Helgarblaðið - 13.03.1992, Qupperneq 7

Helgarblaðið - 13.03.1992, Qupperneq 7
Helgar ~1 blaðið Varad við hættunni - en ekkert gert Réttindum fórnað fyrir stundargróða í febrúarsamningum 1990 sendu atvinnurekendur og verkalýðsfélögin frá sér sameiginlega yfirlýsingu um þá aukningu sem þá hafði orðið á svokallaðri verk- takastarfsemi. „Á síðustu mánuðum hefur færst í vöxt, að samskipti launþega og atvinnurekenda hafi verið færð í búning verktakastarfsemi, þar sem launþegi hefur talist undirverktaki Málum atvinnulausra á borðum Félagsmálastofium- ar Reykjavíkur hefur fjölgað til mima undanfarið. Þriðj- ungur þeirra eru svokallaðir „verktakar". Réttindaleysi þessa launafólks hefur kom- ið því sjálfu í opna skjöldu. Atvinnurekendur og verka- lýðsfélög líta það alvarlegum augum að sífellt fleiri láta blekkjast af gylliboðum launagreiðenda um ágæti verktakafyrirkomulagsins. Samfara auknu atvinnuleysi hafa komið upp vandamál sem atvinnu- rekendur og verkalýðsfélög hafa varað við, sem er fjölgun launa- fóiks í „verktakavinnu". Verka- lýðsfélögin hafa kveðið sterkt að orði og sagt að oftar en ekki sé launafólk blekkt til að gerast verk- takar. Viðkomandi atvinnurekandi býður starfsfólki sínu hærri laun, vinni það sem verkfakar í viðkom- andi fýrirtæki. Um leið losnar at- vinnurekandinn við ákveðin launa- tengd gjöld ásamt ýmsum skyldum sem hann hefur gegnt gagnvart starfsfólki sínu. Launafólkið afsal- ar sér hins vegar öllum þeim rétt- indum sem það hefur haft, eins og t.d. slysatryggingum og rétti til at- vinnuleysisbóta. Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands Islands, segir að þessi þróun hafi farið mjög hratt yfir ýmsar atvinnugreinar, og það sé orðið þekkt vandamál í nánast öllum atvinnugreinum að launafólk ráði sig sem „verktaka". „Þetta mál hefur mikið verið rætt innan ASÍ og í okkar samskiptum við atvinnurekendur. Það má segja að þama sé um sameiginlegt hags- munamál að ræða, því það er ekki þeim í hag að þurfa að stunda sam- keppni við aðila sem misnota fólk á þennan veg,“ sagði Ásmundur. Aðspurður hvemig ASÍ brygðist við ef launamaður leitaði til þeirra og segðist hafa verið blekktur í verktakavinnu. sagði Ásmundur ýmislegt skipta máli í því sam- bandi. „Ef hægt er að sýna fram á að niaðurinn hafi verið blekktur í verktakastarfsemi getur hann lík- lega öðlast sín réttindi aftur. í öðr- um tilfellum standa menn frammi fýrir þeirri bláköldu staðreynd að þeir em búnir að afsala sér öllum sínum réttindum," sagði Ásrnund- ur. Sumir örvinglaðir Gunnar Sandholt, yfmnaður íjöl- skyldudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkur, sagði að ijöldi at- vinnulausra sem þangað leituðu vinnuveitenda. Mörg deilumál hafa risið vegna óljósra reglna uin réttarstöðu aðila, ábyrgð þeirra í milli og gagnvart þriðja aðila, auk þess sem rökstuddar gmnsemdir hafa vaknað um undirboð í krafti þessa. Þessi skipan dregur úr gildi félagslegra réttinda samkvæmt kjarasamningum og lögum, henni fylgja vanhöld á gjöldum og skött- um og hún veikir samkeppnisstöðu raunvemlegra atvinnurekenda. Aðilar telja þessa þróun skað- hefði aukist að undanfömu. Það ylli starfsfólki Félagsmálastofnunar sérstöku áhyggjuefni að þriðjungur þeirra ætti engan rétt á atvinnuleys- isbótum. „Þama er um að ræða svokallaða undirverktaka og fólk sem unnið hefur „svarta" vinnu. Þetta fólk þyrfti almennt ekki að leita hingað ef það ætti rétt á atvinnuleysisbót- unum,“ sagði Gunnar. „Málið er að sumt af þessu fólki hefur af and- varaleysi og til að fá nokkrar krón- ur í vasann afsalað sér ýmsum þeim réttindum sem launamaður hefur. Þegar það missir vinnuna stendur það síðan uppi gjörsamlega tekjulaust." Hjá Atvinnuleysistryggingasjóði sagðist Margrét Tómasdóttir hafa orðið vör við að fyrirspumir verk- taka um atvinnuleysisbætur hefðu aukist. „Flestir eru kurteisir og bú- ast svo sem ekki við neinu. Aftur á móti em sumir örvinglaðir og Sveinþór Þórarinsson spyrja á hveiju þeir eigi eiginiega að lifa,“ sagði Margrét og bætti því við að Atvinnuleysistryggingasjóð- ur gæti aðeins vísað þessum ein- staklingum á Félagsmálastofnun. Grétar Þorsteinsson, fomiaður Sambands byggingamianna, sagði að í mörgum tilfellum væri launa- manninum hreinlega stillt upp við vegg. „Atvinnurekandinn sem krefst þess af starfsfólki sínu að það gerist undirverktakar, jafnvel fólki sem í áraraðir hefur unnið hjá fyrirtækinu. er oftar en ekki að spara sjálfum sér ákveðinn launa- kostnað. I sjálfu sér er það ekki skrítið að menn fallist á þetta, þar eð fólki hrýs hugur við slæmu at- vinnuástandi. 1 haust stóð mönnum í byggingariðnaði t.d. ekki annað til boða,“ sagði Grétar. „Að mínu mati er þetta eitt stærsta vandamálið sem heildar- samtök verkalýðsfélaganna standa frammi fyrir. I sjálfu sér er ekkert að því að menn geri ákveðna verk- samninga innan fýrirtækjanna ef rétt er staðið að því. Ef launamaður afsalar sér öllum sínum réttindum fyrir 20-30% hærra kaup er hann um leið að stofna sér og sínum í ákveðna hættu, því „verktakar“ liafa enga baktryggingu ef til áfalla kemur,“ sagði Grétar. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins, sagði að það mætti að sumu leyti líkja verktakaíýrir- komulaginu við svo kallaða svarta atvinnustarfsemi. „Við hjá VSÍ er- um ckki hrifnir af þannig starfsemi, því samkeppnisstaða íýrirtækja er ekki sú sama ef annar aðilinn þarf að taka á sig allar skyldur atvinnu- rekandans en hinn ekki,“ sagði Þórarinn. Aðspurður hvort VSÍ ynni gegn þessari þróun, sagði Þórarinn að heilmikil fræðsla hefði verið í gangi um annmarka þessa fýrir- komulags. „Hins vegar búum við í frjálsu landi og erfitt er um vik að koma í veg fyrir þetta ef menn vilja á annað borð ráða starfsfólk sitt á þessum kjörum," sagði Þórarinn. Engin baktrygging 1 marsmánuði 1990 var fjallað um launainanninn og verktakann í fréttabréfi ASI. Þar var ítarlega ijallað um stöðu launafólks og hvaða réttindi það missti efþað gerðist verktakar. Einnig var lýst þeim atriðum sem skildu í sundur þessa aðila. Samkvæmt túlkun ASÍ eru einkenni verktaka m.a. að hann taki að sér ákveðin verk sem skilast þurfi fýrir ákveðinn tíma. Verkið skuii unnið fyrir umsamið eining- ar- eða heildarverð og það sé fyrst við örugg verklok sem nauðsynlegt sé að greiða verktakanum, sé ekki urn annað samið. Verktaki þarf ckki að vinna verkið sjálfur, hon- um er í sjálfsvald sett hvort hann lætur aðra vinna verkið sem hann hefur tekið að sér, en undir öllum kringumstæðum ber hann þó ábyrgð á verkinu. Einkenni launamannsins eru hins vegar þau að samningar séu gerðir til óákveðins tíma og geta báðir að- ilar sagt honum upp með tilteknum fyrirvara. Atvinnurekandinn skuld- bindur