaþjófum og öðru mektar-
fólki.
Það er aðeins eitt sem vantar í
ár - ferðamennimir. Aldrei fyrr
hafa verið jafnfáir ferðamenn á
kjötkveðjuhátíðinni að sögn að-
ila í ferðaþjónustu. Orsökin er
augljós að mati ferðaþjónust-
unnar: Afbrotatíðnin er orðin
þvílík að túrhestamir láta ekki
sjá sig. Aðrir gefa þá skýringu
að almennt ástand efnahags-
mála valdi því að t.d. evrópskir
og bandarískir ferðamenn fari
til nærliggjandi landa ef þeir
yfirleitt ferðast út fyrir land-
steinana og enn aðrir kenna
eyðninni um að hótelin standi
tóm.
Stjómvöld í Rio og ferðaþjón-
ustan hafa reynt að endurlífga
gamla daga með því að banna
strápils og bikini í opinberum
göngum og hvetja dansmeyj-
amar til að kiæðast örlítið
meira en hingað til.
En almenningur í Rio virðist
kæra sig kollóttan þótt túrhest-
ana vanti og lætur það ekki
aftra sér við skemmtunina. Og
fátt bendir til þess að strápilsin
séu komin úr tísku...
Föstudagurinn 13. mars