sig til að greiða umsamið endurgjald á umsömdum tíma án tillits til framvindu verksins. Kaup launaniannsins er einnig háð kjara- samningi en ekki hagnaði af fram- leiðslunni. Einnig verður launa- maðurinn að beygja sig undir vinnutilhögun og skipulag atvinnu- rekandans. í áðumefndu fréttabréfi ASÍ er tekið dæmi um launatengd gjöld sem gætu verið hjá verktaka með um tíu manns í vinnu. Hafa skal í huga að sá sem hefur aðeins sjálfan sig í vinnu getur ekki dreift áhættunni, eins og sá sem hefur marga menn í vinnu. Verk- taki sem vinnur einn verður því að reikna sér hærri álagningu vegna veikinda og slysa en eftirfarandi dæmi sýnir eðlilega álagningu á Föstudagurinn 13. mars laun, sé miðað við grunneininguna hundrað krónur. 1. Grcitt tímakaup........ 100.00 kr. 2. Vcikindi og slys..............7.00 - 3. Hclgidagar....................4.59 - 4. Dcscmbcruppbót............. 1.50 - 5. Orlofsuppbót................1.09 - 6. Orlof..................... 14.34- 7. Lífcyrissjóður...............13.05 - 8. Sjúkrasjóður..................1.30 - 9. Orlofssjóður..................0.33 - 10. Ymis gjöld og skattar scm grcidd cru cftirá..13.30 - 11. Fclagsgj. atvinnurck.........2.61 - 12. Aðstöðugjald.................1.61 - 13. lðnlánasjóður................0.57 - 14. Þóknun................... 16.11 - Samtals....................177.40 kr. Virðisaukaskattur................43.46 - Samtals....................220.86 kr. Samkvæmt þessurn tölum frá ASl er um verulega kjararýmun að ræða hjá launamanni sem sam- þykkir verktakavinnu fyrir 20-30% hærri laun. Auk þess verður við- í þjódarsáttarsamning- unum í febrúar 1990 var lýst áhyggjum yfir vaxandi umfangi verktakastarfsemi. lega og andstæða hagsmunum fé- lagsmanna sinna og munu því vinna gegn henni með því að á samningstímanum verði settar skýrar reglur og skiigreining á stöðu launþega annars vegar og at- vinnurekenda hins vegar.“ Þessar reglur, sem minnst var á í yfirlýsingunni, hafa ekki séð dags- ins Ijós, en báðir aðilar hafa reynt að kynna félagsmönnum sínum hættuna sem fylgir gerviverktaka- starfsemi. Þaft er oráiá þekkt vandamál i nánast öllum atvinnugreinum aá launafólk ráði sig sem „verktaka". komandi að hafa í huga hver staða hans er ef slys eða veikindi ber að höndum, að ekki sé talað um cf viðkomandi stendur uppi atvinnu- laus. N • Á-M-A-N NAMU-NAMSSTYRKIR Landsbanki íslands auglýsir eftir umsóknum um § styrki sem veittir verða NÁMU-félögum 1 Einungis aðilar að NÁMUNNI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, eiga rétt á að sækja um þessa styrki. 2 Allir þeir, sem gerst hafa félagar í NÁMUNNI fyrir 16. mars 1992, eiga rétt á að sækja um þessa styrki. 3. Hver styrkur er að upphæð 150 þúsund krónur. Þeir verða afhentir í apríl 1992 og veittir NÁMU-félögum skv. eftirfarandi flokkun: 2 styrkir til háskólanáms á íslandi, 1 styrkur til náms við framhaldsskóla hérlendis, 1 styrkur til framhaldsnáms er- lendis og 1 styrkur til listnáms. 4. Umsóknum, er tilgreini námsferil, heimilisfang og framtíðaráform, skal skilað til Landsbanka íslands eigi síðar en 16. mars næstkomandi. 5. Umsóknir sendist til: Landsbanki íslands, Markaðssvið, b.t. Ingólfs Guðmundssonar, Austurstræti 11, 155 Reykjavík. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Helgarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.